Vinnuraunir - játningar eineltara

Í dag er síðasti dagurinn hennar Bryndísar í vinnunni. Hún tók einhver mannréttindi fram yfir tísku, snyrtingu, lífsreynslu og góðan móral hérna með okkur ... en hún er víst menntuð í slíkt.

Sannleikurinn er reyndar sá að mér tókst með miklum lúmskheitum að hrekja hana úr starfi. Skrifborðið hennar er við hliðina á skrifborðinu mínu sem gerði mér auðveldara fyrir að níðast á henni. Hún er alveg indæl og allt það en ég þoli ekki að vinna með manneskju sem hefur sama hringitón í gemsanum og ég. Síminn hennar hringdi oft og ég hélt alltaf að þetta væri síminn minn.

Ritstjórinn og BjörkNýja blaðakonan, Íris Hrund, er líka svona yndisleg eins og Bryndís en ég komst að því mér til mikils hryllings að hún er með þessa sömu hringingu líka. Þannig að ég þarf að byrja á ofsóknunum að nýju. Skil ekki hvers vegna ég bað ekki ritstjórann um að hafa þetta í huga við ráðninguna, nei, hún spurði bara hvort sú nýja væri ekki örugglega djammari! Að auki borðar sú nýja harðfisk, eins og Hrund og ritstjórinn minn. Hvenær ætli ég fái samstarfskonu sem borðar Smarties eins og venjulegt fólk (og alltaf að bjóða) og hefur símann sinn á silent? Held mér líki best við Björk, eða lyktina af henni. Hjá Nýju lífi er bannað að borða harðfisk í vinnunni fyrr en eftir kl. 17 en þá fá líka allir lestir að þrýstast fram og öll lykt/fýla er velkomin, skilst mér.

Að lokum kemur hérna dásamlegt föstudagslag og nú ætti mannskapurinn bara að drífa sig út á dansgólfið:

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

.. svaraðiru mér? .. ég hef ekkert fengið

Hulda (IP-tala skráð) 30.5.2008 kl. 14:32

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Frábært að hlusta á Loftgítarinn.  Brjáluð músík.  Þú verður snögg að bola þeirri nýju úr starfi. 

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.5.2008 kl. 14:44

3 identicon

Hljómar eins og þvílíkt skemtilegur vinnustaður.

Ótrúlegt að einhver vilji hætta.

EE (IP-tala skráð) 30.5.2008 kl. 16:06

4 Smámynd: Laufey B Waage

Guði sé lof og dýrð fyrir að gefa gefið oss og vor og vérum frjálsan vilja. Nú hefur þú til dæmis algjörlega frjálst val um hvort þú kýst að ofsækja nýja nýju samstarfskonuna og hrekja hana úr starfi, - eða einfaldlega að skipta sjálf um hringitón. Og ef þú velur ekki að skipta um hringitón, þá geturðu líka valið um ástæður og réttlætingar. Þú getur t.d. valið þá réttlætingu að þú sért svo íhaldsöm, gömul, falstheldin, þrjósk og þver, að þér verði ekki haggað um hænufet og hananú.

Góða helgi og takk fyrir föstudagsstuðmúsíkina. 

Laufey B Waage, 30.5.2008 kl. 16:08

5 identicon

Veistu það Gurrý..... ef ég fengi vinnu á Vikunni (eða einhverju öðru skvísublaði) og fengi að sitja nálægt þér myndi ég  glöð breyta hringitóninum mínum ef við værum með sama tóninn og koma með smarties á föstudögum og bjóða þér með.......     Úff púff er laus staða þarna hjá ykkur?? 

Jonna (IP-tala skráð) 30.5.2008 kl. 16:16

6 Smámynd: Einar Indriðason

Ég giska á að biðja þig að breyta þínum hringitón er náttúrlega alveg út úr kú?  (Nei, bara spögilera....)

Einar Indriðason, 30.5.2008 kl. 16:22

7 Smámynd: Þröstur Unnar

Þetta hlýtur að vera dásamlegur vinnustaður. Beautiful wimmen´s and hard fish.

Þröstur Unnar, 30.5.2008 kl. 18:13

8 Smámynd: Þröstur Unnar

Anna, sérðu ekki stjórnunarsvipinn á þessari með gulu töskuna?

Þröstur Unnar, 30.5.2008 kl. 18:20

9 identicon

Ritstjórinn er sú rauðhærða sæta.

grrr...

Leynilegur aðdáandi (IP-tala skráð) 30.5.2008 kl. 18:31

10 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hehehehhe, jú, ritstjórinn er sú til vinstri. Björk er hin. Björk sem ég elska.

Hafði ekki dottið í hug að ÉG gæti skipt um hringitón. Verst að ég kann ekkert á símann. Hélt að aldur, reynsla og fyrri störf réðu því hver fengi að hafa hringitóninn. Það er líka allt of mikill þroski eitthvað ef ég skipti. Þá myndi ég líka endanlega hætta að svara í gemsann minn, ekki þekkja óhljóðin í honum. Hringing okkar Írisar er gamaldags símhringing, svona eins og svörtu símarnir hljómuðu. Gæti hún verið hallærislegri? Held ekki. Þess vegna valdi ég hana til að örugglega enginn væri með hana ... og með þessum afleiðingum.

Já, ég vinn sko með fallegum konum, það er rétt. Þið ættuð að sjá Hrund og Írisi Hrund ... og Haffa Haff, ekki má gleyma honum, hann er mjög sætur og yndislegur.  

Guðríður Haraldsdóttir, 30.5.2008 kl. 21:27

11 identicon

Jáhh, ég sé ekki betur en að allar blaðaskvísurnar hjá Vikunni séu fallegar. En með haffa haff ... verðið að spyrja einhvern annan um fegurð hans... thíhí.. æj eint gei mann

Leynilegur aðdáandi (IP-tala skráð) 30.5.2008 kl. 21:41

12 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Hvílíkt kvennaval...

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 30.5.2008 kl. 22:14

13 identicon

www.edrumenn.blogspot.com

Kalli (IP-tala skráð) 30.5.2008 kl. 23:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 224
  • Sl. sólarhring: 292
  • Sl. viku: 1766
  • Frá upphafi: 1460699

Annað

  • Innlit í dag: 203
  • Innlit sl. viku: 1427
  • Gestir í dag: 195
  • IP-tölur í dag: 195

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Ken
  • Krummi heitur
  • Galdraskjóða-Gurríar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband