Uppáhaldsstrætóinn úr leik í bíli ...

Pínulítil rúta kom kl 9.41 og beið svo með okkur farþegana á sætukarlastoppistöðinni eftir Ragga sem ók Gummabíl og var að koma úr bænum. Bílstjórinn sem slasaðist/fótbrotnaði (?), skv. fréttum fjölmiðla, bar sig nú eins og hetja og haltraði sjálfur inn í pínulitlu rútuna sem ók á sjúkrahúsið á Skagnum en við fórum í Gummabíl í bæinn. Á Kjalarnesi sáum við strætisvagninn sem lenti í árekstrinum og vá hvað hann var illa farinn á hægri hlið að framan og ég hefði ekki viljað sitja í gamla sætinu mínu, í fremsta sæti hægra megin. Ég vel það sæti mjög oft vegna meira pláss fyrir fæturna ... er ennvangæf eftir slysið á ógæfumölinni um árið þegar hnén á mér fóru í tætlur, eða annað var snúið og hitt skorið (níu spor). Það hlýtur að líða langur tími þar til aðalstrætóinn okkar kemst í gagnið aftur, bílkrúttið hans Tomma ... sem hann talar ástúðlega um og við og er ástæða þess að Tommi á enga konu, held ég. Ja, erfðaprinsinn hefur ekki tíma til að elta stelpur, svo mikið elskar hann kaggann sinn.

Við hlið mér sat afar indæl kona, leikskólastjóri í Grafarvogi og nágrannakona mín á Skaga, sem ætlaði að taka fyrstu ferð dagsins en hætti sem betur fer við. Hún var svo indæl að hún keyrði mig frá Mosó, þar sem hún geymir bíl sinn, og alla leið í Lyngháls, sparaði mér hálftíma, ferðir með tveimur strætisvögnum til viðbótar. Ásta hringdi á leiðinni í strætó og ég gat lýst fyrir henni viðurstyggingu eyðileggingarinnar (strætóhræinu) í beinni ... þar sem við ókum í gegnum Grundahverfið á Kjalarnesi. Löggan var enn á slysstað og hreinsaði veginn.

Mér var tekið eins og hetju í vinnunni þegar ég birtist þar um hálf ellefu. ... þar til fattaðist að ég var ekki í fyrri strætó sem lenti í slysinu, öllum var sama þótt ég hefði frosið föst við strætóskýlið í vonlausri bið eftir strætó sem var ekkert á leiðinni ...

Dúllan hann Haffi Haff er hérna og ætlar að farða forsíðuviðtalsviðfangsefnið okkar. Stelpurnar drógu hann í mat og ég er að hugsa um að elta ... vona að það verði ekki hnetusteik með möndlusósu, fylltum döðlum og rúsínusalati.


mbl.is Umferðaræðar opnaðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ég keyrði framhjá vagninum og hefði ekki viljað vera þar þegar þetta slys varð. leit ekki vel út.

gott að engin slazaðist.

Gulla (IP-tala skráð) 9.4.2008 kl. 12:12

2 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Eins gott að þú varst ekki með vagninum sem lenti í árekstri. Þær eru alltaf svo ævintýralegar þessar strætóferðir hjá þér.

Helga Magnúsdóttir, 9.4.2008 kl. 12:53

3 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Ævintýrin elta Sigþóru, ekki mig.  Ég er bara skrásetjari hennar í bloggheimum. Annars er ég bara innilega hamingjusöm yfir því að enginn hafi slasast að ráði! Hefði ekki boðið í bílstjórann ef hin framhliðin hefði rekist á vörubílinn ...

Guðríður Haraldsdóttir, 9.4.2008 kl. 13:02

4 identicon

Sæl elskan

 Ég er sko komin heim fékk far á Skagann um hádegið og fékk að fara heim. Var frekar eftir mig öll aum og í hálfgerðu sjokki held ég bara.Ætli sjúkranuddið mitt síðustu vikur sé farið fyrir bí  Því í svona tilfellum þá spennir maður alla vöðva og verður þvílíkt stífur í skrokknum ....helv  Er búin að hugsa mikið um það hvað hefði getað gerst ef tengivagninn á flutningabílnum hefði verið full hlaðinn ????? en hann var tómur sem betur fer. Mín skoðun er sú að það bjargar okkur frá því að ekki fór verr. Það verða heitar bænir til þess sem öllu ræður hver svo sem hann er með þakklæti fyrir að við komumst öll heil frá þessu.  ÉG VILDI AÐ ÞAÐ VÆRI KOMIÐ SUMAR OG ÞESSI HELV... HÁLKA OG DJÖ... ROK Á KJALARNESINU FARI AÐ LINNA. 

Sjáumst vonandi á morgun hafður það gott í dag ljúfan mín

Ætla að reyna að leggja mig

Sigþóra (IP-tala skráð) 9.4.2008 kl. 14:42

5 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Vá, vá, vá. Strætó var ferlega illa farinn, eins gott að þetta var ekki bílstjóramegin, hefði ekki boðið í bílstjórann annars. Og enginn farþegi sem sat í fremsta sætinu, leiðsögumannasætinu.

Sé þig vonandi á morgun, dúllan mín, skil að þú sért í sjokki.

Guðríður Haraldsdóttir, 9.4.2008 kl. 14:52

6 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Gott að heyra að allt fór betur en áhorfðist. Og að þú sast ekki í leiðsögumannasætinu.  Búin að hugsa mikið til þín í morgun.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 9.4.2008 kl. 16:11

7 Smámynd: Ragnheiður

Æj vesalings Sigþóra. ég fékk alveg verk í hjartað við að lesa innleggið hennar hérna.

Það er oft talað um að ;fólk sé ekki alvarlega slasað-fólk sé ekki í lífshættu-fólk hafi hlotið minniháttar meiðsl.

Það er bara alveg nóg...

Ragnheiður , 9.4.2008 kl. 16:14

8 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

það er nefnilega þetta með alla árekstrana... við sem erum ''áhorfendur/lesendur'' af fréttunum... Ef ''enginn slasaðist alvarlega'' erum við nokkuð róleg. Það gleymist að gera ráð fyrir aumum og sárum vöðvum (stundum viðvarandi ástand), brotnum útlimum sem kannski aldrei verða samir, og svo andlega áfallið.

Þetta er nú meiri slysabylgjan sem hefur riðið yfir landið á einu bretti sl. 2 daga. Það er samt gott að heyra að ekki urðu alvarleg slys á fólki í þessu tilviki.

Jóna Á. Gísladóttir, 9.4.2008 kl. 17:31

9 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Æi Gurrí, ég er nú samt fegin að þér varð bara kalt, en lentir ekki í árekstrinum, þótt þú gengisfallir kannski aðeins á stórslysamarkaðinum. Betra að vera misskilin en versnandi í bakinu, mundu það.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 9.4.2008 kl. 18:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 599
  • Sl. viku: 2451
  • Frá upphafi: 1457320

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 2037
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Elsku Tommi
  • Elsku Tommi
  • Mamma hjúkka

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband