Varúð - ekki láta plata ykkur!

Ekki láta svindla á ykkurNú er mér nóg boðið! Ég er ekki vön að kvarta hér og kveina en þið sem hafið ekki uppfært myndlykil Stöðvar 2 nýlega EKKI GERA ÞAÐ! Samningur 365 og SkjásEins er greinilega úr sögunni og nú virðist ekki lengur vera hægt að horfa á Skjáinn í gegnum myndlykil Stöðvar 2 eins og hefur verið hægt mjög lengi!

Ég ætla ekki að kaupa Sýn 2, þurfti ekki að stilla hana inn, veit ekki af hverju ég var að þessu fikti í gær eða fyrradag. Líklega af því að ég kann það! Nú ætla ég að segja upp Sýn 1 í reiði minni, tími ekki að fleygja út Stöð 2 þótt mig langi mikið til þess. Hver veit nema ég geri það! 

Nú skil ég hvers vegna verið var að kenna fólki að uppfæra myndlykilinn í Íslandi í dag í gærkvöld. Það hefur engin ný stöð bæst við, þeir sem ætla ekki í okurpakkann Enska boltann, ekki hreyfa fjarstýringuna ykkar nema til að skipta milli stöðva. Ég fattaði þetta ekki fyrr en ég var að fikta með fjarstýringunni núna fyrir svefninn. Arggggg! Ég er komin í stríð! Nú, ef þetta er misskilningur og tækilegar bilanir valda þessu þá bið ég forláts á fljótfærninni. Þangað til er ég BRJÁLUÐ!!! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eva Þorsteinsdóttir

Þetta er líka bara alger fratafruglari sem alltaf er að frjósa!

Veit ekki hversu oft ég er búin að þurfa að slökkva og kveikja á honum aftur til þess að fá inn helv.... myndina, pardon me.

Svo eru þeir líka svo assgoti góðir í að selja manni einhverja "pakka" sem eru svo endalaust inni á visakortinu manns af því það er svo erfitt að segja þeim upp ..... helvískir, pardon me again ;)

Eva Þorsteinsdóttir, 11.8.2007 kl. 02:01

2 Smámynd: Andrés.si

Rósalega er ég feginn að vera ekki í áskríft hjá  365.  Vil helst fara með til Símanns með kassa þeira.

Andrés.si, 11.8.2007 kl. 02:07

3 Smámynd: krossgata

Það er eitthvað voðalegt ólag á þessu dóti hjá þeim.  Ég er komin á 4ða eintak af afruglara og er enn kolrugluð.... eða öllu heldur pödduhegðun afruglarans hefur ekki skánað.

krossgata, 11.8.2007 kl. 02:16

4 identicon

Uhh... Hann færðist bra aðeins til hjá mér, fékk fyrst svona nett sjokk en fann hann svo...

Jonni (IP-tala skráð) 11.8.2007 kl. 02:27

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Bölvaðir asnarnir.  Arg.  Ég ætla að nota tækifærið líka og verða brjáluð þar til annað kemur í ljós (brjálaðurúrreiðikall).

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.8.2007 kl. 02:31

6 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Þetta er magnaður andsk..... blekkingaleikur. Ég bætti sýn við hjá mér í vetur með 12 mán, bindingu og að sjálfsögðu var gylliboð með, sýn extra 1 fylgdi sko með. Síðan uppfærði ég draslið í gær og viti menn sýn extra 1 LOKUÐ RÁS, gylliboðið sem fylgdi með fokið út í bláinn ég er kolvitlaus, og sennilega fær einhver að þessum haugum þarna hjá 365 myndlykilinn á kaf í ......... með köplum, fjarstýringunni og umbúðunum á eftir.

Hallgrímur Guðmundsson, 11.8.2007 kl. 03:41

7 Smámynd: www.zordis.com

Hvaða sjónvarpsgláp er þetta ????  Nei segi bara svona, langaði að minnast á hvað ég væri innilega til í kaffisopa og brauðtertu hjá þér .... Til hamingju með daginn fyrirfram .... Ég man dagana oftast degi fyrr og stend svo eins og glópur að reyna að muna hvað ég átti að muna

Gangi þér vel í undirbúningi!

www.zordis.com, 11.8.2007 kl. 08:25

8 Smámynd: Þröstur Unnar

Út í hafsauga með alla af og á ruglara, bara tengja við símann. En vonandi verðuru ekki Steypireið og Góríll til frambúðar.

Þröstur Unnar, 11.8.2007 kl. 08:29

9 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Það var eins gott að ég var ekki búinn af því getur þetta verið??

Kristín Katla Árnadóttir, 11.8.2007 kl. 08:54

10 Smámynd: Gúrúinn

Ég lét duga á sínum tíma að skipta þrisvar um afruglara. Í þriðja og síðasta skiptið tók ég engan til baka heldur keypti mér móttakara fyrir gerfihnattadiskinn sem er utan á lengjunni hjá mér. Þar er hellingur af stöðvum sem ekki þarf að borga fyrir (og eru ekki SKY áskrift) (en það er samt skemmtilegra að hafa SKY - uss, ekki segja neinum...).

Gúrúinn, 11.8.2007 kl. 09:29

11 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég bara gaf skít í allt tengt þeim í júlí og er megasátt. Sé ekki eftir þeim á einn né neinn hátt, er með ruglara frá skjá 1 og hér frís ekkert.

Ásdís Sigurðardóttir, 11.8.2007 kl. 09:30

12 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Ég hef alltaf sagt það... þetta er skítafyrirtæki og ég hef ekki verslað við það í þrjú ár og kem aldrei til með að gera það aftur

Heiða B. Heiðars, 11.8.2007 kl. 11:03

13 Smámynd: Ragnheiður

ég hef ekki skipt við þá í rúm 2 ár, er með frá símanum og það er ágætt.

Ragnheiður , 11.8.2007 kl. 11:10

14 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Æ, þetta flækir líf mitt til muna og hefur óþægindi í för með sér. Þótt ég horfi kannski bara á einn eða tvo þætti í viku á Skjáinn þá þarf ég núna alltaf að leggjast upp í rúmið mitt til að horfa á þá. Ég horfi aftur á móti mikið á Stöð 2 og fannst mjög gott að geta notað afruglarann þeirra til að geta horft á SkjáEinn, hvað þá SkjáEinn plús sem er ekki hægt lengur. Þessi nýjasta ósvífni mun kosta þá áskrift mína að Sýn ... alla vega. Kannski fá þeir bara afruglarann í hausinn ef ég hætti með Stöð 2 líka. 

Guðríður Haraldsdóttir, 11.8.2007 kl. 11:31

15 identicon

tékkaðu á stöð 7 og 8 á afruglaranum - það færðist bara til - ertu ekki að tala um Skjá 1?

Berglind Elva (IP-tala skráð) 11.8.2007 kl. 12:31

16 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Það færðist ekki til hjá mér, fór tvisvar í gegnum allt í gærkvöldi. Kannski skiptir máli að ég bý á Skaganum, ég sé t.d. SkjáEinn mjög illa nema í gegnum afruglara Stöðvar 2. Þarf að tékka betur á þessu. Gaman væri að vita hvort aðrir hafi lent í þessu eða hvort það færðist bara til frá 9 og 10 yfir á 7 og 8. Þá hverfur geðillska mín yfir þessu algjörlega!!!

Guðríður Haraldsdóttir, 11.8.2007 kl. 12:36

17 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

ég þakka Guði fyrir að vera laus við þetta vesen, hér sér kallin um þetta allt saman, kaupa áskrift að einhverjum stöðvum OG AÐ HORFA !   það er algjört happ ef ég sé íslenskt sjónvarp þau kvöld sem ég er ekki að vinna, enda aldrei verið háð sjónvarpi (nema B&B í nokkuð marga mánuði (eða nokkur ár hehehehehe))  

Vona að það verði runnið af þér á morgun

Guðrún Jóhannesdóttir, 11.8.2007 kl. 13:42

18 identicon

Fáðu þér bara adsl og sjónvarp yfir adsl frá símanum. Getur svo bætt stöð2 við í gegnum síma-afruglarann ef þú vilt hafa þá blessuðu rás. Sjónvarp yfir ADSL í þeim húsum sem ég þekki til í, frís svo gott sem ekki neitt. Á meðan er örbylgju-digitalið hjá 365 alltaf með vesen.

Það versta er að síminn auðvitað okrar á adsl tengingunum og straumnum, en það höfðum við uppúr því að leyfa sölu hans/grunn-netsins - svo við getum skammast í okkur sjálfum með það.

Ægir (IP-tala skráð) 11.8.2007 kl. 13:44

19 Smámynd: Þröstur Unnar

Hef verði með Símann frá upphafi, og ekkert klikkað þar.

Hvað áttu við Ægir með að okra á straumnum?

Þröstur Unnar, 11.8.2007 kl. 15:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 455
  • Sl. sólarhring: 495
  • Sl. viku: 2572
  • Frá upphafi: 1456522

Annað

  • Innlit í dag: 393
  • Innlit sl. viku: 2151
  • Gestir í dag: 382
  • IP-tölur í dag: 373

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Sjö saman í Karíba
  • Facebook ógnir
  • Herbergi drengsa

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband