Konudagur, kvikmyndir og happadagur James Bond

KonudagurinnÍ tilefni þess að konudagurinn verður á morgun langar mig að sýna ykkur skemmtilegt myndband sem gleður vonandi hvert konuhjarta og eflaust mörg karlahjörtun líka. Ekki á ég nú von á neinum gámum af gjöfum á morgun. Mér var kannski nær að leggja ekki harðar að mér við að ganga út. Þótt ég hafi slakað heilmikið á kröfum þarf gæinn að líta út eins og grískur guð, vera forríkur og skemmtilegur með frábæran húmor, svo fátt eitt sé talið ... en hommar hafa hingað til ekki litið við mér nema með vináttu í huga. Skák og mát!
http://kvikmynd.is/video.asp?land=&offset=0&id=5472

Í kvöld ætla ég í Hótel Glym að taka þátt í Fóðri og fjöri. Inga vinkona kemur líka, ásamt syni sínum. Erfðaprinsinn nennir ekki, enda bíða hans gómsætir afgangar af góða matnum sem ég eldaði í gærkvöldi. Slappleikinn hefur svo sem ekki eingöngu hrjáð virðulega móður hans. Ég vann heima alla vikuna nema mánudag og komst að þeirri niðurstöðu að ég myndi ekki nenna slíku. Fínt að vera heima á þriðjudögum, það er alveg nóg.

butterflyonawheelSnemma kvölds í gær horfðum við á DVD og sáum mynd sem heitir Butterfly on a Wheel. Spennumynd um hjón sem lenda í hrikalegum hremmingum þegar maður nokkur rænir dóttur þeirra og virðist stefna að því að eyðileggja líf þeirra á allan hátt. Þetta var flott mynd með óvæntum endi! Pierce Brosnan leikur vonda karlinn. Bondinn sjálfur.

Ian FlemingFróðleiksmoli: Ian Fleming, höfundur James Bond-bókanna lést, 12. ágúst 1964 (á sex ára afmælisdaginn minn) og þann sama dag yfirgaf Pierce Brosnan Írland og hélt til Hollywood þar sem hann ætlaði sér stóra hluti. Þessi dagur greinilega happadagur (nema kannski fyrir Ian Fleming). Allir vita hvernig Pierce vegnaði og sumum finnst hann sætasti Bondinn frá upphafi.

 ------  ----------  ----------  ----------  ---------------  --------------  -----

P.s. Fyrir alla góða rokkara, konur sem karla, kemur hér líka gamalt uppáhaldslag sem þarf að spila hátt: http://www.youtube.com/watch?v=6f1tryv1588


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

 Surprise   Ó mæ god, þetta var nú aldeilis mikil nekt, too much for me. Mér finnst karlmenn aldrei heillandi svona létt klæddir innan um marga. Já, ég veit ég ER skrítin.  12. ágúst er flottur dagur ekki spurning. Gott að heilsan er að komast í lag. Þú hefðir örugglega orðið Bond gella ef þú hefðir fæðst í Hollywood.  Njóttu matarins og alls þess.  Sendi þér hér með blóm.

Ásdís Sigurðardóttir, 23.2.2008 kl. 17:38

2 Smámynd: Tiger

  Alveg klikkað myndband. Skil ekki  hvernig fólk þorir að gera svona eitthvað sem er ekki alveg að falla inn í umhverfið.. muhahaha!

Skil þig með að geta ekki unnið heima of lengi, maður þarf líka að komast út á meðal fólks - þó ekki sé nema bara í vinnuna... Eigðu góða helgi Gurrí og kveðjur uppá Skaga.

  

Tiger, 23.2.2008 kl. 17:40

3 Smámynd: Adda bloggar

Myspace Glitter Graphics, MySpace Graphics, Glitter GraphicsMyspace Glitter Graphics, MySpace Graphics, Glitter GraphicsMyspace Glitter Graphics, MySpace Graphics, Glitter GraphicsMyspace Glitter Graphics, MySpace Graphics, Glitter GraphicsMyspace Glitter Graphics, MySpace Graphics, Glitter GraphicsMyspace Glitter Graphics, MySpace Graphics, Glitter Graphics Myspace Glitter Graphics, MySpace Graphics, Glitter GraphicsMyspace Glitter Graphics, MySpace Graphics, Glitter GraphicsMyspace Glitter Graphics, MySpace Graphics, Glitter Graphics Myspace Glitter Graphics, MySpace Graphics, Glitter GraphicsMyspace Glitter Graphics, MySpace Graphics, Glitter GraphicsMyspace Glitter Graphics, MySpace Graphics, Glitter GraphicsMyspace Glitter Graphics, MySpace Graphics, Glitter Graphics

Adda bloggar, 23.2.2008 kl. 18:20

4 Smámynd: Tiger

  Sunnudagur 24 byrjaður, til hamingju með konudaginn Gurrí.

Tiger, 24.2.2008 kl. 00:45

5 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Takk fyrir blómin, Tigercopper og Ásdís. Ekki kann ég að búa til svona flotta broskarla, þarf ekki kjarneðlisfræðingspróf til þess? Eða svona flott eins og Adda gerir. Þið eruð greinilega svona tölvunördar ... hehehhe

Guðríður Haraldsdóttir, 24.2.2008 kl. 00:51

6 Smámynd: Laufey B Waage

Þú ert nú meiri kellingin. Ég sem tók áhættuna og leyfði mínum heittelskaða að borða á Hótel Glym í kvöld. - Hélt að ekkert hættulegt tálkvendi yrði á staðnum, þar sem þú hafðir tilkynnt hér á síðunni að þú færir hvergi. Svo bara hringi minn elskulegi og segist hafa setið til borðs með þér í allt kvöld. Ég verð greinilega að fara með honum næst (gat bara ekki hugsað mér að sleppa Þursunum).

Laufey B Waage, 24.2.2008 kl. 01:05

7 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Ja, hérna hvað heimurinn er lítill! Maðurinn þinn var alveg frábær borðherra, hann og Rúnar (sonur Ingu vinkonu) voru reyndar borðherrar fjögurra glæsikvenda og stóðu sig eins og hetjur. Held að þeir hafi sloppið tiltölulega óskaddaðir frá því. Þetta var stórkostlegt kvöld og maturinn einstaklega góður, allir sex réttirnir. Hefði líka verið til í að sjá Þursana, ég elska þá, finnst þeir ein besta hljómsveit sem Ísland hefur átt! Ég er bara orðin svo hrikalega löt við tónleikaferðir eftir að ég flutti á Skagann. Ég er enn pakkkkkksödd, enda sátum við í þrjá tíma yfir matnum. Flottir gestakokkar frá Noregi, tvær konur og svona líka klárar!

Skilaðu kærri kveðju til mannsins þíns með þökk fyrir skemmtilega kvöldstund ... takk fyrir lánið.

Guðríður Haraldsdóttir, 24.2.2008 kl. 01:20

8 Smámynd: Laufey B Waage

Skila því. Já það er satt, hann er frábær borðherra. Það er yndislegt að eiga svona mann til að fara með út að borða - og bara njóta lífsins með. Gott að heyra að þú hafðir heilsu til að fara  - og njóta.

Laufey B Waage, 24.2.2008 kl. 01:26

9 Smámynd: Laufey Ólafsdóttir

Takk fyrir Laugavegsmanninn ...og Queens of the Stone Age, sem reyndar hefði verið gott þemalag þarna niður Laugaveginn.

Kannski hefði Pierce Brosnan aldrei orðið Bond hefði Ian Fleming lifað lengur. Hvur veit? 12. ágúst greinilega örlagadagur mikill

Gleðilegan konudag GurrÍ! (Sko, búin að ná þessu) Sendi þér huglægan blómvönd sem þú þarft hvorki að setja í vatn, né muna eftir að henda og þú mátt alveg ráða stærð og litasamsetningu.

Laufey Ólafsdóttir, 24.2.2008 kl. 03:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 350
  • Sl. sólarhring: 425
  • Sl. viku: 1374
  • Frá upphafi: 1459445

Annað

  • Innlit í dag: 256
  • Innlit sl. viku: 1117
  • Gestir í dag: 243
  • IP-tölur í dag: 238

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 12. ágúst sko
  • Nöfn
  • Skvasssss

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband