Af gabb-bloggi og kommentakiller

Enginn HrólfurKommentaði í dag hjá manninum sem er núna í sjötta sæti yfir vinsælustu bloggarana á mbl.is. Hann eyddi kommenti mínu út, eins og það var saklaust.
Gat bara ómögulega skilið hvers vegna fólk fellur í gryfjurnar hans og tryllist yfir skoðunum hans. Hann talar illa um allt, vinstri pólitík, geðfatlaða, herra Ísland, einkamál.is og Ómar Ragnarsson, las ekki lengra. Ég vildi að hann næði því að vera eins og Hrólfur. Ó, ég sakna Hrólfs. Hrólfur bloggaði um fylleríin sín, mömmu sína sem tók til í íbúðinni hans, lánaði honum peninga og keypti hamborgara handa honum þegar hann var þunnur. Hrólfur var hræðilegur og brjálæðislega fyndinn en reyndist vera plat sem tókst svona líka frábærlega vel. Sumir misstu sig á síðunni hans og virtust vorkenna mömmu hans mikið. Svo opinberaði hann sig, án nafns þó, og sagðist bara hafa verið að djóka. Þessi er það líka, nema því miður of nastí í tilraun sinni til að vekja athygli. Ekki leyfa honum að hækka í ykkur blóðþrýstinginn, kæru bloggvinir. Honum tekst líklega ekki að eyða þessarri færslu minni nema hann sé í klíkunni hjá tölvufólki mbl.is. Hér er hann:  http://hrodmar.blog.is/blog/hrodmar/

Einu sinni hélt ég að Jenný megakrútt hefði eytt út kommenti hjá mér. Ég ætlaði að vera rosalega fyndin hjá henni og spurði í kommenti hvort það væri kominn vírus í bloggið hennar þar sem einn alræmdur ofsatrúarbloggari hafði kommentað hjá henni, líklega skammast eitthvað. Þarna hafði ég greinilega gleymt að ýta aftur á send eftir að hafa tengt mig á nýjan leik. Sama bilun og er í gangi núna. Það er svona þegar maður ætlar að vera rosalega fyndinn!

Jamm, annars hefur dagurinn verið ágætur. Ég dett þó sífellt úr tengingu við bloggið mitt og því er ákaflega erfitt að kommenta, ja, bara almennt að blogga. Ég gafst upp eftir Hróðar Véstein. Í kjölfarið datt ég niður í vinnu svona í rólegheitunum á sunnudegi, sem þýðir að ég get slakað á í jólaklippingunni á þriðjudaginn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Guðmundur, ég kíki reglulega, það er ansi seinlegt að skrifa komment hjá elskunum sínum þegar tengingin lætur svona hjá mér. Þetta tengist eitthvað Firefox, held ég. Einhver sagði það einu sinni. Veit ekki hvort það er rétt. K'iki á þig á morgun, er að fara að sofa. Fallegar jólabjöllurnar frá þér, elskan!!!

Guðríður Haraldsdóttir, 10.12.2007 kl. 00:57

2 Smámynd: Steingrímur Helgason

Frægt er að ég bind ekki mitt trúss við verulega vinsæla moggeríisbloggara, þess vegna ert þú til dæmis í miklu uppáhaldi.  (já & jenný, líka  en ekki segja henni frá því ...)

Rétt þegar ég fer að taka Firefox loksins í sátt, verður þú náttúrlega að kenna honum um bloggleti þína...

Back To The Opera...

Mómentinu sem að því verður náð að ég láti aðra bloggara fara í mínar fínustu, eða þá að mitt auma moggeríisbloggerí nær inn á topp 500, þá lofa ég að lágmarki viku fríi frá þeim fína ósið.

Gónó, bloggvenkvennsli.. 

Steingrímur Helgason, 10.12.2007 kl. 01:07

3 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

nei nei það er ekki Firefox, ég er með það forrit og virkar fínt    opera hvað!

Guðrún Jóhannesdóttir, 10.12.2007 kl. 01:12

4 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

kommentaði hjá hróddddmari, sjáum hvort mér verði eytt... :D

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 10.12.2007 kl. 01:20

5 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

hehe ég féll fyrir bragði Hróðmars. hann setti inn komment hjá mér um daginn. Eitthvað skítkast sem fór í taugarnar á mér, svo ég kíkti á síðuna hans. Þegar ég las prófílinn hans var mér allri lokið en kveikti ekki á djókinu. silly me

Jóna Á. Gísladóttir, 10.12.2007 kl. 01:26

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hehe, ég hefði ekki ÞORAÐ að eyða út kommenti hjá þér þó líf mitt hefði legið við Gurrí mín, þannig að ég er saklaus.

Hvaða ódámur er þessi uppsiglingarmaður upp vinsældarlistann?  Djö er hann mikill ruddi.  I´m gonna sue the sob

Jenný Anna Baldursdóttir, 10.12.2007 kl. 01:27

7 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

úúúúúuhúúúuú!!!

Æ vona að það sé ekki draugagangur hérna nálægt mér

Guðrún Jóhannesdóttir, 10.12.2007 kl. 01:27

8 identicon

Hef ekki litið inn á þennan Hróðmar fyrr en núna. Þetta er varla annað en ofkeyrður fíflagangur. Auk þess er enginn Hróðmar Vésteinn (né Hróðmar Vésteinsson) finnanlegur í Íslendingabók. Hægri menn fá líka sitt hjá honum, ef út í það fer, Björn „Bjarnarsson“ litli búbbastrákurinn er mannleysa og svarar ekki flokksbróður sínum ...

H. Magnússon (IP-tala skráð) 10.12.2007 kl. 04:13

9 identicon

Munum eftir vísunni sem byrjar svo:

 "Hossir þú heimskum gikki..."

Gisli Asgeirsson (IP-tala skráð) 10.12.2007 kl. 04:37

10 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Úps, Gísli ... er bara orðin svo leið á Lúkösum, vildi vara ástkæra bloggvini mína við. Svo var ég náttúrlega að reyna að snapa fæting við hann ... djók!!!!!

Held að við ættum að sameinast um að kommenta eitthvað sætt hjá honum á hverjum degi, alveg sama um hvað hann skrifar. Bara setja "Hahahhaha, þú ert svo fyndinn." Eða "Hahahhaah, rétt hjá þér!" og broskarl og hjarta!

Guðríður Haraldsdóttir, 10.12.2007 kl. 07:50

11 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Gleymdi ... ég er komin í bann á síðunni hans. Hann hefur líklega haldið að ég ætlaði að kommenta meira um að hann væri að djóka Ekkert væri fjær mér.

Guðríður Haraldsdóttir, 10.12.2007 kl. 09:04

12 identicon

Þetta er náttúrulega gráupplagt. Köllum hann elsku drenginn og allt slíkt í bak og fyrir.

Gísli Ásgeirsson (IP-tala skráð) 10.12.2007 kl. 09:54

13 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

snjallt, ættum sannarlega að einbeita okkur að því

Guðrún Jóhannesdóttir, 10.12.2007 kl. 10:55

14 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Heheheheheh, æði! Ég ætlaði að gera það áðan en þá komst ég að því að ég er í banni! Argggg

Guðríður Haraldsdóttir, 10.12.2007 kl. 12:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 267
  • Sl. sólarhring: 382
  • Sl. viku: 2229
  • Frá upphafi: 1455932

Annað

  • Innlit í dag: 238
  • Innlit sl. viku: 1839
  • Gestir í dag: 230
  • IP-tölur í dag: 222

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Ástarsaga
  • Sofandi köttur
  • 1. maí fyrir nokkrum árum

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband