Sjónvarp, spákonur og sjóferðir ...

50 first datesSenn rennur upp skemmtilegasta sjónvarpskvöld vikunnar ... Glæpurinn, Pressa og lokaþáttur lögfræðidramans. Möguleikar seinkaðrar dagskrár verða nýttir til fullnustu þar sem um tvær stöðvar er að ræða. Þori ekki einu sinni að athuga hvað er á SkjáEinum. Í gærkvöldi hlógum við erfðaprins yfir 50 First Dates í örugglega 50. skiptið en þetta er voða sæt og skemmtileg mynd. Langaði líka að horfa á Draumagildru Stephens King í þriðja sinn en syfjan bara mig ofurliði, well, það er reyndar ekkert voða langt síðan ég sá hana og bókina las ég líka þegar hún kom út. RÚV hafði algjörlega vinninginn þetta laugardagskvöldið í kvikmyndavalinu.

Maturinn hjá Míu bragðaðist stórkostlega í gærkvöldi og ég dó ekki þótt sonur hennar, björgunarsveitarmaðurinn, hafi sett dass af hnetuolíu yfir salatið. Ég hata hnetur. Hann hefur kannski vonast til þess að geta bjargað frænku sem heldur því fram að hún hafi ofnæmi.

Ekki finnst mér töframannaþátturinn á Stöð 2 skemmtilegur, finnst lítið til alls slíks koma síðan ég heillaðist af Skara skrípó-sjóinu í Loftkastalanum um árið. Þátturinn rúllar í endursýningu núna og ýmsir falla í trans á dramatískan hátt til að sanna mál sitt ... sem minnir mig á ....

SpákonaÍ kaffiboðinu í gær spjölluðum við kerlur aðeins um spákonur, höfðum bæði blekkinga- og furðusögur að segja. Ein fór til spákonu fyrir mörgum, mörgum árum og kunningjakona hennar líka. Dætur þeirra voru þá í menntaskóla. Well, spákonan sagði báðum mæðrunum að þær ættu að ráðleggja stelpunum að hætta í skóla, þær fyndu svo miklu meiri hamingju á almennum vinnumarkaði! Ekki datt mæðrunum í hug að taka mark á þessu, sem betur fer. Báðar eru stúlkurnar langskólagengnar í dag og víst alveg ágætlega hamingjusamar þrátt fyrir það. Önnur þeirra  þjáðist reyndar af tímabundnum námsleiða akkúrat á þessum tíma ... og hefði kannski hætt í skóla ef mamma hennar hefði farið að ráðum spákonunnar og hvatt hana til þess. Urrrrrr! Það er mikill ábyrgðarhluti að gefa sig út fyrir að spá fyrir fólki!

Mér fannst voða gaman að fara til spákvenna í gamla daga en minnist þess nú ekki að þær hafi ráðlagt mér svona afgerandi hluti. Þær töluðu frekar um hávaxna, dökkhærða menn og sjóferðir, eitthvað slíkt sem rómantískt ungmeyjarhjartað þráði að heyra. Með hækkandi aldri og minnkandi séns finnst mér ekki taka því að fara til spákonu ... bara til að heyra að að ég rugli saman reytunum við indælan mann, sem var einu sinni hávaxinn og dökkhærður og að við förum í siglingu á skemmtiferðarskipi um Karíbahafið. Eins og lífið sé bara karlar og sjóferðir. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Segðu, lífið getur verið eitthvað alt annað.  Ég hlakka líka rosalega til kvöldsins, allt að gerast í kassanum.  Ég lét þetta Phenomen rúlla hjá mér í dag, hef ekki séð það áður, fékk alvg grænar þegar gaurinn fór í trans, var ekki viss hvort hann væri að feika fullnægjingu eða hvað, þvílíkt bull og svo smá slagsmál á eftir, lélegt handrit. Skemmtu þér vel í kvöld og samkvæmt veðurspánni er bara kalt á morgun og lítill vindur, passaðu þig bara á hálkunni ef þú ert með Ást, annars sér Tommi um þetta ef þú tekur strætó.   Bus 

Ásdís Sigurðardóttir, 13.1.2008 kl. 18:10

2 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Takk, elskan. Missti af slagsmálunum (sjittt) ... já, það er frekar kalt í himnaríki núna, mín bara í ullarsokkum. Það yrði ósköp notalegt ef Ásta yrði á bíl í fyrramálið en strætóferðir eru líka skemmtilegar. Tommi myndi þá hlýja mér (með miðstöðina á hæsta).

Guðríður Haraldsdóttir, 13.1.2008 kl. 18:17

3 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Alltaf ertu jafn hógvær og nægjusöm Guðríður min, lætur þér nægja já það sem til gefst hverju sinni, þó draumar um Eið og Albert prins geri vart við sig kannski einu sinni í viku!?

Mér finndist nú samt að þú ættir að íhuga að þiggja boð Þrastar Unnars sveitunga þíns, ef hann drattast einhvern tíman til að bjóða þér í Karabíska hafið!

Magnús Geir Guðmundsson, 13.1.2008 kl. 19:01

4 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Ég hef víst sagt þér það áður að samkvæmt spákonum fylgir mér lágvaxin kona sem ég er skírð í höfuðið á. Ég var skírð eftir skáldsagnapersónu og í minni ætt fyrirfinnast engar lágvaxnar konur. Hver þessi dvergur í peysufötunum er þætti mér gaman að vita.

Steingerður Steinarsdóttir, 13.1.2008 kl. 19:40

5 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Ekki tala við mig um góða sjónvarpsdagskrá..höfum ekki haft sjónvarp síðan á föstudagsmorgun en þá bilaði eitthvað hjá Símanum og tæknimenn ekki til staðar fyrr en á virkum degi og þá tekur það einn til 3 daga að fá viðgert...huhuhu!!! Við fjölskyldan sitjum bara hér og kveðumst á og prjónum nokkra ullar sokka. Nói sagði líka íslenskan brandara sem getur flokkast undir íslenska fyndni...

Er ekki bara kurteisi að hafa tæknimenn á vöktum um helgar..ha?

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 13.1.2008 kl. 20:13

6 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

Katrín, það á bara  EKKI að bila um helgar, það er málið

spákonur! ja þær geta nú svo sem alveg hitt naglann á höfuðið,STUNDUM. Reyndar hef ég ekki hitt minn dökkhærða ennþá, né séð nokkurn sem passar við nærri 40 ára gamla lýsinguna kannski þeir séu i dag annað hvort gráhærðir eða sköllóttir en þeir voru það allavega EKKI þá

Guðrún Jóhannesdóttir, 13.1.2008 kl. 20:59

7 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Þegar ég var 15 ára sagði spákona mér að ég myndi giftast hávöxnum, dökkhærðum manni í úniformi. Skipstjóri eða flugstjóri, sagði hún ákveðin.

Þeir hafa nú ekkert þvælst fyrir mér um ævina, karlmennirnir.

Til að kóróna vitleysuna sagði hún mér að þegar maðurinn minn væri í burtu, sem væri auðvitað æði oft, af því að hann væri jú flugstjóri eða skipstjóri, þá væri mikill glasaglaumur og margir karlmenn í kringum mig.

Ég átti sem sagt að vera full í framhjáhaldi alla daga.

Já, það er ábyrgðarhluti að spá svona fyrir óhörðnuðum unglingum

Ragnhildur Sverrisdóttir, 13.1.2008 kl. 23:20

8 identicon

Stóðst ekki mátið að blanda mér eilítið í þessa umræðu.
Rétt hjá þér Magnús, hún ætti svo sannarlega að bregða sér í siglingu í Karabíska frökenin. Undirritaður er einn af þeim sem nýkominn er þaðan með spúsu sinni og það er algjört ævintýri, svo ekki sé meira sagt.
Þegar maður kemur á hótelin í landi eftir svona ferð og dekur, þá finnst manni þjónusta og aðbúnaður næstum í slappasta lagi hjá þeim.
Get staðfest að slíkar sjóferðir krydda lífið mikið fröken Guðríður. Og því má segja að lífið sé einmitt karlar og sjóferðir eins og spákonurnar sögðu, eða eftir atvikum, konur og sjóferðir. Mæli eindregið með slíkum "uppábrotum"
á vegferð lífsins. Trúðu þeim spádómum.

Lesandi (IP-tala skráð) 13.1.2008 kl. 23:48

9 Smámynd: Adda bloggar

innlitskveðja frá öddu og kristófer litla.

Adda bloggar, 14.1.2008 kl. 00:39

10 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

einmitt lífið er meira en karlar og sjóferðir.......

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 14.1.2008 kl. 00:51

11 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Karíbahaf, Lesandi, eins og Gurrí skrifar.

Nema þið viljið líka fara að tala um Atlantíska hafið... :p

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 14.1.2008 kl. 10:47

12 Smámynd: Linda Lea Bogadóttir

takk fyrir uppdate af bóld... Nú fyrst finnst mér þetta skemmtilega sápa...

Linda Lea Bogadóttir, 14.1.2008 kl. 14:16

13 Smámynd: Guðbjörg Hildur Kolbeins

Þú ættir að segja lesendum frá spákonunni í New York sem við fórum til um árið.

Guðbjörg Hildur Kolbeins, 14.1.2008 kl. 15:16

14 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Já, Guðbjörg, sú var kræf, held að ekkert hafi ræst af því sem hún sagði við mig ... enda sagði hún að líf mitt yrði hryllingur ef ég borgaði henni ekki meiri pening. Þarf að rifja upp þá sögu og skella á bloggið.

Guðríður Haraldsdóttir, 14.1.2008 kl. 15:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 589
  • Sl. viku: 2452
  • Frá upphafi: 1457321

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 2038
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Elsku Tommi
  • Elsku Tommi
  • Mamma hjúkka

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband