Morgunhugvekja og hugleiðingar um CSI-Miami

SumarkötturMikið var unaðslegt að vakna í sumarstemmningu í morgun. Alla vega vorstemmningu. Ég vissi að þetta yrði góður dagur þar sem spegillinn sýndi yndisfagra mynd, enda sofnaði ég ekki með blautt hárið í gærkvöldi, smá sinaskeiðabólga hrjáir mig en það eru eflaust 20 ár síðan ég fann fyrir henni síðast. Kettirnir möluðu og kaffibaunirnar möluðust, allir í stuði. Ekki versnaði hugarástandið þegar síminn hringdi og Guðbjörg strætósamferðakona bauð mér far í bæinn á bíl og alla leið í Hálsaskóg. Svo kemst ég til baka með erfðaprinsi sem á erindi í bæinn í dag. Tek þó fram að strætó er líka frábær þótt hann sé ekki jafnfljótur á leiðinni og einkabíll sem getur farið beina leið og þarf ekki að stoppa neins staðar.

Ofurtöffarinn HoratioÉg sofnaði út frá fallega fólkinu í CSI-Miami í gærkvöldi (nótt). Hvernig það fólk getur opnað munninn og talað fyrir þykkum varalit eða blakað augunum fyrir augnskuggum og almennt fúnkerað fyrir töffaraskap á ég erfitt með að skilja. Þarf að muna að vera aldrei drepin í Miami. Dánarorsök "myrt með gloss" gæti fyrir slysni verið ákveðin. Annars finnst mér hrikalega gaman að fylgjast með Horatio. Í þættinum í gær hafði ungur drengur (6-7 ára) komið að móður sinni myrtri og vildi ekki tala við neinn eftir áfallið. Horatio sagði svipbrigðalaus af öryggi við undirmann sinn: "Hann talar við MIG." (myndi maður vilja hafa svona yfirmann?) Svo settist hann á bryggjuna, horfði á drenginn með sama svipleysi og hann sýnir öllum (vændiskonum, ástkonum, samstarfsmönnum, glæpónum, dýralæknum, strætóbílstjórum), kynnti sig og fór að spjalla góðlátlega en af virðingu. Barnið leit á þennan ófrýnilega, sviplausa og rauðhærða mann og opnaði sig algjörlega fyrir honum, gerði betur en það, tók glaðlega upp úr skólatösku sinni hnífinn sem hann hafði tekið úr hjarta móður sinnar og rétti Horatíusi. Í þessum þáttum eru ALLIR sætir nema Horatio, sem er svona hálfgerður Chuck Norris réttarrannsóknaþáttanna, meira að segja glæpónarnir eru með fullkomnar tennur, flottar strípur og hugsa vel um útlitið eins og starfsfólkið. Já, staffið ... djöfull dáist ég að ljóshærðu konunni þarna sem lætur sig hafa það að mæta í níðþröngum fötum og hælaháum skóm í vinnuna þótt hún þeytist um morðvettvanga á milli þess sem hún sinnir smásjárrannsóknum. Svo er hún varla talandi fyrir kynþokka sem drýpur af henni. Já, Horatio ekur um á lögguHummer!!! Himinn og haf skilja að t.d. CSI og CSI-Miami. Í fyrrnefnda þættinum er venjulegt fólk ... í hinum svífur andi Strandvarða yfir vötnum. Skemmtanagildi þáttanna er alveg tvöfalt, stundum margfalt. Kannski ágætis morðgáta í þættinum ... og svo getur maður flissað yfir öllu hinu þótt þetta eigi alls ekki að heita gamanþættir!

Viðbót frá bloggvini um Hóras: http://www.weebls-stuff.com/wab/CSI/

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"...Horatio, sem er svona hálfgerður Chuck Norris réttarrannsóknaþáttanna..." - hló mig máttlausan!

Annars þótti mér einmitt aðdáunarvert í þessum síðasta þætti að hann Hóras hélt uppá farsæla lausn á máli dagsins með því að fara uppá næsta þyrlupall og pósa í góða veðrinu. Það er ekki á hvers manns færi. 

Hjörvar Pétursson (IP-tala skráð) 14.4.2008 kl. 11:33

2 identicon

Frábær skrif. Ég er hér um bil hættur að geta horft á CSI Miami af því að þetta er allt svo flatt. Þættirnir fara versnandi hver á fætur öðrum. Þess utan er Miami ekki vitund svipuð því sem sést í þáttunum. Þetta er ein drungalegasta borg sem ég hef komið til, þrátt fyrir sólina. Kíktu annars á þetta: http://www.weebls-stuff.com/wab/CSI/ 

Gummi Valur (IP-tala skráð) 14.4.2008 kl. 11:55

3 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Heeheeh, takk Gummi Valur, algjör snilldarmynd ... Synd, Hjörvar að ég hafi sofnað áður en þyrlupallspósið hófst ... sé það samt alveg fyrir mér.

Já, Einar, þessir CSI-þættir geta verið ferlega skemmtilegir.

Guðríður Haraldsdóttir, 14.4.2008 kl. 12:05

4 Smámynd: Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir

Horatio, eða Hóri eins og við mæðgurnar köllum hann, kann að halda kúlinu.  Þessi þáttur er argasta bull en samt er gaman að horfa á varakonurnar og bláa himininn í bland við ljósrauðan kollinn á Hóra.

Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir, 14.4.2008 kl. 14:48

5 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Ég kem af fjöllum. Er að kynnast Chuck Norris í fyrsta sinn hér og hef aldrei heyrt minnst á CSI, hvorki með Miami aftan við eður ei. Á hvaða stöð er þessi greinilega eðla þáttur? Verð að gá hvort ég get ekki hlegið svolítið að honum.

Lára Hanna Einarsdóttir, 14.4.2008 kl. 14:56

6 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Mótmæli þessu níði um Lassí! kæri Einar. Að öðru leyti sammála hverju orði. CSI: Miami er greinilega á einhverjum dagskrártíma sem ég rek mig alltaf á, nema grunur minn sé réttur að þættirnir séu sýndir fimm sinnum í viku. Þannig að ég þekki þessa þætti best allra CSI þáttanna, og mikið rosalega eru Barbí og Ken orðin lifandi í meðförum þessa liðs, ganga, tala og allt saman.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 14.4.2008 kl. 14:57

7 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Á SkjáEinum á kvöldin, stundum svolítið seint ...

Chuck Norris er náttúrlega hetja á borð við Svartsenegger og Sylvester Stallón! Man ekki hvort ég hafi séð mynd með honum ... en það hlýtur að vera!

Guðríður Haraldsdóttir, 14.4.2008 kl. 14:59

8 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hahahahha, sammála með níðið um Lassí!

Guðríður Haraldsdóttir, 14.4.2008 kl. 14:59

9 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Horfði einmitt á þennan þátt þegar ég kom úr vinnunni í gærkvöldi. Fékk nettan kjánahroll yfir akkúrat þessu sem þú ert að lýsa. Maður ætti í rauninni alls ekki að viðurkenna að maður horfi á þessa þvælu.

Helga Magnúsdóttir, 14.4.2008 kl. 16:54

10 Smámynd: Anna Gísladóttir

Svona má alls ekki tala um Lassý ......

En heima hjá mér gengur þessi þáttur um þennan hallærispésa undir nafninu CSI - sólgleraugu ! Þar sem að sólgleraugun sem hallærispésinn Horasio gengur með spila svakalega rullu í hverjum þætti !

Anna Gísladóttir, 14.4.2008 kl. 20:30

11 identicon

hahaha, ótrúlega góð færsla um Horatio. Það sem er langbest við hann er augnaráðið sem hann hefur þegar hann dregur sólgleraugun hægt af sér, lítur til hægri og kemur með e-r fleyga setningu(eins og t.d. "Hann talar við MIG"). Brilljant þáttur.

ingunn (IP-tala skráð) 15.4.2008 kl. 14:34

12 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

CSI-pælingar, skemmtileg hugleiðing á bloggi  Ég horfi alltaf á þessa þætti og tauta svo bara við sjálfa mig í sófanum: "Dísús, maður" og hneykslast í hljóði yfir rembings-kúlinu í Horatio. Sammála þér, að hinn upprunalegi CSI sem gerist í Las Vegas, hann er alvöru og gamli góði Grissom stendur Horatio langtum framar á öllum sviðum. Svo veit hann líka allt um pöddur og flugur!!

Lilja G. Bolladóttir, 15.4.2008 kl. 15:16

13 Smámynd: Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir

Fyrir þá sem ekki vita þá er CSI-Miami tekin upp í Los Angeles.. Það er því ekki furða að sólin skíni öðruvísi en í Miami. Þykir þessi færsla alveg æðisleg og er mikill aðdáandi CSI. Las Vegas þátturinn bestur en Horatio er nokkuð góður, maður verður að hafa húmor fyrir honum.

Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir, 16.4.2008 kl. 15:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 149
  • Sl. sólarhring: 463
  • Sl. viku: 2597
  • Frá upphafi: 1457466

Annað

  • Innlit í dag: 121
  • Innlit sl. viku: 2156
  • Gestir í dag: 115
  • IP-tölur í dag: 112

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Elsku Tommi
  • Elsku Tommi
  • Mamma hjúkka

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband