Færsluflokkur: Bloggar
17.6.2021 | 22:42
Fura eða lerki, frostpinni eða prins
Þessi ljómandi góði dagur hófst með dásamlegri sturtu og síðan enn dásamlegri kaffibolla. Hafði þó ekki hugmynd um hvað dagurinn átti eftir að bera í skauti sér. Samkvæmislíf sumarsins hófst sem sagt með látum í dag með fermingarveislu í Fólkvangi á Kjalarnesi kl. 15. Hilda systir sagði það grunsamlega vel planað hjá mér að strætó gengi beinustu leið þangað frá Akranesi á hárréttum tíma. Það skiptu vissulega nokkrir fímmtíukallar í brúnum bréfpokum um hendur um árið þegar tímaáætlunin var gerð - því ég hafði á tilfinningunni að veislan sem frestað yrði tvisvar í fyrra vegna covid, átti fyrst að vera í í Reykjavík, yrði á Kjalarnesi á endanum, sem engan grunaði. Ekki að spyrja að innsæi mínu. Húsið mun ég sennilega kalla Hús örlaganna, ef allt gengur að óskum ... svo magnaðir hlutir gerðust þar.
Geggjaðar veitingar (meira að segja ljómandi gott kaffi), allt upp á tíu, flottir ættingjar sem gaman var að hitta en hátindurinn var sessunautur minn (mig grunar að frænka mín, fermingarmóðirin, hafi vandlega undirbúið að við kynntumst, því ég fékk einhleypan og bráðhuggulegan byggingaverkfræðing á réttum aldri við hliðina á mér sem þýddi að ég gat montað mig af öllu sem ég vissi um timbur og byggingar. Hann hlustaði heillaður á mig tala illa um birkikrossvið sem myglar um leið og hann er einangraður, að Íslendingar ættu að einangra hús sín að utan, ekki innan, og hvað það væri sniðugra fyrir fólk að fá sér lerki sem pallaefni í stað furu, ekkert viðhald á lerki og dugir í heila öld. Furan dugir í kannski 15-20 ár og þarf heilmikið viðhald og vesen en kannski auðveldari að vinna með.
Lerki er samt fjórum sinnum dýrara, sagði ég hugsi og greindin skein úr grænleitum augum mínum. Biggi (hann er alltaf kallaður það) kinkaði kolli til samþykkis og sagði að enn betra væri að fá sér sedrusvið sem ekki bara væri sterkur og flottur harðviður, heldur fjórfalt dýrari en lerki ... og lyktin sem bærist frá sedrusviði virkaði sem skordýrafæla. Það var þá sem ég missti stjórn á mér, nánast datt af stólnum í sæluhrolli. Það þarf ekki meira til að heilla mig. Ég gaf honum símanúmerið mitt þegar ég var sest aftur við hlið hans ... óþarft að skrifa niður, sagði hann og kvaðst hafa gott minni á tölur - og þá leið yfir mig. Hvar hafði þessi maður verið allt mitt líf? hugsaði ég áður en allt varð svart. Systkini mín báru mig í gullstól yfir í næstu setustofu og eftir hálftímalanga ilmsalts- og blævængsmeðferð rankaði ég við mér. Fermingarveislunni hafði verið aflýst, allir reknir heim og bara tíu mínútur í strætóinn minn á Skagann.
Ég er búin að steingleyma Vilmundi þótt ég sé vissulega hálfpartinn veðursjúk, alla vega lægðasjúk á veturna, því á sumrin er ekkert um almennilega tilbreytingu, bara lægri eða hærri hitatölur. Nú er ég heppin að vinna heima með bæði heimasíma og gemsa við hliðina á mér, ég gaf Bigga sæta (Biggi byggir) bæði númerin - nú er að vita hvort hann meinti eitthvað með hrifningarstununum sem hann rak annað slagið upp í samtali okkar. Eða er hann tilfinningalaus frostpinni eins og sumir sem ég þekki og mun gleyma? V var bara nær. Ég er meira að segja búin að afpanta ódýra þjónustu vinkonu minnar sem hefur setið öll kvöld í bílnum sínum fyrir utan heimili V og gefið mér svo skýrslu næsta morgun. Hún hefur ekki séð frostpinnann í marga daga en ég hef engar áhyggjur, ég hef þegar gleymt honum.
P.s. Hilda systir hringdi rétt áðan (eftir að hún talaði við fermingarmömmuna) og skammaði mig fyrir að hafa sest í hennar sæti í veislunni. Ég átti víst að sitja annars staðar. Ég er svolítið ráðvillt. Er B minn - eða var hann allan tímann Hildu? Hvernig taka örlögin á svona mistökum? Á ég að tékka á fornleifafræðingnum sem Hilda sat uppi með og kvartaði yfir að hún hefði allt of fáar hrukkur miðað við aldur? Af hverju vorum við Hilda aðskildar í fermingarveislunni? Og af hverju fékk hún Moderna og ég Astra Zeneca? Hvað er um að vera?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.6.2021 | 16:31
Skagi hinna fögru kvenna
Í dag var komið að fóstursyninum að fara í bólusetningu. Hann fékk auðvitað Ph-Rolls á meðan ég þurfti að sætta mig við AC-Trabant í lok apríl. Ekki að AC sé verra, en það líður bara svo langur tími á milli. Hann fór beint í vinnunna á eftir, harðjaxlinn sjálfur, enda fyrirvinnan ...
Það andar köldu ... sem sagt kuldalegt veður og enn ekkert nema frostið frá vissri persónu í Reykjavík. Stoltið kom í veg fyrir að ég hringdi í mömmu hans, það hefði verið of áberandi: Hvað segirðu gott? Já, og hvað er að frétta af Vilmundi? Er það ekki? En mér skilst (mig grunar) að veðurlag hafi verið svipað síðast þegar Vilmundur var að slá sér upp, eða þegar hann var að frysta viðkomandi á brott. En við byrjuðum samt aldrei saman. Veðurfræðingar eru voldugri en maður heldur. Sennilega hef ég á einhvern hátt og alveg óvart sýnt mitt rétta andlit, V hefur sennilega gúglað mig.
