Örlagarík gleymska og sumarkvöldin fjögur

Eldhús einu sinniNeyðarástand ríkir í himnaríki, alla vega hjá stráksa því ég steingleymdi að panta Eldum rétt-skammtinn fyrir næstu viku, frestur var til miðnættis í gær. Smáséns var víst að panta ákveðinn pakka (sígilda, vegan, fisklausa osfrv) í dag en mér fannst eitthvað hnetu-, döðlu-, rúsínu- og möndlulegt í þeim öllum. Og nei, við ungi maðurinn munum ekki borða tilbúna örbylgjurétti í staðinn. Við fengum eiginlega nóg af öllu slíku árið 2020 þegar himnaríki var snurfusað í tætlur sem þýddi skort á eldhúsi nokkra óralanga daga ... vikur? (Sjá átakanlega mynd frá 2020) 

„Hvað heldurðu eiginlega um mig, ungi maður? Að ég geti ekki eldað sjálf, án Eldumrétts?“ Réttlát reiðin kraumaði í mér en mér tókst að stilla mig um að hækka raustina. Naumlega.

„Jú, sko, en, þú veist, já ...“ stamaði hann og reyndi að láta líta út fyrir að hann væri lafhræddur við mig. „Kannski eldar þú Eldum rangt?“ sagði hann í gjörsamlega misheppnaðri tilraun til að vera fyndinn.

„Ertu að segja mér að þessi stjörnukokkur þarna, Snorri eitthvað hjá ER sé betri kokkur en ég? Hvernig dirfistu!“

Næsta vika fer í að sanna þetta fyrir honum. Ég þarf að laumast í fiskbúðina á mánudaginn og velja flottasta fiskréttinn hjá Skagafiski og láta líta út fyrir að ég hafi gert hann frá grunni. Ég hef ekki hugsað þetta mikið lengra en spurning um að fá kokk af Galito eða Holtinu ... úff, þetta er flókið.

Ég gerði ákveðna tilraun síðast og pantaði tvo venjulega rétti (annan fisk, hinn með nautahakki) og tvo veganrétti. Fyrri vegan var í kvöld og var nokkuð vel tekið til matar síns en stráksi fór í grunsamlegan göngutúr skömmu eftir mat. „Þetta var bara ágætt, takk fyrir mig,“ hljómaði svolítið falskt og hann hafði fengið sér frekar lítið á diskinn. Hann er svo mikill kjötkarl. Sonur minn, elskan hann Einar, var ekki sérlega hrifinn (kannski 3-4 ára fyrst) þegar ég reyndi að gera hann að grænmetisætu (a.m.k. 1x-2x í viku). Önnur amma hans hafði nefnilega náð að spilla honum og kennt honum að meta og elska rauðmaga, grásleppu, hákarl, hval, siginn fisk, reyktan fisk, nætursaltaðan fisk, súran þorramat og bara allt þetta sem martraðir mínar myndu snúast um ef mig dreymdi einhvern tímann mat. Tilraunir mínar þarna í denn tengdust eiginlega bara linsubaunum, mér fannst þetta voða gott en hann kúgaðist. 

 

Írskir dagar einu sinniÍrskir dagar eru ALVEG að hefjast, við tökum alltaf svolítið forskot á sæluna á fimmtudeginum, nema ég sem var að vinna, og morgundagurinn, föstudagur ... allir með götugrill nema mín gata, svo ég held að laugardagur verði okkar stráksa dagur. Mögulega fer ég í brekkusönginn á hlaðinu um kvöldið, veit að drenginn langar mikið, en það yrði þá í fyrsta sinn hjá mér. Ég er svolítið eins og Akranes, sem tapar stundum á því að vera svona nálægt Reykjavík.

Já, og þar sem hungurvikan mikla (án E.R.) verður eiginlega hafin á laugardeginum býst ég við að við kíkjum á matarvagnana á Akratorgi, Silli kokkur (þótt hann sé giftur) verður sennilega fyrir valinu hjá mér. Það verður markaður fyrir utan hjá Kaju, var ansi skemmtilegur í fyrra og ábyggilega ekki síðri í ár. Vona að franski sjampósölumaðurinn (sjampó í sápustykkisformi, sjúklega góð lykt) verði þarna aftur í ár.

 

Fólk er farið að gantast með veðrið (sumarkvöldin fjögur) og hætt að gráta. Flestir eru sem sagt farnir til heitari landa, eins og hluti af fjölskyldu minni. Ég hef sama og ekkert heyrt eða séð til þeirra í dag svo þau liggja pottþétt fyrir, hálflömuð í þrjátíu gráðunum og hafa leitað skjóls inni þar sem þau eru að lesa / hlusta á hljóðbók og með viftu á hæsta. Jafnvel með kaffi og súkkulaði í grennd. Ætli sé gott kaffið úti í Grikklandi? „Þarf alltaf að vera vín?“ sendi ég þeim reyndar góðlátlega í fyrradag á snappinu (að gefnu tilefni) en þá var þetta víst bara Seven up, rauðrófusafi og pilsner sem þau höfðu verið að drekka með matnum.

 

Jörðin flötGervigreind komin til starfa hjá heilsugæslunni, var forsíðufrétt greinar á netinu. Ég nennti ekki að lesa greinina þótt mér sé ekki sama um gervigreind og haldi að hún geti verið skaðleg ef ekki verður að gáð, ekki síst upp á falsfréttir og slíkt ... Einn daginn kemur svo að því að   þráðlausu sláttuvélmennin taki yfir heiminn. 

Alltaf þegar ég segi: „Hei, ættum við ekki að hafa plan B líka, í stað þess að hoppa alltaf á eitthvað voðalega sniðugt og henda því sem var fyrir og virkaði mjög vel?“ þá segir einhver flissandi: „Iss, þú ert bara of gömul til að tileinka þér nýjustu tækni.“ Ég ætlaði t.d. að taka þátt í ákveðnu verkefni ásamt fleirum, eftir vingjarnlegt símtal, en svo allt í einu var það komið í eitthvað samskiptaforrit eða app (sem ég hef aldrei séð eða heyrt um fyrr eða síðar). Ég fékk hlekkinn samt sendan á ógeðslega gamaldags hátt, eða í tölvupósti en næ engu sambandi, sama hvað ég reyni að ýta og pota (allt á tækniensku auðvitað) svo ég dró mig bara í hlé, nennti þessu ekki, hef ekki tíma. Held að ég sé orðin of sein (allir komnir í sumarleyfi) til að láta YouTube kenna mér á appið, var að muna eftir þeim möguleika. Það er ALLT á YouTube. Ekki bara tónlist, heldur alls konar spennandi myndbönd um allt á milli himins og jarðar. Ég held meira að segja, eftir smákíkk þangað, að jörðin sé flöt (sjá stórmerkilega sönnun á mynd 3).

 

En ... þessi fyrrnefndi einhver mun sko hætta að hlæja þegar „Pútín“ ræðst á innviði okkar, rafmagn, net og bara allt, til að refsa Þórdísi okkar Kolbrúnu fyrir að dirfast. Heimasímar fyrir risaeðlur ganga t.d. bara fyrir rafmagni nú til dags og eru því ekki lengur öryggistæki (Ég er með minn enn bara af því að það fylgir frítt í pakkanum). Ég bloggaði ábyggilega um það þarna þegar ég viðraði þetta við vinkonu mína (tölvuséní með meiru) sem sagði: „Þú skalt ekki gera grín að þessu, ég var að koma af alþjóðlegri tölvu- og tækniráðstefnu þar sem akkúrat þetta kom upp, og slík árás er mjög svo gerleg. Ekki alveg orðrétt hjá mér kannski en nálægt því. 

Eru transistor-útvörp enn til og myndu þau virka ef ég t.d. tengdi eitt slíkt við app?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 236
  • Sl. sólarhring: 295
  • Sl. viku: 1903
  • Frá upphafi: 1455105

Annað

  • Innlit í dag: 200
  • Innlit sl. viku: 1533
  • Gestir í dag: 193
  • IP-tölur í dag: 190

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Fíni sjórinn
  • Mosi og Keli 29.4
  • IMG_8477 (1)

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband