18.4.2008 | 18:40
Óvænt sjokk í ísskápnum, óþekkur rútubílstjóri, smábold og sushi
Ja, mér hefndist heldur betur fyrir að hafa talað vel um samkynhneigð í færslu hér í gær. Þegar ég kom heim í sakleysi mínu áðan, frekar snemma miðað við föstudaga, ákvað ég að byrja á því að búa mér til latte. Ég opnaði ísskápinn, enn algjörlega í sakleysi mínu, og það fyrsta sem ég sá var .... LÉTTMJÓLK! Ég argaði í huganum, róaði mig síðan, allt á sekúndubroti, og spurði unga manninn kurteislega hvort hann vissi hvað léttmjólk gerði kaffi. Eftir rúmlega tveggja áratuga sambúð ætti hann að vita að á þessu heimili er EKKI keypt léttmjólk. Aldrei, never! Ekki einu sinni í neyð. Léttmjólk gerir kaffi grátt! Það sem bjargaði erfðaprinsinum var það að dreitill af nýmjólk, nægilegt magn var til í latte í dag og á morgun.
Sjórinn er hávær og fallegur núna. Af og til koma stórar og tærar öldur, svona smágerðar Miðjarðarhafsöldur, sem búa til mikinn hávaða þegar þær falla tígulega niður. Ummm, hafið. Stór rúta frá Hópbílum stoppaði hérna á neðra hlaðinu áðan og hleypti út fjörkálfum sem geta núna verið hvar sem er á Skaganum og lita bæinn rauðan. Verst að rútubílstjórarassgatið leggur beint fyrir framan himnaríki og skyggir á skvetturnar. Hann sér ekki huglæga bannmerkið á ljósastaurnum: Varúð, útsýnisstaður frú Guðríðar.
Það eina sem ég sá í boldinu var að Nick og Brooke eru gift og njóta hveitibrauðsdagana, í þeirra tilfelli og miðað við ríkidæmið ættu þetta frekar að kallast vínarbrauðsdagar (aulabrandarar eru líf mitt og yndi). Hin sólbrennda Bridget tryggir sér endalausa samúð með því að gera eins mikið og hún getur úr sólbrunanum (sem Felicia, hálfsystir hennar, olli). Bridget klæðist bleikum sjiffonkjólum, í stíl við andlitið, og drekkur rauðvín, sem er líka mjög flott litasétteríng við andlitið.
Það skemmtilegasta sem Tommi gerir þessa dagana er að vera úti á stóru svölum, stökkva eftir flugum og éta þær. Ferskara sushi fær hann varla og þetta ætti að spara matarkostnað kattanna. Þegar Tommi og Kubbur gera þetta inni tek ég alltaf fyrir eyrun og loka augunum. Reyni þó fyrst að bjarga flugunum út en ef þær er mjög leiðar á lífinu og neita að fara út er fátt hægt að gera fyrir þær.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Matur og drykkur, Sjónvarp, Vinir og fjölskylda | Facebook
Um bloggið
Sögur úr himnaríki
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 8
- Sl. sólarhring: 211
- Sl. viku: 646
- Frá upphafi: 1505937
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 520
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Katrín Snæhólm Baldursdóttir
- Þröstur Unnar
- Anna Ólafsdóttir Björnsson
- Helga Magnúsdóttir
- Fjóla Æ.
- Sumarbúðirnar Ævintýraland
- Jóna Á. Gísladóttir
- Steingerður Steinarsdóttir
- Bertha Sigmundsdóttir
- Svava S. Steinars
- Guðrún Jóhannesdóttir
- Vésteinn Valgarðsson
- Heiða B. Heiðars
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Baldvin Jónsson
- Jens Guð
- www.zordis.com
- Elín Arnar
- Andrés.si
- Vefritid
- Kristín M. Jóhannsdóttir
- Saumakonan
- Laufey B Waage
- Ingibjörg Gunnarsdóttir
- krossgata
- Kristján B. Jónasson
- percy B. Stefánsson
- Ólafur fannberg
- gua
- Anna Gísladóttir
- Hlynur Jón Michelsen
- Jón Svavarsson
- Brynjar Svansson
- Gyða Dröfn Tryggvadóttir
- Gunna-Polly
- Hólmgeir Karlsson
- Sigríður Jósefsdóttir
- Svala Jónsdóttir
- Katrín Anna Guðmundsdóttir
- Eva Þorsteinsdóttir
- Hrönn Sigurðardóttir
- halkatla
- Guðný M
- Einar Vignir Einarsson
- Ingibjörg Stefánsdóttir
- Kristín Björg Þorsteinsdóttir
- Vilborg Valgarðsdóttir
- Þóra Guðmundsdóttir
- Inga Dagný Eydal
- Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Kristín Katla Árnadóttir
- Birna Mjöll Atladóttir
- Ingibjörg R Þengilsdóttir
- Hrólfur Guðmundsson
- Halla Rut
- Brynja Hjaltadóttir
- Eyþór Árnason
- Guðrún Vala Elísdóttir
- The baristas
- Helgi Már Barðason
- Eydís Rós Eyglóardóttir
- Guðný Jóhannesdóttir
- Ásta Kristín Norrman
- Anna Sigríður Guðmundsdóttir
- Kolgrima
- Huld S. Ringsted
- Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
- HAKMO
- Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
- Bradshaw
- Kolbrún Baldursdóttir
- Ásta Björk Solis
- Margrét Guðjónsdóttir
- María Anna P Kristjánsdóttir
- Rebbý
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Markús frá Djúpalæk
- Bogi Jónsson
- Alheimurinn
- Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
- Svala Erlendsdóttir
- Kokkurinn Ógurlegi
- Binnan
- Daníel Halldór
- Linda Linnet Hilmarsdóttir
- Linda Lea Bogadóttir
- Erna Friðriksdóttir
- Kristín Erla Kristjánsdóttir
- Katrín Ósk Adamsdóttir
- Fiðrildi
- Valgeir Ómar Jónsson
- lady
- Toby
- Vera Knútsdóttir
- Ragnar Páll Ólafsson
- Sverrir Stormsker
- Valdís Rán Samúelsdóttir
- Kej
- Ingigerður Friðgeirsdóttir
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Alexander Már Benediktsson
- Alfreð Símonarson
- Birna Dís
- Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
- Janus
- Tinna Gunnarsdóttir Gígja
- Eyrún Inga Þórólfsdóttir
- Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- Þóra Sigurðardóttir
- gudni.is
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Sigurður Axel Hannesson
- Inga Helgadóttir
- Kjartan Pálmarsson
- Hlynur Hallsson
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Steingrímur Helgason
- Sæþór Helgi Jensson
- Sif Traustadóttir
- Maddý
- Turetta Stefanía Tuborg
- Gúrkan
- Gunnlaugur Stefán Gíslason
- Ólöf María Brynjarsdóttir
- Tiger
- Hdora
- Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
- Brynja skordal
- Edda Agnarsdóttir
- Helga skjol
- Mummi Guð
- Kristín Einarsdóttir
- Guðbjörg Ottósdóttir
- Sæmundur Bjarnason
- Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
- Linda
- Gylfi Guðmundsson
- Handtöskuserían
- Agnes Ólöf Thorarensen
- Júdas
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Sigurbrandur Jakobsson
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- Álfheiður Sverrisdóttir
- Kjartan Magnússon
- Bylgja Hafþórsdóttir
- Vertu með á nótunum
- Marilyn
- Anna Mae Cathcart-Jones
- Söngfuglinn
- Dísa Gunnlaugsdóttir
- Ónefnd
- Ásta
- leyla
- Þórður Helgi Þórðarson
- Jónína Rós Guðmundsdóttir
- Anna Ragna Alexandersdóttir
- Laufey Ólafsdóttir
- Einar Indriðason
- Gísli Tryggvason
- Lilja G. Bolladóttir
- Þorsteinn Briem
- Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
- Ragnheiður Ástvaldsdóttir
- Eygló Sara
- I. Hulda T. Markhus
- Himmalingur
- Íbúasamtökin Betra Breiðholt
- Hildur Helga Sigurðardóttir
- Aprílrós
- Bókaútgáfan Salka ehf
- Svetlana
- Sigríður Guðnadóttir
- Andrea
- Jón Þór Bjarnason
- Inga Sig
- Sigríður Inga Sigurðardóttir
- Einar Örn Einarsson
- Heiður Helgadóttir
- Guðrún Ágústa Einarsdóttir
- Stella Jórunn A Levy
- Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
- Perla
- Ingi Thor Jónsson
- Sigríður Þórarinsdóttir
- Vinir Tíbets
- Pálmi Guðmundsson
- cakedecoideas
- Bwahahaha...
- Bullukolla
- Jónas Sen
- Hildigunnur Rúnarsdóttir
- Renata
- Mamma
- Bergljót Hreinsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Letilufsa
- Sigrún Jónsdóttir
- Adolf Friðriksson
- Björgvin R. Leifsson
- Brúðurin
- Guðrún Eggertsdóttir
- Kristín Bjarnadóttir
- Margrét Birna Auðunsdóttir
- Methúsalem Þórisson
- Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni
Athugasemdir
haha bara sushi hlaðborð með léttmjólk handa eðalbornum köttum.
Ólöf Anna , 18.4.2008 kl. 19:28
"Útsýnisstaður frú Guðríðar" mér líst vel á að þú eignist svona skilti, örugglega hægt að nota það víða. Eigðu góða helgi mín kæra
Ásdís Sigurðardóttir, 18.4.2008 kl. 19:46
Skemmtilegur pistill hjá þér Gurrí, eins og ætíð bara. Alltaf gaman að kíkja á þig ljúfust. Eigðu yndislega helgi!
Tiger, 18.4.2008 kl. 20:10
Frú Guðríður!? Síðan hvenær?
Ég mun heimta léttmjólk í mitt kaffi þegar ég heiðra Himnaríkið með nærveru minni! Ekkert betra út í Bragann!Ég vil yfir höfuð hafa sem flest létt, létta lund, létt yfir mannskapnum og konur eiga að vera léttar, léttlyndar, léttklæddar, allt í einum pakka, punktur og basta!
Magnús Geir Guðmundsson, 18.4.2008 kl. 21:04
Þykir þú léttur á því, Magnús. Ekki séns að ég gefi gestum mínum grátt kaffi. Þú getur fengið fjörmjólk, karlinn, þá er liturinn á kaffinu orðinn svo súrrealískur að bollinn verður bláleitt listaverk í sjálfu sér ... og í himnaríki eru listir hafðar í hávegum.
Þakka góðar óskir um góða helgi og segi þúsund sinnum sömuleiðis!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 18.4.2008 kl. 21:14
Gurrí, hann bað um þetta út í Bragann, varla áttu gulan Braga á lager :D :D :D
Hildigunnur Rúnarsdóttir, 18.4.2008 kl. 21:23
Maðurinn minn og dóttir mín fá sér alltaf rjóma í kaffið - þau eru líka grönn.....ég skal alveg fúslega viðurkenna að það er gott en ég læt það ekki eftir mér þar sem ég er fitubolla
Sigga (IP-tala skráð) 18.4.2008 kl. 22:00
Að setja léttmjólk í kaffi er plebbismi á háu stigi ...eða alla vega óásættanlegt! Rjómi er málið
Laufey Ólafsdóttir, 18.4.2008 kl. 23:39
Ég er SVO sammála þér með léttmjólkina í kaffið! Það er ekki sama hvernig það er á litinn og létt- eða fjörmjólkurbætt kaffi er alveg einstaklega ólystugt á litinn.
Maður verður að fyrirgefa Magnúsi Geir Bragann og léttflippandann - hann er nefnilega að norðan, strákurinn...
Lára Hanna Einarsdóttir, 18.4.2008 kl. 23:45
Ég er á því að drengurinn hafi með þessu 'overstayed his welcome' á hótel mömmu & sé búinn að áskapa sér ákveðna & bráða útrýmíngarhættu úr himnaríkinu,
Sumt, er hægt að fyrirgefa sínum börnum, annað ekki.
Já, & að öðru, hráar flugur, eru ekki hráfiskur.
Steingrímur Helgason, 18.4.2008 kl. 23:50
Auðvitað verður að fyrirgefa drengnum, hann veit ekki hvað hann segir.
Ein versta reynsla kaffilífs míns var þegar Gyða Dröfn, sem drekkur ekki kaffi, ákvað að gefa mér kaffibolla. Dökkt duft úr plastkrukku (til punts uppi á hillu), hafði verið þar í mánuði eða ár, var sett í sjálfvirku kaffikönnuna og ýtt á play. Innan stundar gaus upp ókennileg lykt. Þegar Gyða dró síðan FJÖRMJÓLK út úr ísskápnum og ætlaði að hella í litla mjólkurkönnu var mér allri lokið og bað um kók að drekka. Lærði þarna að aldrei skal þiggja kaffi af manneskju sem drekkur það ekki sjálf!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 18.4.2008 kl. 23:53
Steingrímur, þetta var svona katta-sushi, nema ekki búið til úr köttum, tók mér þetta skáldaleyfi vegna ferskleika flugnanna. Sonurinn sýndi eftirsjá og í einarðlegum augnsvip hans sá ég að þetta myndi ekki endurtaka sig, ALDREI!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 18.4.2008 kl. 23:55
Gurrí, þetta er hægt, kvinnurnar í Ístóni heitnum sóru fyrir það að ég gerði langbesta kaffið, sem á ekki að vera hægt þar sem ég drekk það ekki sjálf.
Pabbi kenndi mér trikk við uppáhellingu (sem ég að sjálfsögðu læt ekki uppi). Og gamalt drasl myndi mér ekki detta í hug að bjóða upp á, nevermænd að fjörmjólk fer ekki inn fyrir mínar...
Hildigunnur Rúnarsdóttir, 19.4.2008 kl. 00:35
Eina góða við Fjörmjólkina er að það er auðvelt að þeyta hana útí latte, svo ég nota það svona fyrir mig sjálfa. En að sjálfsögðu ekki fyrir gesti.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 19.4.2008 kl. 00:39
Hei, það er bannað að drekka drapplitað kaffi. Léttmjólk? Fruuuuuuuuuuusssssssss
Jenný Anna Baldursdóttir, 19.4.2008 kl. 00:43
Ennþá með hnút í maganum þegar ég setti mynd af þér og léttmjólki (óvart saman á mynd) á bómullarbol og ætlaðist til að þú gengir í honum, gerðir þú það nokkurn tíma?
Anna Ólafsdóttir Björnsson, 19.4.2008 kl. 01:43
Já, já, ég gekk í honum af því að þetta var svo góður húmor ... enda fáránleg tilviljun að ná mynd af mér og léttmjólk saman.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 19.4.2008 kl. 01:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.