Það var svakalegt að ganga inn í íþróttahúsið við Vesturgötu áðan. Fólk svoleiðis vék úr vegi fyrir mér og datt um sjálft sig í látunum, virtist hálfhrætt, sumur bældu niður öskur, aðrir gubbuðu í nærliggjandi ruslafötur og samt var ég með grímu. Mér var litið í spegil og sá að ég var hrottalega útitekin, eins langt frá því að vera slétt og felld og fögur sem foldin og hægt var (sjá myndina aftur, hún var tekin fyrir utan íþróttahúsið í dag). Hjúkkurnar tvær sem sáu um stingudæmið áttu að vera í sumarfríi, heyrði ég, en ekki var beiskjunni fyrir að fara hjá þeim, þær voru dásamlegar. Og ekkert hræddar við mig, enda vanar ýmsu hrollvekjandi. Það eru samt helst afdalabændur sem búa í tjaldi eða húsnæði sem næðir um í hvassviðri (og alltaf hvasst) sem gætu mögulega verið jafnrosalega rauðir í framan og útiteknir og ég í dag. Ég veit að Skagakonur líta óstjórnlega vel út, fyrirskipun frá bæjarstjórn (Fallegasti bærinn, fegustu konurnar, bestu kartöflurnar = kjörorð Akraness), en ég hef ekki hugsað nógu vel um útlitið síðan fyrir covid og svo var grímuskyldan afnumin allt of hratt og harkalega.
Til að stráksi/fyrirvinnan kæmist sem fyrst í vinnuna aftur tókum við strætó og bílstjórinn opnaði dyrnar að aftan til að losna við að ég gengi fram hjá honum, en það er frítt í strætó innanbæjar. Drengurinn reyndi að kenna covid um þegar ég bar mig upp við hann, að þetta hefði verið svona síðasta árið, en covid er ekki lengur afsökun fyrir neinu ... margir nota það samt enn til að loka búðum sínum of snemma dags. Allt féð sem ég eyddi í fegurð fyrir stefnumótið (kjötbolluveisluna) ... sú fegurð hvarf þegar ég fór næst í sturtu.
Bara svo þið gerið ykkur í hugarlund hvernig ég leit út fyrir sex dögum, á stefnumóti (kjötbolluveislu) við vissan veðurfræðing, eftir að hafa eytt öllu sparifé mínu (setti allt sílikon á vísa-rað), birti ég hér nýlega mynd af konu sem er fædd í ágúst 1958, eins og ég. Hún er að vísu ögn grennri, með færri hrukkur og á meiri peninga, ásamt því að þessir fjórir dagar sem hún er yngri en ég skipta eflaust einhverju ... og ég hneppti upp í háls eftir að mamma hans kom til skjalanna og var ekki með bert á milli. En ég hef reynt að ná þessu útliti alla tíð eftir að ég flutti á Skaga hinna fögru kvenna eins og landsmenn kalla Akranes, eða ættu að gera. Það er til dæmis alltaf unun að hitta gömlu skólasysturnar í Einarsbúð, þær líta nánast út eins og þær gerðu í 12 ára bekk eða í kringum brottnám mitt til Reykjavíkur (sjá Sérstæð sakamál, 3. tbl. 1971).
Eftir þessa erfiðu reynslu í dag ætla ég að taka mig virkilega á, fylla skúffur og skápa af snyrtivörum, koma mér upp hirðsnyrtidömu, klæðskerameistara og panta tíma hjá Önnu Júlíu í klippingu, og þá getur Madonna bara dinglað sér ... og Vilmundur. Það verður unaðslegt að fara á fætur eftirleiðis, verja morgninum í nákvæma snyrtingu (nota gyllinæðarkrem undir augun, flugfreyjutrikk) og setjast svo við tölvuna og vinna, glæsileg eins og ég væri að fara í fínt matarboð eða á hirðdansleik. Held það nú.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.6.2021 | 23:13
Díana, Megan og ískaldur veðurfræðingur
Ekkert heyrst frá veðurfræðingnum í sólarhring. Óþolandi gelgjulegt af honum að hætta bara að tala við mig, eins og til að gera mig spennta. Virkar ekki. Kann ekki við að hringja í mömmu hans en geri það kannski á morgun eftir hádegi ef ég heyri ekkert frá honum í fyrramálið. Kannski eru veðurfræðingar landsins á neyðarfundum vegna kuldans núna, er ekki hafís kominn nálægt landi og þá kannski ísbirnir? Þetta er fínasta veður fyrir minn smekk en fólkið á Facebook (hinu heimili mínu) er ekki ánægt - ég veit um fjölskyldu sem hlær tryllingslega yfir veðurfréttum þar sem sjaldgæf orð að sumri, eins og frost og slydda, koma fyrir, þau kalla þetta skemmtiþátt og telja orðin.
Hitabylgjur koma iðulega í júlí og ágúst, ef veðurminni mitt er rétt. Man eftir svo heitum degi eitt árið 12. ágúst að afmælistertan mín úr Bernhöfts byrjaði að bráðna (súkkulaðið í áletruninni) frá kælibílnum að dyrunum hjá mér á Hringbraut, tíu til tólf skref, hann lagði uppi á gangstétt beint fyrir framan. Það var viðbjóður. Hugsa sér, tugir gesta í 56 fermetra íbúð og vel yfir 20 stiga hiti úti og ekki búið að finna upp viftur, brauðtertur um öll borð og allt of lítill ísskápur. Það heitt þennan ágúst að geitungarnir dóu (ææ, sveppir í búum þeirra) áður en þeir gátu farið að geðvonskast skömmu seinna. Ekki skrítið að ég hafi flutt á Skagann við sjóinn þar sem oft er gola, ekki nærri því nógu oft samt. Vilmundi finnst ég of lægðasjúk, hann sagði það í gær en ég hélt að hann hefði verið að grínast, eða að þetta væri hrós. Þetta er mögulega orsökin fyrir ískaldri þögn hans í dag en virkar ekki á mig.
Ég eldaði ansi hreint góðan mat í kvöld - átti að vera venjulegt hakk og spaghettí en kjötsósan varð svolítið öðruvísi, samt fínasti vetrarmatur sem hlýjaði sem ekki veitti af þar sem kuldaleg þögnin ríkir enn úr Reykjavíkinni. Ég átti ekki tómata í dós og var búin að gleyma grænmetisteningunum ... kryddaði hakkið með salti, pipar og Hlöllabátakryddi, setti litla tómatpúrédós, síðan skellti grænmeti í bitum (gulrótum, blómkáli og brokkolí, áður frosnu) út í hakkið, rjómaosti með karmellíseruðum lauk (hálf dolla, þurfti að klára) og smávegis rjóma (sem var að renna út). Enn fannst mér vanta eitthvað og setti matskeið af kanil út í og þá varð þetta fullkomið. Náði svo spaghettíinu algjörlega al dente og þetta var hrikalega gott. Líka fyrir unglinga en minn bað um meira. Afgangurinn er kominn inn í ísskáp, ekkert myndað en kanill er svo góður í mat þegar eitthvað vantar í bragðið ... þetta var óður til kanils og já, ég hlakka til jólanna.
- - - - - - - - - - - - -
Ég held að hirðin í Buckingham-höll sé voldugri en flesta grunar og stjórni ansi hreint miklu (með samþykki sumra). Held að Díana hafi lent í hakkavélinni en barist á móti. Megan er alls ekki nógu fín fyrir fjölskylduna, bandarísk, áður atvinnuleikkona og hálfsvört að auki, eitthvað sem fjölskyldan sjálf myndi aldrei viðurkenna. Þá er gott að hafa vel tengda hirð sem getur stjórnað umræðunni ... miskunnarlausri pressunni.
Fyrst upplifði Megan andstyggilegheit og dónaskap, hún kvartaði (ólétt og viðkvæm) og þá lásum við um í blöðunum hversu frek og ömurleg hún væri við starfsfólkið, öskraði á það og allt. Pabbi Megan er ómetanlegur hirðinni án þess að vita það. Ungu hjónin flýja loks til Bandaríkjanna, láta svo Opruh plata sig í lélegt viðtal um ekki neitt sem gerði ekkert gott fyrir þau. Harry elskar fjölskylduna og litla barnið er látið heita í höfuðið á ömmu hans til að sýna það og rétta fram sáttarhönd. Hirðin brjálast og lætur leka út að Elísabet sé alls ekki hrifin og hafi ekki veitt leyfi fyrir notkun nafnsins, Harry reynir að leiðrétta það en er ofurliði borinn.
Ég ætla nú samt að tala við einn af sérfræðingum mínum í breska kóngafólkinu, Borghildi vinkonu, og vita hvað hún heldur. Hún bjó lengi í London og veit miklu meira um kóngafólkið en ég. Í lok ágúst 1997 kom hún í útvarpsviðtal til mín á Aðalstöðina og við ræddum mál Díönu prinsessu í rúman klukkutíma. Díana lenti í bílslysinu banvæna sama kvöld. Furðuleg tilviljun, nema Karl hafi verið að hlusta. Eða Elísabet, sögðu ekki klikkuðu samsæriskenningasmiðirnir að hún hefði lært að gera við bíla í stríðinu, þá kornung kona, og hefði farið til Parísar þetta kvöld og skemmt bílinn sem Díana og Dodi voru í?
Ástæðan fyrir því að ég fór að tala um Díönu er að Vilmundur er með tattú af henni, hann sendi mér mynd af því í gær. Mamma hans húðlúraði hann, held ég. Sennilega hef ég ekki hrósað því nóg (húðflúrinu) og þess vegna frystir hann mig úti. Hefur hann aldrei heyrt talað um annan séns eða misjafnan smekk? Annars er mér alveg sama, þetta virkar ekki á mig.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.6.2021 | 16:41
Ekki fleiri stefnumót - í bili
Enska landsliðið gladdi gamalt hjarta mitt með því að sigra í dag en ég hef iðulega haldið með Englendingum, síst þó árið 2016, það eftirminnilega ár þegar leikirnir voru svo spennandi sumir að ég sá hluta þeirra með lokuð augun eða í felum nánast á bak við hurð til að spennan bæri mig ekki ofurliði. Ég get verið dramatísk en bara þegar kemur að fótbolta, ekki t.d. ástum. Þá er ég verulega kúl eins og glöggir lesendur bloggsins hafa áttað sig á.
Tilboði mínu í bandaríska sendiráðið, eða húsakynnin við Laufásveg, var hafnað grimmdarlega um leið og ég lagði það inn. Það þarf að taka þetta allt í gegn, stærðin er ekki allt, eins og margir vita. Ég var samt farin að sjá mig fyrir mér þarna, sérstaklega afmælin mín en himnaríki er alveg nógu góður staður fyrir vini mína og vandamenn. Mér tókst að sjá til þess að gjaldtöku yrði hætt í Hvalfjarðargöngum en það dugði samt ekki lötustu gestum mínum. Ég gerði tilraun til að láta Akraborgina fara að ganga aftur en vegna misskilnings var stofnaður hamborgarastaðurinn Akraborgarinn - sem er reyndar fínt nafn. Ekki búin að smakka, aðeins of langt til að ég nenni að ganga (ég hata að ganga) og ekki er sent heim.
Vilmundur hringdi til að spjalla. Mamma hans hafði skroppið í bingó, það fyrsta eftir covid-lokun, svo hann gat um frjálst höfuð strokið, sagði hann glettnislega. Ég hafði reyndar ekki hugmynd um fyrr en í dag að hann byggi með gömlu konunni. Henni fannst það góð hugmynd, sagði hann, ódýrara húshald og hann myndi hvort eð er erfa þessa íbúð í fyllingu tímans og bara vesen að flytja.
Hann er kominn með móral yfir veðrinu, hvítt í Akrafjalli og allt, en sagði að köld sumarbyrjun væri á sig leggjandi til að gleðja mig, ég sem sagt losnaði við geitunga í sumar. Að mestu. Þessir íslensku væru harðskeyttir og geðillir og vegna mikils magns blóma og trjáa í byggð lifðu þeir góðu lífi þar og væru vanir að stinga mannfólkið sér til hita (og skemmtunar). Eitt árið lækkaði júníhitinn víst mjög snögglega um tuttugu gráður - fór úr tíu gráðum niður í mínus tíu, minnir mig að hann hafi sagt - sem er mögulega það eina sem getur hrakið geitunga úr landi, ásamt því auðvitað að meðalhiti lækki um einhverjar gráður og fólki verði bannað að rækta stinguflugur nema hafa þær í ól. Það er mjög hentugt að þekkja veðurfræðing en ég er eiginlega búin að afskrifa hann sem stjúpföður kattanna. Veit samt að þá langar. Þeir reyna að veiða alla karlmenn sem stíga fæti inn í himnaríki, mala og knúsa, að springa úr ástreitni. Iðnaðarmennirnir mínir í fyrra voru sumir hálfvandræðalegir.
Símtalið stóð ekki lengi, hann endurtók loforðið um að ég kæmist með strætó í fermingarveisluna á Kjalarnesi á fimmtudaginn (slæm spá á 17. júní, ekkert nýtt), sagði mér svo sitt af hverju um háþrýsting og lágþrýsting og svo kvöddumst við vingjarnlega. Enginn hjartsláttur, enginn spenningur, það var eitthvað sem kjötbollur mömmu hans káluðu endanlega, ekki þó endilega viljandi hjá henni.
Ég fæ sennilega alveg nógu mikla nánd í strætóferðum mínum sem er ansi lítil núna, engin. Tveggja metra reglan er ekki lengur í gildi, sem betur fer, svo ég ætla að taka aftur upp 200 metra-regluna mína (nema jól og afmæli). Það þarf eitthvað svakalega mikið til að ég nenni á fleiri stefnumót á næstunni. Ég er samt ekkert beisk, mér líður bara vel með bókum, kisum og kaffi - og auðvitað EM. Ætla samt að endurskoða þetta í kringum 12. júlí.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.6.2021 | 20:21
Sönn svör og systraslagur á Skaga
Blogginu hafa borist nokkrar spurningar sem tengjst flestar stefnumótinu í fyrradag.
- - - - - - - - -
Hvernig kynntist þú veðurfræðingnum? Ég sagði á blogginu að veðurfræðingar svæfu bara hjá þegar væri lægð yfir Grænlandi (sem er nánast aldrei). Mér var sagt það. Vilmundur hringdi frekar svekktur og vildi leiðrétta það en símtalið endaði með boði á stefnumót, hélt ég.
Er hann sætur / spáir hann góðu veðri? Ég legg það að jöfnu. Já, hann er kjút og hann sendi mér nýlega geggjað spákort (sjá mynd) sem hann gerði fyrr á þessu ári, (besta veðrið í mínum huga) og ég eiginlega varð pínku skotin í honum þá. Ef þetta heldur áfram ... Held stundum að þessar lægðir allar í júní séu gerðar til að heilla mig. En - ég verð að komast í fermingarveislu á Kjalarnesi á fimmtudaginn!!! Hann ætlar að reyna að seinka svakalegri lægð til föstudags.
Á að gefa honum annan séns? Well. Kannski vildi hann bara hitta mig og ræða lægðir og ég tók því sem boði um rómantískt stefnumót. Kannski er hann óreyndur. Hann er samt um sextugt eins og við Madonna.
Hvað varð af g-strengnum? Ég var að vona að hann hefði gleymst. Ég var svo lengi að reyna að koma mér í hann að ég hafði næstum misst af strætó. Ég rúllaði honum bara upp fyrir rest og skellti upp í efri skáp, þar mun hann vera, mögulega um aldir alda, svo innilega ofmetin flík og ekkert sexí. Hefði eins getað verið í gítarstreng.
Á hvernig bíl var mamman? Það þýðir ekki að spyrja mig um bíltegund, bíllinn var rauður og talan 3 kom tvisvar fyrir í númerinu.
Var þetta dýrt deit? Já, mjög, ég þarf að semja um reikninga fyrir sílikoninu og reyna að skila rúmfötunum sem kostuðu 138 þúsund (eitt sett, án laks), aldrei notuð. Náði að staðgreiða flest annað og panta í gegnum Einarsbúð. Ætla að halda verjunum upp á djókið. Ansi hrædd um að þetta hafi verið minn síðasti séns.
Með hverjum heldur þú á HM? Þetta er reyndar EM-2020 sem var frestað um ár - ég held oft með Englandi, leikur á morgun!!! Líka spennt fyrir Þjóðverjum. Og Dönum líka, ekki síst eftir hryllinginn í dag - meira að segja þrátt fyrir hræðilegu stjórnvöldin þar. Drottningin er töff.
Elskar Vilmundur ketti? Já, mig grunar það. Mamma hans er alla vega með feisbókina sína fulla af kettlingamyndböndum (englum og vísdómskornum). Hann virðist sammála mömmu sinni í flestu, en við ræddum svo sem ekki um ketti í kjötbolluboðinu.
Ertu bólusett? Hálfbólusett, fæ seinni í lok júlí.
Er mamma Vilmundar afbrýðisöm út í þig? Held ekki.
Hvar kaupir þú fötin þín? Oftast í Nínu, stundum Walmart.
Ertu til í að vera með ástarráð annað slagið á blogginu þínu? Já, ekkert mál, mín er ánægjan.
Wham eða Duran Duran? Pink Floyd.
Þú vinnur við að fjarlægja villur, finnst þér í lagi að það séu jafnvel ein eða tvær villur í þínum eigin færslum? Nei.
Hefurðu einhvern séns, svona í alvöru? Já. Forspá kona (frænka mín) sagði við mig þegar ég var 18 ára að ég myndi giftast ljóshærðum manni með ættarnafn. Ég rengi það ekki. Neitaði þó að deita ljóshærðan vin Elfu vinkonu í USA, hann ber ættarnafnið Mattrass. Ég þarf þá bara að lifa með því að hafa kannski hafnað sjálfum draumaprinsinum.
Hilda (+2) kíkti á Skagann um hádegi og við fórum fjórar skvísur í bröns á Galito. Með önd á vöfflu fékk ég mér mímósudrykk, eitthvað sem ég hef ekki smakkað áður, og Hilda varð mér náttúrlega til skammar, eins og svo oft ... alltaf. Kurteis þjónn kom gangandi með gult í glasi og setti upp spyrjandi svip. Fyllibyttan er hér í horninu, sagði hún ruddalega og beindi geðillskulegum glyrnunum í átt að mér. Þjóninum brá, enda er þetta fínn staður og engar fyllibyttur leyfðar. Mímósa er, held ég, appelsínusafi og freyðivín saman, það var allur fyllibyttuskapurinn. Við systur borðuðum egg-benediktana okkar í fýlu og rúntuðum um Skagann alveg brjálaðar, fórum í skúrinn hjá Kristbjörgu grautfúlar og síðan í Frystihúsið til að geta orðið enn kuldalegri hvor við aðra. Kíktum svo í gallerí Bjarna Þórs til að hitta Ástu og fengum Helgu Olivers í kaupbæti. Lentum næstum í slag á útleiðinni. Ég söng: Farðu í fúlan pytt, fullan af draugum, og loks gerði hún það þegar hún skrönglaðist á bíldruslunni til Reykjavíkur um hálffjögur, ekki sekúndu of snemma. Annars bara dásamleg heimsókn, alltaf gaman að fá Hildu.
Svo er annað ... ég komst að því að Galito er ekki með vonda kaffið, ofmetna, eins og ég hélt, heldur fínasta Lavazza. Skipt var um kaffitegund þar fyrir rúmum tveimur árum. Ég hafði ekki haft hugmynd um það og neyðst til að fá mér vín með matnum (rauðvín eða mímósu) eða gos, kaffi er fínt með bröns, og í mörg ár sagt kurteislega en ískalt: Nei, takk, þegar mér var boðið upp á kaffi eftir mat. Næst segi ég Já, takk, tvöfaldan latte!
Svo fékk ég ansi hreint góðar kaffifréttir nýlega. Kaffið sem ég hef mært og fæst hjá Rjúkanda (Vegamótum) á Snæfellsnesi verður til á Akureyri þegar við Hilda mætum þangað í júlí. Í Listasafninu í Gilinu ... það var áður ljómandi gott kaffi þar (frá Te og kaffi) en nýir aðilar tóku nýlega við þarna og verða með dásemdar kaffi frá Sonju Grant. Getur verið að Te og kaffi sé komið aftur í bókabúðina? Sá nýlega snapp þaðan og merkingin var eins og þetta væri Te og kaffi-staður.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.6.2021 | 13:04
... um sjóferð þá
Ég veit stundum ekki hvað er að mér. Eftir að hafa eytt stórfé og í raun blóði, svita og tárum hefði ég alveg getað mætt ómáluð á joggingbuxum og netabol á stefnumótið í gær. Það var samt alveg skemmtilegt.
Ég sveif inn í strætó klukkan 17.30, full tilhlökkunar, og sá að bílstjórinn þekkti mig ekki, 1-0. Enda var ég mjög glæsileg eftir að hirðförðunardama himnaríkis hafði farið um mig höndum. Var svo komin alla leið í Kollafjörð þegar ég áttaði mig á því að við höfðum bara talað um tíma - ekki stað, 1-1. Sem betur fer sá hann SMS-ið frá mér en hann kom líka af fjöllum. Já, hvert ættum við að fara til að borða? Hann stakk upp á ýmsum stöðum, eins og BSÍ og Argentínu en ég var viss um að þeir væru ekki til lengur, 1-2. Ég hafði verið svo viss um að hann ætlaði að bjóða mér á Grillið eða Holtið, 1-4, og að þyrlan sem lenti hér á hlaðinu í fyrrakvöld hefði verið í æfingarflugi, 1-15, og mér yrði komið á óvart með þyrlufari í bæinn daginn eftir - í versta falli myndi hann senda limmósínu, 1-20 og hætt að telja, eftir mér. Það má láta sig dreyma.
Við ákváðum fyrir rest að hittast á Stjörnutorgi í Kringlunni og láta bara ráðast hvað við fengjum okkur að snæða. Ég náði leið 3 eða 4 niður á Miklubraut og var komin á góðum tíma - til að uppgötva að það var verið að loka. Veðurfræðingurinn (Vilmundur) kom aðvífandi og eldri kona í humáttina á eftir honum.
Þetta er mamma, Vilborg, sagði hann brosandi, hún vildi endilega koma með, er það ekki í lagi?
Jú, auðvitað, svaraði ég. Fyrir svona feimnisdollu eins og mig var bara fínt að hafa þriðja aðila með okkur. Þegar gamla konan (85) komst að því að allt væri lokað, hún vildi athuga það sjálf, dreif hún okkur bara með heim til sín og eldaði gamaldags kjötbollur úr saltkjötsfarsi með kartöflum, brúnni sósu og grænum Ora-baunum. Þegar hún svo kom með rabarbarasultu voru jólin komin, sagði Vilmundur svo réttilega.
Vilborg sagðist iðulega skella mynd af kvöldmatnum á Facebook-síðuna Gamaldags íslenskur matur - og alltaf slá í gegn, fá yfir hundrað læk og beiðni um uppskriftina.
Þetta var eins og að heimsækja kært frændfólk, mjög heimilislegt. Ég var auðvitað fyrir löngu búin að hneppa fjórum efstu tölunum á blúnduskyrtunni upp í háls - það var engin stemning fyrir skoru. Við spjölluðum um svo margt yfir matnum, allt svo eðlilegt. Ég sagði þeim til dæmis að ég hefði leikið stórt aukahlutverk í Heilsubælinu í Gervahverfi um árið og einnig að ég hefði fengið að fara út í sjoppu fyrir sjálfa Shady Owens þegar við unnum saman í Ísfélagi Vestmannaeyja. Þeim þótti báðum mikið til þess koma, sérstaklega þetta með Heilsubælið því þau elskuðu þá þætti og áttu á spólum. Vilborg sagði mér svo að Vilmundur hefði eitt sinn teflt við Jón L. Árnason. Ég lyfti brúnum af hrifningu en Vilmundur sagði rjóður: Æ, mamma, hættu, það var ekki á neinu stórmóti!
Ég var alveg búin að steingleyma því hvað lúdó er skemmtilegt. Svo skemmtilegt að með miklum naumindum náði ég síðasta strætó heim (klukkan 23) en mæðginin voru svo elskuleg að skutla mér í Mjóddina og af því að við vorum of sein, elta strætó alla leið út á Kjalarnes, fínu flottu bensínstöðina sem er að gera allt vitlaust hjá sælgætisgrísum þessa lands - þar sem okkur tókst loksins að ná leið 57. Gamla konan keyrir ansi hægt og Vilmundur keyrir alls ekki frekar en ég. Hún þorir þó ekki að keyra í gegnum jarðgöng, hvað þá göng sem liggja undir sjó, annars hefði hún skutlað mér alla leiðina heim, sagði hún. Klukkan var orðin of margt til að fara fjörðinn, fannst okkur.
Þetta var fín kvöldstund, ég var södd og sæl og fékk að sitja í framsætinu í strætóeltingarleiknum, en það mun taka mig mjög, mjög marga mánuði að jafna mig fjárhagslega. Var það þess virði fyrir kjötbollur og spilamennsku? Kannski, kannski ekki. Við mintumst ekkert á að hittast aftur en við Vilborg erum orðnar góðar Facebook-vinkonur.
Ég vil segja þessa sögu mína körlum til lærdóms, að þeir verði alltaf búnir að ákveða staðinn líka, ef þeir bjóða konu á deit. Stundum er líka sniðugt að sleppa því að hafa mömmu sína með þótt það hafi verið allt í lagi í þessu tilfelli. EM í fótbolta karla hefst í dag sem þýðir að ég verð óviðræðuhæf í mánuð og ekki til í dæminu að ég nenni á stefnumót svo það var sennilega gott að þetta fór svona og ég þyrfti ekki í staðinn að bjóða honum og mömmu hans í fótboltaheimsóknir í himnaríki. En þvílík þöggun varðandi EM, ég gat ekki gúglað mér til gagns og þurfti að spyrja Davíð frænda hvar hægt væri að sjá keppnina og ætla að gerast áskrifandi að Stöð 2 sport. Það hlýtur að vera hægt í mánuð, kannski lengur ef Formúlan er á sömu rás.
MYND*: Fróðir menn segja mér að þyrluheimsóknin í fyrrakvöld hafi mögulega tengst því að ÍA sé sennilega kannski mögulega að kaupa Gylfa, annar sagði Roman Abramovich. Það stóð yfir leikur akkúrat þá og gaurarnir í þyrlunni (Gylfi og vinir hans?) hurfu bak við stúkuna um hríð.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.6.2021 | 09:21
Einn dagur til stefnu ...
Síðustu daga hef ég legið (eða staðið, ég er með sturtu) í svanamjólk, farið í nudd kvölds og morgna og alls kyns snyrtingar sem hefur lítinn tíma gefið til að blogga. Stundað úthverfa innhugun sem er eitthvað nýtt og fokdýrt en á að virka ef maður notar Herbalife með. Stefnumótið er á morgun. Á MORGUN, KRAKKAR! Þetta var miklu auðveldara í gamla daga, mamma fór bara í lagningu ef eitthvað stóð til, setti á sig slæðu án þess að nokkur hrópaði: Reyndu að aðlagast ... skellti á sig rauðum varalit og var þá tilbúin. Tímarnir hafa breyst og samkeppnin um hvern karl 55 plús er harðari en nokkurn gæti grunað. Að hafa fundið mann á réttum aldri með ótrúlega spennandi menntun (betra vissulega ef hann væri eldgosafræðingur, skjálftafræðingur og slíkt - en komin á þennan aldur hefur mér lærst að slaka á kröfum)
Svo sótti ég fóstursoninn í sumarbúðirnar í gær og þvílíkt sem hann var hamingjusamur eftir dvölina. Strax í morgunm, fyrir allar aldir, var hann vakinn og gerður að fyrirvinnu heimilisins frá og með deginum í dag og fram í ágúst ... Síðasta árið í vinnuskólanum ... Það voru sokkar, ullarsokkar og gúmmískórnir (túttur) síðan í fyrrasumar - vantaði bara lopapeysuna. Hann var líka vel nestaður. Feitt kjet og súrt slátur í pokaskjatta og mysa til drykkjar ... (hæ, Tommi) eða kókómjólk og ostaslaufur ...
Það er brjálað að gera þessa dagana - ekki bara við undirbúning magnaðs útlits fyrir stefnumót við veðurfræðing ... ég fæ iðnaðarmenn á eftir til að taka íbúðina í nefið, setja nýjar fúgur bæði á baði og eldhúsi, mála allt hátt og lágt (komið alveg ár síðan himnaríki var tekið í gegn síðast) ... og margt fleira. Spurning líka um að skipta um gólfefni áður en þetta lætur á sjá ... Mér líður betur með þetta þótt maðurinn komi kannski aldrei í himnaríki - en annaðhvort fer maður alla leið eða gleymir allri rómantík, kona á mínum aldri grípur tækifærin. Jæja, best að fara í svanamjólkurbað morgunsins - hvert gramm af þessu hvíta dufti sem ég á að sáldra yfir mig í sturtunni kostar svo marga þúsundkalla að ég efast um að ég eigi fyrir strætó í bæinn á morgun. Ég fer þá bara á puttanum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.6.2021 | 15:32
Stefnumót - undirbúningur hafinn
Undirbúningur fyrir stefnumótið við veðurfræðinginn þann tíunda er í fullum gangi. Þótt hann talaði um að hann hrifist af mjúkum línum ákvað ég samt að herða þær svolítið og tálgaði af mér nokkur kíló í vikunni. Eins og allir vita er það mjög auðvelt. Bara borða minna og hreyfa sig. Ég fór í fótsnyrtingu (til öryggis, veit ekki hvort verður hæð eða lægð yfir Grænlandi þann tíunda) og svo verður allsherjar yfirhalning á því sýnilega auðvitað, eins og á hári og andliti, og fer fram þann áttunda. Verslunin Nína sá um verulega glæstan klæðnað en átti ekki til g-streng. Svo ég varð að fara í bæinn.
Fór í vinsæla búð við Síðumúla, afgreiðslumaðurinn var mjög indæll. Horfði reyndar þegjandi á mig í nokkra stund eftir að ég bar upp erindið og sagði svo: G-streng? Farðu niður á Grensásveg, í búð sem heitir Rín, þar færðu strengi.
Mig vantar nú bara einn, sagði ég og flissaði feimnislega. Mig langaði að segja eitthvað lúnkið um harðsperrur (strengi) en datt ekkert í hug.
Einmitt, sagði hann góðlátlega og við kvöddumst með kærleikum.
Og ég fór í Rín og bar upp erindi mitt, stillti mig samt um að segja að ég væri sko að fara á stefnumót, það fyrsta í átján mánuði. Jú, jú, til voru g-strengir í miklu úrvali, maðurinn benti á hillu í suðvesturenda búðarinnar og hélt svo áfram að spila á píanó sem var staðsett þarna, búð með stíl. Mér leist einna best á pakkann með flotta nafninu: Chrome Steel Flat Wound on a Full Steel Core G-653 og var frá fyrirtæki sem heitir La Bella. Mér fannst eins og nafnið gæfi mikil fyrirheit um mjög spennandi kvöld ... og nótt. Svo kostaði hann bara 2.089 kr. sem var ekki verra.
Nú þarf ég að gera játningu. Ég hef aldrei átt g-streng, hefur fundist það óþarfi í lífi sem snýst mest um kaffi, bækur, ketti og slíkt. Ég ákvað að máta í gær, það er nefnilega fátt verra en að hafa ekki tímann fyrir sér. Fara í eitthvað grunlaus um að það sé annaðhvort of lítið eða of stórt! Ég gleymdi alveg að spyrja afgreiðslumanninn um stærðir, fannst þegar ég skoðaði að þessi vara væri one size-dæmi.
Það urðu reyndar ákveðin vonbrigði að opna pakkann, strengurinn var svolítið eins og stífur vír sem ég þurfti að vefja utan um mig en samt var þetta ekki jafnóþægilegt og mætti halda því strengurinn var það stífur og meðfærilegur að hann snertir hvergi húðina nema rétt í mittinu. Ég gat alveg stjórnað því. Það flögraði að mér að fara aftur í Rín og kaupa meira, þetta gæti orðið áhugaverð flík ögn ofar ... orðið barb-wire skaust upp í hugann - en ég hélt aftur af mér. Nægur tími til stefnu ef stefnumótið gengi vel, aldrei að opna fjársjóðskistuna upp á gátt á fyrsta deiti. Það tók frekar langan tíma að komast úr járn-brókinni eins og ég fór að kalla þetta með sjálfri mér. En satt að segja skil ég ekki alveg vinsældir g-strengja, hvað þá ástæðu þess að þetta þykir kynþokkafullur klæðnaður. Ég hef lesið um þetta og veit að augu þeirra sem njóta standa jafnvel á stilkum. En ég veit ekki hvað mér á að finnast, ætla samt að vera í þessu.
Núna um helgina mun ég íhuga að safna þvagi til að geta þvegið hárið upp úr því á miðvikudaginn (níunda) og þannig tryggja gljáandi fallegt hár (ég las um það í Dalalífi) en morguninn eftir með venjulegu sjampói auðvitað. Æ, líklega of langt gengið til að koma vel út.
Svo væri ekki galið að rifja upp gamlar og góðar pikköpplínur, karlar hafa engan einkarétt á þeim:
Ég á rauðvín heima og get boðið þér í glas þar, eða viltu kannski bara peninginn?
Dastu af himnum ofan, þú ert svo sætur!
Viltu koma heim með mér og skoða frímerkið mitt?
Hvað er svona sætur gaur eins og þú að gera á stað eins og þessum?
Ég kann ekki fleiri línur - mér finnst þær æðislegar og mjög fyndnar nema kannski sú fyrsta sem ég breytti svolítið og aðlagaði að blindu stefnumóti, en þær hafa aldrei virkað, engin þeirra. Þessa síðastnefndu notaði ég á Dubliner í kringum 1997 en gaurinn, þessi gamli skólabróðir minn eða eitthvað, ég átti að þekkja hann, og sagði þetta til að brjóta ísinn - varð alveg brjálaður og rauk í burtu. Enn í dag einn af stóru leyndardómum lífs míns.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.6.2021 | 11:31
Hæ, blokkarar
Að vakna svona aftur og aftur fyrir níu á hverjum morgni finnst mér grunsamlegt, vægast sagt, sennilega bólusetningunni að kenna eða einhverju þaðan af verra. Eða meiri birtu? Ég er líka farin að fá nýjar og ferskar hugmyndir - eins og húsakaupin í Reykjavík en tími samt ekki að selja himnaríki. Að flytja í svona stórt getur samt þýtt vesen. Mér skilst að það sé mikill hörgull á ráðsmönnum (butlerum) hérlendis sem setur í raun allt í uppnám. Hver á að tilkynna gestakomur? Svo þarf ég að ákveða hvar búseta mín Reykjavíkurmegin hafsins verður, í stóra húsinu (2) eða garðhýsinu (1) ... Þetta er fínasta hverfi. Ég myndi segja að ég byggi í 170 Akranes, við sjóinn, en ef ég léti rífa nokkur hús við Laufásveginn sæi ég næstum sjó ... eða beint niður að Reykjavíkurtjörn. Það verður alla vega haldin afmælisveisla í ár. Á Laufásvegi eða í himnaríki.
- - - - - - - - -
Við Inga fengum okkur arabískan mat á Flamingo í gær og hittum þar myndarmann sem við könnuðumst nú vel við og sagði: Hæ, blokkarar! Við Inga litum forviða hvor á aðra, við höfðum aldrei blokkerað þennan myndarlega mann á Facebook og hefðum aldrei gert. Ekki sagði hann bloggarar því Inga bloggar ekki. Ég var samt glöð og hreykin í 1/100000 úr sekúndu yfir því að hann hefði kannski lesið bloggið mitt en svo mundi ég að það eru bara þeir sem ég býð í afmælið mitt eða ég borga á annan hátt sem lesa það. Eftir um það bil sekúndu (við erum engir bjánar) áttuðum við okkur á því hvað hann meinti. Við ólumst öll upp um tíma í sama húsi á Skaganum, Nýju blokkinni sem stendur við Höfðabraut og töldumst vera frumbyggjar þar. MYNDIN er tekin úr Gömlu blokkinni minni, og það sést bara rétt í endann á Nýju blokkinni lengst til hægri. Ekki eru mörg ár síðan við hittumst í frumbyggjaveislu sem blásið var til, svona Pálínuboði þar sem allir komu með eitthvað, spjölluðu saman og spurði frétta um hvernig síðustu áratugir hefðu verið ... ótrúlega skemmtilegur hittingur. Hann Steini í Dúmbó bjó í þessari blokk, ekki lengi samt, en hann var fyrsta stóra ástin í lífi mínu, ég var sex ára með þessar heitu tilfinningar í margar, margar vikur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.6.2021 | 14:11
Regn eða kannski bara sól
Þegar möguleiki er á því að þetta verði eins konar matarblogg, stundum allavega, verða nú að koma matartengdir brandarar, ekki satt? Eins og: Hafið þið heyrt um selinn sem borðar bara sinnep? Selinn Dijon?
Já, það var bara skyrdolla 2 í kvöldmat í gær (aldrei of illa farið með góða konu) en í morgun- og hádegisverð í dag; tvö egg, beikon og steiktir rauðir tómatar. Ég verð södd langt fram eftir degi. Og almáttugur hvað ég er orðin góð í kaffinu. Sitt af hverju rifjast upp síðan ég var smakkdómari á árum áður í kaffibarþjónakeppnum, eins og að pressa hvorki of laust né of fast í greipina með kaffinu því vatnið má hvorki renna of hratt né of hægt í gegnum kaffið ... Ég hef sterkt á tilfinningunni að fólk komi í stríðum straumum til mín í kaffisopa í sumar, stríðum kaffistraumum ...
Sko, ef ég held áfram að búa hérna á Skaganum. Ágætis húsnæði við Laufásveg er nú auglýst til sölu, í það stærsta kannski og í fasteignaauglýsingunni sést ekkert eldhús, bara fullt af sölum, herbergjum, ranghölum og klósettum. Haldið að væri gaman að halda upp á afmælið sitt þarna? Sennilega voru þarna ýmsar spennandi græjur sem ég þekki frá fyrri árum mínum hjá leyniþjónustunni en eflaust búið að plokka megnið úr veggjum. Það er helst garðurinn (sjá mynd 1) sem ég er spennt fyrir, ekki fyrir mig, alls ekki, oj bara, heldur kettina, hvort hann sé nógu öruggur og heldur þeim innan svæðis. Svo þyrfti ég að velja hvort ég búi í salarkynnum stóra hússins eða sérhúsi í garðinum. Fínt hverfi, stutt að fara til Löllu, líka í sollinn og djammið en nógu langt frá samt til að fá svefnfrið um helgar, tel ég nokkuð víst.
- - - -
Nú hef ég séð að bólóhatarar (andstæðingar bólusetninga, stytting) eru farnir að skammast í bólusettu vinafólki sem gleðst opinberlega yfir því að geta um frjálst höfuð strokið. Ég er reyndar frekar fúl yfir því að hafa fengið AstraZeneca (sama dag og Þórólfur og Bubbi Morthens) en bara vegna þess að seinni sprautan er ekki fyrr en í lok júlí - og ferðalagið okkar Hildu norður er fyrir þann tíma. Ég get t.d. ekki farið í sleik fyrir norðan sem eru vonbrigði - þetta verður sennilega tíðindalítil systraferð í stað veiðiferðarinnar sem ég var búin að skipuleggja. Ég var í þann mund að komast að því hvar sætustu karlarnir (55-65 ára) halda sig á Norðurlandi, afþakkaði þó Siglufjörð ... Sem minnir mig á að mamma er farin að kalla mig maddömu Guðríði. Ég veit ekki alveg hvað mér finnst um það, reyni að segja henni að hætta en hún flissar bara.
Já, og ég fann loksins pottþétta aðferð til að kalla fram rigningu (sjá mynd 2). Enginn vandræðalegur dans lengur eða að rogast með þvott út á snúru - sem er því miður hætt að virka. Ég hefði átt að fatta þetta fyrir löngu, krakkar voru hundskammaðir fyrir þetta í sveitinni ... Veðurfræðingurinn minn verður óður (ást við fyrstu sýn?) þann tíunda á stefnumótinu okkar þegar ég sýni honum þetta. Ég áttaði mig fyrst á því hvað ég hef gott lag á veðri þegar ég ferðaðist með strætisvagni á milli Akraness og Reykjavíkur í tíu ár (2006-2016) - fór alla virka daga nema þriðjudaga. Það var sérlega oft ófært á þriðjudögum um Kjalarnes á þessum árum, þannig að ... Bið samfarþega mína afsökunar, þótt seint sé.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.6.): 2
- Sl. sólarhring: 39
- Sl. viku: 871
- Frá upphafi: 1528865
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 721
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni