Sætir Indverjar, ruslaföturæningi og beiskjufliss yfir

Stuð í strætóEins gott að stoppistöð Grundaskóla og íþróttahússins kemur á eftir himaríkisstoppistöðinni við Garðabraut ... Ég var rétt búin að koma mér vel fyrir með öryggisbelti og bók þegar yfir 20 unglingar þustu inn og næstum fylltu strætó. Þeir voru á leið í Árbæjarsafnið með nokkrum kennurum. Stilltir og góðir krakkar sem eltu mig úr leið 27 yfir í 15, síðan úr 15 niður milljóntröppurnar, undir brúna og upp lúmsku brekkuna í Ártúni. Það var freistandi að segja kennurunum að taka leið 6 (í Grafarvog) með hópinn en það hefði verið svo grimmdarlegt með allan hópinn, svo er fyrsti apríl liðinn. Elsku Indverjarnir mínir sætu voru í strætó og m.a. maðurinn sem ég spjallaði við á stoppistöðinni um daginn. Við heilsuðumst eins og ævafornir vinir og aðrir farþegar störðu á okkur! Úr augnaráði Íslendinganna skein: "Hvað er hún að tala við útlendinga?" Og úr augnaráði Indverjanna: "Hvað er hann að tala við innfædda?" Ef ekki munaði svona 20 árum á okkur, mér í hag, hefði ég kysst hann bless til að sjokkera en það er víst ljótt að fara illa með unga menn svona snemma á morgnana.

RuslafatanFékk taugaáfall við komu í vinnuna. Ruslafatan mín er horfin og ekki nóg með það heldur er búið að stela stól markaðsstjórans líka. Við Ási skælum í kór. Það hressti aðeins upp á líðanina að vita að það verður steiktur fiskur með remúlaði í hádegismatinn.

-       -          -         -       -       -      -        -

RasistarNúorðið flissa ég bara (pínku beisklega þó) þegar ég sé nýjar bloggfærslur fólks um "skömm" Skagamanna vegna flóttamannanna. Fólk þarf enn að fá útrás fyrir gremju sína út í skoðanir eins manns, eða fyrrum formanns félagsmálaráðs á Skaganum. Kannski er ég ekkert skárri, mögulega hefði ég sjálf tekið upp heykvíslina og gargað ef t.d. formaður félagsmálaráðs í Keflavík hefði lýst yfir áhyggjum sínum af komu flóttamanna ... og dæmt allt bæjarfélagið rasista, óhæfa til að taka á móti flóttakonunum og börnum þeirra. Held þó ekki. Skil ekki svona heift út í saklaust fólk. Maður var nýlega dæmdur í fangelsi fyrir að myrða mann á Hringbrautinni. Getur verið að allir sem búa við Hringbraut séu morðingjar? Er ekki verið að kreista og kreista til að ná sem mestu úr þessu máli og jafnvel refsa okkur Skagamönnum fyrir að leyfa manni með "svona skoðanir" að búa hér? Ég skil þetta samt ekki, það varð allt vitlaust í bæjarstjórn yfir þessu og Magnús látinn hætta vegna skoðanna sinna. Af hverju þá að velta sér svona upp úr vondum Skagamönnum? Ég er kölluð rasisti í vinnunni minni en finnst það bara fyndið, engin meining þar að baki, bara góðlátlegt grín. Samt hefur þetta skaðað bæjarfélagið alveg helling og engin lógík á bak við það!!! Sumir virðast hafa bitið í sig að við viljum ekki taka við flóttamönnunum! Miðað við hvað bæjarstjórnin greip hratt inn í þetta þá eigum við ekki svona skilið! Frétt RÚV um þetta mál var illa unnin og léleg, bara gerð til að staðfesta þennan orðróm um rasismann´á Akranesi ... en kvöldið eftir var frétt Stöðvar 2, miklu betur gerð, en þar var viðtal við Magnús Þór og síðan götuspjall við fjölda Skagamanna sem öllum fannst frábært að fá flóttafólkið!

Útrás dagsins var í boði frú Guðríðar! Og ég lem ykkur ef þið reynið að skamma mig fyrir að vera Skagamaður! Tounge 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þröstur Unnar

Lemmdu fyrir mig líka, ég nebblega elska fallegar Indverjur, og stundum ljótar.

Hef miklu meiri áhyggjur af Gauja okkar Þórðar, heldur en nokkrum flóttakonum sem eru hjartanlega velkomnar í mitt hverfi, allavega.

Þröstur Unnar, 26.5.2008 kl. 12:19

2 Smámynd: Guðrún Elsa Gunnarsdóttir

Sæl Gurrí og takk fyrir þetta innlegg.  Þetta hefur svo sannarlega skaðað okkur Skagamenn því miður. En við stöndum þetta af okkur vonandi.  Tökum vel á móti þessum konum með opinn faðminn og mannkærleikan einan að vopni  (ein voða væmin ).   Ef þetta verður til að bjarga þó ekki væri nema einu mannslífi þá get ég farið sátt að sofa að kveldi dags. 

Guðrún Elsa Gunnarsdóttir, 26.5.2008 kl. 12:46

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ekki held ég að Skagamenn (99%) séu rasistar, að sjálfsögðu ekki.  Ég ætla ekki að kalla neinn mann rasista heldur, jafnvel þó mig gruni að "einhver" Skagamaður gæti verið það.

En það var Magnús Þór sem skaðaði Akranes, ekki þeir sem blogga um málið.  Bara svo það sé á hreinu. 

Það telst nefnilega til tíðinda á Íslandi að að þessi póll sé tekinn í hæðina, varðandi landlaust og illa statt fólk frá stríðhráðum löndum.

Svo held ég að fólk sé aðallega að blogga um MÞ og FF sem var að toppa ósómann með stuðningsyfirlýsingu við MÞ.  Ég held að almenningur hafi enga trú á að þetta sé viðhorf meðal almennra Skagamanna.

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.5.2008 kl. 12:59

4 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Ætla rétt að vona það, Jenný. Sá á vísisblogginu færslu eftir kennara sem talar um skömm Akraness! Spyrðir saman allan bæinn og manninn með skoðanirnar óvinsælu. Skil vel að fólk hafi misst sig til að byrja með, ég hefði gert það líka, en að vera að kreista eitthvað út úr málinu og mála okkur öll svörtum litum finnst mér hreinlega særandi!

Þröstur, oft er léleg byrjun fyrir góðum úrslitum! Mundu það.

Já, Guðrún Elsa, við stöndum þetta af okkur!

Guðríður Haraldsdóttir, 26.5.2008 kl. 13:12

5 Smámynd: Þröstur Unnar

Ég veit að við erum orðin opinberlega náteng Guðríður, en vissi ekki að það væri orðið svona alvarlegt.

Ég er nefnilega að fá póst-tilkynningar um nýjar ath.semdir á þínu bloggi.

Mér leiðist það ekkert, en líklega er þetta eitthvert klúður í blog.is.

Áfram Akranes.......

Þröstur Unnar, 26.5.2008 kl. 13:29

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sumir eru auðvitað ekki í lagi.  Ég á erfitt með að skilja þann hugsanagang sem reiknar með að allir Skagamenn vilji ekki flóttafólk.  Það er svo fjarri mér amk.

En eins og ég sagði þá skil ég að fólk bloggi um þetta í tengslum við FF þar sem þeir voru að senda frá sér þessa yfirlýsingu frá miðstjórn.

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.5.2008 kl. 13:30

7 Smámynd: Brynja skordal

Heyr heyr sammála þér þarna Gurrí  hafðu það gott í dag

Brynja skordal, 26.5.2008 kl. 13:41

8 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Góður pistill Gurrí. Þetta er dómstóll götunnar og múgsefjun í sinni ''skemmtilegustu'' mynd.

Jóna Á. Gísladóttir, 26.5.2008 kl. 16:26

9 identicon

Góður pistill.

Alveg ótrúlegt hvað margir hafa "misst sig" vegna málsins. 

En svona er þetta bara. Við Skagamenn tökum á móti þessu fólki með sóma.

Ég skil Magnús alveg að gagnrýna hvernig staðið var af þessu, hann má hafa sína skoðun eins og aðrir. 

EE (IP-tala skráð) 26.5.2008 kl. 18:14

10 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Mér hefur aldrei dottið í hug að allir Skagamenn séu sama sinnis og Magnús. Voru ekki undirskriftalistarnir hundsaðir og kaupmenn tóku þá niður hjá sér? Mér finnst bara fáránlegt að dæma heilt bæjarfélag af einni karluglu.

Helga Magnúsdóttir, 26.5.2008 kl. 19:51

11 Smámynd: Mummi Guð

Ég dæmi þig ekkert Gurrí, þó Magnús og Guðjón séu draga nafn Akraness niður í svaðið!

Mummi Guð, 26.5.2008 kl. 20:33

12 Smámynd: Tiger

  Hey sko .. ég er líka gamall Skagamaður - og er alfarið á því að engir rasistar séu til á Skaganum, held ég - þannig séð. Skelfilegt hve mikinn skandala karlinn gerði með þessari vitleysu (Magnús þór).. En, knús í himnaríki.

Tiger, 26.5.2008 kl. 21:16

13 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Ég hef miklar áhyggjur af ruslafötunni þinni. Held að það sé sölumaðurinn ósvífni sem hefur tekið sig til og falið hana. Renni til þín við tækifæri svo við getum lágt á ráðin um grimmilegar hefndaraðgerðir gagnvart þessu virðingarlausa kvikindi.

Steingerður Steinarsdóttir, 27.5.2008 kl. 10:26

14 identicon

Væri ekki nær að hjálpa einhverjum frá Darfur? Þar er nú sitthvað meira að en rottugangur - og búið að vera í næstum áratug, án þess að heimurinn lyfti litlaputta. Það er ljóst að Skagamenn bjarga nú vart einir heiminum, en gott væri að aðstoðin bærist þeim er brýnast þurfa hana! 

Guðmundur G. Hreiðarsson (IP-tala skráð) 27.5.2008 kl. 10:30

15 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Við Íslendingar hjálpum þeim vonandi líka, Guðmundur. Held að Rauði krossinn reyni að hjálpa alls staðar þar sem neyð er. Konurnar frá Palestínu eru ekki síður hjálpar þurfi þótt aðrir hafi það skelfilegt.

Guðríður Haraldsdóttir, 27.5.2008 kl. 10:58

16 Smámynd: Valgerður Sigurðardóttir

Alltaf gaman að lesa færslurnar þínar, kem með smá innlitskvitt hérna  og vildi minnast á að ég vitnaði örlítið í færsluna þína hér að ofan á blogginu mínu. Kv. Valgerður

Valgerður Sigurðardóttir, 27.5.2008 kl. 11:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 200
  • Sl. sólarhring: 379
  • Sl. viku: 2162
  • Frá upphafi: 1455865

Annað

  • Innlit í dag: 179
  • Innlit sl. viku: 1780
  • Gestir í dag: 177
  • IP-tölur í dag: 171

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Ástarsaga
  • Sofandi köttur
  • 1. maí fyrir nokkrum árum

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband