Fleiri góðar móðganir

Ég kíkti á Netið nýlega og fann nokkrar ágætis móðganir í viðbót við þær sem ég þýddi upp úr skemmtilegu móðganabókinni sem ég fékk í jólagjöf um árið. Svo eru tveir gamlir og góðir Bjöggar þarna líka.

DublinerÞað er fínt að fá útrás hérna á blogginu fyrir andstyggilegheitin, ég er frekar lítið fyrir að móðga fólk svona dags daglega, a.m.k. viljandi. Einu sinni sagði ég mjög krúttlega við kunningja minn sem ég hafði ekki hitt í óratíma, gamlan skólafélaga úr Vörðuskóla: „Hvað er svona fallegur maður eins og þú að gera á svona stað eins og þessum?“ Við vorum á Gauk á Stöng eða líklega á Dubliner, já, þetta gerðist á Dubliner ... Maðurinn varð alveg brjálaður og rauk fussandi og sveiandi á brott og ég skil ekki enn hvers vegna. Alla vega tókst mér að móðga þessa elsku alveg óvart. Svo móðgaði ég líka mann sem horfði hrifinn á mig og sagði: „Hilda mín, ert þetta þú?“ Þegar ég sagðist vera systir hennar varð hann sár og móðgaður og sagði að ég vildi bara ekki þekkja hann. Hilda hefur lent í þessu sama þegar fallegir menn halda að hún sé ég og sært marga aðdáendur mína með því að vera ekki ég ...

Hér koma spælingarnar:

Eru foreldrar þínir systkini„Ég myndi spyrja þig um aldur þinn en geri mér alveg ljóst að þú kannt ekki að telja svo hátt.“

„Ég myndi vissulega reyna að móðga þig en þú myndir bara ekki skilja það.“

„Ég er ljóshærð/ur, hvaða afsökun hefur þú?“

„Mikið gleður það mig að þú látir ekki menntun þína flækjast fyrir fávisku þinni.“

„Hvern kalla ég heimskan? Góð spurning, ég veit það ekki. Hvað heitir þú?“

„Foreldrar þínir eru systkini, er það ekki?“

„Lærðu af mistökum foreldra þinna og láttu taka þig úr sambandi!“

„Hey, varst þú ekki krakkinn á getnaðarvarnaplakatinu?“

„Ég er viss um að gelt móður þinnar er verra en bit hennar.“

Móðgun„Hæ, ég er manneskja, hvað ert þú?“

„Feit, þú ert ekki feit, þú ert bara ... ó, fjandinn, ókei, þú ert feit, reyndar alveg rosalega feit!“

„Hún er svo feit að bíllinn hennar er eini bíllinn í bænum með slitför.“

„Hey, ég man eftir þér síðan þú varst aðeins með einn maga.“

„Ég sé að þú hefur verið svo ánægð/ur með hökuna á þér að þú hefur bætt tveimur við.“

„Þú ert svo feit/ur að þegar þú hoppar upp þá festist þú.“

 

Og svo úr pikköpplínudeildinni:

Maður: „Ég kannast svo við þig. Höfum við ekki hist áður?“
Kona: „Jú, ég vinn sem læknir á kynsjúkdómadeildinni.“

 

Maður: „Ég get uppfyllt alla kynóra þína!“
Kona: „Þú getur sem sagt reddað mér asna, St. Bernharðshundi og grilláhöldum?“

 

Tveir gamlir og góðir úr Bjöggadeildinni:

BjörgvinBjörgvin Halldórsson, sjónvarpsþulur og söngvari, er þekktur fyrir nístandi athugasemdir sem geta verið afar fyndnar ... fyrir þá sem lenda ekki í þeim. Þeir sem þekkja kauða segja að hann sé ekki að reyna að særa neinn heldur frekar að ná viðkomandi niður á jörðina. Þegar menn eru orðnir aðeins of stórir fyrir jakkafötin sín minnir Björgvin þá á hversdagsleikann og leiðir þeim skýrt fyrir sjónir að þeir séu engir stórkarlar. Einn morguninn stóð hann fyrir utan Stöð 2 og var að tala við samstarfsmann sinn þegar eitthvert „fóstur“ í jakkafötum kom aðvífandi á sjö milljón króna jeppanum sínum sem hann hafði aldrei ekið lengra út úr bænum en í Garðabæ.  Hann bisaði lengi við að troða jeppanum inn á stæði og Björgvin fylgdist grannt með. Síðan steig „fóstrið“ út úr bílnum, læsti honum með fjarstýringu, hagræddi gemsunum tveimur í brjóstvasanum og gekk í áttina til þeirra. Hann ætlaði að heilsa en Björgvin varð fyrri til, benti með þumlinum á jeppann og spurði: „Lýsing eða Glitnir?“

 

Vinsæll söngvari hafði keypt sér flottustu jakkaföt poppsögunnar og fór í þeim á Hótel Ísland þar sem Björgvin var með stórsýningu í gangi, sýningu sem hafði rúllað í tvö ár fyrir fullu húsi. Söngvarinn ákvað að heilsa upp á Björgvin baksviðs og vakti þar mikla athygli fyrir flottu fötin. Kannski líkaði Björgvini ekki öll athyglin sem söngvarinn fékk en hann gekk alla vega að honum, tók í jakkalafið, kíkti á merkið og sagði um leið og hann leit á söngvarann: „Ný föt ... sama röddin.“


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Hólmdís Hjartardóttir, 27.7.2008 kl. 03:05

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Mögnuð ertu, eruð þið vakandi á nóttunni stelpur?  ég er löglega afsökuð.  Annars datt mér í hug að ég hefði átt að heimsækja Chuck Norris og láta hann laga brjósklosið, hann hefði bara horft á það og brjóskið ekki þorað annað en að fara í réttar skorður STRAX. Knús á skagann.

Ásdís Sigurðardóttir, 27.7.2008 kl. 05:30

3 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 27.7.2008 kl. 09:15

4 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Bjöggi er nebblega helv... góður að svara fyrir sig

Haraldur Bjarnason, 27.7.2008 kl. 10:07

5 identicon

Óborganlegt, takk fyrir þetta :D

Sigrún (IP-tala skráð) 27.7.2008 kl. 11:26

6 Smámynd: Árni Gunnarsson

Stal þessari færslu og sendi dóttur minni. Er það kannski lögbrot?

Árni Gunnarsson, 27.7.2008 kl. 11:35

7 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Árni, mín er ánægjan, steldu líka þeirri fyrri um móðganir og sendu henni.

Já, Bjöggi er mjög góður í spælingum. 

Sendi Chuck Norris á þig, Ásdís!!!

Guðríður Haraldsdóttir, 27.7.2008 kl. 11:50

8 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Hrikalega fyndið...

Annars er líka hægt að finna þessar fínu móðganir í sumum skrifum sumra Jóna hérna á blogginu

Heiða B. Heiðars, 27.7.2008 kl. 13:35

9 Smámynd: Hrannar Baldursson

Móðganir eru ágætar svo framarlega sem maður stundar þær ekki.

Hrannar Baldursson, 27.7.2008 kl. 15:30

10 identicon

hehe :P

Kleópatra Mjöll Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 27.7.2008 kl. 16:30

11 identicon

Talandi um móðganir og Björgvin Halldórsson.

Bjöggi var með afmælistónleika á Hótel Íslandi. Hann fyllti húsið!

...hann er nefnilega búinn að bæta herfilega á sig undanfarin ár!

Breiðholtshatarinn (IP-tala skráð) 27.7.2008 kl. 17:09

12 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

ÉG myndi þora að veðja húsinu mínu upp á Guðríður Huldusystir, að mennirnir sem taka hana fyrir þig og móðgast svo þegar þú leiðréttir þá, eru öllu sjóndapari en þeir sem taka þig fyrir hana! Annars myndu þeir ekki móðgast svona!

Magnús Geir Guðmundsson, 27.7.2008 kl. 18:42

13 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

Maður: „Ég kannast svo við þig. Höfum við ekki hist áður?“
Kona: „Jú, ég vinn sem læknir á kynsjúkdómadeildinni.“

Heheheh þarf að muna þennan...meðan enn er verið að reyna að pikka mig upp.

Bjöggi er drepfyndinn...Jafnvel þó hann ætli sér það ekki.

Brynja Hjaltadóttir, 27.7.2008 kl. 22:26

14 Smámynd: Sigríður Þórarinsdóttir

  Margir góðir þarna

Sigríður Þórarinsdóttir, 27.7.2008 kl. 23:45

15 identicon

„Hey, ég man eftir þér síðan þú varst aðeins með einn maga.“

„Ég sé að þú hefur verið svo ánægð/ur með hökuna á þér að þú hefur bætt tveimur við.“

Þarna dó ég næstum, frábær bók og Björgvin góður!!

alva (IP-tala skráð) 28.7.2008 kl. 02:24

16 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Þér eruð stórkostleg.

Steingerður Steinarsdóttir, 28.7.2008 kl. 10:15

17 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Dásamlegar leiðbeiningar sem gott er að grípa til þegar þörf krefur.

Helga Magnúsdóttir, 28.7.2008 kl. 10:39

18 identicon

Sæl og blessuð Gurrí    Ég hef nú aldrei sent þér athugasemd en vil senda þér unaðsþakkir fyrir óborganlega fréttapistla um boldið.   Ég horfði í den alltaf á það reglulega á 4 mánaða fresti hér áður fyrr, en nánast hættur því miklu skemmtilega að smjatta á þessu á blogginu þínu.  

Úr því ég er byrjaður verð ég að koma með smá fréttaskýringu með Lýsing og Glitni.  Hér áður fyrr var þetta alveg drepfyndið.   Symbol fyrir þá aðila sem þurftu að sanna sig með skuldahala á ofurvaxtakjörum á kaupleigu.   En til upplýsinga þá er núna bara einfaldlega skattalega hagkæmast fyrir þá sem geta að vera með rekstarleigu og hafa enga áhyggjur af endursölu og fleiri.  Með öðrum orðum kannski ekki karlar í krapinu en djúpir en ekki heimskir.

Bkv

Rufalo PS  kærastan mun ekkert smá skammast að ég viðurkenni þetta með bóldið.

Rufaló (IP-tala skráð) 7.8.2008 kl. 12:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 25
  • Sl. sólarhring: 373
  • Sl. viku: 2267
  • Frá upphafi: 1456563

Annað

  • Innlit í dag: 25
  • Innlit sl. viku: 1898
  • Gestir í dag: 25
  • IP-tölur í dag: 25

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Sjö saman í Karíba
  • Facebook ógnir
  • Herbergi drengsa

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband