Færsluflokkur: Dægurmál
16.7.2007 | 08:32
Hetjusaga af Heimi, veiðifréttir af Tomma og kolbrúnir sóldýrkendur
Karlarnir mínir á stoppistöðinni töluðu glaðlega um og af tilhlökkun að það myndi loksins fara að rigna á fimmtudaginn en því miður héldu þeir að það entist ekki mjög lengi. Hvað er eiginlega í gangi? Mikið hefur allt breyst nú í sumar vegna þessarar einstöku veðurblíðu. Hérna í gamla daga, ja, bara í fyrra og öll árin þar á undan, notaði fólk hverja sólarglætu og fannst skammarlegt að vera inni í þau fáu skipti þegar sólin skein. Ég fékk ótaldar skammirnar fyrir að nota ekki sólina!!! Þetta fólk sem gekk lengst í þessu hlýtur að vera ansi brúnt á litinn núna, ansi brúnt ... Karlarnir mínir höfðu víst líka frétt að Tommi bílstjóri hefði ekki veitt eina einustu bröndu í veiðiferðinni í Vesturhópið ... og allt mér að kenna. Maður segir ekki "Góða veiði" við veiðimenn, man það héðan í frá. Nú mun ég segja "Gangi þér illa, helvítið þitt" eða "Fótbrjóttu þig, auminginn þinn" ... við alla, svona til öryggis! Mikið held ég að öllum fari þá að ganga vel ...
Heimir bílstjóri kom okkur heilu og höldnu í bæinn, eiginlega á mettíma án þess að glanna, og ég tók eftir því þegar hann hleypti okkur út, einum ljósastaur lengra en stoppistöðin, að sá staður væri bara skrambi hentugur fyrir stoppistöð. Enginn rúllar niður vegkantinn (skaðræðisbrekkuna) og Strætó bs þarf ekki að búa til rándýrar tröppur á hann ... Mín alltaf að spara fyrir Strætó bs sinn.
Sigþóra sagði mér á leiðinni upp rassvöðvabrekkuna að Heimir hefði sýnt glæsileg viðbrögð undir kvöld á föstudaginn. Einhver bílstjóri á einkabíl svínaði illilega, beygði frá Þingvallaafleggjaranum, inn á Vesturlandsveg og í veg fyrir strætó. Heimir bremsaði víst hetjulega og bjargaði farþegunum naumlega frá árekstri. Sigþóra var með hjartslátt alla leiðina heim.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
15.7.2007 | 22:25
Konan á vespunni og kúnstugt kattalíf
Þetta verður svona matar- og kisublogg, aldrei þessu vant ... Hulda snillingur var með gráðaostfylltar kjúklingabringur í matinn. Hún steikti líka saman sneiðar af gulrótum og döðlum með kókosmjöli ... mjög gott þótt ég hafi sleppt döðlunum.
Hulda býr hinum megin á Skaganum, Vesturgötumegin, hefur sjóinn upp við garðinn sinn og er með útsýni yfir til Snæfellsjökuls. Hún er líklega eina konan á Skaganum sem fer allra sinna ferða á lítilli vespu og finnst það alveg frábært. Hún sagði mér að fólk á öllum aldri ferðaðist á þennan máta á Spáni og því ekki á Akranesi.
Myndin af rólu og brimi er tekin rétt hjá húsinu hennar. Hún hefur alla vega þetta útsýni. Fattaði ekki að taka með mér myndavélina í kvöld ...
Elskan hann Bjartur er kominn í pössun og byrjaði á því að ráðast á Tomma sem flúði undir rúm. Kubbur er enn uppi á skáp og nú er augnaráðið hræðslulegt. Kommon, kettir mínir, Bjartur er minni en þið og skíthræddur, þess vegna lætur hann svona. Mía og Sigþór ætluðu aldrei að geta kvatt dúlluna sína, ætla að heimsækja hann á morgun. Það á að fara að mála gluggana hjá þeim og þeim fannst betri meðferð á kettinum að koma honum í sumarbúðir í himnaríki en loka hann inni einhvers staðar á meðan málningin er að þorna, svo tekur eitthvað annað við svo að Bjartur verður í nokkra daga. Hann er farinn úr glugganum og lagstur í stól fyrir aftan mig, elsku dúllan eltir mig um allt. Mínir eigin kettir eru í gíslingu og þora ekki að ganga frjálsir um af hræðslu við hrædda köttinn ... þetta kattalíf.
Jæja, best að fara að horfa á nýju DVD-myndina með Hugh Grant. Ellý segir að hún sé góð!
15.7.2007 | 16:13
Kósíheit, styttri nætur og fjólublár Faxaflói
Búin að fá nóg af sól í bili. Skellti sæng og koddum í sólbað í staðinn. Hetjan Kubbur kíkti aðeins út á svalir en entist ekki lengi. Eitthvað hefur komið fyrir þar í gær. Nú liggur hún uppi á fataskáp í svefnherberginu og hefur það náðugt. Fyndið með ketti og uppáhaldsstaði ... Tommi á körfu inni á baði sem hann sefur iðulega í og ég hef aldrei séð Kubb dirfast að liggja þar, samt átti Kubbur þessa körfu upphaflega ... Þegar ég sit við tölvuna leggst Tommi mjög oft út í gluggann og horfir út eða bara sefur. Helst vildi hann vera í fanginu á mér en þar sem hann er risaköttur verður hann svolítið mikið þungur eftir smástund.
Mikið standa þessar björtu, íslensku nætur stutt yfir. Það er strax farið að dimma aftur á kvöldin en ég náði fjólublárri, draumkenndri mynd í gærkvöldi skömmu áður en það dimmdi enn meir.
Jæja, nóg að gera við þvotta, tiltekt og böðun. Matarboð á eftir hjá Huldu og svo kemur elskan hann Bjartur í pössun. Mikið verður gaman hjá þeim Tomma ... vona ég.
Svo er stefnan að kaupa Lazy boy-stól í Rúmfatalagernum á morgun. Ætla að sætta mig við drapplitaðan (í stað hins uppselda dökkbrúna) og hekla bara skrautlegt teppi á hann. Þá verður nú kósí í himnaríki!
15.7.2007 | 13:02
Svalir óttans
Hef verið með hrikalegan athyglisbrest síðustu vikurnar, ekki getað eirt almennilega við lestur og það er alveg fáránlegt! Girnilegar, ólesnar bækur bíða í bunkum, meira að segja tvær Dean Koontz-bækur sem ég fékk lánaðar á dögunum. Þegar ég kom heim á föstudaginn hefði ég átt að fara að lesa en nei, ég fór að þrífa ísskápinn! Svona gerir maður ekki. Held að ég prófi að setjast út á svalir með Leyndu kvöldmáltíðina ... eða Þrjá daga í október ... eða Skurði í rigningu ... eða The Bad Place ... eða By the Light of the Moon.
Það hljómar vissulega afar vel að setjast út á svalir en samt gerðist eitthvað þar í gærkvöldi sem fær mig til að halda að þetta gætu mögulega verið Svalir skelfingarinnar ...
Tommi kom nefnilega veinandi inn í bókaherbergi snemma í gærkvöldi og þar sem ég skil ekki kattamál fór ég inn í stofu. Mætti þar Kubb sem kom úfin og stressuð af svölunum.
Eitthvað hrikalega skelfilegt hlýtur að hafa gerst, hárin risu á Kubbsu og hún jafnaði sig ekki fyrr en hún fékk að borða og mikið klapp. Jamm, hér gerast sko hin dularfyllstu ævintýri.
14.7.2007 | 22:33
Tommi tölvuséní, góður eftirréttur, heimsókn og sjónvarpsdiss
Tommi köttur (ekki strætóbílstjóri) gekk yfir lyklaborðið mitt til að sýna mér extra-ástreitni og áður en ég náði að setja hann niður á gólf hafði honum einhvern veginn tekist að lita eitt bréfið í tölvupóstinum appelsínugult. Þetta gæti ég ekki gert þótt lífið lægi við. Mjög dularfullt. Fannst ég vera komin inn í Dean Koontz-bók, nema Dean notaði labradorhund sem ofurgáfað kvikindi í einni bóka sinna. Appelsínugulur litur er sagður mjög góður og skapandi. Hér með birti ég litaða bréfið frá samstarfskonu minni, líklega var það tilgangurinn með þessu öllu saman, guði sé lof að þetta var saklaust bréf. En svona er bréfið:
GÓÐUR EFTIRRÉTTUR
750 g vanillu skyr.is án viðbætts sykurs
1 peli þeyttur rjómi
Hrært saman og berjum blandað í (t.d. jarðarberjum og/eða bláberjum)
Látið standa í kæli í um eina klst. og skreytt með berjum.
Ath: hægt að setja smá ósætt hafrakex í botninn!
Gömul vinkona af Skaganum kom í heimsókn seinnipartinn og sat með mér á svölunum í smástund. Þótt ég sé hálfgerður hermit þá finnst mér fólk í raunheimum bara virkilega skemmtilegt. Ég leyfði Huldu að smakka góða eftirréttinn úr tölvupóstinum sem ég klessi saman á einni mínútu en notaði mun minni uppskrift. Huldu fannst þetta MJÖG gott og mér líka. Þoli ekki bláber (ormar í þeim) og notaði jarðarber.
Horfði á America´s Got Talent áðan í fyrsta sinn, missti af fyrsta þættinum. Miðað við það sem ég hef séð á youtube.com hefði ég miklu frekar viljað fá Britain´s Got Talent. Ant og Dec, kynnarnir í bresku þáttunum, eru svo æðislegir ... og kannski er maður bara búinn að fá nóg af ammmrískum svona þáttum. Ég er tryggasta kvikindi sem fyrirfinnst en treysti mér t.d. ekki til að horfa á ameríska ædolið sl. vetur ... þá var ég búin að fá nóg, löngu á eftir öllum sem ég þekki.
Nokkrir breskir þættir hafa reyndar verið á dagskrá undanfarin misseri, m.a. draugagangsþáttur og tískuþáttur en mér fannst þeir reyndar alveg skelfilegir. Draugaþátturinn er með þekktum miðli sem finnur fyrir framliðnum í þekktum draugahúsum og sjónvarpsfólkið með honum skrækir ógurlega. Tískuþátturinn er þannig að tvær gellur auðmýkja nokkrar kerlingar í hverjum þætti, fá þær helst til að skæla og viðurkenna hvað þær eru ljótar og hallærislegar en svo redda gellurnar öllu! Arggg!
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
14.7.2007 | 15:07
Sólvörn komin en hvar er sólin?
Komst klakklaust út í sjoppu á nýju, vínrauðu sandölunum mínum og jú, þar var til sólvörn. Af því að stelpurnar sem afgreiða í N1, bensínstöðinni rétt við spæleggið (stóra hringtorgið) eru alltaf svo indælar spurði ég nánar út í þetta krem. Sagðist vera byrjandi í sólvarnarfræðum. Aha, sagði sú sem afgreiddi mig, þessi er númer 8, hún er frekar dauf, taktu heldur númer 15!

Nú er engin sól, bara skýjaslæða yfir öllu. Vona að sólvarnarkremskaup mín verði ekki til þess að þetta verði síðasti sólardagur sumarsins. Annað eins hefur nú gerst. Eins og um daginn þegar ég fór út á svalir til að horfa á leik Víkings og ÍA þá skoraði óvinurinn. Ég hljóp hratt inn í himnaríki og ákvað að horfa ekki meira, heldur spá því að Skagamenn myndu skora tvö mörk og sigra. Það gekk eftir. Hehehheh!
Bjartur, háæruverðugur köttur systur minnar og mágs, kemur í pössun til mín á morgun. Þeir Tommi hafa verið ágætir vinir en nú er langt um liðið síðan Bjartur kom síðast. Hann hefur átt í grimmilegri landamæradeilu við annan kött í götunni sinni og hefur eflaust gott af því að fá hvíld. Vonandi að óvinakötturinn haldi ekki að Bjartur hafi gefist upp við að verja yfirráðasvæði sitt og flúið.
13.7.2007 | 10:56
Rúllandi Sigþóra í rjómablíðu og bomsupælingar
Bílstjórinn í morgun stoppaði aðeins fyrr/aftar (fjær Reykjavík, nær Akranesi) þegar hann hleypti okkur Sigþóru út við Vesturlandsveginn, mun aftar en Tommi gerir venjulega og ég upplifði loks að sjá Sigþóru kútveltast niður brekkuna. Það var samt hvorki fögur né fyndin sjón, Sigþóra gerði þetta bara töffaralega og líktist helst njósnara í spennumynd. Líklega hefði þetta verið fögur sjón ef ég hefði séð þetta í slow motion en þetta var svona hviss bang, eina sekúnduna liggjandi og þá næstu staðin upp.
Ég hlæ vitanlega aldrei að svonalöguðu, eins og t.d. Hilda systir myndi gera og margir sem ég þekki ... Aftur á móti sturlaðist ég úr hlátri yfir skemmtiþætti í sjónvarpinu fyrir nákvæmlega sex árum sem sýndi viðbrögð fólks við óþægilegum uppákomum. Þarna sást m.a. líkbíll fara upp bratta brekku ... afturdyrnar opnuðust og kistan rann út og brotnaði (minnir að leikari eða brúða hafi verið í kistunni). Það var óborganlegt að sjá viðbrögð fólks við þessu ... þegar ég sá þetta var ég svona frekar döpur því að pabbi hafði dáið deginum áður. Mikið var gott að geta argað úr hlátri! Ekkert samasemmerki þarna milli dauða pabba og grínsins.
Held að elskurnar mínar hjá Strætó bs. verði að gera eitthvað fyrir þessa stoppistöð áður en fólk fótbrýtur sig eða rúllar fyrir trukk á leið upp aðreinina, auðvitað feta sig flestir niður vegkantinn þarna niður af stoppistöðinni. Eftir að ég rúllaði þarna niður í fyrra hef ég tekið langan sveig (ef bílstjórinn stoppar á "réttum" stað) til að það gerist ekki aftur og svo vil ég líka halda virðuleika mínum í lengstu lög.
Merguð, ókeypis hugmynd: Í stað þess að ráðast í, með ærnum tilkostnaði, að gera tröppur þarna niður vegkantinn (sem breytast í rennibraut í snjó og hálku) sting ég upp á MIKLU ódýrari lausn, bara eiginlega næstum því ókeypis lausn! Hún er svo að færa stoppistöðina vestar, eða NÆR Reykjavík, að staðnum þar sem aðreinin og Vesturlandsvegur mætast. Þá erum við farþegarnir á jafnsléttu og getum gengið settlega niður eftir götu. Sigþóra var ekki hress með fallið í morgun, enda hefur hún oft kvartað yfir þessu. Bara færa skiltið, krúttin mín og málið er dautt! Svo verð ég að kaupa nýja vetrarskó (ef leið 18 heldur áfram að rúnta um Árbæinn) til að geta gengið upp brekkuna framhjá góðu lyktinni frá Nóa Síríus í öllum veðrum. Laufey kom með mér í hittiðfyrra í Outletbúð þar sem ég fann hina fínustu X-18 skó. Laufey starði á mig um daginn og spurði hræðslulega: "Ekki eru þetta sömu skórnir og við keyptum saman hérna í gamla daga?" Henni finnst ég ganga of langt í búðahatri og nýtni, samt hata ég nísku. Best að einbeita mér að því að finna góða vetrarskó næst þegar ég fer í Kringluna eða á Laugaveginn. Fer maður annars ekki að komast á bomsualdurinn?
Vá, hvað ég er fegin að ég fór í svartan stutterma rúllukragabol undir svartan kvarterma jakkann í morgun.
Þetta gula þarna uppi eirir engu og koma því svartar Casall-buxurnar sér ákaflega vel í hitanum og fara vel við svarta þunna kápuna.
12.7.2007 | 19:34
Sætir frændur og sofandi systir í sófanum
Nú er orðið allt of langt síðan ég hef birt mynd af ástkærum frændum mínum, Úlfi og Ísaki sem fæddust 19. desember sl. Þeir eru tvíeggja en voru samt báðir með skarð í vör á nákvæmlega sama stað, einnig klofinn góm. Önnur myndin af þeim er tekin morguninn sem þeir fóru í aðgerð númer tvö. Þeir eru svo yndislegir ... fékk fiðrildi í hjartað þegar ég sá nýju myndina af þeim, allt of langt síðan ég hef hitt þá.
Hilda heimsótti þá í dag og var í svona krúttkasti a la Jenfo á eftir. Hilda er í sólarhringsfríi frá sumarbúðunum ... og sefur inni í stofu, heheheheh! Þyrfti að fara að vekja hana til að hún sofi ekki af sér fríið á Akranesi, hún var búin að hlakka svo til að fara heim í Kópavoginn (of oll pleisis). Hún átti erindi í raftækjaverslun á Skaganum, Hljómsýn, held ég að hún heiti, og mikið fengum við góða þjónustu þar. Kaffi og meðððí á Skrúðgarðinum var næst á dagskrá. Þægilega svalt var inni og galtómt sem er óvenjulegt. Kíkti út í garð og þar sat fjöldi fólks og sólaði sig. Jæja, best að vekja Hildu.
12.7.2007 | 08:32
Enginn munkastrætó hér ...
Það hýrnaði yfir samstoppistöðvarkörlunum mínum þegar Tommi birtist og á hárréttum tíma að vanda. Hann sefur aldrei yfir sig. Ekki það að hinir stundi það en það hefur komið fyrir. Ég hreiðraði um mig hjá Ástu og ætlaði að gera enn eina árangurslausa tilraunina til að sofa þá frétti ég af rökræðum sem stjórnstöð strætó átti við Tomma í gærmorgun. Tommi hafði samband við þá og kvartaði yfir vöntuninni á aukabílnum, því sem leiddi til þess að fólk frá Akranesi og Grafarvogi blandaðist saman í áætlunarvagninn. Tommi fékk þau svör frá einhverjum, örugglega gömlum vini mínum á stjórnstöð, að það ætti bara að sjá um að ég yrði ekki áreitt í strætó. Tommi reyndi eitthvað að mótmæla, sagði að Skagastrætó væri enginn munkabíll ... Veit ekki hvað stjórnstöð er að skipta sér af ánægjustundum mínum .... heheheheh! Beið með mínu fólki í gær og upplifði að vera í kássu og kremju með Grafarvogsbúum og það er efni í alla vega þrjár lífsreynslusögur í Vikuna ...
Þegar við komum út úr göngunum tautaði Tommi: Á hvaða vaskafati er Elli núna? Við litum upp og sáum litla bílinn, 25 manna vagninn sem var að fara fyrstu morgunferðina frá Mosó. Vaskafat er nokkuð gott orð yfir litla kvikindið sem er annars þægilegur bíll þegar hann er ekki stappaður af fólki.
Passa puttana, sagði Tommi við húsasmiðinn þegar hún fór út úr strætó. Hún hló bara og lofaði því. Karítas brekkubjútí stóð í brekkunni og við spurðum hana undrandi hvort skólarnir væru byrjaðir aftur, enda vinnur hún í skóla í Rvík. Nei, sérverkefni á fimmtudögum, svaraði hún og flissaði.
Séð og heyrt með okkur Tomma í faðmlögum í strætó kemur út í dag og mun Tommi eflaust kaupa blaðið á leið sinni norður í Vesturhóp í veiðiferðina sem hann sagði okkur frá. Þegar við Sigþóra gerðum okkur líklegar til að hoppa út við Vesturlandsveginn sagði ég hlýlega við Tomma: GÓÐA VEIÐI! Tommi greip um stýrið og náfölnaði og hinir farþegarnir frusu. Þegar Sigþóra kom upp orði sagði hún: Svona segir maður ekki við veiðimann, það táknar að hann veiði ekki neitt! Ég reyndi að bæta fyrir þetta með því að tauta nokkrar vel valdar bölbænir á meðan ég gekk niður tröppurnar, óskaði þess m.a. aðTommi mölbryti á sér lappirnar og þess háttar, en er skíthrædd um að ekkert veiðist í Vesturhópinu vegna þessarra óábyrgu orða minna. Ég vissi þetta ekki með hjátrú veiðimanna, hélt að leikarar væru eina fólkið sem fótbrotnaði ekki þótt maður óskaði þeim þess en nú veit ég betur!
11.7.2007 | 21:52
Játningar úr himnaríki plús smá bold
Einhver vírus eða eitthvað virðist vera að ganga á Netinu ... virðulegasta fólk er klukkað, sumt jafnvel fjórum sinnum, og verður að opna hjarta sitt fyrir bloggvinum sem halda virkilega að þeir viti ekki allt ... Reyndi að taka saman eitthvað sem er kannski ekki endilega á allra vitorði ... án þess þó að afhjúpa öll fjölskylduleyndarmálin. Er búin að klukka Dodda og Þröst Unnar. Kann ekkert rosalega vel á svona leiki.
Átta virkilega háalvarlegar og opinskáar játningar:
1) Kann ekki að nota matarlím.
2) Þoli sjaldnast tónleikaútgáfur af lögum.
3) Hef ekki farið í sund í 20 ár, fyrir utan smásvaml í sundlaug í Hrútafirði á síðustu öld. Heitir pottar eru heldur ekki á vinsældalistanum.
4) Finnst lax, silungur og slíkt ferlega vondur matur, nema reyktur.
5) Leigði mér Bodyguard (Whitney Houston) á spólu eitt árið.
6) Líður langbest í 10-15°C og forsælu ... sól er stórlega ofmetin til baða.
7) Nagaði neglurnar í 40 ár. Er nýhætt af því að fólk hætti að skipta sér af því.
8) Þoli ekki nísku, þá meina ég ekki sparsemi eða varkárni í fjármálum.
ANNAÐ:
Ástumálin: Ásta kíkti í stutta heimsókn í kvöld. Fæ sjaldan kvöldgesti á virkum dögum, eins gott að hún þarf að vakna klukkan sex eins og ég, annars værum við enn að spjalla! Spiluðum nokkur Metallica-lög á youtube.com og rifjuðum upp skemmtilega tónleika í Egilshöll. Afrekaði líka að ryksuga himnaríki í dag!
Boldið: Stefanía ÆTLAR að eyðileggja hjónaband Bridgetar og Nicks en fyrrum maður hennar, Eric, sem er líka pabbi Bridgetar, hótaði henni öllu illu ef hún blaðraði frá leyndarmálinu, eða því að Nick og Brooke, mamma Bridgetar, ætla að fórna sér og ást sinni fyrir hamingju Bridgetar. Þetta og samdráttur Jackie, mömmu Nicks, og Erics, pabba Bridgetar og fyrrum eiginmanns Stefaníu, hefur verið það helsta undanfarið. Lofa að fara að fylgjast betur með! Já, og Jackie ætlar ekki að leyfa Stebbu að skemma hjónabandið af því að hún Á þetta barnabarn og Stebba fær ekki að skipta sér af því. Svona ömmuslagur er alltaf spennandi!
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 2
- Sl. sólarhring: 23
- Sl. viku: 157
- Frá upphafi: 1527596
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 132
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni