Ógreiddi maðurinn og fleira fólk - stuð í strætó

Strætó í morgunHoppaði og skoppaði framúr í morgun kl. 7.15, ofsaglöð yfir því að fjandans sumarfríið væri loksins búið. Söng svo hátt "Oh what a beautiful morning" að nágrannarnir vöknuðu líka og urðu rosalega glaðir Já, sjúr. Fyristi dagur eftir þriggja vikna fjarveru hófst bara ágætlega þótt erfitt hafi verið að sofna í gærkvöldi fyrir spennandi bók (Dean Koontz) og útsofelsi í gærmorgun. Nýr strætóbílstjóri er kominn í staðinn fyrir Gumma sem ekur nú um hálendið með túrista, sá nýi hélt að Gummi væri alveg hættur. Þessi nýi virkaði voða hress og indæll, búinn að keyra strætó í áratugi. Hann tók upp mjög fúlan farþega á Kjalarnesinu, eða lítinn geitung sem án efa hefur verið hissa að lenda í Reykjavík og finna ekki búið sitt, múahahahaha. Honum er nær að vera til. Það var frekar svalt í morgun en vá hvað það hefur hlýnað. Við erum að kafna hérna í vinnunni. Ég steingleymdi mér og þurfti næstum að selja flöskur til að geta geta borgað strætófargjaldið, fékk alla vega tíkall lánaðan á stoppistöðinni.

Við Elín í morgunHitti gamla vinkonu í leið 15, brúna og sæta, nýkomna frá Ítalíu, þar voru engir geitungar. „Ekkert skrýtið,“ sagði hún, Mosóbúinn sjálfur, „þeir eru allir í Reykjavík.“ Tók síðast leið 18 í Ártúni og viti menn, elsku Indverjarnir mínir voru í vagninum, nema „vinur minn“, eða þessi sem spjallaði við í vor. Fátt hefur breyst þótt ég hafi verið óratíma í burtu. Rólegi maðurinn var þarna, reyndar hvorki Sá feimnislegi né þýðandinn en nýr maður hefur bæst við í hópinn: Ógreiddi maðurinn.

Jæja, nóg er að gera. Vona að dagurinn ykkar verði æðislegur!!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Til hamingju með að vera loksins búin að merja þig í gegnum helvítis sumarfríið.

Kveðja frá mér.

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.6.2008 kl. 10:53

2 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

ógreiddi maðurinn

Þú klikkar ekki!  Gott að þú ert ánægð með að fjandans sumarfríið sé búið, ég er farin að telja niður í næsta sumarfrí hehehehehehe

Guðrún Jóhannesdóttir, 30.6.2008 kl. 10:54

3 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

hahaha ég er í fjandans sumarfríi út vikuna. Hlakka til að kynnast ógreidda manninum.

Jóna Á. Gísladóttir, 30.6.2008 kl. 11:26

4 Smámynd: lady

til lukku að vera komin í sumarfríi,en annað bjóstu á Hvammstanga árið 1988

lady, 30.6.2008 kl. 14:48

5 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Heheh, Lady, ég var að enda í sumarfríi, í bili alla vega. Bjó ekki á Hvammstanga en Hilda systir gerði það og ég kom oft í heimsókn til hennar þangað. Frábær staður!

Mig grunar, stelpur, að ógreiddi maðurinn geti orðið fastur liður hér á blogginu, vona að hann fari ekki að greiða sér. Fæ næsta frí í ágúst/september. Á helling af dögum eftir.

Guðríður Haraldsdóttir, 30.6.2008 kl. 15:09

6 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Ég fer ekki í djöfuls fríið fyrr en í ágúst. Það verður huggulegt eða hitt þó heldur.

Helga Magnúsdóttir, 30.6.2008 kl. 15:32

7 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Vona að þú njótir þess innilega að vinna áður en þú þarft að taka þetta frí þarna ... en verður þú utanlands þann 12. ágúst þegar ég verð fyrir því að eiga afmæli?

Guðríður Haraldsdóttir, 30.6.2008 kl. 16:05

8 identicon

Hahahaha "Honum er nær að vera til" ahh ég dó!  úff!

Ellen (IP-tala skráð) 30.6.2008 kl. 16:27

9 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Ef lesið er milli línanna í þessum pistli læðist að manni sá óljósi grunur að þér sé ekkert allt of hlýtt til geitungastofnsins sem numið hefur land á Íslandi...    Ætli þeir flokkist ennþá sem "nýbúar"?

Lára Hanna Einarsdóttir, 30.6.2008 kl. 16:55

10 Smámynd: Tína

Gott þú sért ánægð með að vera komin aftur í vinnuna. Þó það sé gott að vera í fríi þá er alltaf betra þegar rútínan tekur við aftur. Það finnst mér í það minnsta.

Knús á þig Gurrí mín

Tína, 30.6.2008 kl. 17:48

11 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hmmm, hlæðu bara að frænku þinni, Ellen ...

Jamms, Lára Hanna, ég gleymi aldrei árinu 1985 þegar þyrlurnar (býflugurnar) námu land og hræddu líftóruna úr sumum, veit að löggan í Kópavogi hjálpaði gamalli, skelkaðri konu við að ná slíkum býfugli út úr íbúðinni. Ég hafði bara lokaðan munninn allt sumarið og harðlokaðan þegar geitungarnir birtust svo, fullir af hatri út í okkur mannfólkið.

Tína, ég er þrælhress með rútínuna en sumarfríið var samt voða notalegt.

Guðríður Haraldsdóttir, 30.6.2008 kl. 18:24

12 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

haaa, geitungar allir í Reykjavík, ég hef ekki séð einn einasta í allt sumar, og ekki nóg með það, enginn á ircrásinni minni heldur.  Sakna þeirra ekki sérlega mikið neitt...

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 30.6.2008 kl. 18:54

13 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Enginn geitungur hér í Borgarfirðinum mér vitanlega. Hef ekki séð neinn, bara nokkrar pattaralegar fiskiflugur, sem teljast ekki með. Vona að þú hafir fengið sms-ið frá mér, þá skilurðu plöggið fyrir Borgarfjörðinn.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 30.6.2008 kl. 19:10

14 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Til hamingju með það, Hildigunnur, þeir voru reyndar eitthvað seinir í gang, að sögn Erlings skordýrafræðings. Kannski eru þeir að safna kröftum til að geta stungið í haust ...

Fiskiflugur, mmm, sushi fyrir kettina mína, hef engar séð í sumar, var að fatta það. Fékk ekkert SMS frá þér, Anna.  

Guðríður Haraldsdóttir, 30.6.2008 kl. 19:20

15 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

En ertu búin að tékka á öllum þrettán farsímunum þínum?

Geitunga þekkir engin í þessum landshluta, en sætar og suðandi býflugur eru þekkt tegund, sérstaklega í konulíki!

Magnús Geir Guðmundsson, 30.6.2008 kl. 20:41

16 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Las það í blaðinu í dag að fækkun býflugna hækkar matarverð. - Hvað ætli hækki ef geitungum fækkar líka ? - Eins gott að þú ert laus úr fjandans sumarfíinu þínu og þarft ekki meira frí fyrr en í haust. - En það er þessi "ógreiddi" sem ég er mjög spennt fyrir, að heyra meira um.

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 1.7.2008 kl. 00:22

17 Smámynd: Júlíus Valsson

Segðu bílstjóranum að sækja geitunginn. Hann er hér fyrir utan og kallar á mömmu sína.

Júlíus Valsson, 1.7.2008 kl. 09:56

18 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Magnús, ég á "bara" tvo farsíma!

Ef geitungum fækkar þá fitnar þjóðin, enginn þarf að hlaupa undan neinu, nema þá helst ísbjörnum, Lilja. 

Ég fer í það á morgun á heimleiðinni, Júlíus. Það verður sætt að sjá hjartanlega endurfundi þeirra.

Guðríður Haraldsdóttir, 1.7.2008 kl. 10:07

19 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Já, því er nú fjandans verr verð ég úti á rúmsjó þegar þú átt afmæli en hugsa örugglega til þín.

Helga Magnúsdóttir, 1.7.2008 kl. 10:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 121
  • Sl. sólarhring: 258
  • Sl. viku: 2071
  • Frá upphafi: 1456824

Annað

  • Innlit í dag: 112
  • Innlit sl. viku: 1767
  • Gestir í dag: 110
  • IP-tölur í dag: 109

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Gardínukettir
  • Ostapítsa með sultu
  • Náttborð

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband