Guð og kæfan

Oliver TwistFékk æsispennandi símtal í dag. Geðþekk konurödd tjáði mér að Skagaliðið ætti að mæta til næstu Útsvarskeppni 11. janúar nk. Það er mikið tilhlökkunarefni að hitta andstæðingana ógurlegu frá Ísafirði. Vona bara að þessir doktorar og prófessorar fái erfiðari spurningar en við, pöpullinn af Akranesi.  Ég hugga mig þó við að vera doktor í Oliver Twist. Kannski koma fleiri spurningar úr bókinni. Tókst vel að svara spurningum þáttarins í kvöld en það er víst alltaf auðveldara heima í stofu.

KæfaVið vinkona mín spjölluðum saman í síma í dag og m.a. rifjuðum upp gamlar minningar af yngri syni hennar. Þegar hann var fjögurra ára mátti hann hlusta á móður sína bölva og ragna eftir að hafa keyrt bílinn út af í hálku. Úr aftursætinu heyrðist allt í einu í stráksa: „Nú er bara að treysta á guð og kæfuna, mamma mín!“ Um tíu árum seinna, þegar hann fór í eina skyldumessuna sem tengdist fermingarundirbúningnum, skrifaði hann nafn sitt í gestabókina frammi í anddyrinu í kirkjunni. Messan hófst og fermingarbörnin sátu róleg og stillt og hlustuðu á prestinn. Í lokið las presturinn upp úr sérstakri fyrirbænabók, nöfn sjúklinga sem beðið var fyrir ... og nafn stráksa var allt í einu lesið upp hátt og snjallt, fermingarsystkinunum til mikillar skemmtunar ... Þetta kennir manni að vera ekki að skrifa í hvaða gestabók sem er!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 22.12.2007 kl. 02:35

2 Smámynd: www.zordis.com

Börnin eru svo natural!  Vona að þú sért að skríða saman .....

www.zordis.com, 22.12.2007 kl. 09:06

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Börn eru best, eigðu nú góðan dag og passaður heilsuna vel.

                 3D Santa

Ásdís Sigurðardóttir, 22.12.2007 kl. 11:48

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Gleðileg Jól Gurrí mín og hafðu það gott um jólin.

Kristín Katla Árnadóttir, 22.12.2007 kl. 12:58

5 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

 Lokaorð mín til þín á þessu ári kæri bloggvinur eru frá Nelson Mandela sem setur sig yfir eigin þarfir og hugsar sig sem heildina. Boðskapur inn í hið nýja ár sem á erindi til okkar allra.

Steina

Okkar dýpsti ótti er ekki að við séum vanmáttug.
Okkar dýpsti ótti er að við erum óendanlega máttug.

Það er ljósið innra með okkur ekki myrkrið sem við hræðumst mest.Við spyrjum sjálf okkur hvað á ég með að vera frábær, yndisfögur, hæfileikarík og mikilfengleg manneskja.

Enn í raun hvað átt þú með að vera það ekki?

Þú ert barn Guðs.

Það þjónar ekki heiminum að gera lítið úr sjálfum sér.
Það er ekkert uppljómað við það að gera lítið úr sjálfum sér til þess að annað fólk verði ekki óöruggt í kringum þig.

Við fæddumst til að staðfesta dýrð guðs innra með okkur, það er ekki bara í sumum okkar, heldur í hverju einasta mannsbarni.Og þegar við leyfum ljósinu okkar að skína, gefum við öðrum, ómeðvitað, leyfi til að gera slíkt hið sama.Um leið og við erum frjáls undan eigin ótta mun nærvera okkar ósjálfrátt frelsa aðra.
 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 22.12.2007 kl. 13:06

6 Smámynd: Þröstur Unnar

Sko, ekki sjens að ég fari að kasta á þig gleðileg jól, eitthvað, strax. Í fyrsta lagi þegar fer að nálgast jólin.

Þú átt eftir að koma með almennilega jólafærslu, svo skulum við sjá til upp úr því.

Vissirðu að Sigrún er að verða ritstýra Skessuhorns?

Þröstur Unnar, 22.12.2007 kl. 13:20

7 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Innilega gleðileg jól til þeirra sem eru svona snemma í þessu ... en ég segi eins og Þröstur, það eru enn rúmir tveir sólarhringar til jóla og við munum örugglega spjalla saman fram að því ... hehehehhehe. Almennilega jólafærslan á eftir að koma. Svo er pólska stelpan mín á leiðinni til að hjálpa mér með himnaríki. Hún er á leiðinni NÚNA. Best að fara að taka til ... heheheh

Guðríður Haraldsdóttir, 22.12.2007 kl. 14:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 36
  • Sl. sólarhring: 426
  • Sl. viku: 2153
  • Frá upphafi: 1456103

Annað

  • Innlit í dag: 33
  • Innlit sl. viku: 1791
  • Gestir í dag: 33
  • IP-tölur í dag: 32

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Sjö saman í Karíba
  • Facebook ógnir
  • Herbergi drengsa

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband