Er Britney að missa allt?

Britney og KevinÉg hef alltaf haft hálfgerða skömm á honum Kevin hennar Britneyjar og fundist hann vera vondi aðiliinn í hjónabandinu sáluga. Hann fór líka fram á svo fáránlega margar milljónir við skilnaðinn ... ég sæi ekki íslenskan gaur hafa stolt til að gera slíkt!

En svo getur verið að hann sé í fínu lagi og fjölmiðlar bara svona farið offari í skrifum sínum um hann, neikvætt selst jú betur en það jákvæða.

Fyrst Britney afskráði sig úr meðferð þá  er ekki óeðlilegt að hann vilji hafa forræðið yfir börnunum ... en þau Britney hafa reyndar sameiginlegt forræði ... hefði haldið að það væri nóg til að hann gæti sinnt föðurlegum skyldum sínum ... eða er hann kannski að reyna að fá meiri peninga út úr Britneyju og notar börnin til þess?

Svo er þetta kannski hinn yndislegasti gaur sem meikaði ekki að búa með illa firrtri dekurdúllu ... hvað veit maður?

 

Enn þá er ég lasin og ætla að vera heima í dag. Nokkuð andlaus og ætlaði án nokkurrar miskunnar að sleppa morgunblogginu þangað til ég rak augun í þessa frétt og leið eins og ég sæi sparkað í veikan hund (Britney) ... 

BLOGGVINAFUNDUR: Að vísu er hér eitt mál óháð Kevin og Britneyju ... hann Guðmundur kom með góða hugmynd í gær um að hafa lítinn bloggvinafund í Skrúðgarðinum hér á Skaga um helgina. Ég er til í það en kaffihúsið er opið báða dagana. Þetta er svo stuttur fyrirvari að við Guðmundur endum örugglega ein yfir latte og spjalli. Meira um þetta eftir hádegið, ég þarf að sofa svolítið meira! Kvefið er að fara smátt og smátt, ekki gott að fara of snemma út! Fínar dömur láta sér ekki slá niður!


mbl.is Federline fer fram á flýtimeðferð í forræðismáli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: bara Maja...

Farðu nú að láta þér batna Gurrí, þetta er nú bara ekki hægt með þetta kvef þitt  og slojleika.

bara Maja..., 22.2.2007 kl. 09:37

2 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Ég lofa!!! Kemst þú á bloggvinahitting um helgina með okkur Guðmundi? Latte og spjall og dúndurgóð súkkulaðikaka eða peruterta eða ...

Guðríður Haraldsdóttir, 22.2.2007 kl. 09:41

3 Smámynd: Hugarfluga

Kemst því miður ekki á bloggvinafundinn, en sendi ykkur kveðjur með hugarflugi .. og láttu þér nú batna!

Hugarfluga, 22.2.2007 kl. 10:06

4 Smámynd: Guðrún Eggertsdóttir

Guðríður, Guðmundur og allir hinir: Mikið væri nú skemmtilegt að hitta alla bloggvinina augliti til auglitis.  Samt sem áður þarf ég að afboða mig í þetta sinn, þar sem enn hefur vísindunum ekki tekist að finna upp aðferð til að fólk geti verið á tveimur stöðum í einu.  Nú er nefnilega komið að ástæðunni fyrir því að ég fór að blogga; ferð minni til Washington.  Flugvélin sem bera mun mig yfir hafið fer í loftið á laugardaginn kl. 17:00.  Tralalalalala.  Verð með ykkur í anda og bið að heilsa.

Guðrún Eggertsdóttir, 22.2.2007 kl. 10:11

5 Smámynd: Guðrún Eggertsdóttir

Svo má náttúrulega fylgjast með blogginu mínu............

Guðrún Eggertsdóttir, 22.2.2007 kl. 10:13

6 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Já, það er komið að því hjá þér frú Guðrún!!! Þú mátt nú alveg þúa mig og kalla mig Gurrí, dúllið mitt! Annars líður mér eins og þú sért að skamma mig ... sem er kannski ekki skrýtið fyrst fyrst bloggvinafundur verður haldinn í fjarveru þinni ... en þeir verða eflaust fleiri! 

Guðríður Haraldsdóttir, 22.2.2007 kl. 10:13

7 Smámynd: Guðrún Eggertsdóttir

Æ, elskan mín, ég var ekki að skamma neinn, þrátt fyrir að bloggvinafundur verði haldinn án mín.  Stundum finnst mér bara svo fyndið að vera svona formleg en geri mér fullkomlega grein fyrir því, að það hafa ekki allir sama húmor.

Farðu vel með þig Gurrí mín og fáðu heilsuna aftur - flótt og vel.

Guðrún Eggertsdóttir, 22.2.2007 kl. 10:16

8 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Kannski hægt að hafa annan bloggvinafund í apríl. Þá eru líkur á að ég geti komið. Þurfum nefninlega að koma með Frú Alice Þórhildi og kynna hana fyrir ættingjum og ættjörð sinni. Ég myndi vilja gulrótarköku á bloggvinakaffihúsafundi.

Og vonandi fer þér nú að batna Gurrí mín. Eina góða við þetta er að þú þarft ekki að vera að flækjast alla þessa leið í vinnuna á hverjum degi.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 22.2.2007 kl. 10:18

9 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Takk elskan. Það verður blásið til bloggvinafundar um leið og þú kemur til landsins. Ef þú kemur ekki með Alice Þórhildi með þér ertu beðin um að taka myndir af henni til að sýna okkur hvað samstarf SKotlands og Íslands getur verið dásamlegt!

Gulrótarkakan í Skrúðgarðinum er víst algjört æði!!!  

Guðrún, þú mátt laveg kalla mig Guðríði ef þú setur Frú eða Maddama fyrir framan. Áttaði mig ekki á húmornum, enda með þungan haus af kvefi ... 

Guðríður Haraldsdóttir, 22.2.2007 kl. 10:29

10 Smámynd: Guðrún Eggertsdóttir

Ég er sammála skrifum Katrínar Snæhólm, það er bráðnauðsynlegt að hafa bloggvinafund í apríl.  Þá get ég nefnilega mætt, því ég kem aftur á Frón eftir páska.  Ég kem alltaf aftur, múhahahahaha.

Guðrún Eggertsdóttir, 22.2.2007 kl. 11:15

11 Smámynd: Guðrún Eggertsdóttir

Æ, ég gleymdi að ávarpa þig Frú Guðríður. 

Guðrún Eggertsdóttir, 22.2.2007 kl. 11:16

12 Smámynd: bara Maja...

Frekar upptekin þessa helgi, afmæli og svo að koma frumburðinum í eitthvað skólaferðalag... en mikið væri nú gaman að hitta ykkur, ætli ég stefni ekki bara á gulrótarkökuna í Grasagarðinum, hljómar eitthvað svo heilsusamlegt eitthvað  en verð með ykkur klárlega í anda um helgina.

bara Maja..., 22.2.2007 kl. 11:24

13 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Skrúðgarðinum, frú MajaG!!! Ef allir eru til í það!

Guðríður Haraldsdóttir, 22.2.2007 kl. 11:30

14 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Kaffihúsið á Akranesi, þú veist hvar það er ... þú skutlaðir mér einu sinni þangað!

Guðríður Haraldsdóttir, 22.2.2007 kl. 12:23

15 Smámynd: gua

Langar so ógsliga að vera bloggvinur  þori varla að spurja svona fræga og vinsæla konu sem á svona marga vini ennnn má ég ?  Fór hér áður fyrr á ircpartý þar sem irc-vinir hittust og hef aldrei skemmt mér svona vel  fórum líka í bíó það kölluðu allri hvor annan nick-neimum hrikalega fyndið, altaf gaman að kynnast nýju fólki sérstaklega skemmtilegu   kv.gua

gua, 22.2.2007 kl. 12:51

16 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hehhehehe, gua, ég heimta það! Þá þarftu sko að koma í bloggvinahittinginn um helgina. Er fólki almennt sama hvort það er á laugard. eða sunnud.???

Guðríður Haraldsdóttir, 22.2.2007 kl. 12:54

17 Smámynd: Sigríður Jósefsdóttir

Kemst á laugardag, en ekki sunnudag.  Þarf á aðalsafnaðarfund og í barnaafmæli.

Sigríður Jósefsdóttir, 22.2.2007 kl. 14:17

18 Smámynd: gua

Þarf að fara til Akureyrish um helgina á námskeið annars hefði ég pottþétt mætt,  kem næst

gua, 22.2.2007 kl. 14:19

19 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

hæ elskið mitt. Ég myndi gjarnan vilja koma. Veit ekki hvort ég kemst. Reyni að kíkja.

Steingerður Steinarsdóttir, 22.2.2007 kl. 14:46

20 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Stefnum að laugardegi eftir hádegi ... nánar um þetta í kvöld!

Guðríður Haraldsdóttir, 22.2.2007 kl. 14:57

21 identicon

ég er game .... enda næstum viss um að gjonson taki mig með sér ef ég bið fallega :D

Kleópatra Mjöll Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 22.2.2007 kl. 17:20

22 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Jessss, annars var ég að henda inn færslu um málið ...

Guðríður Haraldsdóttir, 22.2.2007 kl. 17:23

23 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Heyrði elskurnar mínar, þetta gengur sko ekki, ég er í einum brunch og tveimur eftirmiðdagsveislum á laugardag og fæ svo fólk í kaffi og kleinur á sunnudag. Ég sem er einlægur áhugamaður um bloggvinahitting í Skrúðgarðinum á Skaga með Gurrí, Guðmundi, Steingerði, Vélstýru og öllum hinum. Verst að Flórens, Guðrún, Zordis, Katrín og fleiri eru í útlöndum. Getum við ekki haft hitting #2 í apríl, eins og mér finnst ég hafa lesið einhves staðar. Er ég kannski forvitur, skyggn?

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 22.2.2007 kl. 21:17

24 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Jú, líka!!! Guðmundur vill drífa í Skagaferð sem fyrst, kannski verðum við bara þrjú eða fjögur (til að kanna aðstæður) og svo verður alvöruhittingur í apríl þegar Katrín kemur til landsins og Guðrún er komin frá DC.

Guðríður Haraldsdóttir, 22.2.2007 kl. 21:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 11
  • Sl. sólarhring: 288
  • Sl. viku: 2338
  • Frá upphafi: 1457608

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 1934
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Íslendingar í útlöndum
  • Titanic
  • Elsku Tommi

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband