Fræðingar og fegurðardísir í strætó ...

Doktor Proktor og prumpuduftiðSkúli kom okkur af miklu öryggi í Mosó þar sem Haraldur brosmildi tók við okkur og ók af engu minna öryggi til Reykjavíkur. Og það í hálku. Ég hafði skemmtilegan sessunaut í strætó, lögfræðinginn hressa sem ég hef bloggað um áður, og ræddum við um bækur og fleira skemmtilegt alla leið frá Skaganum. Hann er að lesa Bíbí núna og ég var að enda við hina bráðskemmtilegu Doktor Proktor og prumpuduftið. Fyrir aftan okkur sat virðulegi guðfræðineminn Jóhanna sem var í öngum sínum af því að hún gleymdi gemsanum heima. Ég lánaði henni minn í smástund, enda á maður víst að vera góður við guðfræðinga til að lenda ekki í helvíti. Líka lögfræðinga ef maður myndi nú fyrir mistök lenda í helvíti .... múahahaha. Við lögfræðingurinn skiptumst á afmælisdögum, hann er fæddur í júní en samt ágætur og árið eigum við reyndar sameiginlegt og ekki með  ómerkilegra fólki en Madonnu, Viggo Mortensen og Guðmundi í Byrginu. Hann á einn kött, ég á tvo en ég held að hann eigi fleiri börn en ég.

Ætlaði svo að vera ógurlega fyndin þegar ég fór upp í leið 18 í Ártúni með tvöfaldan skiptimiða sem ég fékk óvart í Skagastrætó og sagði einlæglega við bílstjórann þegar ég afhenti honum allt of langan miðann: „Ég borga auðvitað tvöfalt af því að ég er svo feit!“ Bílstjórinn horfði blíðlega á mig og sagði: „Kaj pravite, krava?“

Ógreiddi maðurinn var í leið 18, þessi seinni ógreiddi sko, og mig grunar að hann sé, eins og allt skrýtna fólkið í vagninum, í Kvikmyndaskólanum með Davíð frænda. Þýðandinn lenti á "kvennafari" eða einhver, sæmilega sæt skvísa, hlammaði sér hjá honum og hann fékk ekki við neitt ráðið. Man hvernig kvíðinn nagaði mann í strætó í eldgamla daga yfir því að einhver ljótur settist hjá manni. Svo hefur örugglega ljóta fólkið á Íslandi dáið út á undanförnum árum eða gleraugun mín dofnað því að þetta hræðir mig ekki lengur. Set samt alltaf upp undarlegan svip, svona eins og ég sé til alls vís, jafnvel hættuleg, þegar einhver asnalegur gerir sig líklegan til að setjast hjá mér. Það virkar ekki oft, því miður. Aðeins þrír Indverjar voru í vagninum að þessu sinni.

Jæja, farin að vinna. Óska ykkur yndislegs dags, bloggvinir kærir, sem og bloggóvinir. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Hefur aldrei hvarflað að þér að það sé ekkert ljótt fólk til lengur? Skýring mín á því er sú að eftir því sem maður eldist og væntanlega þar með þroskast sjái maður ekki bara útlitið heldur skíni mannkostirnir í gegn. Og allir hafa einhverja kosti (þó óneitanlega fari sumir vel með það!)

Kv.

Sigurður Hreiðar, 15.10.2008 kl. 11:07

2 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Jú, minn elskulegi Sigurður ... ég var bara að gera grín að sjálfri mér, meintu sjónleysi og skorti á þroska!

Guðríður Haraldsdóttir, 15.10.2008 kl. 11:39

3 Smámynd: Ólöf Anna

áttu marga bloggóvini?

Ólöf Anna , 15.10.2008 kl. 11:43

4 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Heheheh, sko heilan helling!!!! Er komin með lífverði hér í bloggheimum og allt!

Guðríður Haraldsdóttir, 15.10.2008 kl. 11:49

5 identicon

Spjalla ótilneydd við lögfræðing? Þær eru margar birtingarmyndir kreppunnar, hm.

Guðmundur G. Hreiðarsson (IP-tala skráð) 15.10.2008 kl. 12:42

6 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Verður maður ekki að halda þeim góðum á þessum tímum? heheheh

Guðríður Haraldsdóttir, 15.10.2008 kl. 12:47

7 identicon

Sæl Gurrí mín, ég vil kvitta fyrir mig þar sem ég er einlægur aðdáandi þinn hér. Ég hef gefist uppá "þínum" strætó og tek þann sem kemur korteri á undan. Í honum þarf ég enn aldrei að efast um að fá sæti og get jafnvel breytt úr mér með Fréttablaðið Baráttukveðja Elín Íris

Elín Íris (IP-tala skráð) 15.10.2008 kl. 13:21

8 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Já, þú getur gert þetta yfir vetrartímann, þegar strætó er ekki lengur á hálftíma fresti. Það bættust ansi fáir við í Mosó, þetta er Skagaferðin greinilega, stappfullur strætó, nokkrir stóðu. Sakna þín, elskan.

Guðríður Haraldsdóttir, 15.10.2008 kl. 15:09

9 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Hressandi pistill úr hálkuheimum.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 15.10.2008 kl. 15:10

10 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 15.10.2008 kl. 17:11

11 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

- if you want my opinion:  það ætti að vera til miklu, miklu meira af þér ....

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 15.10.2008 kl. 17:56

12 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Vegna "fjölda" fyrirspurna: "Kaj pravite, krava" þýðir "Hvað sagðir þú, belja?" á slóvensku.

Guðríður Haraldsdóttir, 15.10.2008 kl. 17:56

13 identicon

Sæl,  bara svo þú vitir, þá eru flestir indverjarnir okkar farnir af landi brott ..  .. í kjölfar bankahörmunganna.

Þannig að nú get ég ekki lengur blaðrað í þá blogginu þínu  .  Sakna þeirra.

Ásta S. (IP-tala skráð) 15.10.2008 kl. 18:08

14 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Takk, Ásta. Þetta voru frábærir menn, þessir tveir sem ég spjallaði stundum við og allt þetta fólk bauð af sér góðan þokka. Skil að þú saknir þeirra, það mun ég líka gera. Gott að vita þetta, takk enn og aftur.

Guðríður Haraldsdóttir, 15.10.2008 kl. 18:38

15 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Ég sat alltaf í sætinu nær ganginum ef ég fór ein í strætó svo enginn settist hjá mér. Lenti einu sinni í því að maður með Brut-rakspíra settist hjá mér og ætlaði sko ekki að láta það koma fyrir aftur. Þurftir að fara úr strætó mörgum stoppistöðvum of snemma.

Helga Magnúsdóttir, 15.10.2008 kl. 19:38

16 Smámynd: Aprílrós

innlitskvitt ;)

Aprílrós, 15.10.2008 kl. 19:45

17 identicon

Kaj pravite, krava þýðir Ólögulega afsláttarskækja. Þú gætir kannski kvartað við strætó vegna ónota, en ekki vegna lyga!

Breiðholtshatarinn (IP-tala skráð) 15.10.2008 kl. 21:26

18 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

ég er svo sammála bílstjóranum Gurrí mín

mér líkar vel plottið þitt og fyrirvarinn: lögfræðingur, guðfræðinemi, efra og neðra

Jóna Á. Gísladóttir, 15.10.2008 kl. 22:02

19 Smámynd: Brynja skordal

Brynja skordal, 15.10.2008 kl. 23:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 25
  • Sl. sólarhring: 315
  • Sl. viku: 1569
  • Frá upphafi: 1453728

Annað

  • Innlit í dag: 18
  • Innlit sl. viku: 1306
  • Gestir í dag: 18
  • IP-tölur í dag: 18

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Sven-Göran
  • Hálka
  • Sumardagurinn fyrsti 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband