Færsluflokkur: Bloggar
19.5.2021 | 23:08
Kaffiraunum lokið og áhugaverð óþekktarsprauta
Stór bólusetningardagur í dag á Skaganum, eða -vika, mikil traffík fyrir utan eldhúsgluggann hjá mér. Ég er alsæl með mitt Astra Zeneca, litlar aukaverkanir og góð vörn, en finnst samt fúlt að svona langur tími líði á milli fyrri og seinni sprautu. Ég er meira en til í að vera tilraunadýr, eins og sumir kalla það, frekar en að bíða árum saman eftir frekari þróun og rannsóknum, þá jafnvel með grímu í andliti, spritt á kantinum og allt stopp í heiminum.
Snappari sem ég fylgist með hefur sýnt myndband sem sannar örflögukenninguna, reyndar er nálin virkilega stór (hrossasprauta? eins og var til í ísskápnum á æskuheimili mínu og hét óþekktarsprauta (aldrei notuð)) en hafa skal það sem hentar. Nema náttúrlega þurfi að fylgjast sérstaklega með óþekka fólkinu? Áhugavert! Það er ferlega auðvelt að fylgjast með mér í gegnum símann, Facebook og bloggið, snappið og Instagram, með dróna sunnan megin við himnaríki, almennum njósnum og eftirliti eins og á árum áður, og eflaust fleira. Mig langar oft að losna við grímurnar, þótt þær feli hrukkur - við notum þær yfirleitt vitlaust hvort eð er. En mér myndi samt þykja betra ef einhver hóstaði nálægt mér, að hann væri með grímu, virkilega skárra en hitt.
Tvær góðar vinkonur komu í heimsókn seinnipartinn í dag, sextíu plús - eins og ég. Þeim finnst voða fyndið hvað ég er græju-, tækja- og tölvusmeyk/-heft sem þær eru alls ekki. Ég fékk allt of mikla hjálp allt of lengi og það gerir mann ósjálfbjarga. Ráðlegg kerlingum / körlum sem eru í svipaðri stöðu að þegar þau fá hjálp að láta kenna sér í leiðinni. Önnur vinkonan sá í hvelli hvað orsakaði hræðilega hljóðið í nýju kaffimaskínunni minni ... og ég þori ekki að viðurkenna á opinberu bloggi hvað það var, hversu lítilvægt ... Vélin var í sambandi, svo það komi fram, en ég segi ekki meira. Svo langur tími hafði liðið (time is fun when you are having flies) að það var komið geymslubragð af kaffibaununum í kvörninni ... en ég átti meira, auðvitað. Kaffiraunum mínum er að mestu lokið með þessu en stífur æfingatími er fram undan. Ahh, muna að panta meiri mjólk (nýmjólk) í Einarsbúð á morgun.
Vinkonan kenndi mér ýmsar kúnstir og kennsla Dags á sínum tíma rifjaðist líka upp. Hún fann fyrir mig myndbönd á YouTube og nú hef ég horft á tvö og get sennilega búið til minn allra fyrsta hrottalega góða latte á morgun. Þá munu sæluandvörp berast með vindinum ... ja, eða gleðiöskur heyrast alla leið út í íþróttahús sem yfirgnæfir kannski harmonikkutónlistina sem glymur án efa yfir 72-módelinu (gisk, ég hef ekki hugmynd um hvaða árgerðir eru bólusettar þessa dagana). En mér fannst ferlega fyndið að lagið Líttu sérhvert sólarlag (afar vinsælt í útförum) hafi verið leikið í Höllinni þegar ansi spræk árgerð (fólk innan við fimmtugt) var bólusett nýlega. Ég væri reyndar alveg til í (alltaf) að heyra Heyr himnasmiður í seinni bólusetningunni og líka útförinni minni, ég söng þessa dásemd með Kór Langholtskirkju í Austurríki, Þýskalandi og Ítalíu árið 1985, algjört uppáhald.
Ég er orðin svo sjálfsörugg eftir kennslu dagsins að innan tíðar fer ég að kenna ykkur öllum hvernig á að búa til gott kaffi, tengja tölvur, hvernig á að panta frá netverslunum án þess að senda seljanda óvart allar myndirnar úr símanum ykkar, og, ekki síst, að búa til hjarta (<3), ég lærði það í fyrra. Það tók mig svo langan tíma að finna < í gemsanum, sem er iPhone, frekar nýlegur. Konan í búðinni setti hann upp fyrir mig og var svo hjálpleg á allan hátt, starði þó hissa á mig þegar ég sagðist ekki vilja sérstaka tryggingu. Það gladdi mig heilmikið að hún hafi haldið að ég lifði svo spennandi lífi að ég gæti mögulega brotið glerið á gemsanum mínum!
Bloggar | Breytt 20.5.2021 kl. 00:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.5.2021 | 15:01
Misskilinn húmor
Sumir segja að Facebook sé ansi ávanabindandi og sama má auðvitað segja um Snapchat og Instagram sem ég er á líka, ekki endilega mjög virk en velkomin samt (gurrih). Þegar ég eitt sinn sagðist ekki vera með Pinterest var sagt góðlátlega við öldunginn mig að ég gæti alveg fengið kennslu í því en ég átti ekki við að ég kynni ekki á kvikindið, heldur að tíminn væri ekki endalaust mikill. Það þyrfti til dæmis að lesa, elda, fara í ræktina, leika við kettina, daðra, svo fátt sé talið. Twitter gat ég ekki heldur, það þarf að velja og hafna í þessum heimi. Agalegt samt að missa af Trump ... Læt mér nægja að lesa vikulega samantekt af skemmtilegustu innlendu Twitter-færslunum.
Facebook heldur mér ekki upptekinni tímunum saman, alls ekki, en ég kann vel við ýmislegt þar eins og að rifja upp þennan dag fyrir x mörgum árum eða eigin fb-minningar sem koma upp daglega. Í dag var t.d. eftirfarandi að finna, en ég hafði rekist á gamla grein eftir mig í Vikunni, grein um húmor þar sem ég hafði rætt við hina og þessa um húmor. Einhver kona sem ég man ekki hver er sagði mér þessa sögu:
Símastúlka: Hjartavernd, góðan dag.
Kona: Góðan dag, ég þarf að panta tíma í afkomendarannsókn hjá ykkur. Ég fékk nýlega bréf frá ykkur varðandi það.
Símastúlka: Einmitt, er mikið um hjartasjúklinga í ættinni þinni?
Kona: Nei, ég get nú ekki sagt það. Kannski einn eða tveir, hinir eru allir dánir.
Símastúlkunni fannst sér gróflega misboðið með þessu og sagði að maður gerði ekki grín að svonalöguðu. Konan var að hugsa um að biðjast afsökunar og segjast ekki hafa vitað að þetta væri henni svona mikið hjartans mál en fannst nóg komið. Hún taldi sig vera að svara út í hött en ekki gera grín að hjartasjúklingum.
- - - - - - - - - - - - - -
Mér fannst þetta hrikalega fyndið og hvergi vegið að hjartasjúklingum. Hann faðir minn hefði skemmt sér konunglega yfir þessu. Hann átti til eitthvað svipað, eins og þegar hann var fluttur stórslasaður á sjúkrahús eftir árekstur. Á þeim tíma fékk enginn aðhlynningu nema hafa svarað spurningum fyrst. Nafn, kenntitala og slíkt varð að koma fram.
Hjúkkan spurði: Ertu giftur?
Nei, svaraði pabbi, ég slasaðist svona í umferðarslysi. Ekki fyndið, fannst hjúkkunni, maður grínaðist ekki með slys.
Þessi saga af pabba (sem ég hef nú sagt áður, oft, sorrí) skemmti kirkjugestum í jarðarförinni hans 2001. Og kaffið sem sló svo rækilega í gegn í erfidrykkjunni hans, frænkurnar vildu margar fá að vita nafnið á því (Krakatá frá Kaffitári). Íslendingar orðnir langþreyttir á því að fá kannski guðdómlegar veitingar í öllum stórveislum í sal en nánast alltaf vont kaffi með - það virðist vera óbreytanlegt. Og þegar ég reyni að gefa fólki sem heldur stórveislu gott kaffi, hafa starfsmenn salarins eyðilagt kaffið með því að hafa það allt of þunnt ...
En aðalmálið samt varðandi kaffi. Ég fékk sent með pósti Brasilíukaffi frá Kaffibrugghúsinu í gær, sennilega er þetta dýrðin sem Rjúkandi (áður Vegamót) á Snæfellsnesi notar í latte hjá sér og alveg þess virði að gera sér ferð þangað bara fyrir kaffið. Er svo spennt að smakka.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
16.5.2021 | 14:11
Viðburðaríkur systrabröns
Systrabröns er eitthvað sem óhætt er að mæla með. Við vorum þarna þrjú systrapör og einn hjúkrunarfræðingur til öryggis. Allt fór fram með ró og spekt, að mestu leyti. Flestar fullbólusettar, hinar hálf-, en ekkert kjassað og knúsað, bara snædd geggjuð karrísúpa með meiru og spjallað. Þegar tvær vildu fá uppskrift að einhverju ostadæmi með hnetum utan á (ekki ég) kveinaði ein (systir gestgjafans) sem hatar umræðuefnið uppskriftir. Ég stakk upp á að tala frekar um uppáhaldið mitt Verndun svæðislýsinga smárása í hálfleiðurum en eftir smástund af því þurfti hjúkkan að gefa hressingarlyf.
MYND: Ég tók mynd af uppskriftinni á símann minn þegar gestgjafinn sagði töfraorðið ... eða steinselja. Biðst afsökunar á Ý í partí og bandstriki í heitinu Partíostakúla. (Þetta er, svei mér þá, að breytast í matarblogg. Himnaríkismatur með hörpuslætti og söng, Matreitt í himnaríki, ég finn eitthvað)
Boðið var upp á hið fínasta Lavazza-kaffi með mokkafrómasinum í eftirrétt og ég trúði stelpunum fyrir því að EF ég fengi mér einhvern tíma mann yrði hann að kunna að búa til sítrónufrómas, eins og ég hef áður sagt. Mér skilst á ritstjóra Gestgjafans að mikið hafi verið haft samband við hana upp á síðkastið og beðið um óskauppskrift í blaðið, einmitt sítrónufrómas - skref fyrir skref. Ein í hópnum horfði sár á mig, hún er ógift eins og ég, og sagði með vonbrigðahreim: Þig langar sem sagt í mann! Ég sagði brjáluð á milli samanbitinna tannanna: Nei, ég á ketti og ég á uppþvottavél! Þótt hún væri að hitta mig í fyrsta sinn hefði hún átt að skilja að grínið fjallaði um sítrónufrómasinn, eða skilyrðin sem ég set þeim fyrir inngöngu í himnaríki sem ég líki því við að viðkomandi frómasgerðarmanni myndi hlotnast. Þarna kom hjúkkan aftur að mjög góðum notum og hvíslaði róandi að mér að hugsa alltaf áður en ég talaði.
Þótt enn sé talsvert langt í sumarfríið okkar Hildu, helgarferðina norður sem gengur undir vinnuheitinu veiðiferðin, finn ég fyrir spenningi og tilhlökkun. Það er víst ekki hægt að skrifa eins konar opinberar bloggfærslur á Tinder, eins og ég hélt. Ég þarf að læra að blogga í gegnum símann minn. Hilda varð mjög glöð þegar ég viðurkenndi að ég gæti bara bloggað við tölvuna heima, vill sennilega ekki að alþjóð frétti nánast í beinni, hvers konar ferð þetta verður ... ef allt gengur að óskum.
Hún er alveg til í að fara til Húsavíkur í ár, þrátt fyrir meint kattahatur þeirra sem þar stjórna. Okkur systrum er sennilega alveg óhætt að heilsa þriðju hverri manneskju, því þetta eru allt meira og minna ættingjar okkar þarna, pabbi fæddur á Flatey á Skjálfanda, Uppibæ. Það gæti samt orðið vandræðalegt að snara sér út úr bílnum þegar áberandi myndarlegt fólk er á ferðinni, heilsa því en svo væru þetta bara túristar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.5.2021 | 12:20
Stuð í himnaríki
Þegar íbúðin mín var í þann veginn að verða mjög fín eftir yfirhalninguna 2020 (ákveðið 2019) kom í ljós skortur á almennilegu rúmteppi til að ALLT yrði nú fínt. Farið var í búðir og eitt allt í lagi-teppi keypt í IKEA en það reyndist vera of lítið svo drengurinn fékk það. Ekki bara of lítið, heldur dýrkaði teppið kattahár, laðaði þau til sín og hóf mikla söfnun á þeim sem kostaði mig mikla vinnu.
Eins og með sum illyfirstíganleg vandamál leitaði ég til Hildu systur, hvort hún vissi hvar ég gæti keypt fallegt teppi sem hentaði. Hei, ég á grátt hárafráhrindandi teppi, alveg plein, þú mátt eiga það. Ég var auðvitað afar þakklát og í þau skipti sem ég næ að búa um áður en kettirnir hringa sig ofan á sængina er mjög fínt í herberginu, meira að segja púðarnir sem ég keypti með hinu, of litla og hárasafnandi teppinu, passa ágætlega. En nokkru seinna kom fram í samtali okkar systra að teppið væri fáránlega rafmagnað. Sem smitaðist inn á fleiri svæði himnaríkis. Ég öskraði iðulega þegar ég snerti ísskápinn, kom við hurðarhúna, skrúfaði frá krana og slíkt sem var leiðigjarnt, ekki bara fyrir mig, heldur einnig nágrannana. Notaðu mýkingarefni þegar þú þværð það, stakk hún upp á. Ég hef ekki notað slíkt í mörg ár, fussaði ég en nota nú samt sérstaka, afrafmagnandi klúta í þurrkararann og slík meðferð dugði á teppið en restina af íbúðinni smám saman. Rafmagnsöskrin hafa þagnað, þökk sé þurrkaraklút úr Costco. Ekkert stuð lengur, mæti segja, hohoho.
Ég fékk mjög fínar ábendingar í gær um eitthvað sem hefði mátt skýra miklu betur í síðustu færslum. Skrítinn húmor og hvatvísi er ekki alltaf góð blanda ... Eins og til dæmis:
Einu sinni sagði Svanlaug Löve, þá formaður Kattavinafélagsins, að allir sem hötuðust við ketti hefðu verið rottur í fyrra lífi. Hún sagði þetta í viðtali fyrir kannski 30 árum og ég hélt að allir hefðu heyrt þetta og myndu eftir því. Ég skipti fólki sem sagt upp í tvo hópa, hóp þeirra sem elska ketti og hóp hinna sem voru rottur í fyrra lífi. Annaðhvort svart eða hvítt! Ég sat ekki froðufellandi við tölvuna og líkti þeim vinum sem ekki endilega eru mikið fyrir ketti við rottur, þetta var grín. Mundi bara eftir þessum orðum Svanlaugar og fannst þau alveg eiga heima á bloggsíðu sem tekur sig ekki allt of alvarlega. En það þarf að passa samt að valda ekki misskilningi.
Svo varðandi vissan embættismann fyrir norðan sem hóf ákveðið stríð minntist ég á að þetta hlyti að vera bara dulbúin tóbaksauglýsing (það gæti ENGINN haft svona skoðanir á sætum kisum) en myndin sem fylgdi fréttinni sem ég las var af hressilegum myndarkarli með sígarettu í munnvikinu. (Sumir karlar ættu bara að halda sig við að vera sætir, ekki tala svona mikið, en það er önnur saga.)
Ekki allir sáu þá ljósmynd og héldu að ég væri að setja út á útlit hans með einhverjum hætti. Bara alls ekki. Svo voru sennilega einhverjir fjölmiðlar að æsa okkur upp ... til að fá fleiri smelli og fleiri athugasemdir, hatur og læti, eitthvað sem sumir elska en ég hélt að ég hefði lært að forðast. Hér með leiðréttist þetta.
- - - - - -
Annað, ég bið afsökunar á offitubrandara sem ég laumaði inn nýlega þar sem ég gaf uppskrift að Nammi, nammi, gott, gott- perutertu sem auðgaði æsku mína. Fyrir neðan heiti tertunnar hafði ég skrifað FYRIR EINN, sem var bara ádeila á sjálfa mig, tertan svo góð að ómögulegt væri að deila henni. Kona nokkur hafði samband við bloggið og sagði farir sínar ekki sléttar. Hún hafði ætlað að gleðja karlinn og börnin tvö eftir að hafa séð uppskriftina hér (ögn neðar) og bakað fjórar perutertur með kaffinu!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.5.2021 | 15:10
Að spúa eitri
Síðustu þrjú árin, eða síðan sonur minn dó, hef ég forðast að koma mér í aðstæður sem valda streitu, ég reyni að sofa vel, borða hollt, tek ekki að mér of mörg verkefni og ... les sjaldnast kommentakerfin á samfélagasmiðlum, ekki síst ef ég sé að stefnir í einhvern viðbjóð. Þetta hefur virkað vel fyrir sálartetrið, ég er farin að þekkja og forðast fréttir, klikkbeitur, sem eiga að fá fólk til að vera á móti einhverjum eða með, aðallega móti. Þá skríða ýmsar rottur úr holum sínum og láta viðkomandi heyra það ... eins og í stóra prestsmálinu á Siglufirði. Kattahatarar náðu allt í einu vopnum sínum ... minnir ögn á Trump-fólkið sem fékk rödd 2016 og mátti bara alveg vera rasistar og öskra það á götum úti.
Guðsmaðurinn má auðvitað halda með sínum fuglum gegn köttum en það er alveg hægt að halda með báðum - kannski líka lesa sér til um gang náttúrunnar - og jafnvel temja sér umburðarlyndi gagnvart öllu sem lifir, ekki bara sumu. Ég reyni það sjálf gagnvart kóngulóm og geitungum, læt ekki eitra fyrir þeim, hleyp bara hratt inn ef kvikindin verða of aðgangshörð. Hef þó alltaf vissa samúð með flugunum sem kóngulærnar veiða í vefi sína. Spurning um að banna kóngulær, halda þeim inni, eða kannski ekki.
Ég segi ekki að allt logi á minni eigin Facebook-síðu vegna síðasta bloggs, enda eru Fb-vinir mínir annáluð prúðmenni og -kvenni en það hafa verið skoðanaskipti. Þegar ég fletti í gegnum almennu Facebook áðan sá ég akkúrat alvörukveikjuna, þá sem olli því að ég mundaði pennann í gær, eða reyndi að skrifa köttum til varnar. Þarna sá ég að eitthvert illmennið hafði skriðið út og tjáð sig, sjá efstu mynd. Það er akkúrat þetta sem guðsmaðurinn hefði átt að geta sagt sér (nema honum sé bara alveg sama), að öll ógeðin kæmu út úr holum sínum.
Svo finnst mér ekki hægt að bera saman hunda og ketti, ég þarf að vera með hundinn minn í bandi, af hverju má kötturinn vera laus? Þessi dýr eru mjög ólík. Presturinn lét að því liggja að kattaskítur væri um allt og fólk gæti gengið í hann ... hann veit greinilega ekkert um ketti. Margt af því sem hann sagði er byggt á sögusögnum, einhver hafði séð kött veiða fugl og sagt honum.
Ég ætla samt að fara til Sigló í sumar, eins og venjulega, heimsækja mitt fólk, minn frændkött og minn frændhund, drekka góða kaffið hjá Fríðu og njóta. Ég get ekki gert upp á milli hunda og katta - væri án efa með hund í dag ef ég byggi öðruvísi. Þótt ég eigi ketti og geti kallast kattakerling, elska ég hunda alveg jafnheitt. Ein besta vinkona mín á Akranesi er sjeffertíkin í næsta húsi, alltaf miklir fagnaðarfundir þegar við hittumst.
Ljóta kommentið kom kattavinum eðlilega í uppnám en mér fannst áhugavert sem ein konan sagði í þræðinum um þetta komment, hér er það orðrétt: Ég leigði hjá miklum fuglaáhugamanni í Danmörku, hann ferðaðist um heiminn til að skoða fugla og var í hinum ýmsu félögum og ráðum um fugla, m.a. á vegum hins opinbera. Hann sótti ráðstefnur út um allan heim, þing um fugla. Þessi maður var og er með kött og ég spurði hann hvort þetta færi saman og hann hélt nú það og sagði að þetta væri náttúran. Ég benti honum á að margir héldu því fram að kötturinn væri aðskotadýr en hann sagði þvert á móti, bæði gerði kötturinn gagn og svo væru miklu fleiri dýr sem færu í fuglana og kötturinn alls ekki sá skæðasti.
