Rauður sófi með fortíð

Rauði sófinnMikið þekki ég gott fólk. Ásta var ekki fyrr búin að skutla mér „heim“ að dyrum í vinnunni þegar Inga kom og við héldum í Lyfju í Lágmúla til að kaupa dóp! Íbúfen er farið að fást aftur og ekki nóg með það heldur sagði frábæra afgreiðslukonan þar að gott væri að taka Paratabs með við svona þrálátum bakverk. Tvær þannig og ein íbúfen væri killer. Ég er soddan hænuhaus á lyf og brennivín að ég þorfði bara að taka eina og eina áðan. Ef ég sofna samt er til staðar hjá Mannlífi í næsta bási eldrauður, sexí leðursófi sem ég gæti fleygt mér í, hann er reyndar alræmdur í fyrirtækinu ... vissar myndatökur hafa farið fram í honum fyrir B&B og ég er ekki að tala um Bæjarins besta!

Eintóm hamingjaÞeir sem urðu voða hræddir við að lesa síðustu færslu ... ég var bara að grínast. Þessi áhrif koma yfirleitt aldrei fyrr en tunglið er orðið fullt, í þessu tilfelli 24. nóvember.

Jæja, mæli svo um og legg á að dagurinn ykkar verði sjúklega skemmtilegur, fullur af óvæntum ævintýrum, hamingju, gjafakortum á nuddtíma og stórum happdrættisvinningum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Gunnarsdóttir

Æ hvað það var gott að síðasta færsla var grín - ég var orðin svona temmilega hrædd hérna!  Láttu þig bara hafa það í sófann - ef bakið gefur sig.  Líklega er sófinn vanur fólki í þeirri stellingu.........

Ingibjörg Gunnarsdóttir, 21.11.2007 kl. 09:55

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Er ekki rauður sófi með fortíð hið eina rétta fyrir konu með fortíð (hm, DJÓK).

Ekki óverdósa á íbúfeninu (hér lagðist ég í gólf af hlátri vegna eigin skemmtilegheita sem eru tilkomin af fortíð þar sem pillur voru bruddar eins og sælgæti og íbúfen ekki einu sinni kiddstöff).  Gakktu hægt um gleðinnar dyr

Jenný Anna Baldursdóttir, 21.11.2007 kl. 10:00

3 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

gott að heyra að færslan var djók, maður var farin að skjálfa ögn, krossað við alla glugga og dyr ef ske kynni að þetta teygðist eitthvað hingað á sunnubrautina hehehehe

Rauður sófi með fortíð ... 

Guðrún Jóhannesdóttir, 21.11.2007 kl. 12:14

4 Smámynd: Saumakonan

þennan kokkteil (íbúfen 600mg +2 paratabs) tek ég nokkrum sinnum á dag til að lifa af daginn og er ekki dauð enn svo ég held að þér sé alveg óhætt Gurrí mín    (að vísu er ég ódrepandi andskoti svo það er kanski ekki að marka)

Saumakonan, 21.11.2007 kl. 12:47

5 identicon

hEy wow.. geturu "scorað" 2 grömm af íbúfeni fyrir mig!

he he djók vona að bakverkurinn lagist móðir góð;)

Einar 

Einar (IP-tala skráð) 21.11.2007 kl. 14:26

6 identicon

Æj vona að þessi pillukoktell slái á bakverkina er í þessum pakka líka með bakið ekki gott....En já sniðugt að þú skulir vera með mynd af stuppunum þarna því ég er líka í þeim pakka núna að vera að passa litlu ömmumúsina mína og þetta verð ég að horfa á með henni nokkrum sinnum á dag er orðin heilaþvegi af dibsí lala og pó svo er stuppaknús inn á milli

Brynja www.blogg.central.is/skordal_1 (IP-tala skráð) 21.11.2007 kl. 15:25

7 Smámynd: Linda Lea Bogadóttir

Gott að vita NÚNA að færslan var grín... hahaha.

Þetta með pilluát skil ég og þekki... Er á "hættu að reykja" lyfinu núna og strax á öðrum degi finn ég fyrir öllum hugsanlegum aukaverkunum  alla vega ímynda ég mér það... Eigðu gott kvöld... !  

Linda Lea Bogadóttir, 21.11.2007 kl. 17:07

8 Smámynd: Púkinn

Æ, já ... var ekki einu sinni veitingastaður sem hét Rauði sófinn, þar sem Devito'z Pizza er núna?   Púkann rámar í að hafa einu sinni farið þangað og fengið mjög góðan mat.

Púkinn, 21.11.2007 kl. 17:09

9 Smámynd: Svava S. Steinars

Bíð spennt eftir 24. nóvember....

Svava S. Steinars, 21.11.2007 kl. 22:44

10 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

ohohohohoho....sófinn..... ekki myndi mig langa til að liggja í þessum sófa

Jóna Á. Gísladóttir, 21.11.2007 kl. 23:11

11 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Ahhhh, man eftir Rauða sófanum á Hlemmi, veitingastaðnum sko! Minnir líka að þar hafi verið góður matur, Púki.

Er of þreytt til að blogga, ætla að skella mér í rúmið eftir að hafa sofið í leisígörl megnið af kvöldinu.

P.s. Vona, Linda, að þér takist að hætta að reykja með þessu lyfi. Þekki eina sem tekur það, hún hefur minnkað reykingar all verulega ... og líka sífellt nart í mat og nammi!  

Guðríður Haraldsdóttir, 21.11.2007 kl. 23:30

12 Smámynd: Steingrímur Helgason

Gurrí mín, þér til huggunar þá ber mér að vísa þér á þau gömlu sannindi að konur með fortíð, vera alltaf eftirsóknarverðar, af körlum sem að vona að sagan endurtaki sig.

En ég er ferlega pillufælinn, nema ef að pillað er á mig..

Steingrímur Helgason, 22.11.2007 kl. 00:50

13 Smámynd: Gunna-Polly

ég sé um verkjarlyf í gunnu búð og þessi kokteill er kallaður Gunnu kokteill þar :)

Gunna-Polly, 22.11.2007 kl. 08:28

14 Smámynd: Linda litla

Þetta er alveg rétt hjá dömunni í apotekinu, en ég held að þetta sé aðeins of mikið fyrir þá sem eru ekki vanir pillum.

Og þessi rauði sófi hljómar nú kannski ekki of vel....... kannski hefði verið betra að taka þennan skammt fyrir þig þegar þú færir að sofa. Það ætti að vera gott fyrir þig.

Linda litla, 22.11.2007 kl. 09:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 42
  • Sl. sólarhring: 359
  • Sl. viku: 1921
  • Frá upphafi: 1454795

Annað

  • Innlit í dag: 29
  • Innlit sl. viku: 1563
  • Gestir í dag: 28
  • IP-tölur í dag: 20

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Bakklóra
  • Snorri og Patrik
  • Vifta

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband