Færsluflokkur: Bloggar

Að gosstöðvum í gullstól ...

MæðradagurinnÉg gladdist yfir því sem kom fram í fréttum að leggja eigi betri veg til að auðvelda eldra fólki, hægfara fólki eða letipúkum eins og mér sem fara í ræktina en nenna samt ekki að erfiða í marga klukkutíma til að berja gosið augum. Ekki eftir að eina vinkona mín sem er með sixpakk nærri dó við að fara. Eina sem ég þarf samt að vita er hvaða (hvaðan) kaffi kvennadeild slysavarnarfélags Grindavíkur er með í gosbúðinni. Sennilega Kaffitár ... enda af Suðurnesjum. Það væri nú vel valið.

Það endar vonandi með því að hægt verði að fá burðarmenn, alltaf gaman að sitja í gullstól (sem tveir sterkir og myndarlegir menn búa til með því að flétta saman höndum). Ég þori alls ekki að lesa Eldana eftir Siggu Hagalín fyrr en ég er búin að fara. Það gerist víst eitthvað svakalegt í bókinni þegar búið er að auðvelda ferðafólki aðgang ...  

Nú eru tvö tímafrek verkefni frá og mér finnst ég hafa tíma fyrir hvað sem er núna. Þarf að kaupa suðusúkkulaði á morgun og mögulega baka áðurnefnda úr fyrri bloggum, Nammi, nammi, gott, gott. Fóstursonurinn fékk sérkennilegan glampa í augun þegar ég sagði honum frá þessari köku. Þarf líka að fara í hraðbanka - það verður spennandi skólaferðalag á miðvikudaginn en annars eru bara tvær vikur eftir í skólanum. Mikið ofboðslega er ég hrifin af Fjölbrautaskóla Vesturlands, starfsbrautin þar er að minnsta kosti algjört æði - og mötuneytið og allt starfsfólkið. Drengurinn er stórhrifinn. Hann fer í tveggja vikna sumarbúðir í lok maí og svo er það garðyrkjuvinna í sumar - einhver verður að vinna fyrir heimilinu! 

 

Glefsur:

SjónvarpsglápObama-forsetafjölskyldan var að missa Bo, heittelskaðan heimilishundinn. Forsetinn setti það á Facebook-síðu sína fyrir 5 klst. og þegar eru komin 155 þús. samúðarkveðjur, 1,3 millj. ástartjákn og 52 þús. deilingar.

Mjög ofmetið útvarpsefni að leyfa hlustendum að hringja og tala og tala og fá óskalag ... afsakið geðvonskuna - veljið betri óskalög (Black Sabbath, Radiohead, Abba, Wu Tang Clan, Eminem, Björk osfrv,)

Facebook var rifja upp með mér beiskufulla færslu mína um fatabúð sem seldi allar stærðir og auglýsti til að gleðja okkur ljótu, feitu kúnnana sína: Fegurðin kemur innan frá. Hversu misheppnað, búðin líka löngu farin á hausinn.

Mér tókst að horfa á RÚV frá fréttum og fram yfir fyrri bíómynd kvöldsins sem var bráðskemmtileg. Vel gert, ég horfi annars bara á eldgosið. Gat ekki horft á þá seinni, Fatal Attraction, óttast að ég finni mér giftan elskhuga, myrði kanínuna hans, hóti konu hans og bjóði barninu í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn - af því að ég er útivinnandi, metnaðarfull kona sem nýtur velgengni - í stað þess að vera hamingjusöm húsmóðir og eiginkona. Bíómyndir geta haft ótrúleg áhrif. Ég hef ekki týnt fjarstýringu síðan ég sá Sódómu Reykjavík og varla tekið frí síðan ég sá Stellu í orlofi. 


Bólusetningaröfund - og uppskrift að perutertu

Venjulegt fólk vs fávitarÁ þessum skrítnu tímum hafa orðið til nokkur ný orð um leið og eldri orð hafa orðið ansi vinsæl. Nýtt orð sem ég heyrði í gær er „bólusetningaröfund“ en nokkuð margir virðast þjást af henni. Þá langar í bólusetningu strax! Skiljanlega. Ég skil það vel. Í dag er ég fegin því að hafa ekki fengið Janssen-bóluefnið vegna aukaverkana sem eru ekki bara „man flu“ ef ég skil þetta rétt. Eitt sem ég skil ekki, það eru þeir sem finna bóluefnum allt til foráttu og hvetja fólk til að sleppa bólusetningu ... eins og að hvetja fólk með krabbamein til að þiggja ekki krabbameinslyf ... ó, fólk gerir það líka, alveg rétt. Var það ekki spínat eða spergilkál sem er allra meina bót? Eða var það túrmerik með svörtum pipar? Hann trúði því alla vega, hann þarna stofnandi Apple ... og steindó.

Ég er hamingjusamlega hálfbólusett, eins og Anna vinkona orðar það. Því fyrr sem allir / flestir hafa fengið bólusetningu, þeim mun fyrr getum við um frjálst höfuð strokið (Bill Gates má samt alveg eiga mig, ekki síst núna eftir síðustu fréttir ...).

Kona sem ég þekki dæsti mæðulega yfir því að maður hennar hefði fengið bólusetningu í Höllinni á sama tíma og Guðni forseti - á meðan hún var bólusett í félagsskap Brynjars Níelssonar! Brynjar er myndarmaður, skil ekki kvartið í henni, en hann ætti vissulega að halda sig við að vera bara sætur. Ég er afar sátt við að hafa verið í sama hópi og Tommi bílstjóri og Peta og á sama degi og Bubbi Morthens og öll fengum við Astra Zeneca.

- Beðið um uppskrift

Það er allt að verða brjálað á blogginu mínu, að minnsta kosti ein manneskja hefur beðið um uppskriftina að Nammi, nammi, gott, gott-tertunni sem gerði æsku mína bærilega á stundum. Hilda systir hefur stundum bakað hana (býður mér samt ekki alltaf) og hún var upptekin við að verða FULL ...-bólusett (eins og hún orðaði það sjálf) í morgun þegar ég reyndi að skæla uppskriftina út úr henni.

Ég komst að öðru ömurlegu leyndarmáli sem mamma „steingleymdi“ að segja mér þar til ég fékk uppskriftina í kökublað Vikunnar, eða að það væri döðlumauk í uppskriftinni en margt fyrirgafst vegna MÁ SLEPPA sem fylgdi líka. Ég treysti því að mamma hafi sleppt döðlumaukinu alltaf! 

 

Nammi, nammi, gott, gott

fyrir einn

 

1 glasatertubotn (sjá uppskrift neðar)

súkkulaðikrem (sjá uppskrift neðar)

perur í dós, eftir smekk

 

Glasatertubotn (eða hvítur svampbotn á google.is)

áhöld: 3 jafnstór glös og það á að vera jafnmikið í hverju glasi, eggin stjórna magninu.

1. glas: 3 egg

2. glas: sykur, jafnhátt upp og eggin

3. glas: 2 msk. kartöflumjöl, 2 tsk. lyftiduft og fylla upp með hveiti (Munið, jafnhátt í öllum glösunum)

Þeytið saman eggin og sykur þar til létt og ljóst. Bætið þurrefnum út í og blandið saman við. Setjið í smurt form og bakið við 180°C.

 

Krem

3 dl þeyttur rjómi

70-100 g súkkulaði (suðusúkkulaði sennilega)

3 eggjarauður

1 msk. sykur

2 blöð matarlím (má sleppa)

 

Þeytið saman sykur og eggjaraður, bræðið súkkulaði, kælið það og blandið út í. Síðan matarlímsblöðunum (hvernig sem farið er með matarlím en það má sleppa þeim sem verður til þess að þessi kaka verður bökuð næst þegar ég man eftir að panta suðusúkkulaði úr Einarsbúð.

Botninn orðinn kaldur, kremið tilbúið og búið að opna perudósina, þá:

Samsetning

Bleytið botninn með perusafa og ef þið hafið lyst á að nota döðlusultu / -mauk er það hér, eða að smyrja því á botninn. Raðið síðan perubitum ofan á og setjið þá kremið yfir. Fallegt að skreyta með rjóma og perubitum. Eða eins og danskurinn myndi orða það: pyntið með rjóma og perubitum. (Ef þið notið döðlumauk mæli ég með maukinu hennar Önnu Mörtu, fæst í Hagkaup, hjá Fiskikónginum og víðar - hún er líka með grænt pestó, það besta sem ég hef á ævinni smakkað).

Verði ykkur að góðu.

P.s. Ef einhver heimsækir mig um helgina ætti hann að koma með suðusúkkulaði og ég skal baka Nammi, nammi, gott, gott!

 


Leyndarmál afhjúpað

Peruterta a la AlbertKlukkan var enn sjö eitthvað í morgun þegar ég var komin með kaffi í bolla, búin að búa um, setja í þvottavél ... nú er aldurinn aldeilis farinn að láta vita af sér, magnað, frábært. Það er frekar fúlt að vera alveg að verða kona á mínum aldri (Hæ, Krabbameinsfélag) og þurfa samt að sofa til tíu hið minnsta. Loksins eru kostir hækkandi aldurs farnir að tikka inn. Kannski sofnaði ég frekar snemma í gær, en samt! Kannski er ég að verða búin að bæta mér það upp að hafa þurft að vakna um og fyrir klukkan sex árum saman til að ná fyrsta strætó í bæinn. Kannski.

Skilst að afmælið hennar mömmu hafi gengið alveg ágætlega í gær og minntist á í bloggi gærdagsins atvik sem ég hef ekki enn þorað að viðurkenna fyrir henni. En það er nú alveg eitt sem mamma viðurkenndi ekki fyrir okkur börnum sínum fyrr en við vorum komin vel á fimmtugsaldurinn og við erum enn í sjokki. Ég var farin að vinna hjá Vikunni og var falið að finna fimm aðila til að baka og gefa uppskrift í kökublaðið. Mér datt mamma í hug, athuga hvort hún vildi eða tímdi að gefa uppskrift að Nammi, nammi, gott, gott-tertunni sem auðgaði æsku okkar systkina sem vorum eins og litlu börnin með eldspýturnar, í huga sumra, af því að við áttum útivinnandi mömmu. Hvítur botn, vættur í perusafa, súkkulaðifrómas (sem mamma kallaði frúmas) og perur úr dós. Þessi terta var bökuð og borin fram um jól og páska, ekki mikið oftar en það, og var algjör spariterta. Ég vissi ekki um neina aðra sem fengu Nammi, nammi, gott, gott, svo sérstök var þessi draumaterta æsku minnar. Ég var ekki einu sinni með uppskriftina, hef aldrei kunnað að búa til frómas. (Myndinni rændi ég af Albert eldar, en Albert er einn allra mesti kökusnillingur í heimi, jafnvel þótt hann noti stundum hnetur, möndlur, döðlur og rúsínur ...) 

Mér til gleði var mamma alveg til í að deila uppskriftinni að Nammi, nammi, gott, gott, hún bakaði hana og svo kom Gunni ljósmyndari og myndaði bæði tertu og bakara og ég þurfti svo að taka stutt viðtal við mömmu. Þar kom sitt af hverju athyglisvert fram, eins og setningin sem er sem brennd inn í heilabörkinn á mér: „Þetta er nú bara venjuleg peruterta þótt ég hafi ekkert verið að segja börnunum mínum frá því.“ Og þetta flokkast undir enn eitt bernskuáfallið, sjokkið. Hitt stóra dæmið var að fá ekki að taka nema tvær bækur á dag í Bókasafni Akraness ... þessu helgasta musteri minninga minna (afsakið klisjutilgerð en bókasafnið var uppáhaldsstaðurinn).

 

Gos og varðskipGetur eldgos orðið hversdagslegt? 

Ég er eiginlega hætt að horfa heilluð og stjörf yfir hafið, á eldgosið, þetta er orðið að eðlilegum hlut að hafa gos handan við hlaðið; að hafa þetta í sjónvarpinu og sjá út um gluggann í góðu skyggni, alveg jafnhversdagslegt og að hafa drepsótt í gangi í heiminum, að þurfa að ganga með grímu ... Það er greinilega hægt að venjast öllu.

Mér finnst samt enn mjög merkilegt að lifa þessa tíma, fyrsta eldgos á Reykjanesskaga í mörg hundruð ár - fyrsta hræðilega drepsóttin á heimsvísu í 100 ár.

Brjálæðislega tilbreytingarlaus skólaár í barnæsku þar sem ekkert mátti gera sem hefði mátt líta á sem skemmtilegt nema fara í ljósatíma hjá skólahjúkkunni (sjá nýlega, átakanlega bloggfærslu) hefðu átt að kenna manni að gleðjast lengi yfir gosi eða pest, vera góður undirbúningur í raun upp á að geta glaðst lengi yfir öllu. Aumingja gosið hamast við að breyta sér, er til dæmis núna að reyna að líkja eftir Geysi. Boring.


Fimmti maí

AfmæliMamma á afmæli í dag, orðin 87 ára sem er ekkert miðað við t.d. Filippus drottningarmann (99), eða drottningarmóður sem varð rúmlega 100 ára. Það er almennt langlífi í ættinni (já, við erum skyld bresku konungsfjölskyldunni) og mamma eldhress, bauð upp á snittur og súkkulaðiköku - en því miður var ég föst á Skaganum í vinnu, henni var nær að eiga ekki afmæli um helgi.

 

Margir góðir eiga afmæli í dag, eins og Tommi bílstjóri, og einnig annar maður sem fæddist 5.5 1955 (kt. 050555-) og týndi veskinu sínu snemma á áttunda áratug síðustu aldar, sirka 1972-1973 - og ég fann það. Vitið þið hvað það var mikið vesen að finna ókunnuga manneskju á þessum árum, þótt maður hefði nafnnúmer viðkomandi? Ekkert Internet, bara heimasímar. Einhverra hluta vegna datt mér ekki í hug að skella veskinu inn á miðbæjarstöð lögreglunnar. Þetta var myndarlegur maður, eldgamall að vísu, og bara spennandi að reyna að finna hann - og það tókst!

 

Ég fékk aðstoð vinkonu við að afhenda veskið. Ég man ekki einu sinni nafn mannsins, bara tölurnar hans. Eins og áður hefur komið fram man ég flest póstnúmer, mörg símanúmer og þekki bíla í sundur á bílnúmerum, ekki lit eða tegund. Gæti þó ekki þulið upp bílnúmerin sem ég þekki þótt ég yrði pyntuð - þekki þau bara þegar ég sé þau. Afhendingin fór fram niðri við höfn, ég veit, furðulegt, sennilega hættulegt, en ungi maðurinn var sjómaður. Mig minnir að ég hafi talað við hann í síma og hann beðið mig um að koma með það að skipinu/bátnum.

 

 

Ég þorði ekki að segja mömmu frá þessu, hún hefði bannað mér að fara. Í bókum sem ég las af áfergju var svonalagað ávísun á að láta sjanghæja sig, ræna sér í til dæmis uppvaskið um borð, en á þessum tíma kunnu karlar á flest annað en uppþvottabursta. Mig minnir að við höfum farið um borð, að enginn af áhöfninni hafi verið þarna nema hann og þess vegna þorðum við. Hef svo bara séð Herjólf að innan (1974), Akraborgina (196x - 1998) og Norwegian Epic (2018) svo ég hef aldeilis migið í saltan sjó. Stefni alltaf á að komast með Norrænu til Færeyja, Danmerkur en það vex mér í augum að koma mér alla leið til Seyðisfjarðar. Ég er hreint ekki viss um að strætó gangi þangað.


Þar sem kaffið er gott ...

ViðbrögðVeit um unga konu sem fór á sóttkvíarhótel í fimm daga. Eitthvað var hún ósátt við þessa „fangavist“ fyrirfram en ákvað svo að taka jákvæðnina á þetta. Líta á þetta sem ljúft frí, fara í stöku göngutúra og njóta þess svo að slaka á, liggja í freyðibaði með reyfara í hönd, horfa á Netflix og gera það sem hún hafði sjaldan haft samvisku til að gera, eða að liggja í algjörri leti.

 

Henni fannst maturinn á hótelinu virkilega góður svo hún skrifaði sæt þakkarskilaboð til eldhússins eftir hverja máltíð ... og viti menn, síðustu tvo dagana fékk hún alltaf tvo eftirrétti í stað eins, sem þakklætisvott fyrir falleg orð. Hún sagði að þetta hefði verið frábær tími sem endurnærði hana á sál og líkama. Þetta var ekki útdráttur úr nýrri bók um Pollýönnu - en viðhorfið skiptir greinilega heilmiklu máli.