Annað merkilegt í þessum umræðuþræði. Kettir og kattaeigendur á Siglufirði hafa orðið fyrir aðkasti, þökk sé guðsmanninum, en á heimasíðu Fjallabyggðar er listi yfir þá sem eru með leyfi fyrir kisum, og bæjarstjórinn neitar að fjarlægja nafnalistann, sem er sennilega brot á persónuverndarlögum. En eru ekki örugglega kosningar á næsta ári? Kattaeigendur gætu án efa breytt málum. Ég myndi láta atkvæði mitt koma svona fólki frá, þótt ég þyrfti að kjósa allt annan flokk en vanalega.
Annað: Ég hvet kattaeigendur til að halda köttum sínum inni á þessum viðkvæma tíma, ekki síst yfir nóttina, kaupa á þá litríka og stóra kraga svo þeir reyni ekki að færa eigendum sínum björg í bú. Frændkötturinn minn á Siglufirði er afar rólegur og heldur sig mikið heima, hjá hundinum og fólkinu sem hann á ... Ég hef aldrei heyrt veiðisögur af honum en hann hlýtur samt að vera í hættu núna, af því að hann er ekki fugl.
Neðsta myndin (frá 2019) er af (f.v.) Krumma, Mosa og Kela sem virða fyrir sér tvo sæta smáhunda, Herkúles og Golíat, frændhunda mína, sem koma stundum í heimsókn. Allt of sjaldan samt.
Svo vona ég það besta fyrir hönd Fjallabyggðar. Það er laust starf í Akraneskirkju fyrir prest og væri áhugavert að vita hvort þessi prestur, ef hann sækti nú um og fengi djobbið gæti einnig klofið okkur Skagamenn í herðar niður - kannski með eða á móti fótbolta? Banna hestareið á Langasandi á sumardaginn fyrsta? Hann myndi finna eitthvað spennandi en fengi aukastig hjá mér ef hann kæmi mávunum, vinum mínum, til varnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
13.5.2021 | 02:16
Sennilega dulbúin tóbaksauglýsing
Prestinum á Siglufirði hefur gengið dæmalaust vel að koma íslensku samfélagi í uppnám og skapa úlfúð á milli hópa; þeirra sem elska ketti og hinna sem voru rottur í fyrra lífi. Hann dulbýr andstyggð sína á einni dýrategund sem umhyggja fyrir annarri. Nema ... þetta hafi bara verið tóbaksauglýsing. Sáuð þið ekki myndina af honum?
Kettirnir mínir eru innikettir (hér eru Krummi og Keli), ekki til að vernda fugla eða mýs, sem ég er ekki viss um að þessir letihaugar myndu nenna að eltast við, heldur til að þeir verði ekki fyrir bíl.
Talandi um presta ... eða reyndar prestfrú af Vesturlandi sem gerði líf margra Skagamanna óþarflega erfitt með því að brjálast yfir því að Skagastrætó, eins og hann kallaðist upphaflega, kæmi við á Skaganum á leiðinni til Reykjavíkur (af Vesturlandi). Það var hlustað á frekjuna í konunni sem tók þó sjaldan strætó og stoppistöðvum var fækkað hér svo nú er konan fimm eða sex mínútum sneggri til Reykjavíkur og um leið hætti strætó að henta hluta Skagamanna, sérstaklega á veturna, þá var nú bara betra að kaupa bil. Flestar ferðir héðan í bæinn fara frá bæjarskrifstofunum núna en áður alltaf frá Akratorgi. Þarna var hagsmunum heildarinnar fórnað fyrir eina mannskju. Freka.
Bílstjórinn sem sagði mér þetta varð mjög hneykslaður og endaði sem trúlaus, það þurfti ekki meira til, og ég geri fastlega ráð fyrir að vegna orða prestsins á Sigló missi ansi margir í viðbót alla trú, við erum svo mörg sem elskum kettina okkar.
Biskupsstofa þyrfti að ávíta manninn harðlega (og Strætó bs. að gyrða sig í brók) ef sóknargjöldin eiga ekki öll að fara í kattaelskandi söfnuði á borð við Siðmennt, DíaMat og Ásatrúarsöfnuðinn. Kristrún í KFUK æsku minnar hefði reyndar látið þennan prest hafa það óþvegið!
Nema sem sagt, að þetta hafi bara verið sígarettuauglýsing eins og mig er farið að gruna, það getur enginn verið svona þenkjandi, nema kannski harður veganisti sem myndi aldrei borða sæta kjúklinga, kálfa eða lömb. Ég ætla samt ekki að láta plata mig til að byrja að reykja aftur.
Hér eru svo nokkrar sjálfsagðar kröfur mínar. Ég VIL ...:
- að lausaganga háværra barna snemma á sumarmorgnum verði bönnuð.
- að býflugnabændur hafi flugur sínar í taumi, margir eru afar hræddir við stinguflugur.
- að kattamessa verði haldin árlega á Siglufirði. Og Húsavík.
- að flóð verði alltaf í björtu á veturna í suðvestanátt hér við Langasand. Og að bláfáninn hangi hér uppi allt árið.
- að útibú IKEA eða Rúmfó og KFC komi á Skagann. Og dýralæknastofa.
- að Herjólfur komi minnst vikulega við á Akranesi.
- að Norræna komi minnst mánaðarlega við á Akranesi.
P.s. Þrátt fyrir söguhetjur þessa bloggs ... vil ég taka fram að þeir prestar og prestfrúr sem ég þekki eru öll dásamlegt fólk.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.5.2021 | 00:40
Harmonikkueinelti ...
Hver ætli velji tónlistina í Laugardalshöll þegar bólusetningar fara fram? Vinkona mín fékk My Way sem Geir Ólafsson söng en þess má reyndar geta að hún var var stödd í Hyde Park á tónleikum með Pink Floyd á meðan unglingar hérlendis urðu að sætta sig við Led Zeppelin í Höllinni ... Ef líf mitt lægi við, ég yrði að velja, yrðu Pink Floyd fyrir valinu, Sauceful of Secrets, eitthvað eldgamalt og gott, Julia Dream ...
May way var í seinni sprautunni, í þeirri fyrri var sinfó að hita sig upp en næsta holl á eftir vinkonunni fékk þetta líka undurfagra kammerverk. Ég þekki engan sem hefur fengið músik sem passar árganginum sínum, en fólk er svo sem komið til að fá blessað bóluefnið, ekki á tónleika - en það er samt eins og verið sé að reyna að velja við hæfi ... ja, eða ekki sem er fínasti húmor. Kveljum liðið, setjum diskó á þegar Gurrí fær seinni ... eða kántrí kannski! (Nú hætta bæði Páll Óskar og Bjarni Dagur, mínir fyrrum frábæru samstarfsmenn, að heilsa mér).
Eiginmaður vinkonu minnar spurði fyrir seinni sprautuna: Hvaða tónlist býstu við að fá? Hún horfði í kringum sig og sagði: Harmonikkutónlist. Hún hefur líka fylgst með á Facebook. Ég get alveg sagt vinkonu minni hér og nú að það er búið að taka harmonikkutónlistina frá ... og það fyrir dvalarheimili; áður, nú og í framtíðinni. Eins og áður hefur komið fram er mamma (87) hrifin af lögum á borð við It´s a sin með Pet Shop Boys, Sacrifice með Elton John og Gangstas Paradise með Coolio. En hún fær harmonikkutónlist. Það er af því að henni þykir gaman að henni, henni á að þykja gaman að henni, allt gamalt fólk elskar nikkutónlist!!!
Áður en fólk (Nellý) heldur að þetta sé einelti gegn harmonikkutónlist, skal minnt á að ég spilaði stundum lagið Sunnanvindur með Örvari Kristjánssyni á útvarpsstjörnuárum mínum á síðustu öld, og það miðaði enginn á mig byssu á meðan. Heldur ekki þegar ég spilaði kántríið Too know him is to love him með Dolly Parton og fleiri gellum, lag sem þáverandi samstarfsmaður minn, Árni (pabbi hans Hr. Hnetusmjörs) hatar jafnmikið og ég hata Killing me softly með Robertu Flack. (Vá, þetta er kvöld játninganna)
- - - - - - - -
Fólk með mótþróagrímuröskun gæti breytt algjörlega um takt á næstunni ef marka má grein sem ég sá í svip á Facebook í kvöld, nú er sem sagt það nýjasta hjá andstæðingum bólusetningar að fara að bera grímu sem margir/flestir hafa sagt að geri ekkert gagn, en til að smitast ekki af okkur bólusettu, heilaþvegnu kjánunum - sem hvað? Hóstum kannski örflögum út í andrúmsloftið? Spennandi að vita hvort þessi nýjung nær flugi hér á landi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.5.2021 | 19:22
Ást og stríð á Facebook ...
Facebook getur verið einstaklega fyndið fyrirbæri. Þar eru ýmsir hópar sem hægt er að ganga í og minn uppáhalds heitir: Stuðningshópur fólks sem labbar hallærislega í hálku. Hann var stofnaður í gríni sem pirringur út í eitt það versta og viðbjóðslegasta sem til er, eða glerhálku. Ég hef nógu oft þurft að skríða út á stoppistöð til að vita um hvað ég tala. Alltaf ætlaði ég að eiga tilbúna skál með grófu salti og leggja af stað hálftíma fyrr en vanalega og dreifa salti á undan mér, búa til hættulausa gönguleið, komast ófótbrotin á stoppistöðina sem annars tekur um mínútu að ganga til ... en hvað er ég að tala um snjó og hálku um bráðum hásumar? Ég er líka í hópi sem heitir: Fólk sem ruglar saman apóteki og bakaríi. Ruglingur á orðum, ekkert okkar fer til dæmis í bakarí og biður um íbúfen.
Það er nákvæmlega ekkert um að vera í þessum uppáhaldshópi mínum, ekki einu sinni í hálku, en í öðrum hópum brjótast reglulega út styrjaldir. Í einum garðyrkjuhópi er t.d. allt brjálað yfir nafni blóms (Gyðingurinn gangandi). Eins og áður hefur komið fram hata ég garðyrkju og á bara sjálfvökvandi blóm svo ég er ekki í þeim hópi. Ég er meðlimur í Handóðum heklurum og þar ríkja rólegheitin ein, held ég, er ekki mjög virk í neinum hópum, en ég forðaði mér úr öðrum heklhópi vegna æsings og láta, hvernig sem hægt er að æsa sig yfir hekli? Sumir halda að það sé hlutverk sitt að bjóða manni í hópa - og stundum heldur sjálf Facebook að þar sem ég er t.d. í hópnum Fyndna frænka (fyndinn hópur) hafi ég gagn og gaman af því að ganga í hópinn IKEA húsgögn - sala, kaup og h... (Ég sé ekki allt heitið). Og mér bauðst sað ganga í hópinn Hallærisleg tónlist sem þú hlustar... af því að ég hafði nýlega skoðað mynd í hópnum Spottaði kött.
Svo eru talsverð leiðindi í íslenskuhópi vegna opins bréfs frá kvenmanni sem hatar að verið sé að hvorugkynsvæða tungumálið, ef ég skil það rétt, hraðlas ... ég er ekki sammála henni eftir fyrsta hraðlestur, og reynið þið bara að komast í gegnum hindranir á borð við krókódílafenið hér á Moggablogginu til að setja athugasemd, það er nógu erfitt að læka, skilst mér, hvað þá skilja eftir skilaboð eða svívirðingar, nema maður sé sjálfur á Moggablogginu. Ég fer stundum í leikinn Orðasnakk í símanum mínum og raða saman orðum úr stöfum sem koma upp, ekki í réttri röð, auðvitað. Orðið grænn getur verið rétt orð, líka fallegur en alls, alls ekki orðið græn eða falleg, almáttugur minn ... kellingaorð, oj! Já, þetta pirrar mig. Já, ég veit að þetta er algjört smáatriði í stóra samhenginu.
Annar hópur í uppáhaldi er mjög fyndinn sem bendir samt á eitthvað sem er ekki fyndið, eða hversu margar konur heita Dóttir, Tengdadóttir, Eiginkona eða Systir í fjölmiðlum. Dæmi: Systir Karls Bretaprins giftist lífverði sínum ...
Það er gaman að vera í nördahópum, t.d. um vita, eldgos og bækur, en ég er of mikil tepra til að þora í mest spennandi hópana, ástir og ástríður, eftir átakanlega reynslu mína af einkamal.is fyrir tveimur áratugum, þar sem m.a. Kanar af Vellinum (21 árs, sjö saman (eða 5, er farin að kalka)) þráðu að kynnast eldri konu (ég var rétt fertug), ég sem hafði skráð mig á vinátta/spjall, (ekki Til í tuskið).
Finndu ástina-hópur var í gangi á Facebook um tíma sl. vetur, eða auglýsing um hann, en vegna þýðingarmistaka (eða stofnendurnir 14 ára) gekk ekkert að lokka okkur fimmtugu eða sextugu gellurnar inn. Við lítum fæstar á okkur sem aldraða öldunga (sjá mynd, ýtið á hana til að sjá textann).
Ég spurði Hildu systur hvort þetta gæti kannski verið eitthvað fyrir mömmu, hún var ekki viss.
Nú er örugglega hópur fólks (stofnendur síðunnar) úti í heimi sem klórar sér undrandi í kollinum yfir öllum náttúrulausu kerlingunum á Íslandi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.5.2021 | 23:48
Fullkomnir leikhúsfélagar ...
Samkvæmislíf sumarsins er að komast á fullt. Nokkrir sem ég þekki eru fullbólusettir, aðrir hamingjusamlega hálfbólusettir og enn aðrir bíða spenntir. Mér er boðið í bröns á laugardaginn og það er eitthvað það mest spennandi sem hefur gerst síðan á bolludaginn sem einn frændi minn kallar alltaf daginn minn. Ég er harðákveðin í því að halda afmælisveislu (62 eða 63) í ágúst, sem í raun boðar í hvert sinn upphaf samkvæmislífs vetrarins. Það er allt að komast í lag hægt og rólega - nú er búið að bólusetja sex hundruð milljón manns á heimsvísu. Húrra!
- - - - - - - - - - -
Ég get ekki sagt að ég sé dugleg að fara á viðburði, eins og tónleika og leikhús. Fór þó árið 2019 á tónleika með Dúndurfréttum hér á Akranesi. Þegar fjallið (ég er ekki að segja að ég sé feit) kemur ekki til Múhameðs (Reykjavíkur) koma Dúndurfréttir til mín. En ég fer sama og ekkert í til dæmis leikhús í Reykjavík, strætóferðir á milli landshluta hjálpa ekki mikið til - það þyrfti að vera leikhús í Mjóddinni til að slíkt gengi upp. Var duglegri í gamla daga þegar ég bjó í bænum.
Ég man mjög vel eftir því þegar ég fór með vinafólki að sjá Hellisbúann (fyrir aldamót). Við vorum sennilega eina fólkið sem ekki grét úr sér augun af hlátri eða veinaði úr sér vitið þarna í salnum. Við sátum þarna grafalvarleg þrjú saman, aftarlega niðri, fyrir miðju, hvert með sínar hugsanir, og fórum síðan á bar þar sem við bárum saman bækur okkar. Alls ekki í fýlu. Þetta var dásamlegt kvöld.
Þetta voru nú meiri staðalímyndirnar, fjasaði ég og tók mér sopa af Beilís, ég hata búðaráp og þekki svo marga karla sem ekki njóta þess að horfa á fótbolta, drekka bjór og grilla allar helgar, eins og ég sagði þeim.
Já, ég þoldi ekki meðferðina á okkur karlmönnum, við komum út eins og algjörir fávitar, sagði vinurinn sár á svip, annálað góðmenni sem er svo góðlegur á svipinn að þótt hann vinni þannig vinnu að hætta sé stundum á að hann sé barinn, hefur hann aldrei verið barinn.
Hugsa sér, það er einn leikari, fábrotin sviðsmynd og fátt starfsfólk, sagði vinkona okkar og velti hvítvíninu í glasinu, miðinn kostar xxx krónur, það er sýnt nokkrum sinnum í viku og alltaf uppselt, leigan á Gamla bíói sennilega nálægt xxx krónur. Þetta er virkilega snjallt og klikkaður gróði, hélt hún áfram. Við hin höfðum ekki hugsað út í þessa hlið mála og samsinntum henni. Ég man ekki mikið meira, enda 22-25 ár síðan.
Við höfum því miður ekki farið saman í leikhús síðan, ýmissa ástæðna vegna - en við erum hinir fullkomnu leikhúsfélagar sem ættum að fara oftar saman í leikhús, kannski á tónleika og myndlistarsýningar líka, og kryfja til mergjar allar hliðar mála.
Sáuð þið hvað ramminn var skakkur á stóra verkinu þarna á suðurveggnum?
Ha, hvað er suður?
Svakalega var söngurinn aftarlega.
Skál!
Samt alls ekki allt neikvætt, það er unun að tala til dæmis um fagran söng eða hljóðfæraslátt, sexí hljómsveitargæja/-píur (píur fyrir vininn) en við erum öll á þeirri línu að meiri fatnaður standi fyrir meiri þokka, engar teprur samt, þannig að gæi í kuldagalla myndi koma okkur vinkonunum í stuð en nú harðgiftur vinur okkar pælir sennilega lítið í slíku, held ég.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.5.2021 | 22:35
Grímur sem stjórna ...
Eðlileg spurning á þessu heimili: Það er til Egg Benedict, er þá til Egg Guðríður Haraldsdóttir? Í svipuðum flokki og Var Akrafjallið / bílar / rafmagn til þegar þú varst lítil? Mér finnst það bera vott um sérlega gott uppeldi að drengurinn skuli vita hvað Egg Benedict er.
Við fórum saman á Galito um hálfsexleytið, hann langaði í nautakjöts-eitthvað, ég var með hakk á kantinum og ætlaði að gera lasagna. Hann féll nú samt fyrir Bernés-borgara ... aftur. Samt hafði ég mælt með nautasteikarlokunni sem ég smakkaði eitt árið og er enn á matseðlinum. Ég fékk mér fisk, ljómandi fínan.
Við sátum í miðjum salnum, bæði með bert bakið svo mér leið allan tímann eins og einhver með hníf væri í þann veginn að fara að myrða mig, sennilega reynsla úr æsispennandi fyrri lífum (djók) og það skemmdi svolítið steminguna. Það er einhver njósnari í mér, Bond-tilfinning sem veldur því að ég vil sitja með bakið í vegg til að geta varist þegar hættu ber að höndum.
Svo fórum við í sjoppuna á heimleiðinni þó að mig hefði miklu frekar langað í eftirrétt á Galito, það gleymdist að kaupa nammi fyrir helgina. Ég finn svo vel hvað gríman gerir mann eftirlátan og undirgefinn vegna súrefnisskortsins, ekki bara gagnvart stjórnvöldum sem vilja auðvitað hafa okkur stillt, heldur einnig fósturbarni sem langaði í nautakjöt og svo nammi, en líka afgreiðslufólki í sjoppum. Er það þá komið? spurði stúlkan og þótt mig langaði í fullt af nammi í viðbót sagði ég hlýðin: Já, takk. Nú er eins gott að orða spurningar til mín rétt því ég segi JÁ við öllu. Ég væri enn í sjoppunni ef hún hefði sagt aftur og aftur: Eitthvað fleira?
Mig dreymdi vondan draum í nótt sem ég vildi að ég hefði gleymt en vinkona mín kann að ráða drauma og sagði hann vera fyrir góðu, ég ákvað að trúa því. Kannski tengist hann spennandi atburðum í sumar ...
Við Hilda erum farnar að undirbúa helgarferð norður á land nú í júlí (barnlausar) og ég er strax búin að pakka niður g-streng og náttfötum sem eru auðvitað ekkert annað en Chanel no 5. Við gistum eina nótt á Sauðárkróki ... og til að gera þetta enn meira spennandi má lesa um rest á Tinder-reikningnum mínum sem verður stofnaður korter í ferðalag. Við systur verðum reyndar saman í herbergi sem skemmir veiðarnar eitthvað, þarf að endurhugsa þetta aðeins og plana betur nú í vikunni. Þetta verður alveg örugglega spennandi ferð ef ég þekki hana systur mína rétt.
En ég mun segja frá öllu í smáatriðum hér á blogginu sem þá stendur loks undir nafni sem djarft blogg sem engu eirir, ekki einu sinni kaffi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.6.): 10
- Sl. sólarhring: 30
- Sl. viku: 879
- Frá upphafi: 1528873
Annað
- Innlit í dag: 10
- Innlit sl. viku: 729
- Gestir í dag: 10
- IP-tölur í dag: 10
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni