Kaldranalegheit, björgun og sölumannsstríð vegna stóls ...

StórhríðFremur kaldranalegt var að koma út í morgun en mun kaldranalegra hefur verið að koma út í Kaldrananesi í Kaldrananeshreppi, ég huggaði mig við það. Ekki lagaðist veðrið á leiðinni með Gumma í strætó, heldur versnaði, nú fór þetta hvíta að fjúka um allt, næstum því í skafrenning.

Engin Erla var í strætó svo að ég ákvað að taka 15 alla leið í Ártún hoppa niður (milljóntröppur), upp (lúmsku brekkuna) og taka leið 18 í vinnuna. Bílstjórinn á 18 var mjög laglegur en ekki sérlega gáfaður ... hann ók framhjá stoppistöðinni minni  án nokkurrar miskunnar og samt var ég búin að hringja og alla vega þrír aðrir voru staðnir upp, héldu í stöngina og biðu eftir að komast út. Strætó hélt bara áfram að keyra og keyra ... Þegar hann loksins stoppaði, eftir að við grátbáðum hann um það, vorum við komin svo langt upp í sveit að gangstéttirnar þar eru aldrei mokaðar. Við gengum því nokkur saman, steinþegjandi og kúl, á götunni áleiðis að vinnunni. Bíll sem kom á móti okkur tók stóran sveig, þessi elska, en næsti bíll (jeppi) neitaði að færa sig og nú voru góð ráð dýr. Ekki var sjéns að komast upp á gangstéttina akkúrat þarna en ungi maðurinn sem gekk aðeins fyrir aftan mig hafði haft vit á því að fara upp á hana á betri stað, aðeins fyrr. Hann sá vandræði minn, hættulega jeppann sem nálgaðist skjótt og grimmdarlega, rétti hönd sína út á götuna og ég gat vippað mér upp á gangstétt. Það var svo hált að ég hefði ekki komist upp, líklega bara runnið undir grimma jeppann, þessu nema taka í styrka hönd ... herramannsins unga sem ég tók eftir að er greinilega samstarfsmaður minn þar sem hann gekk inn um sömu dyr og ég. 

TímasprengjaSvo er spáð vitlausu veðri seinnipartinn eða í kvöld. Það er ekkert lát á ævintýrunum! Það var svo ekki allt búið enn, kvöldsölumaðurinn kvikindislegri var búinn að leggja fyrir mig lævíslega gildru og breyta stólnum svo mikið að það hefði orðið mitt síðasta ef ég hefði sest í hann. Mér tókst að laga stólinn og og bjarga þannig lífi mínu og gladdist líka yfir að þurfa ekki að skríða undir borð eftir inniskónum. Tókst að teygja vel á fótunum og smokra þeim nær skónum og það tók ekki nema fimm mínútur. Á morgun þori ég ekki annað en að leita eftir teiknibólum, handsprengjum og slíku. Þetta er stríð, gott fólk!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Teiknibólubelti það er málið. Einar verður að redda slíku fyrir morgundaginn, annars legg ég enn fram þá tillögu að þetta sé og verði þinn einkastóll, söludýrið getur bara setið á koll.  Vona að það gangi vel heim í kvöld, og svo með þennan bílstjóra á strætó, sannas alveg "bjútí nó brein"  eigðu ljúfan dag.  Leap Year 

Ásdís Sigurðardóttir, 27.2.2008 kl. 11:13

2 Smámynd: Arafat í sparifötunum

Takk fyrir síðastþú eignaðist aldeilis aðdáanda í gær. Hún ætlaði sko að segja öllum á leikskólanum frá góðu Gurrý sem á Tomma.

Ég myndi fara í góða hriðirinn fá síma á slikk og setja svo harpix á símann. Það kvöld límist allt við hann.

Arafat í sparifötunum, 27.2.2008 kl. 11:16

3 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Í fyrrakvöld hringdi í mig ungur maður frá Birtingi til að selja mér áskrift af nýju tímariti. Ég var komin á fremsta hlunn með að spyrja hann hvort það væri hann sem sæti í stólnum hennar Gurríar og hóta honum öllu illu ef hann hætti ekki að breyta stillingum og sparka inniskónum hennar út í hafsauga. Glætan að ég keypti áskrift af slíkum skemmdarvargi.

En þar sem ég hafði ekki haft tóm til að kynna mér tímaritið urðum við ásátt um að hann hringdi aftur seinna. Kannski hef ég uppi hótanir þá, hver veit... 

Lára Hanna Einarsdóttir, 27.2.2008 kl. 11:16

4 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Heheheh, þið eruð svo miklir snillingar!

Guðríður Haraldsdóttir, 27.2.2008 kl. 11:21

5 identicon

Hæ. Ég verð á kvöldvakt í næstu viku. Er ekki bara gráupplagt að ég tölti yfir og taki ærlega í lurginn á bannsettum sölumanninum?

Helga Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 27.2.2008 kl. 11:43

6 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Jú, og spyrjir hann hvort hann hafi virkilega verið að krassa á borðið mitt með penna (og á útprentaða grein) og snúi upp á símasnúruna mína, hafi tekið niður myndina af Jason Statham sem ég hafði hengt aftan á tölvuna hennar Bjarkar svo ég hefði eitthvað fallegt að horfa á þegar ég hugsa ... Glæpir hans eru úthugsaðir og afar kvikindislegir. Jú, taktu hann í gegn, krakkarassgatið!!!

Guðríður Haraldsdóttir, 27.2.2008 kl. 12:01

7 Smámynd: Vera Knútsdóttir

Ég legg til að þú skiljir eftir "fallegt" hótunarbréf á skrifborðinu núna seinnipart dags. Svona til að sýna honum að þetta gangi ekki lengur og að tekið verði til harðra aðgerða ef að hann fer ekki að kröfum þínum

Vera Knútsdóttir, 27.2.2008 kl. 13:02

8 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Frábær hugmynd. Fyrri bréf mín hafa verið of vingjarnleg! Nú hóta ég að slíta handleggina af og svona ... múahahahha

Guðríður Haraldsdóttir, 27.2.2008 kl. 13:35

9 Smámynd: Brynja skordal

Fallegt gluggaveður á skaganum í dag góða ferð heim

Brynja skordal, 27.2.2008 kl. 13:40

10 identicon

Leggðu á hann álög, þess efnis að hann fái flær þúsund kameldýra en handleggir hans verði svo stuttir að hann geti ekki klórað sér!

Oddný (IP-tala skráð) 27.2.2008 kl. 13:42

11 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

aldeilis óborganlegar ráðleggingarnar sem þú færð hér Gurrí ætla ekkert að leggja inn nema góða kveðju til þín og ósk um að veðrið verði jafn gott í kvöld þegar þú átt heimferð eins og það er hérna núna, SÓLKSIN

Guðrún Jóhannesdóttir, 27.2.2008 kl. 13:51

12 identicon

Fyrirfinnst ekki stóll í þessu fyrirtæki sem er kominn til ára sinna og er ekki notaður?   Þú ættir að athuga það og fá að setja þann stól við borðið þitt á kvöldin og koma þínum stól fyrir á góðum stað þar sem hann fær að vera í friði.  Svo má skreyta stólinn með títuprjónum og teiknibólum og öðru tilheyrandi.  Svo þegar þú mætir á morgnana þá bara dregurðu þinn stól með þínum stillingum úr felustaðnum og geymir draslstólinn annarrstaðar þar sem hann er ekki fyrir.  Það er nú ýmislegt leggjandi á sig til að fá að hafa stólinn sinn í friði.

Sigga (IP-tala skráð) 27.2.2008 kl. 14:19

13 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Innlitskvitt og kveðjur

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 27.2.2008 kl. 14:30

14 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Ók, hann fær að finna fyrir því í næstu viku. Byrja vitanlega á að segja honum að ég hafi verið rekin úr lögreglunni fyrir hrottaskap. Það ætti að hræða hann aðeins.

Helga Magnúsdóttir, 27.2.2008 kl. 14:54

15 identicon

 

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 27.2.2008 kl. 15:04

16 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hahhahaha, rekin úr löggunni vegna hrottaskapar, það finnst ekki dásamlegri manneskja. Hahahahhaha, sammála, ljúgum að gæanum samt!  Ætla að prófa að skipta um stól, það er góð hugmynd.

Guðríður Haraldsdóttir, 27.2.2008 kl. 15:12

17 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Kveðja til þín Gurrí mín

Kristín Katla Árnadóttir, 27.2.2008 kl. 16:53

18 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

´Hmmm, mér sýnist nú á góðri leið sé að koma efniviður í sakamálaleikritið "Sölumaður deyr 2"! höfundur þess fyrra var Arthur Miller, en þess nýja Gurrie Killer!

(en svo öllu sé nú til skila haldið fyrir þá sem ekki þekkja, þá var fyrrnefnda leikritið ekkert sakamálaleikrit, heldur svona fjölskyldudrama!)

Magnús Geir Guðmundsson, 27.2.2008 kl. 17:20

19 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Og já, mér finnst það nú ekkert svo slæmt þótt Helga hérna (sem einhver laumaði að mér að væri tröllvaxin, en jafnframt tíguleg kvinna) hafi verið rekin úr löggunni fyrir harðneskju. Væri öllu verra ef hún hefði fengið reisupassan fyrir já tja, "Berari" sakir, eins og þessi ungverska þarna sem Moggin sagði frá í gær!

Magnús Geir Guðmundsson, 27.2.2008 kl. 17:25

20 Smámynd: Tiger

   Jamm, mér líst vel á hugmyndina um að skipta um stól. Er viss um að það mun virka vel. Byssudæmi og sakamáladæmi eða teiknibólur eru bara til að skapa meiri vandamál sko... hehehe.

  Ef stólaskipti ganga ekki upp - skal ég koma með baseball dótið mitt og lána þér...

Tiger, 27.2.2008 kl. 20:43

21 Smámynd: www.zordis.com

Það er almennilegt veður hjá ykkur!  Vona að baráttan með stólinn gangi vel.  Límið er grimmdarleið því þá hittir þú viðkomandi á snúrunni undir morgun ....

www.zordis.com, 27.2.2008 kl. 22:06

22 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Þetta veður, þessi vetur!

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 28.2.2008 kl. 00:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 40
  • Sl. sólarhring: 424
  • Sl. viku: 2157
  • Frá upphafi: 1456107

Annað

  • Innlit í dag: 37
  • Innlit sl. viku: 1795
  • Gestir í dag: 37
  • IP-tölur í dag: 36

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Sjö saman í Karíba
  • Facebook ógnir
  • Herbergi drengsa

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband