Góður mánudagur

ErnaFyrsti vinnudagurinn eftir sumarfrí gekk frábærlega, gott að vera komin aftur í röð og reglu þótt hitt sé auðvitað notalegt.

Inga sótti mig um hálffimm, dauðþreytt eftir daginn. Henni hafði dottið í hug að steypa eina tröppu við húsið sitt og hélt að það væri ekki mikið mál. Annað kom á daginn. Hún dreif sig í Húsasmiðjuna til að kaupa sement og tilheyrandi. Karlarnir þar gátu ekkert hjálpað henni með aðferðirnar við steypun, enda vanir iðnaðarmönnum sem vita allt.

IngaInga bjóst eðlilega við að uppskrift að steypu væri aftan á sementspokunum, 300 g sement, 200 g vatn, dass af möl ... eitthvað svoleiðis en svo gott var það ekki. Hún gerði sér þá lítið fyrir og hringdi í framleiðandann, Sementsverksmiðju ríkisins á Akranesi, og fékk að tala við framkvæmdastjórann. Sá skemmti sér vel yfir símtalinu og bjargaði henni um uppskrift verkfræðings nokkurs að góðri steypu, hann fræddi hana líka um þriggja ára háskólanám í steypun en það bíður betri tíma. Inga keypti sér líka slípirokk í dag og er að springa úr stolti. Svo á hún svo margar tegundir af verkfærum að ég kann ekki að nefna þau.

Mexíkóskur kjúlliFylltur kjúklingurSá næsti sem talar um konur sem sleppa sér í fatabúðum ætti að hitta hina fögru Ingu sem stundar steypuverslanir af ástríðu. Karlarnir seldu henni reyndar allt of mikið af sementi, ranga möl og hvaðeina en hún gat reddað því.  

Gat ekki stillt mig um að biðja hennar, enda stutt í framkvæmdir hjá mér og elsku smiðurinn er búinn að gleyma mér. Held reyndar að hann sé í sumarfríi.

Við sóttum Ernu og héldum á Skagann, náðum í Einarsbúð kl. 17.59, eða rétt fyrir lokun, og keyptum kjúklingabringur á útsölu. (Ég elska Einarsbúð) Inga kenndi okkur að gera mexíkóskan kjúklingarétt og kjúkling fylltan með gráðaosti og skinku. Algjört nammi. Skvísurnar eru farnar í bæinn og ég sit pakksödd með hellings afgang sem dugir í nokkrar máltíðir. Býst við að við gerum þetta að vana, í haust mun ég kenna þeim að búa til góðu súpuna mína  með chilipiparnum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hvað er það með Einarsbúð og kjúklingabringur?  Verð að fara og fá mér næturmat eftir að hafa lesið færsluna. Arg..

Jenný Anna Baldursdóttir, 18.6.2007 kl. 23:58

2 identicon

Ef það þarf 3ja ára háskólanám til að læra uppskrift að steypu er spurning hvað verkfræðingurinn væri lengi að læra uppskriftina mexíkóska kjúklingaréttinum

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 19.6.2007 kl. 00:03

3 Smámynd: Karl Tómasson

Skrambi tókst þú sumarfríðið snemma Guðríður.

Það er eflaust oft gott að vera snemma á ferðinni, minni ös á öllum stöðum ekki rétt?

Kær kveðja frá Kalla Tomm úr Mosó.

Karl Tómasson, 19.6.2007 kl. 00:26

4 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Ef sumarfrí skyldi kalla, Kalli ... sofa út, horfa á sjónvarpið, lesa bækur, skreppa í sumarbúðirnar til Hildu systur (sumarbudir.is), skreppa í bæjarferð, slappa af. Vá, þetta er dýrleg uppskrift. Svo nýtur maður sumarsins seinnipart dagsins úti á nýju svölunum og tekur restina af fríinu í ágúst. Finnst bara þrusugott að taka megnið af fríinu maí/júní. 

Góð spurning, Anna. Miðað við hvað Ingu gekk vel að steypa í dag, í fyrsta sinn á ævinni held ég að mexíkósk matargerð sé ögn flóknari.

Jenný, einhvern daginn tek ég þig með í Einarsbúð!  

Guðríður Haraldsdóttir, 19.6.2007 kl. 00:35

5 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

Ég sel nú steypu í poku..bara blanda vatni útí og hókuspókus...komin steypa...

Brynja Hjaltadóttir, 19.6.2007 kl. 00:52

6 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Líf mitt snýst um steypu þessa dagana. Veistu hvað 25 kg sementspokar eru þungir? (25 kg. vissi að þú fattaðir það ;-) En alla vega, ein steypuumferð eftir. 17. júní fór í 17. júní og engin steypuvinna, enda Óli uppi í bústað fram á rauða kvöld og við tímdum sko ekki að ræsa hann þaðan. Þurfum að vera minnst þrjú þegar við erum að flota. Óli er fjölhæfur, hann er bæði vel heima í mexíkóskri matargerð og steypuvinnu, en það má ekki ganga um of á lagið.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 19.6.2007 kl. 01:07

7 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Maturinn er girnilegur ég verð bara svöng.

Kristín Katla Árnadóttir, 19.6.2007 kl. 10:17

8 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Nú spæli ég egg og steiki mér beikon....ekki spurning. Slefan lekur um allt lyklaborðið og ég get bara ekki horft lengur. Farin!!!

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 19.6.2007 kl. 11:43

9 identicon

til hamingju með daginn Gurrí mín ... :) koss & knús

Kleópatra Mjöll Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 19.6.2007 kl. 12:26

10 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Fröken Guðríður og þið allar góðu konur!

Innilega til hamingju með daginn!

FArið svo elskurnar allar að heimta hærra kaup eða greiða öðrum kynsystrum ef þið eruð launagreiðendur, meira og strákunum EKKI MEIRA!

Verðandi "Bæjó" í Mosó, hann Kalli Tomm trommari, má eiga restina bæði af kveðjunni og kvatningunni!

Magnús Geir Guðmundsson, 19.6.2007 kl. 13:25

11 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Ekki veit ég það, Anna, hvort Inga járnbindur, ef á að gera það þá hlýtur hún að vita það, hún er nefnilega snillingur sem kann að leita ráða.

Til hamingju með daginn, allar konur og karlar! 

Guðríður Haraldsdóttir, 19.6.2007 kl. 13:39

12 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

 Til hamingju með daginn

Hrönn Sigurðardóttir, 19.6.2007 kl. 14:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 379
  • Sl. sólarhring: 457
  • Sl. viku: 2095
  • Frá upphafi: 1454675

Annað

  • Innlit í dag: 294
  • Innlit sl. viku: 1728
  • Gestir í dag: 279
  • IP-tölur í dag: 273

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Bakklóra
  • Snorri og Patrik
  • Vifta

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband