Kokkur í skammarkrók og dræsan hún Ylfa Ósk

tagliatelleHann doktor Gunni (eða okursíðan hans) hefur nú orðið til þess að ég skammaði góða kokkinn okkar hér í mötuneytinu. Tók eftir því að ég borgaði 365 krónur fyrir morgunverðinn og fannst það ansi hátt fyrir einn smoothie (199 kr) og smá álegg (ekkert brauð). Hef yfirleitt tekið litla slettu af kotasælu, sett tvær agúrkusneiðar, eggjasneið og paprikubita með. Það hefur kostað 40 kall, nú er rukkað fyrir hvert og eitt álegg. Þannig að agúrkusneiðin kostar 40 kall. Nú verður nesti tekið með, ekki gengur að éta mötuneytið lengur út á gaddinn og það mig. Svo skammaðist ég líka, en ljúflega, held ég, yfir kolvetnaveislunni í hádeginu, aðalréttur: spagettí með sjávarréttum og grænmetisréttur: tagliatelle í rjómasósu. Línurnar breytast skjótt í útlínur og jafnvel heilan sjóndeildarhring með svona áframhaldi.

Ylfa Ósk ÚlfarsdóttirÚlli, kokkur á Gestgjafanum, mætti með Ylfu Ósk með sér í vinnuna í gær og talaði um hana sem algjöra dræsu þar sem hún sat stillt og sakleysisleg við skrifborðið. Ylfa fékk nefnilega að pófa að vera með gæja um helgina og alla aðfaranótt mánudagsins veinaði hún svo mikið að engum í fjölskyldunni varð svefnsamt. Hún vildi meira, you know.

Nú heldur Úlli að Ylfa sé orðin hvolpafull og býst við fjölmörgum, sætum og krúttlegum úlfhundum eftir svona tvo mánuði. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta mundi ég nú bara kalla okur þarna í mötuneytinu. bara eitt orð. lætur doktor gunna vita að þessu

Mikið er þessi úlfhundur fallegur. Væri alveg til í eitt stykki svona hvolp.

Fyndin nöfn, Úlli og Ylfa

Eigðu góðan dag  

Skagakona (IP-tala skráð) 26.8.2008 kl. 16:51

2 Smámynd: Brynja skordal

Vá 40 kr gúrkusneið dýrt álegg þarna á ferð En já mikið er ylfa falleg

Brynja skordal, 26.8.2008 kl. 17:07

3 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Ég þarf að spjalla betur við kokkinn, hann er nú voða indæll en best væri ef verðskrá lægi frammi, þá fengi maður ekki svona taugaáfall. Hann þarf auðvitað líka að lifa af mötuneytinu, með margt fólk í vinnu.

Guðríður Haraldsdóttir, 26.8.2008 kl. 17:11

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég var lengi að ná þessu með Ylfu.  Hugsaði alveg: Er hún Gurrí dottin í það eða náð sér í önnur hugbreytandi efni.  Villingur.

Okur í mötuneyti.

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.8.2008 kl. 18:50

5 Smámynd: Aprílrós

Kemur skemmtilega að orði ;)

Aprílrós, 26.8.2008 kl. 18:54

6 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Úps, áttaði mig á því að ég var nálægt því að klæmast í þessari færslu ... svona fer nú illa með siðprúða stúlku að hafa snúið sólarhringnum við. Hehehhehe.

Guðríður Haraldsdóttir, 26.8.2008 kl. 19:29

7 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Held að Ylfa Ósk Úlfarsdóttir sé Siberian Husky.

Guðríður Haraldsdóttir, 26.8.2008 kl. 21:12

8 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Æ, aumingja Ylfa. Best að vera sérstaklega góð við hana næst þegar við hittumst.

Guðríður Haraldsdóttir, 26.8.2008 kl. 21:49

9 Smámynd: Marilyn

Enginn furða að hún hafi verið eyðilögð ef þetta er satt sem Lotta segir.

Þú veist að Ylfa elskar gúrkur Gurrí - það eru nokkrir 40 kallar þar ;) 

Marilyn, 27.8.2008 kl. 00:22

10 identicon

æ dúddídúddíYlfa...talandi um dýrt fæði, ég var að rembast í hráfæðinu en með því áframhaldi held ég að ég setji þessa familí á hausinn á ógnarhraða...ein helv...smádolla af hindberjum á 799 krónur 799 ég notaði svona sjö ber, rest var mygluðsem reiknast þannig að berið kostaði 114 krónur!!

alva (IP-tala skráð) 27.8.2008 kl. 00:28

11 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hræfæði ... æææææ, hljómar hrikalega .... fyndið. Skil að þið hafið hlegið.

Finnst hráfæði spennandi, Alva, er mikið mál að vera á því?

Guðríður Haraldsdóttir, 28.8.2008 kl. 07:14

12 identicon

Ég ætlaði í mötuneytið til að fá mér morgunmat á dögunum og komst þá að því að til dæmis áleggin höfðu hækkað í verði.

Ég snéri við og ég mun ekki versla við mötuneytið í vinnunni fyren kokkurinn verður kominn inn í raunveruleikann á ný. Annars verðum við að taka til okkar ráða!

Hafðu það gott í vinnunni kæra samstarfskona

Starfsmaður hjá Birtingi sem þorir ekki að koma undir nafni að ótta við óðan kokk.

Starfsmaður hjá Birtingi (IP-tala skráð) 28.8.2008 kl. 10:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 25
  • Sl. sólarhring: 316
  • Sl. viku: 1569
  • Frá upphafi: 1453728

Annað

  • Innlit í dag: 18
  • Innlit sl. viku: 1306
  • Gestir í dag: 18
  • IP-tölur í dag: 18

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Sven-Göran
  • Hálka
  • Sumardagurinn fyrsti 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband