Bíóferð og möguleg rétt hilla í lífinu ...

Harry Potter SimpsonsMikið er nú gaman að bregða sér af bæ stöku sinnum og skreppa í kvikmyndahús. Draumur okkar Hildu var að sjá Harry Potter í lúxussalnum en sýningin þar hófst ekki fyrr en klukkan átta í kvöld, allt of seint til að ná 22.37 strætó heim. Sjösýningin varð fyrir valinu. Galdrarnir í kvikmyndahúsinu urðu til þess að ég keypti smá nammi og lítinn popp en bjargaði því alveg, held ég, með því að drekka megrandi Kók læt með ...  Fínasta mynd.

Nicolas-CageFattaði á heimleiðinni að ég er á rangri hillu í lífinu, ætti að vera hlaðfreyja (aðstoðarkona bílstjórans). Hann var kallaður upp: „Stjórnstöð kallar á 27!“ Hann svaraði og ... varð batteríslaus, talstöðin er eins og gemsi, það þarf að hlaða hana. Hann reyndi að kveikja aftur og spurði örvæntingarfullt hvert símanúme ... slökkkkk! Hlaðfreyjan Guðríður horfði hneyksluð á hnakkann á honum og spurði: „Vita ekki allir að síminn hjá stjórnstöð Strætó bs er 540 2700?“ Bílstjórinn hringdi þakklátur en flissandi í stjórnstöð. Einhver maður hringdi víst óttasleginn í Strætó þegar hann sá að gul rúta keyrði framhjá Kjalarnesinu án þess svo mikið sem hægja ferðina ... þá vorum við bara stopp að sleppa einhverjum útlendingi út við Saltvík. Ég þerraði tár Kjalarness-mannsins þegar hann gekk feginn upp í vagninn og þegar hann var alveg hættur að grenja af gleði yfir að hafa ekki misst af síðasta strætó á Skagann reyndist hann þrælskemmtilegur. Umræðuefni frá Göngum: Bíómyndin Fast and the Furious (átti þó ekkert skylt við aksturslag strætóbílstjórans) og leikur Nicholas Cage þar, ég mundi ekki eftir honum úr þeirri mynd en þá voru gæarnir bara að rugla henni saman við Gone in 60 seconds! Karlmenn og bílar ... karlmenn og bíómyndir! Við töluðum líka aðeins um svívirðilegan skepnuskap 365 gagnvart aðdáendum Enska boltans og væmnina í Opruh Winfrey. Svo vorum við bara allt í einu komin á Skagann.

Held að nú styttist í langar lesfarir í himnaríki, þykk og girnileg Harry Potter-bókin bíður spennt á náttborðinu og langar í margar flettingar fram eftir nóttu og eftir ryksugun á morgun. Ég verð að fara að klára þessa elsku til að geta blaðrað endinum í Jennýju.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Mikið skelfing léttir mér.  Ústáelsið búið í bili og þá er hægt að snúa sér að alvarlegri verkefnum eins og að lesa Harry Potter fyrir mig.  Smjúts.

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.7.2007 kl. 00:25

2 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

SVei mér ef Ms. Jenný Darling´situr ekki bara og bíður daginn út og inn eftir að Gurrí, Not-On-A-Hurry gerist svo fjöful að setja niður orð í gegnum lyklaborðið með sínum "Löngu grönnu fingrum"!

Ekki´skrýtið að hún sé þrígift, ef hún nennir ekki að sinna köllunum nema þegar netið liggur niðri!

Og hvað svo um okkur hin, á ekki að kjafta "The Holy Secret Of Harry´s Destiny" í okkur líka!?

Magnús Geir Guðmundsson, 28.7.2007 kl. 00:49

3 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

Ég geri ekki annað en að bíða eftir að einhver blaðri endinum í mig líka. Ekki nenni ég að lesa skrudduna og hvað þá að bíða eftir bíómyndinni..

Brynja Hjaltadóttir, 28.7.2007 kl. 01:24

4 identicon

Yngri dóttirin fór í röð daginn sem byrjað var að selja Harry Potter og las bókina á tveimur dögum. Hún gæti örugglega kjaftað endinum í þig ef þú vilt taka short cut til að geta blaðrað endinum fyrr í Jennýju

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 28.7.2007 kl. 01:27

5 Smámynd: www.zordis.com

Bannað að segja frá ...... Fjallið og börnin min fóru á Simpson í gær og voru börnin í skýjunum ..... hef ekki fengið komment frá karli.  Gangi þér vel á ryksugunni!!!

www.zordis.com, 28.7.2007 kl. 09:59

6 Smámynd: Þröstur Unnar

Magnús: Æi má til með að skipta mér aðeins af, því konan sú er nú sambæjarkonan mín (Gurra) . Held að hún sé nú ekki 3xgift. Það eru fleiri en Jenný sem bíða eftir færslum frá frú Guðríði, t.d. barasta allur bloggheimur. Konan sú hefur bara mikið á sinni könnu og við "hin" verðum bara að sýna henni þolinmæði. Verst ef hún gerist Hlaðfreyja eða Félagsráðgjafi í Strætó, þá minkar tíminn fyrir okkur hin enn meira.

Þröstur Unnar, 28.7.2007 kl. 10:26

7 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

 Gurrli í guðana bænum ekki segja frá endinum.

Kristín Katla Árnadóttir, 28.7.2007 kl. 14:25

8 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Auðvitað segi ég ekki frá endinum ... ekki af því að höfundurinn bað um að það yrði ekki gert, heldur af því að það eyðileggur spennuna!

Guðríður Haraldsdóttir, 28.7.2007 kl. 14:49

9 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Gurrí hlaðfreyja. líst vel á þetta.

Jóna Á. Gísladóttir, 28.7.2007 kl. 16:07

10 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Þröstur minn Þrælfyndni!

Mrs. Jenný (ekki Ms. slysaleg misritun!) er sú sem við er átt um fjölda giftinga, trúði sjálf alheimi fyrir því!

Guðríður er jú "bara" búin að gefast karlpung einu sinni að eigin sögn, en "Skemmritímalengritímalúllarar" eru hins vegar samkvæmt síðustu talningu um 322!Annars lætur hún stundum eins og hún hafi aldrei gifst, kallar sig lon og don piparjúnku? Getur bara ekki talist slík, allavega ekki ef hún hefur verið við karlmann kennd!

Magnús Geir Guðmundsson, 28.7.2007 kl. 17:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 97
  • Sl. sólarhring: 119
  • Sl. viku: 2339
  • Frá upphafi: 1456635

Annað

  • Innlit í dag: 78
  • Innlit sl. viku: 1951
  • Gestir í dag: 75
  • IP-tölur í dag: 75

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Sjö saman í Karíba
  • Facebook ógnir
  • Herbergi drengsa

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband