Tilhlökkun á Skaganum

Börn í flóttamannabúðum í ÍrakFlóttakonurnar frá Palestínu/Írak koma aðfaranótt þriðjudagsins og ríkir mikil tilhlökkun hjá okkur stuðningsfólkinu. Ætlum þó að gæta þess að kæfa þær ekki í gæsku. Þetta eru ágætlega menntaðar konur, sumar háskólagengnar, en áður en viðskiptabannið skall á í Írak 1991 var menntunarstigið í Bagdad með því betra í heiminum, skilst mér. Því hefur hrakað en er samt gott miðað við aðstæður. Eftir að Saddam Hussein var steypt af stóli, en hann sýndi flóttafólki frá Palestínu góðvild, hafa aðstæður þess breyst mjög svo til hins verra og þeim er ekki vært lengur í Írak. Nágrannalöndin eru yfirfull af flóttamönnum og vilja ekki taka við fleirum þannig að nú úr vöndu er að ráða! Ég fékk að heyra um daginn að sumum þætti grunsamlegt hvers vegna enginn vildi þessa flóttamenn, hvað væri að þeim ... vona að þetta svari því aðeins.

Börn frá PalestínuMæðurnar hlakka til að koma og eru mjög áhugasamar um Ísland, finnst líka frábært að koma á minni stað eins og Akranes. Áhugamál barnanna þeirra eru eins og annarra barna; fótbolti, sund, hjólreiðar, leikir ... og þau hafa líka mikinn áhuga á því að mennta sig. Held að sýn margra sjálfboðaliða hafi breyst eftir Rauða kross-fundina undanfarið. „Þetta fólk“ er ekki svo ólíkt okkur en einhverjir hafa talað um að ómögulegt hljóti að vera fyrir það að geta aðlagast.

Samstarfskona mín hefur ferðast mikið um Miðausturlönd. Hún hitti eitt sinn flóttamann frá Palestínu í flóttamannabúðum í Sýrlandi, minnir mig. Honum fannst frábært að hitta manneskju frá Íslandi og spurði hana með samúð í röddinni: „Er það virkilega rétt að Íslendingar eigi við mikið drykkjuvandamál að stríða?“ Konan hafði ógurlega gaman af þessu og fannst þetta í raun alveg einstakt.

Kíkti í íbúð minnar konu í gærkvöldi og það styttist óðum í að þetta verði mannsæmandi. Ég fann hvítar gardínur til að nota í beran baðgluggann og mamma hennar Ingu ætlar að laga þær aðeins svo hægt verði að koma þeim á stöngina. Komnir eru diskar, glös, hnífapör, panna og grunnurinn í eldhúsið og meira að segja notuð en fínasta tölva sem Verslunarskólinn gaf. Hvílíkur munur að koma úr viðbjóðslegum tjaldbúðum á gott heimili. Habitat gaf líka rúmteppi og fleira sem kemur á mánudaginn. Í bókabunkanum sem ég labbaði með yfir um daginn var reyndar engin Fyrsta orðabók barnsins, eins og ég hélt, hef líklega verið búin að gefa hana eða hún er enn vel falinn í bókakosti himnaríkis. Það hefði verið afar hentugt fyrir fjölskylduna að geta lært íslensku af henni og það auðveldar líka öll samskipti. Á sunnudaginn verða rúmin sett saman þótt okkur Ingu hafi tekist að skella löppunum undir rúm strákanna í gærkvöldi. Svo kemur þetta bara smátt og smátt, myndir á veggina, hillur í barnaherbergið og slíkt. Finnst ekki ólíklegt að flóttakonunum eigi þó eftir að finnast heimilin eins og flottustu hallir, svona miðað við fyrri aðstæður.

Þegar var verið að flytja dótið í íbúðirnar átta vantaði nokkrar hraustar hendur til þess. Pólsk kona sem er í verkefninu hringdi í fimm til sex landa sína sem komu allir hlaupandi og með þeirra hjálp tókst þetta og á stuttum tíma. Fólk er ótrúlega hjálpsamt. Ég verð þó að segja að ég dáist innilega að Rauða krossinum fyrir það hvernig hefur verið staðið að þessu verkefni, það hefur verið klikkað að gera undanfarna daga við að púsla hlutum saman en allt hefur gengið upp og án efa verður allt tilbúið þegar þessar elskur koma aðfaranótt þriðjudagsins. Krakkarnir mínir eru ekkert smá sætir ... við fengum að sjá myndir á síðasta fundi. Miðbarnið mitt verður sex ára daginn eftir komuna. Nú er ég orðin fimmtug og má því ammast svolítið fyrst sonurinn hefur ekki fjölgað mannkyninu, enda sagði ég alltaf við hann að ég væri of ung og óþroskuð til að verða amma. Núna síðustu vikurnar hefur mér fleygt fram, ótrúlegt hvað tölustafir geta áorkað miklu.

Jæja, þarf að fara að rjúka ... nú er klósettburstaafhending í íbúðirnar átta fram undan og eflaust sitthvað fleira. Þetta er bara gaman.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þröstur Unnar

Frábært Gurrí. Ef ykkur vantar aðstoð með eitthvað þá er ég til í allt.

Hvernig var t.d með fötin sem "fólkið" á að fá? Var búið að þvo þau?

Fjandinn...... finnst ég alveg gagnslaus miðað við ykkur.

Þröstur Unnar, 6.9.2008 kl. 13:25

2 Smámynd: Ragnheiður

Þessi lestur er frábær, las fyrir húsbóndann og það lifnaði yfir honum. Frábært að lesa um dugnað og samhjálp mitt í öllum umhverfisleiðindum.

Ragnheiður , 6.9.2008 kl. 13:29

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk elsku Gurrí fyrir að leyfa okkur að fylgjast með.  Fyrir nú utan hvað mér finnst þið Skagamenn algjörlega frábærir í þessu máli.

Tek ofan fyrir ykkur og ég skil vel gleði þína að geta átt þátt í að gleðja fólk sem kemur úr þessum hrikalegu aðstæðum.

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.9.2008 kl. 13:31

4 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Þröstur, þú segir nokkuð! Ég tók reyndar með mér handklæðabunka sem ég ætla að skella í þvottavél og þurrkara seinna í dag ... tveir nýir umgangar eru af rúmfötum og alltaf leiðinlegt að þvo þau ekki áður en þeim er skellt á rúmið. Ég skal spyrja hana Önnu Láru á eftir hvort það yrði ekki vel þegið að fá vel þvegið ... Takk kærlega, snillingur.

Ég get örugglega ekki stillt mig um að blogga um þetta þannig að það koma eflaust fréttir áfram.  Ég veit að verið er að gera upp gömul hjól til að geta gefið krökkunum og núna er verið að fínisera íbúðir úti um allan bæ. Sjálfboðaliðarnir urðu svo margir að við erum t.d. fimm aðilar um mína fjölskyldu. Knús á ykkur.

Guðríður Haraldsdóttir, 6.9.2008 kl. 13:41

5 Smámynd: Þröstur Unnar

Ok, hringdu bara 897-1955 ef þarf.

Þröstur Unnar, 6.9.2008 kl. 14:17

6 Smámynd: Vera Knútsdóttir

Ég á þónokkur handklæði sem eru bara í geymslu hjá mér (eftir búferlafluttninga), endilega láttu mig vita ef það vantar fleiri handklæði :-)

Vera Knútsdóttir, 6.9.2008 kl. 14:51

7 Smámynd: Gunna-Polly

eru ekki ikea vörurnar sem ég sendi uppeftir flottar :)

Gunna-Polly, 6.9.2008 kl. 17:47

8 identicon

Gurri, hringdu í mig á mánudaginn, við gefum Stóru myndaorðabókina til fjölskyldunnar, hún ætti að koma að góðum notum.

Kveðja,

Sif

Sif hjá Forlaginu (IP-tala skráð) 6.9.2008 kl. 18:11

9 identicon

Mikið er fólkið heppið að fá að flytja á Skagann, þar er greinilega fólk sem er annt um lítilmagnann og gerir allt sem hægt er til að auðvelda flóttafólkinu lífið   Þið eigið heiður skilið fyrir að takak svona vel á móti þeim.

Gurrý þú skalt bara ammast eins mikið og þig langar, krakkaskottin  eiga það örugglega inni

Jonna (IP-tala skráð) 6.9.2008 kl. 20:38

10 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Vera, það voru keypt ný handklæði og viskastykki á heimilin og tveir umgangar af rúmfötum á hvern aðila. Ég skal spyrja Önnu Láru hjá Rauða krossinum hvort vanti meira. Hitti hana á morgun.

IKEA-vörurnar úr Gunnubúð voru æðislegar, flottur kassinn sem kom, þetta verður mikil himnasæla að fá svona flottheit. Við komum tvær í IKEA á morgun að kaupa það allra síðasta, nokkrar ljósakrónur, ostaskera og slíkt.

Já, Jonna, ég ætla sko að ammast á fullu! Vinkonur mínar, sem eru orðnar ömmur, eru svo frábærar í þessu hlutverki, mjög góðar fyrirmyndir.

Guðríður Haraldsdóttir, 6.9.2008 kl. 21:21

11 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Já, og TAKKKK, Sif, ég þigg svo sannarlega Stóru myndaorðabókina,alveg frábært.

Guðríður Haraldsdóttir, 6.9.2008 kl. 21:22

12 identicon

Þetta er í einu orði sagt, frábært, núna get ég verið stoltur af því að vera Skagamaður

Valsól (IP-tala skráð) 6.9.2008 kl. 21:27

13 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Mikið er ég stoltur af mínu fólki á Skaga.

Gurrý, þú ert rétt manneskja á réttum stað.

Gangi ykkur sem bezt með þetta góða verkefni.

Einar Örn Einarsson, 6.9.2008 kl. 21:36

14 identicon

Elsku Gurrí mín.  Ég er svo stolt af þér og ykkur öllum sem standa að þessu öllu.

Þið eruð stolt okkar íslendinga 

Edda í Englandi (IP-tala skráð) 7.9.2008 kl. 00:34

15 Smámynd: Bertha Sigmundsdóttir

Þú ert ótrúlega dugleg, Gurrí mín, vá hvað ég er stolt að heyra dugnaðinn í þér, Rauða Krossinum, og öllum öðrum sem hafa staðið í að gera allt tilbúið. Mikið verður yndislegt fyrir mæðurnar og börnin að koma, og hafa heimili fyrir sig og fjölskyldur sínar, sérstaklega eftir allt sem þau hafa gengið í gegnum, þau eiga svo innilega skilið að fá frið og ró. Ég er stolt að vera vinkona þín, og stolt að vera Íslendingur, og vildi óska að ég væri heima til þess að hjálpa þér með hvað sem þig vantaði. Haltu áfram að vera þú, aldrei breytast, því þú ert yndislegust. Kossar og knús yfir hafið

Bertha Sigmundsdóttir, 7.9.2008 kl. 06:33

16 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Frábært, en var þetta formleg athöfn Gurrí, þessi klósettburstaafhending. Kveðja á Skagann og gangi ykkur vel.

Haraldur Bjarnason, 7.9.2008 kl. 07:45

17 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Hæ Gurrí, trufla þig ekki í sívaxandi annríki, fyrst mér tókst ekki að ræna þér með í skottúrinn upp í bústað um daginn (það koma fleiri ferðir) þá veit ég fyrir víst að þú ert vakin og sofin í þessu verkefni eins og öllu sem þú tekur þér fyrir hendur, ekki neitt slór eða rugl þar, stolt af þér og Skagamönnunum almennt.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 7.9.2008 kl. 08:28

18 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Edda Agnarsdóttir, 7.9.2008 kl. 10:54

19 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Þetta er hreint út sagt frábært Gurrí, þið standið ykkur eins og við Íslendingar viljum standa okkur.... Gott gengi áfram!

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 7.9.2008 kl. 14:55

20 Smámynd: Vera Knútsdóttir

Já endilega láttu mig vita. Ég veit að ein fjölskyldan verður að nýjum nágrönum mínum og ég hlakka svo innilega til að fá fjölskylduna sem nágrana. Aldrei að vita nema að maður lýti inn hjá þeim og bjóði þau velkomin. Mér finnst svo æðislegt að það sé staðið svona vel að þessu og ég er ótrúlega stolt af því að vera skagakona núna að það er ótrúlegt. Held að ég hafi aldrei verið svona stolt af því áður. Þú ert líka æði Gurrí að taka svona virkan þátt í þessu. Þessar konur og fjölskyldur þurfa einmitt hressa og skemmtilega konu með gott Pollýönnu viðhorf til staðar og þú ert alveg fullkomin í það. Knús á þig

Vera Knútsdóttir, 7.9.2008 kl. 17:09

21 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Elsku Gurrí mín....algerlega yndislegt að lesa um hvað þið eruð að gera frábærlega vel í að taka á móti þessum konum og börnum. Nú eru þau líklega einhversstaðar á leiðinni eða rétt að leggja af stað til þessara nýju heimkynna sem bíða þeirra á Akranesi. Mikið eiga þau gott að koma til ykkar....og þú verður bara  frábærari og frábærari með aldrinum ..eins og það sé eitthvað hægt!!!

kærleiksknús til ykkar allra!!! 

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 7.9.2008 kl. 20:16

22 Smámynd: Brynja skordal

Heyrðu hugsa að hún dótla mín mundi alveg vilja láta eitthvað af Leikföngum sem hún reyndar er hætt að nota til þessara barna ef það vantar sendu mér bara skilaboð og þá munum við týna eitthvað til alltaf not fyrir það

Brynja skordal, 7.9.2008 kl. 23:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 21
  • Sl. sólarhring: 395
  • Sl. viku: 2263
  • Frá upphafi: 1456559

Annað

  • Innlit í dag: 21
  • Innlit sl. viku: 1894
  • Gestir í dag: 21
  • IP-tölur í dag: 21

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Sjö saman í Karíba
  • Facebook ógnir
  • Herbergi drengsa

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband