Mussubrussur og frekjudollur ...

Forsíða Rolling StonesEnn einu sinni hafa þessar siðsömu mussubrussur og frekjudollur af báðum kynjum haft sigur yfir sjálfsögðu frelsi og gert að engu möguleika mína til að berja ókeypis augum bera karlmannsbossa upp um allar súlur og veggi, mýrar og móa.

Djók!!!

Held að hér hefði orðið mikill fjölmiðlasirkus ef þetta fólk hefði komið, hreinlega allt vitlaust ... klám er jú bannað á Íslandi en ýmsir vilja meina að ferðin hafi ekki átt að vera í slíkum tilgangi. Við munum líklega aldrei komast að því hvort þetta fólk hafi ætlað sér að gera eitthvað ólöglegt eða bara skreppa í Bláa lónið og spjalla um væntanlegar "bíómyndir" yfir koníaki.  

Ég var einu sinni í ansi áhugaverðum kúrsi í Háskólanum hjá Guðbjörgu Hildi Kolbeins um áhrif ofbeldis og kláms. Við þurftum að horfa á myndir; ofbeldismyndir og já, klámmyndir.

Þarna lauk einmitt æsku minni og sakleysi í eitt skipti fyrir öll. Ég var reyndar svo óheppin°að fá afskaplega sæta mynd þegar ég fór út í vídeóleigu og spurði hikandi og rauð í framan um klámmynd TIL AÐ HORFA Á FYRIR SKÓLAVERKEFNI! Ég tók það skýrt fram, meiri tepran ... Nú, myndin sem ég fékk var bara stórskemmtileg og ég sver það, allir virtust skemmta sér konunglega. Lítið fór fyrir sílikoni og þríhyrningsrakstri, enda frekar gömul mynd.

Ég skrifaði ritgerð um þetta og sagðist ekki sjá samasemmerki milli ofbeldis og kláms ... líklega ekki við mikla hrifningu kennarans sem vissi betur ... en brátt vissi ég betur. Áður en ég þorði út á leiguna hafði ég beðið ástkæran frænda minn og góðan vin að redda mér nokkrum klámmyndum FYRIR SKÓLAVERKEFNI. Þegar ég var búin að skila ritgerðinni birtist hann með spólu sem hann sagði vera ekta fyrir mig (húmor). Ég settist niður og horfði á myndina. Þetta var sadó-masó mynd þar sem verulega ógeðfelldur maður píndi unga stúlku með öllum ráðum. Hún var greinilega ekki masókisti, heldur dópisti sem vantaði pening. Ég táraðist yfir fjandans myndinni og gat ekki horft á hana til enda. Mikið vildi ég óska þess að ég hefði ekki dregið svona heimskulegar ályktanir af fyrri myndinni ... þar sem reyndar allir virtust skemmta sér konunglega í eðlilegu kynlífi.  


mbl.is Hætt við klámráðstefnu hér á landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er ekki málið að klám getur verið bæði hlutur og slæmur hlutur? Þú gast heldur ekki vitað hvort hún var dópisti í peningaþörf eða ekki, kannski var hún bara góð leikkona eða hvað? Málið er að klám, eins og þá að á að vera en annars ætti það ekki að eiga sér stað, er fullorðið, frjálst fólk sem er að stunda kynlíf fyrir framan myndavél, algjörlega eftir eigin vilja og án kúgunar öðrum til skemmtunar. Hvernig í ósköpunum er hægt að sjá eitthvað gegn því? Ég skil að fólk kjósi persónulega að forðast klám og ég virði það. Klámi á ekki að vera flaggað þar sem fólk gæti séð það sem það vill ekki sjá. En aftur á móti á það að vera fáanlegt á þeim stöðum fyrir þá sem sækjast eftir því. Enda getur klám skemmt fólki vel og kryddað kynlífið.

Rúnar Már (IP-tala skráð) 22.2.2007 kl. 15:48

2 identicon

Ég sem hélt að þjóðin væri svo frjálslynd og nútímaleg, greinilega margfalt íhaldssamari en ég hélt. Oft gerum við grín að öfgatrú/öfgasiðferði sem finnst í suðurríkjum Bna, en erum svo sjálf ekkert skárri. Þetta viðbjóðslega ástand virðist tengjast þeirri forsjárhyggju og bannæði sem hefur farið vaxandi seinustu árin. Það eru tugir þúsunda fasista hér á landi sem sjá ekkert að því að þröngva eigin siðferði yfir aðra,

Svo finnst mér furðulegt að engir pólitíkusar þori að taka afstöðu með ráðstefnunni (eða einfaldlega afstöðu með eðlilegu ferðafrelsi fólks). Það eru örugglega einhverjir þingmenn sem hafa leynilega gaman af klámi, hlutföllin eru allavega slík að það er mjög ólíklegt að þeir séu allir á móti því. En hræðslan við pólitíska rétthugsun er mikil, sérstaklega rétt fyrir kosningar. 

Geiri (IP-tala skráð) 22.2.2007 kl. 19:58

3 Smámynd: Árni Matthíasson

Af hverju fylgir mynd af Blind Melon þessari færslu?

Árni Matthíasson , 22.2.2007 kl. 22:38

4 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Mér fannst þeir svo sætir ...

Guðríður Haraldsdóttir, 22.2.2007 kl. 22:48

5 Smámynd: Svava S. Steinars

Ef klám er bannað á Íslandi af hverju hefur þá alltaf verið hægt að kaupa klámblöð og klámspólur ?  Af hverju er klam.is til ?  Á meðan þjóðin var brjáluð yfir þessari ráðstefnu hef ég verið að velta því fyrir mér.  Enginn segir neitt við þessu ?

Svava S. Steinars, 22.2.2007 kl. 23:44

6 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Góður punktur! 

Guðríður Haraldsdóttir, 22.2.2007 kl. 23:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 149
  • Sl. sólarhring: 295
  • Sl. viku: 1693
  • Frá upphafi: 1453852

Annað

  • Innlit í dag: 117
  • Innlit sl. viku: 1405
  • Gestir í dag: 113
  • IP-tölur í dag: 112

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Sven-Göran
  • Hálka
  • Sumardagurinn fyrsti 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband