Aldurspælingar og líkleg ástæða einhleypunnar

ElliheyrnarleysiHann var ansi svalur í morgun ...  en veit hreinlega ekki hvort ég (49) er að tala um veðrið eða Gumma strætóbílstjóra (93). Það var dásamlegt að skella þurrkaranum á við vöknun og fara í heit fötin sín, það kom kannski aðeins of mikil værð yfir mig ... og ég átti erfitt með að halda augunum opnum í strætó þegar Gummi vildi spjalla um gjaldið í göngunum (honum finnst fínt að hafa gjaldskyldu þar, urrrr), rútuferð í óbyggðir um helgina (hann keyrði skólakrakka), veðrið (alltaf sígilt) og stjórnmál (ég þoli ekki stjórnmál fyrir hádegi). Með því að segja já, nei, er það, hvað ertu að segja, á nokkurn veginn réttum stöðum gekk þetta án þess að nokkur móðgaðist. Ég hef reyndar alla tíð átt erfitt með að heyra orðaskil t.d. þegar hávaði í bílvél og útvarpi bætist við, eins og í morgun. Miðaldra vinkonur

Sorglegt dæmi: Á djamminu í gamla daga var ekki séns að ég heyrði gullhamra strákanna á sódómugómorrustöðunum og því gekk ég ekki út, ég sagði endalaust HA!!! þangað til þeir gáfust upp alveg miður sín. Eftir að ég varð fertug heitir þetta víst öðru nafni ... eða að ég sé að verða heyrnarlaus vegna elli. Ef ég drakk kaffi síðla dags og sofnaði seint af þeim sökum hét það kjánaskapur í gamla daga en núna heitir það svefnleysi vegna elli. Æ, ég skil þetta svo sem alveg. Mig dreymdi einu sinni (12 ára) að ég myndi deyja 38 ára. Ég hugsaði með mér að ef þetta rættist þá væri ég hvort eð er búin að lifa mitt fegursta og væri orðin alveg mátulega gömul til að deyja.

Jamm, veit ekki hvað ég er að tala um tölur svona að morgni dags þegar ég ætti að vera að hugsa um kynlíf. (Er ekki sagt að við konur hugsum um kynlíf á 14 sekúndna fresti en karlar á 5 s/f?) Eigið góðan og frábæran og dásamlegan dag, kæru bloggvenner!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Laufey B Waage

Ég luma á góðu ráði fyrir þá sem eru hræddir um að segja já og nei og það allt á vitlausum stöðum (t.d. sökum aldurstengdar heyrnarskerðingar, vélargnýs, eða áhugaleysis á umræðuefninu). Þú segir bara; EINMITT. Það á alltaf við.

Laufey B Waage, 3.3.2008 kl. 11:13

2 Smámynd: Laufey B Waage

Biðst afsökunar á errinu sem datt út í aldurstengdRi heyrnarskerðingu.

Laufey B Waage, 3.3.2008 kl. 11:14

3 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hahahah, æði. "Einmitt" er fínt orð og rifjaði líka upp fyrir mér hvað Elísabet drottningarmóðir sagði alltaf fram eftir öllu!!! Hún sagði það sama við alla, ekkjur, börn, gamalmenni og hvaðeina: "Ég skil, ég skil!"

Guðríður Haraldsdóttir, 3.3.2008 kl. 11:23

4 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Best er nú samt þegar einhver af Bandaríkjaforsetunum var orðinn rosalega þreyttur á því hvað fólk hlustaði lítið á hann þegar hann var að taka í hendina á hundruðum á hverju kvöldi í veislum og öðrum íþyngjandi skyldustörfum. Svo eitt sinn heilsaði hann öllum með því að tuldra:

- I just killed my grandmother ...

Það var  bara einn sem svaraði:

- She deserved it! 

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 3.3.2008 kl. 12:51

5 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Aha er líka svar sem alltaf virkar! (Nema í sögunni hér að ofan).

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 3.3.2008 kl. 12:51

6 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Anna, snilld :D

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 3.3.2008 kl. 13:37

7 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

EINMITT

Kjartan Pálmarsson, 3.3.2008 kl. 13:40

8 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Kitty 4Innlitskvitt og kveðjur.

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 3.3.2008 kl. 15:17

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

ARG hvað þetta með aldurinn innan sviga náði mér vel.  Ég garga úr hlátri.  Þetta fer nefnilega alveg svakalega í taugarnar á mér (pældu í vandamálunum kona, þau eru að sliga mig, flest af þessari stærðargráðu).  Ég hlæ á vitlausum stöðum, eins og alltaf þegar ég var ung (16-17) þótti það krúttlegt en núna eftir að ég eltist (56) þá þykir þetta merki um elliglöp.

Ójá smánin mín eins og amma mín sagði.

Takk fyrir mig.

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.3.2008 kl. 15:56

10 identicon

Skil ekki,innan sviga segir þú aldur þinn,en aldur Gumma Strætóbílstjóra er líka innan sviga:93 ha er hann níutíuogþriggja ára gamall,sá er sprækur.

jensen (IP-tala skráð) 3.3.2008 kl. 16:37

11 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Jensen, ég veit ekki hvað Gummi er gamall. Í næstu færslu verður hann 29 ára. Hann er þarna einhvers staðar mitt á milli, þessi elska.  

Ólafur, ég kíki á netsögu, ekki málið. 

Jenný, þetta er merkilegur fjandi ... þegar maður er kornungur þá er því líka skvett á mann. Það er aldrei hægt að gera neinum til geðs, hvað sem maður er gamall. 

Guðríður Haraldsdóttir, 3.3.2008 kl. 17:04

12 identicon

hehehehehehehe.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 4.3.2008 kl. 15:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 27
  • Sl. sólarhring: 368
  • Sl. viku: 1989
  • Frá upphafi: 1455692

Annað

  • Innlit í dag: 22
  • Innlit sl. viku: 1623
  • Gestir í dag: 22
  • IP-tölur í dag: 22

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Ástarsaga
  • Sofandi köttur
  • 1. maí fyrir nokkrum árum

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband