3.1.2023 | 15:38
Dularfull spá fyrir 2023
Þar sem ég sat við vinnu mína í dag og hlustaði á meðan á Spotify-listann minn með fjölbreyttri tónlist, fékk ég hugmynd. Drengurinn fór í Hvíta húsið (ungmennahús á Skaganum) svo ég hef Spotify í friði. Róleg lög, villt lög, nýleg og gömul lög, og allt þar á milli.
Eftir tvö eða þrjú lög ákvað ég að spá fyrir mér. Hvernig ætli nýja árið verði, gerist loksins eitthvað í tengdasonarmálum pabba, heldur sjórinn minn áfram að vera svona flottur og verður lítið um hálku í vetur ... og það allt. Ok, hugsaði ég, næsta lag sem kemur (ég var með stillt á stokkun / shuffle) mun segja allt um nýja árið hér í Himnaríki. Plís, ekki hafa það óskiljanlegt bull, eins og Horse with no name (America) eða eymdarlegt ár, Solitude (Black Sabbath), hvað þá um biluð þrif ... Cleanin´Out my closet (Eminem), frekar t.d. Going to California (Led Zeppelin) eða spennandi, Gangsta´s Paradise (Coolio). Ég beið spennt. Auðvitað kom auglýsing fyrst til að auka á taugaspennuna sem var byrjuð að myndast.
Svo kom lagið ... og þvílíkur spádómur: No One Knows (Queens of the Stone Age). Hefði svo sem getað verið eitthvað móðgandi á borð við: Old and Wise (Alan Parsons) svo ég kvarta alls ekki. (Myndin völvulega er auðvitað af mér, montrassinum úr Þingeyjarsýslu, af forsíðu völvublaðs Vikunnar 2007, ég var forsíðufyrirsætan af því að ég var langelst á ritstjórninni, hrukkur geta verið svo töff, en hreykin móðir mín sagði öllum í kjölfarið að ég væri völva Vikunnar, sem var rosalega erfitt að leiðrétta).
Það er þessi dagur í dag, sá sem á að vera verstur allra daga og hefur svo sem verið það. Sá í dag er þó bestur þeirra til þessa. Fimm ár frá slysinu hans Einars. Sá fyrsti, ári eftir slysið, var í Orlando í Flórída. Samferðafólk mitt fór í skemmtigarð og ég settist við sundlaugarbarinn og horfði á skemmtilegan fótboltaleik, drakk einn bjór, eitthvað af kaffi og las líka. Vinsælasta lagið var Shallow með Lady Gaga og Bradley Cooper - og það hljómaði nokkrum sinnum á meðan ég sat þarna í hitanum. Næsti "þriðjinn" var í Conway hjá elsku Elfu og Tom. Ég kom heim 7. janúar 2020, mjög sátt við að verða ekki föst ytra vegna bráðsmitandi víruss sem var aðeins farið að tala um, meira á Íslandi en í Bandaríkjunum, en fáir hér virðast muna eftir þessum fréttaflutningi svona snemma en ég geri það, því ég man eftir feginleika mínum við að ná að lenda á Íslandi snemma í janúar. Kaninn heldur, eins og Íslendingar um Ísland, að allir vilji búa í USA - ég vil bara búa á Íslandi - meðal annars vegna veðursins.
Hinir þriðjujanúarnir liðu bara heima í rólegheitum við vinnu og tónlist. Það kemur sér ansi vel að eiga bestu ættingja og vini í heimi sem skilja þessa þörf fyrir að vera ein þennan dag, eða án gesta eða blóma, meira að segja konfekts. Eina heimsóknin í dag var frá Eldum rétt, örsnögg og eldhress - og tryggir okkur stráksa fínasta kvöldmat. Drengurinn hafði það svakalega gott yfir áramótin hjá mínu fólki, kom ekki fyrr en í gærkvöldi með strætó. Á meðan hann var í góðu yfirlæti í Kópavogi held ég að mér hafi tekist að ná úr mér mestu næstum-því-veikindunum.
Megi árið 2023 verða ykkur rosalega gott, elskurnar.
Legg ég á og mæli um!
Þetta er sem sagt það sem gerist á nýja árinu í Himnaríki:
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.5.): 5
- Sl. sólarhring: 160
- Sl. viku: 486
- Frá upphafi: 1526823
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 414
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni