Særok, grjótfok og 62 m/sek í hviðum undir Hafnarfjalli

Hvasst við himnaríkiVerð að viðurkenna að ég er hálfveðurhrædd í himnaríki núna. Að vísu sit ég í augnablikinu í vesturhelmingi „penthássins“ eins og erfðaprinsinn kallar það og hér heyrist ekki mikið þótt rúðan sveigist á ógnvekjandi hátt. Inni í stofu, í austurhlutanum, heyrist varla mannsins mál. Svona er að búa við Atlantshafið. Ekkert hús sem skýlir. Svo á veðrið að ná hámarki um tvöleytið í nótt. Mér heyrist þakið ekkert vera að rifna af eins og hefur verið að gerast í Hafnarfirði og er þakklát fyrir það. Höfnin er vel upplýst og sést að mikið særok frussast yfir hana. Það segir mér að það sé grjótfok í Kollafirði. Vildi að það væri bjart úti. Vona að það verði ekki rafmagnslaust! Ég lýsi hér með frati á norsku veðursíðuna mína, þessa fyrrum uppáhalds. Hún spáði vondu veðri á fimmtudaginn en í dag átti að vera prýðisveður, minnir mig. Hefnigjarnir Norðmenn.

Horfði á seinni fréttir RÚV í seinkaðri dagskrá og þar sagði Elín Hirst að varhugavert væri að aka undir Hafnarfjalli núna, þar væru yfir 30 m/sek. Við trúðum þessu ekki og kíktum á vef Vegagerðarinnar. Þar sást að hviðurnar fóru upp í 64 m/sek! Það hefði nú alveg mátt fylgja fréttinni!  http://www.vegagerdin.is/umferd-og-faerd/faerd-og-astand/faerd-og-vedur/vesturland/linurit/st012.html

Harry PotterAnnars er ég alveg að verða búin með Harry Potter og dauðadjásnin, hef náð að lesa hana mér til mikillar gleði þótt ég hafi lesið aðrar með. Gerði tilraun til að horfa á Heroes í kvöld ... en er búin að fá hundleið á þessum þáttum. Alltaf þarf að teygja lopann þegar eitthvað nær vinsældum. Þess vegna nenni ég ekki heldur að horfa á Prison Break nema rétt með öðru auganu, stundum. Mun takast að klára Potter á eftir og þá fær Jenný meil á morgun. Lofaði að segja henni endinn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Halló frú Guðríður, sumir eru bara búnir að bíða frá í júlí eftir endinum.

Jenný Anna Baldursdóttir, 10.12.2007 kl. 23:39

2 Smámynd: Þröstur Unnar

Já það er bæði súrt og sætt að búa við Atlandshafið, vonandi fýkurðu ekki í Sementið, ef þú ætlar á annað borð að fjúka eitthvað.

Hér í efra er nú bara kaldaskítur.

Þröstur Unnar, 10.12.2007 kl. 23:44

3 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

hér niður við sementir er bara bölvans tætingur

Vill til að veðurhræðslan hefur rokið úr 10 niður í svona 2 meðan ég er innan dyra  gott að slaka á undir sænginni í svona blæstri Þetta fer að ganga niður Himnaríkisfrú! Óska þér og erfðaprinsinum góðrar nætur

Guðrún Jóhannesdóttir, 11.12.2007 kl. 00:25

4 Smámynd: Ragnheiður

Shit ég er skíthrædd bara....algjör veðurskræfa. Kallinn minn ógó sáttur, fær að vera hugaða hetja og hugga konuna sína hehehe

Ragnheiður , 11.12.2007 kl. 00:49

5 identicon

Ég ætla ag gefa þér 10 fyrir að láta þetta um munn þér fara.

"Hálf veðurhrædd í HIMNARÍKI".

Þar er alltaf LOGN og Sól!

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 11.12.2007 kl. 04:57

6 identicon

sæl Gurrí mín, mikið skil ég þig vel með verðurhræðslu. Sjálfur var ég alveg að fara á taugum þegar rúðurnar svingnuðu inn til mín, þannig að jólaóróar sem hanga í glugganum slóust útan í glerið. Nú annað sem ég varð að gera um 12leitið í gærkveldi var að fara útá svalir og bjarga útigrillinu sem flaug af stað, mildi að það fór ekki í stofugluggan mátti ekki muna miklu.  Samt var það vel fest og gengið fráþví með þugum steini umþaðbil 10 kíló sem eru á grindini undir grillinu, en samtsemáður ákvað það að fara í flugferð. Held að þessar hlífar sem verja eiga grillin séu nú ekki nema til neins nema í góðu veðri  þegar vindur fer undir´þau þá er voðinn vís, ufff ég slapp vel hér í Norðlingaholtinu, með hjartslag uppundir 100 slög á min. hehehehheheheh svaf nú ekki mikið það sem eftir lifði nætur. Grillið fer núna fyrir hádegi niður í geymslu ásamt ýmsu sem ég tel að geti verið hættulegt fyrir mig og rúður.

Bestu kveðjur frá einum veðurhræddum

siggi

siggi (IP-tala skráð) 11.12.2007 kl. 09:17

7 identicon

Úff - það er meira hvað gengur á. Hálffegin að vera ekki í Borgarnesi þessa dagana...

Þá er nú lognið, þokan og mengunin í Skopje skárri....

Auður H Ingólfsdóttir (IP-tala skráð) 11.12.2007 kl. 09:57

8 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Nógu mikið gekk á hér í Vesturbæ Reykjavíkur í gærkvöldi, hvein í öllu og regnið barði rúðurnar sem þó létu eiga sig að svigna, sem betur fer. Ég leit öðru hvor út um gluggann norðanmegin og horfði á ljósastaurinn dansa vals við regnið og ef maður hefði verið þannig innstilltur var þetta bara nokkuð rómantískur vals.

Svo datt allt í dúnalogn um hálftvöleytið og það var ekki laust við að ég saknaði hljóðanna. Það er svo notalegt að hlusta á veðurham þegar maður er inni í hlýjunni og örygginu.

En nú er fjör norðan við Vatnajökul sem gerð eru ágæt skil á þessari bloggsíðu og hjá Veðurstofunni. Þá er bara að vera á skjálftavaktinni og sjá hvað setur. Þetta er eins og spennandi framhaldssaga.

Lára Hanna Einarsdóttir, 11.12.2007 kl. 10:18

9 identicon

ég las veðurfréttirnar á textavarpinu um 1 í nótt eftir að vera búin að hlusta á rokið í svolítinn tíma... þar stóð að ætti að lægja um miðnættið. Stóð einnig að reykjanesbrautin væri ófær... kannski bara heppni að ég var í prófi í gær og kom óvenjusnemma heim.

Hulda (IP-tala skráð) 11.12.2007 kl. 14:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 167
  • Sl. sólarhring: 296
  • Sl. viku: 1711
  • Frá upphafi: 1453870

Annað

  • Innlit í dag: 132
  • Innlit sl. viku: 1420
  • Gestir í dag: 126
  • IP-tölur í dag: 125

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Sven-Göran
  • Hálka
  • Sumardagurinn fyrsti 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband