Skakki stóllinn og óvænt heimsókn

Uppáhaldstónlistin mín á morgnana frá 6.30  er di-di ... di-di, eða sms-hljóð. Þá veit ég að Ásta er á bíl og við ferðumst með ljóshraða í bæinn á drossíu og hlustum á Led Zeppelin á leiðinni. Þetta guðdómlega hljóð heyrðist úr töskunni minni þegar ég sat í tröppunum á stigaganginum og var að klæða mig í strigaskóna.

Lazy Boy fyrir trúaðaEllý segir að nýi leisígörl-stóllinn minn sé allur grindarskakkur og það þýði ekkert að reyna að lengja hægri lappirnar undir honum til að laga ruggið. Þá er að fara í bæinn með hann og fá nýjan, kannski bara í strætó? Arg! Eins og við Inga höfðum mikið fyrir þessu, aðallega Inga.

Óvænta gesti bar að garði í gærkvöldi (það er sko bannað að mæta óvænt í heimsókn til mín) en ég fyrirgaf þessum vinahjónum mínum óvæntið og dreif þau í kaffi. Hún er fullkomin af því að hún á sama afmælisdag og ég og hann er alls ekki svo slæmur. Hann settist í leisígörl-stólinn minn skakka og skellti á Sýn, enda bilaður leikur í gangi; Valur-Fylkir. Virkilega skemmtilegur leikur sem ég hefði misst af hefði ég verið ein heima. Óskar er Valsari og var því ekki mjög sáttur við úrslitin en Fylkisfólk náttúrlega bilaðist og rústaði eflaust Árbænum í nótt.

RooneyHeyrði góða sögu af Óskari sem er mikill Manchester United-aðdáandi. Hann var að þvælast úti á landi og leikur MU gegn Bayern Munchen var í gangi. Óskar fylgdist með í sjoppu. Í hálfleik var staðan MU í óhag, 0:3. Nú voru góð ráð dýr. Óskar hringdi í konuna sína og bað hana um að kveikja á sjónvarpinu, stilla á leikinn og taka MU-bolinn sem hann er alltaf í þegar hann horfir á MU-leiki og leggja hann á stólinn. Frúin dreif í þessu og dæturnar störðu hneykslaðar á hana: "Mamma, þetta er klikkun, segðu bara pabba að þú hafir gert þetta en plís ..." Mamman gerði að sjálfsögðu það sem pabbinn bað um, enda virkaði það algjörlega og leikurinn snerist við, fór 4.3 fyrir MU. Þessu trúi ég alveg, veit ekki hvað ÍA hefur unnið marga leiki bara af því að ég hef hrökklast öfug af svölunum þegar vondu fótboltamennirnir, andstæðingarnir, hafa skorað mark og þá er stutt í að mínir menn jafni og skori svo enn meira.

Væri til í fallegar batahugsanir í dag frá bloggvinum, er eitthvað flensuleg og hefði jafnvel átt að vera heima í dag í stað þess að dandalast þetta í vinnuna. Stefni þó að því að hrista þetta af mér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Batahugsun: Gútsí,gútsí, láttu þér batna ljósið mitt. Hugsa til þín ´sskan og vona að þetta lagist fljótlega, ef ekki þá verðurðu heima á morgun, getur klárað Potterinn og bloggað meira.  Sakn.

Stólinn fær mig til að flippa.  Rosalega geta stólar verið mikið krútt.

Jenný Anna Baldursdóttir, 25.7.2007 kl. 09:27

2 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Vona að mjög trúaðir fyrirgefi mér þennan ókristilega húmor að skella þessum stól inn, fannst hann bara svo fyndinn ... líðanin hefur skánað oggulítið við fagrar kveðjur ...

Guðríður Haraldsdóttir, 25.7.2007 kl. 09:37

3 Smámynd: Þröstur Unnar

Sending Galdrahuxunarbataskeyti, ýttu á save og þér mun farnast vel.

Þröstur Unnar, 25.7.2007 kl. 09:47

4 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

knúsí knús, huglægur hitapoki og kúr-í-sæng-og-sófa. Þú verður stálslegin um tvöleytið.

Jóna Á. Gísladóttir, 25.7.2007 kl. 10:04

5 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Guðríður Haraldsdóttir, 25.7.2007 kl. 10:12

6 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Batakveðjur til þín Gurrí  ÉG SENDI ÞER GÓÐA ORKU.

Kristín Katla Árnadóttir, 25.7.2007 kl. 10:41

7 identicon

Dillaðu þetta bara af þér, Gurrí.
Meira Zeppelin?

Maja Solla (IP-tala skráð) 25.7.2007 kl. 10:45

8 Smámynd: Gunna-Polly

batakveðjur úr borg óttans

hentu stónum á Flytjanda láttu ÞÞÞ sækja og RL (lesist rúmfatalagerinn) borga og þeir eiga svo að senda þér nýjan stól en þetta kennir þér auðvitað að Gunnubúð  er best

Gunna-Polly, 25.7.2007 kl. 10:47

9 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

sendi sterka orkustrauma til þín , gott fjallagrasate (fæst í Einarsbúð) með yndislegu hunangi er svo góð ábót á óskirnar sem við lesendur þínir og bloggvinir sendum

Upp í sófa með potterinn, teppi og teið góða þegar heim er komið og svo bara að dorma þetta úr sér

Guðrún Jóhannesdóttir, 25.7.2007 kl. 12:41

10 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Takk fyrir allar batakveðjurnar. Er komin heim, ætla að leggja mig í smástund og hefja svo lífið aftur. 

Anna, hún Ásta er sko ekki ökuníðingur. Það er bara alltaf svo gaman hjá okkur að það er eins og við fljúgum í bæinn á örskotstíma! Sit ekki í bíl með ökuníðingum! Eitt skyldmenni minn ók upp Ártúnsbrekkuna á 140 km/klst fyrir nokkrum árum og ég hét mér því að stíga aldrei framar upp í bíl með viðkomandi. Hef staðið við það, ekki erfitt þar sem viðkomandi á ekki bíl (líklega próflaus eftir hraðakstur, múahahhaah)

Guðríður Haraldsdóttir, 25.7.2007 kl. 13:15

11 Smámynd: SigrúnSveitó

Draumastólinn minn er nuddstóll...kostar reyndar 200 þús. svo það verður að bíða... En þetta er draumastóll, dýrindis lazystóll þegar slökkt er á nuddinu og já, bara draumur!

SigrúnSveitó, 25.7.2007 kl. 13:19

12 Smámynd: Fjóla Æ.

Ég vona að þú getir hafið lífið aftur fljótlega eftir góðan blund. Þú ert svo skemmtileg að það má ekki líða of langur tími í næsta pistil. Þú ert ein af fáum sem getur látið hundleiðinlega strætóferð hljóma sem hið skemmtilegasta gamanleikrit. Góð gjöf. Eitt spakmæli sem ég nota stundum á erfiðari tímum og það hljóma svo: "Lífið er stundum erfitt.  En í samanburði við hvað"?

Sendi þér orkustrauma yfir flóann.

Fjóla Æ., 25.7.2007 kl. 13:52

13 Smámynd: Ragnheiður

batnaðar og orkukveðjur til þín......

Ragnheiður , 25.7.2007 kl. 16:45

14 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Batahugsun! Það tók mig langan tíma að skilja þetta orð, og þó er það svo gagnsætt. Held ég sé búin að missa skiljarann. Sendi þér samt röð af batahugsunum.

Kristín M. Jóhannsdóttir, 25.7.2007 kl. 17:47

15 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Eins gott að vera ekki að labba með hamar og nagla  framhjá einhverjum sem situr í svona stól. Viðkomandi þyrfti þá allar batahugsanir ykkar.  Gurrí mín láttu senda þér nýjan stól og þeir geta tekið þennan ruggandi gallagrip með sér til baka. Þú ert alltof næs. Það er böl að vera of næs..gerir bara lífið miklu erfiðara darlingið mitt. Vertu hortug, hraðmælt og hávær svona til tilbreytingar...Knús

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 25.7.2007 kl. 18:14

16 Smámynd: mongoqueen

Batakveðjur til þín Ég er líka kominn með þennann flensuskratta. En við verðum ekki lengi að hrista þetta af okkur!

mongoqueen, 25.7.2007 kl. 19:23

17 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Þessar keyrslur fram og til baka, eru greinilega heilsuspillandi, eins og þær eru samt greinilega skemmtilegar!

En Gurrí, Karlmannsfaðmurinn, ætli hann yrði ekki margra meina bót í það minnsta? Gæti nú trúað því!

FH-ingar vinna einn titil í viðbót, var búin að segja þér það!Sendi engar batakveðjur, bara Birtu-og-yls!

Magnús Geir Guðmundsson, 25.7.2007 kl. 21:53

18 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Æ, ætli ég sé ekki allt of seint á ferðinni. Þér er örugglega batnað eftir þessar góðu kveðjur í dag.  Ég bið þá bara fyrir góðum morgundegi hjá þér dúllan mín.    btw. ég er ánægð með bókina þína, les alltaf þegar ég fer uppí.

Ásdís Sigurðardóttir, 25.7.2007 kl. 22:32

19 Smámynd: Svava S. Steinars

Hrmph, ef stóllinn er ekki í lagi á búðin að fara og sækja hann sjálf til þín, hnuss !!  Góðan bata af mögulegri flensu !

Svava S. Steinars, 26.7.2007 kl. 01:10

20 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Bið hina voldugu vélstýru afsökunar, vissi bara ekki að systkinin Birta og Ylur væru aðeins og einungis á hennar vegum. Skal reyna að muna það framvegis!

Magnús Geir Guðmundsson, 26.7.2007 kl. 01:24

21 Smámynd: Halla Rut

Les ávallt pistlana þína og líkar vel. Einnig þitt val á myndefni. Mjög vel valið og skemmtilegt.

Halla Rut , 26.7.2007 kl. 02:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 93
  • Sl. sólarhring: 139
  • Sl. viku: 2335
  • Frá upphafi: 1456631

Annað

  • Innlit í dag: 74
  • Innlit sl. viku: 1947
  • Gestir í dag: 71
  • IP-tölur í dag: 71

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Sjö saman í Karíba
  • Facebook ógnir
  • Herbergi drengsa

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband