Hafið, heilbrigðiskerfið, matur og bókmenntir ...

Sjórinn í stuði feb 2008Sjórinn hefur verið afar fallegur í gær og í dag. Sæmilega voldugar öldur sem þó hafa ekki lokkað olíuborna, vöðvastælta brimbrettamenn hingað á Langasandinn. Skrýtið!
Fuglarnir stríða Kubbi og Tomma út í eitt, flögra í stórum hópum, stefna kannski beint á glugga himnaríkis en beygja á síðustu stundu og setjast á þakið. Borga þeim í brauði fyrir skemmtunina.

Röntgenmyndatakan gekk vel í morgun og ég fór ekkert að gráta ... þegar ég fékk reikninginn. Eftir hryllingssögur af sjálfstæðum læknastofum þar sem fólk borgar 20.000 fyrir aðgerð og er fleygt út um leið og það getur staulast á fætur býst maður við öllu illu. Ekki hér á Skaga. Tók innanbæjarstrætó báðar leiðir og fer ekki ofan af því að fólk er farið að nýta sér hann miklu meira núna en það gerði fyrir tveimur árum þegar ég flutti hingað.  

Fóður og fjörNú er elsku „Fóður og fjör“ farið á fullt og hafa undanfarnar helgar, seinnipartar og kvöld verið frekar undirlögð af þessu skemmtilega verkefni (að gera Fóður og fjör sýnilegt). Ég hef verið í sambandi við nokkra af þessum elskum, hótelum og veitingastöðum á landsbyggðinni, og get ekki beðið eftir því að bíll erfðaprinsins komist í lag til að rjúka út á land, hitta þá og borða eitthvað ... hollt, að sjálfsögðu! Ég hvet alla bloggvini mína á landsbyggðinni til að nýta þetta frábæra tækifæri til að lífga upp á skammdegið. Food & Fun í Reykjavík er æðisleg hátíð en alls staðar þar er allt upppantað með löngum fyrirvara og þannig hefur það verið síðustu árin. Ég var búin að lofa erfðaprinsinum að bjóða honum í mat um helgina á Hótel Hamar eða Landnámssetrið í Borgarnesi eða Hótel Glym í Hvalfirði en það verður að bíða. Vonandi tekur Galito hér á Skaganum þátt á næsta ári! Vér Skagamenn kunnum að meta svonalagað!!!

Brother Odd bókinByrjaði á Brother Odd-bókinni á meðan ég beið eftir að komast í myndatökuna og hún virkar bæði ógnvekjandi og hryllileg ... eins og hún á að gera. Svona hryllingsbækur nenni ég að lesa á ensku, annað vil ég helst hafa á ástkæra, ylhýra móðurmálinu. Held að ég sé búin að lesa flestar bækur Dean Koontz og dáist innilega að hugmyndaflugi hans, sama segi ég um Stephen King. Var kannski frekar óheppin með fyrstu Stephen King-bókina, Gæludýrakirkjugarðinn, hún var soldið ógeðsleg.  Lánaði einu sinni Kollu Bergþórs bókina The Dark Half eftir hann, bók sem ég var reyndar ekki búin að lesa sjálf, og henni fannst hún svo ógeðsleg að hún fleygði henni, búin að gleyma að hún átti hana ekki sjálf. Tók mark á Kollu og hef ekki reynt að nálgast þessa bók, harðneitaði að taka við skaðabótum frá henni, fannst eins og hún hefði unnið hálfgert skítverk fyrir mig með því að lesa hana


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

Hefði náttúrulea getað skutlað þér heim, eftir mína heimsókn til  doksa, fattaði bara ekki að bjóða það þegar við mættumst á tröppunum, þú hefðir þurft að hinkra í svona 20 mín mesta lagi.

Þegar brimbrettagaurarnir fara að birtast, þá kaupi ég mér miða í stúku í himnaríki með kíki og skoða hohohohohoholdið

Guðrún Jóhannesdóttir, 22.2.2008 kl. 12:51

2 identicon

 

Knús til þín og takk fyrir sendinguna í gær. Vonandi finnst ekkert á mynd og að þú sért við bestu heilsu.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 22.2.2008 kl. 12:59

3 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Allt í fína, Guðrún mín, strætó kom 23 sekúndum seinna, lagði ekki í að labba heim í kuldanum þótt þetta sé ekki langt. Takk fyrir hugulsemina.

Mín var ánægjan, elsku Birna mín. Þú átt sko ekkert nema allt það allra besta skilið, hetjan mín. Vona að þú kíkir á mig í himnaríki einhvern daginn. Ég næstum lofa brimbrettagæjum fyrir neðan, alla vega skokkurum. 

Guðríður Haraldsdóttir, 22.2.2008 kl. 13:13

4 Smámynd: Ragnheiður

Undarlegt með okkur, ég les einmitt ákveðnar bókmenntir á ensku. Nennirðu að kíkja í Íslendingabók og gá hvort við séum skyldar, nú ef ekki þá geturðu gáð hvort þú ert skyld systur minni  hún er eins hehe

Ragnheiður , 22.2.2008 kl. 14:08

5 Smámynd: Laufey B Waage

Mæli með matnum á Hótel Glym. Hann er alltaf góður. Láttu þér batna fljótt og vel.

Laufey B Waage, 22.2.2008 kl. 14:36

6 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Það er verst að þú ert lasin Gurrý mín, ertu búin að vera lengi heima?

En bókin hlýtur að halda þér við, ég tala nú ekki um brimbretta gæana frá BNA sem koma stundum og reyna við Langasandssjó!

Tek undir það að alltaf hef ég fengið góðan viðurgjörning á Hótel Glymi! Bið að heilsa Hansínu.

Edda Agnarsdóttir, 22.2.2008 kl. 15:04

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Segi nú eins og þú með bækurnar, sumt les maður bara á frummálinu.  Vona að helgin verði ljúf og góð og þú náir að njóta hennar. Dean Koonzt hefur aldrei átt upp á pallborðið hjá mér, er búin að lesa 3 en næ honum ekki.  Helgarkveðja á Skagann   Heart Glasses  Heart Glasses

Ásdís Sigurðardóttir, 22.2.2008 kl. 19:22

8 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Ragnheiður, við erum sjöundi og áttundi ... komnar af Guðrúnu! Náskyldar sem sagt, hehehe!

Já, ég borðaði kjúkling á Glym fyrir nokkrum vikum, Edda og Laufey, og það var algjör dýrð. Svo bloggaði ég einu sinni um leikhúsferð og mat á Landnámssetrinu og það var líka algjör snilld.  

Ásdís, þú hefur örugglega lesið þrjár hundleiðinlegar eftir hann, Koontz er mistækur eins og aðrir og ein versta bók sem ég hef lesið er einmitt eftir hann, Demon Seed, um tölvu með svo mikla gervigreind að hún varð ástfangin af konu, læsti hana inni í húsi hennar og ætlaði að barna/tölva hana. Á sjöunda áratugnum (held ég) var gerð skelfileg mynd eftir þessu bulli. Bækurnar um Odd Thomas, alla vega þessar tvær fyrstu, er fínar, og sú þriðja lofar góðu. Helgarkveðja til þín á móti og auðvitað allra hinna.

Guðríður Haraldsdóttir, 22.2.2008 kl. 19:53

9 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Heyrðu gurrí, talandi um þessar amerisku bókmenntir og kvikmyndir gerðar eftir þeim, ég man eftir myndinni með fallegu leikonunni þarna, bara dottið úr mér hvað hún heitir arrrrg! Búin að gleyma hvort ég sá hins vegar myndina eftir Pet Senetary, nema hvað sú frábæra goðsagnapönksveit The Ramones sömdu titillagið fyrir myndina, ofboðslega flott lag og grípandi eins og svo mörg með þeim!

Viðlagið byrjar svona, I don't wanna be burried in a Pet Senetary trallalallala!

oooh, enn að reyna að muna nafnið á leikkonunni, gott ef hún er ekki bresk, en freistaði svo lengst af gæfunnar í Hollywood, eins og þær sumar gerðu með misjöfnum árangri samanber Liz Taylor og Joan Collins!(var það ekki hún annars sem lék í Dynastydraslinu þarna? Minnir það)

Magnús Geir Guðmundsson, 22.2.2008 kl. 21:40

10 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Þarna misstir þú af miklu Gurrí min..að geta gramsað í þig gómsætum réttum með gómsætum eiginmanni mínum á Glymi í kvöld....Hann kom heim saddur!!!! Hefði eflaust verið saddari og sælli að hafa hitt þig ef þú hefðir verið þar OG borið mér kveðju þína knúsan mín.

Við hyggjumst á sveitaferð sooon. Very Soon.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 23.2.2008 kl. 00:26

11 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Bestu kveðjur og góða helgiBig Hug

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 23.2.2008 kl. 10:53

12 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Veistu Katrín ... stundum rætast óskir og í kvöld fer ég á Hótel Glym. Hansína vill endilega fá okkur erfðaprins og ætlar að láta sækja okkur og skutla heim pakksöddum. Mikið hlakka ég til að fá ykkur í himnaríki, vonandi sem allra fyrst.

Guðríður Haraldsdóttir, 23.2.2008 kl. 14:39

13 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Man þetta núna, Julie Christie lék gelluna þarna í Demon Seed eða hvað sagan nú hét.

Og já, Hansína Einarsdóttir er merkileg kona!

Magnús Geir Guðmundsson, 24.2.2008 kl. 01:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 434
  • Sl. sólarhring: 483
  • Sl. viku: 2150
  • Frá upphafi: 1454730

Annað

  • Innlit í dag: 346
  • Innlit sl. viku: 1780
  • Gestir í dag: 329
  • IP-tölur í dag: 321

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Bakklóra
  • Snorri og Patrik
  • Vifta

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband