13.1.2008 | 14:13
Langsóttur brandari og leiftur úr boldi síðustu viku
Sofnaði bjánalega snemma í gærkvöldi og uppskar enn hallærislegri fótaferðatíma. Líklega verð ég að horfast í augu við að það gengur ekki nógu vel að vera B-manneskja um helgar, eins og ég hef reynt. Ég veit aldrei hvað ég á af mér að gera svona árla morguns, eða 10. Latte og spennubók komu þó sterkt inn.
Mig langar að leiðrétta ákveðinn brandara sem kom fram í Útsvari og var svo langsóttur að það skildi hann enginn nema ég. Dúa dásamlega leyfir bloggvinum sínum nú ekki að gera sig að fíflum þegjandi og hljóðalaust og sagði það sem allir hugsa ...
Þegar spurt var um Gleypni vissi ég ekki svarið, það var alla vega vel geymt inni í afkimum heilans. Máni hvíslaði að okkur að hann héldi að þetta væri Glitnir (eða það heyrðist mér). Ég kannaðist alls ekki við neinn Glitni og hugsaði með mér að það væri bjánalegt að láta virðulegan banka bera nafn fjöturs (skiljanlegra með bílalánsfyrirtæki). Svo kom Vífill símavinur í símann og sagði hátt og skýrt: Gleypnir! Aha, hugsaði ég ... alveg rétt, mundi þá eftir þessu þótt ég hefði ekki getað unnið mér það til lífs að gera það fyrr! Jamm, maður skyldi aldrei reyna að fara í brandarakeppni við alvörufyndið fólk (eins og Ragnhildi). Tek það fram að þetta er ekki í fyrsta sinn sem ég segi brandara sem enginn skilur, ég reyni jafnvel af alefli að útskýra þá þegar fólk starir hissa á mig ... en án árangurs. Vildi sem sagt að þetta kæmi fram, ég vissi ekki svarið ... en er ekki heyrnarlaus!
Heilmargt hefur gerst hjá þeim bólgnu og bráðfallegu. Ungi læknirinn hennar Feliciu er bróðir Hectors, brunakarlsins hennar Taylor! Læknirinn mætir með Hector í grillpartí og hittir Forrester-fólkið. Bróðir hans spyr spurninga um dularfulla sjúkling læknisins og það fyrir framan fólkið sem syrgir Feliciu og veit ekki sannleikann. Sannarlega æsandi fyrir sjónvarpsáhorfendur sem vita allt um málið. Bridget, alveg að springa úr hamingju, sækir Dino litla (minnir að hann sé kallaður það núna) og hefur nokkur orð um hvað hún sé hamingjusöm með þetta barn. Þegar hún kemur með orminn sér læknirinn sér til mikillar skelfingar að þetta er Dominic, barnið sem sat við sjúkrabeð móður sinnar og varð til þess að lífsviljinn kviknaði hjá mömmunni sem lá í kóma. Jamm, fólk deyr greinlega bara úr skorti á lífsvilja. Hann drífur sig á brott, alveg í sjokki, og fer að sjúkrabeði Feliciu. Hann segir Stefaníu (mömmu Feliciu) frá þessu og að það sé rangt að segja ættingjunum ekki að hún sé enn á lífi (hún lifnaði við í sjúkrabílnum). Að þessu sinni telur læknirinn rétt að tala, áður sagði hann Stebbu að það borgaði sig ekki að segja neitt. Stefanía heldur að það borgi sig ekki að segja neitt strax til að láta fólkið ekki ganga í gegnum sorgina oll óver agen ... ef hún deyr sko.
Ridge er brjálaður út í Nick, hálfbróður sinn, og hefur fengið föður þeirra beggja, Massimo, í lið með sér. Massimo finnst að Brooke eigi að vera gift Ridge, þar sem þau eiga RJ litla saman, og heldur með eldri syninum sem hann vissi reyndar ekki af fyrstu c.a. 48 ár Ridge. Jamm, Ridge er fæddur 1952, alla vega leikarinn. Nú eru Nick og Brooke stödd á eyju, fóru á skútunni og tóku Hope litlu og RJ litla með. Ég fór að slefa úr leiðindum þegar Nick sýndi hvað hann er ofboðslega góður maður með því að syngja og spila á gítar fyrir börnin, það var skelfilegt, hræðilegt ... Eitt verð ég að segja. Hann Dominic litli horfir stundum í myndavélina, brosir út í loftið og þýðist illa meinta foreldra sína og ættingja. Það hlýtur að vera hægt að finna annað átta mánaða gamalt barn sem leikur betur.
Svo missti ég af boldinu á föstudaginn vegna anna, sorrí. Held þó að ekkert markvert hafi gerst sem ekki er hægt að vinna upp í komandi viku.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Sjónvarp, Vinir og fjölskylda | Facebook
Um bloggið
Sögur úr himnaríki
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 171
- Sl. sólarhring: 339
- Sl. viku: 863
- Frá upphafi: 1505870
Annað
- Innlit í dag: 137
- Innlit sl. viku: 703
- Gestir í dag: 132
- IP-tölur í dag: 128
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Þröstur Unnar
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Helga Magnúsdóttir
- Fjóla Æ.
- Sumarbúðirnar Ævintýraland
- Jóna Á. Gísladóttir
- Steingerður Steinarsdóttir
- Bertha Sigmundsdóttir
- Svava S. Steinars
- Guðrún Jóhannesdóttir
- Vésteinn Valgarðsson
- Heiða B. Heiðars
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jens Guð
- www.zordis.com
- Elín Arnar
- Andrés.si
- Vefritid
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Saumakonan
- Laufey B Waage
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- krossgata
- Kristján B. Jónasson
- percy B. Stefánsson
- Ólafur fannberg
- gua
- Anna Gísladóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Jón Svavarsson
- Brynjar Svansson
- Gyða Dröfn Tryggvadóttir
- Gunna-Polly
- Hólmgeir Karlsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Svala Jónsdóttir
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Eva Þorsteinsdóttir
- Hrönn Sigurðardóttir
- halkatla
- Guðný M
- Einar Vignir Einarsson
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Þóra Guðmundsdóttir
- Inga Dagný Eydal
- Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Birna Mjöll Atladóttir
- Ingibjörg R Þengilsdóttir
- Hrólfur Guðmundsson
- Halla Rut
- Brynja Hjaltadóttir
- Eyþór Árnason
- Guðrún Vala Elísdóttir
- The baristas
- Helgi Már Barðason
- Eydís Rós Eyglóardóttir
- Guðný Jóhannesdóttir
- Ásta Kristín Norrman
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Kolgrima
- Huld S. Ringsted
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- HAKMO
- Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
- Bradshaw
- Kolbrún Baldursdóttir
- Ásta Björk Solis
- Margrét Guðjónsdóttir
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Rebbý
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Markús frá Djúpalæk
- Bogi Jónsson
- Alheimurinn
- Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
- Svala Erlendsdóttir
- Kokkurinn Ógurlegi
- Binnan
- Daníel Halldór
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Linda Lea Bogadóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Fiðrildi
- Valgeir Ómar Jónsson
- lady
- Toby
- Vera Knútsdóttir
- Ragnar Páll Ólafsson
- Sverrir Stormsker
- Valdís Rán Samúelsdóttir
- Kej
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Alexander Már Benediktsson
- Alfreð Símonarson
- Birna Dís
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Janus
- Tinna Gunnarsdóttir Gígja
- Eyrún Inga Þórólfsdóttir
- Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- Þóra Sigurðardóttir
- gudni.is
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Sigurður Axel Hannesson
- Inga Helgadóttir
- Kjartan Pálmarsson
- Hlynur Hallsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sif Traustadóttir
- Maddý
- Turetta Stefanía Tuborg
- Gúrkan
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Ólöf María Brynjarsdóttir
- Tiger
- Hdora
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Brynja skordal
- Edda Agnarsdóttir
- Helga skjol
- Mummi Guð
- Kristín Einarsdóttir
- Guðbjörg Ottósdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Linda
- Gylfi Guðmundsson
- Handtöskuserían
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Júdas
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Sigurbrandur Jakobsson
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- Álfheiður Sverrisdóttir
- Kjartan Magnússon
- Bylgja Hafþórsdóttir
- Vertu með á nótunum
- Marilyn
- Anna Mae Cathcart-Jones
- Söngfuglinn
- Dísa Gunnlaugsdóttir
- Ónefnd
- Ásta
- leyla
- Þórður Helgi Þórðarson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Laufey Ólafsdóttir
- Einar Indriðason
- Gísli Tryggvason
- Lilja G. Bolladóttir
- Þorsteinn Briem
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Ragnheiður Ástvaldsdóttir
- Eygló Sara
- I. Hulda T. Markhus
- Himmalingur
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Aprílrós
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Svetlana
- Sigríður Guðnadóttir
- Andrea
- Jón Þór Bjarnason
- Inga Sig
- Sigríður Inga Sigurðardóttir
- Einar Örn Einarsson
- Heiður Helgadóttir
- Guðrún Ágústa Einarsdóttir
- Stella Jórunn A Levy
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Perla
- Ingi Thor Jónsson
- Sigríður Þórarinsdóttir
- Vinir Tíbets
- Pálmi Guðmundsson
- cakedecoideas
- Bwahahaha...
- Bullukolla
- Jónas Sen
- Hildigunnur Rúnarsdóttir
- Renata
- Mamma
- Bergljót Hreinsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Letilufsa
- Sigrún Jónsdóttir
- Adolf Friðriksson
- Björgvin R. Leifsson
- Brúðurin
- Guðrún Eggertsdóttir
- Kristín Bjarnadóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Methúsalem Þórisson
- Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Athugasemdir
Ég er ekki með Stöð 2 en ég held að ég geti bara fylgst með Boldinu í gegnum bloggið þitt í staðinn
Bryndís R (IP-tala skráð) 13.1.2008 kl. 14:32
kvitt-búin að lesa
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 13.1.2008 kl. 14:39
Hvað er B -manneskja ?
Þorsteinn Ingimarsson (IP-tala skráð) 13.1.2008 kl. 15:23
B-manneskja fer seint að sofa og vaknar seint, öfugt við A-manneskju. Virka daga er ég A, vakna ég upp úr kl. 6 og fer yfirleitt að sofa fyrir miðnætti ... nýt þess svo í tætlur að vera óþekk B-manneskja um helgar en það tókst ekki í gærkvöldi. Kannski sem betur fer ... stundum erfitt að snúa þessu við á mánudagsmorgnum.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 13.1.2008 kl. 15:34
ÉG er B-manneskja, hef alltaf verið það og ætla alltaf að vera það. Samt sem áður hef ég svo mikla sjálfsstjórn að þegar ég þarf og á að vakna fer ég á fætur þó svo að um miðja nótt sé og svo legg ég mig bara þegar ég get. T.d. ef ég þarf til læknis eða eitthvað mjööög snemma dags t.d. 10 :):) þá legg ég mig aftur þegar ég kem heim og tekur bar korter að sofna. Þegar ég vakna svo eftir það er ég búin að tvínýta daginn, þannig að sumar vikur hjá mér innihalda 10 daga. Þú ert yndisleg með þinn húmor svo má ekki gleyma því að þú varst lang fallegust þetta kvöld.
Ásdís Sigurðardóttir, 13.1.2008 kl. 16:39
Guðrún Jóhannesdóttir, 13.1.2008 kl. 16:51
Manstu nokkuð hvað gerðist í Bold-þætti númer 1542,vantar endilega að vita það.
jensen (IP-tala skráð) 13.1.2008 kl. 21:33
Hoppaðu, Jensen!!! Þú veist að ég fórna mér algjörlega fyrir bloggvinina og horfi á þessa þætti með hryllingi og skelfingu! Skrifa um þátt 1542 fljótlega fyrst þú baðst um það, þú veist að ég geri allt fyrir my blogfriends ...
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 13.1.2008 kl. 22:24
Veistu það Gurrí,að þú ert bara YNDISLEG.Ég meina það.
Jensen (IP-tala skráð) 14.1.2008 kl. 20:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.