 

Ég er enn að reyna að upphugsa leið til að komast í fimm daga vist á svona hóteli ... en kem ekki auga á neinn möguleika í stöðunni. Við Hilda systir erum reyndar að hugsa um að skreppa norður yfir langa helgi nú í sumar, föstudag til mánudags, sem yrði sennilega eina alvöruferðalag sumarsins, nóg við að vera hér á Akranesi og í bænum. Eða á Flúðum jafnvel.

 

 

Hvar er gott að gista þar sem fæst líka gott kaffi - er þá líka að meina kaupstað, kauptún? Við fundum ágætt kaffi víða á sjálfri Akureyri, í Listasafninu í Gilinu, í Hofi, Sykurverki en það allra, allra besta var á Siglufirði, í súkkulaðigerðinni sem ég man ekki hvað heitir ... Fríða? Við vorum á hraðferð í gegnum Krókinn í fyrra og fundum bara vont kaffi þar (sömu sortina á fjórum stöðum, ég er Skagfirðingur, má skammast!) en ég veit ekki hvað hefur eiginlega gerst þar, eða þá við Þjóðveg 1 á leið norður, kaffibreytingar eins og eldur í sinu.

 

Hótel RjúkandiKannski ættum vér systur bara að fara á Snæfellsnesið - það er svoooo gott kaffi á Rjúkanda (áður Vegamót) og þess virði að fara sérferð bara fyrir einn lattem, jafnvel með strætó bara þótt það kosti að sofa úti eða eitthvað eða ganga heim.

 

 

Kaffið þar er frá Kaffibrugghúsinu úti á Granda í Reykjavík. Fann það út eftir rannsóknarvinnu ... eða fyrirspurn á Facebook-síðu Rjúkanda. Mig minnir að maturinn hafi verið mjög góður en ég man samt miklu, miklu betur eftir kaffinu ... 


Stóri brandarinn - eina tilbreytingin

Ungur Stephen KingUm daginn heyrði ég auglýsingu í útvarpinu: Kína túra, eða Kínatúra, jafnvel Kína-túra og skildi ekki hvað verið var að auglýsa. Svo áttaði ég mig ... Key Natura sem er hollustu-eitthvað, held ég - en það skiptir svakalega miklu máli hvernig auglýsingar eru lesnar. 

Einu sinni fékk nokkuð vinsæl hljómsveit hér á landi ekki að auglýsa tónleika (ball?), RÚV harðneitaði að lesa hana upp og Mogginn að birta hana - af því að nafn hljómsveitarinnar var svo óviðeigandi, svo dónalegt. Jú, þetta var hljómsveitin Sjálfsfróun. Nú þurfti að leggja heilann í bleyti, og loks kom einhver með lausnina ... og það var hljómsveitin Handriðið sem spilaði einhvers staðar eða lék fyrir dansi. Dásamlegt.

Stóri brandari æsku minnar var þegar þulurinn í útvarpinu mismælti sig, sagði óvart: Foreldrakjöt, foreldrakjöt i heilum og hálfum skrokkum ... Hugsa sér hvað lífið var leiðinlegt, alla vega tilbreytingarlaust, þegar þetta var það fyndnasta af öllu fyndnu. Jú, það var sérlega gaman að heyra nafnið sitt í útvarpinu þegar ferðir flugvélarinnar Guðríðar Þorbjarnardóttur komust í fréttir

Ekki skrítið að maður hafi flýtt sér að læra að lesa til að upplifa bara eitthvað. Bækur voru samt margar svo hræðilega fullar af boðskap að það var ekki fyndið. Fátækt fólk var gott, ríkt fólk var flest mjög vont og var sko alls ekki hamingjusamt þótt það ætti fyrir reikningunum sínum, þá væri nú betra að vera fátækur ... og aðeins guðhrætt fólk var gott fólk. Hreint hús ... það voru auðæfi fátæka fólksins og ég var næstum fallin fyrir því, sátt við að vera fátæk í hreinu húsi, hjarta mitt var að minnsta kosti hreint ... en svo kom peningagræðgin upp í mér þegar ég var orðin fullorðin og kaus að vera ekki fátæk og sæl, heldur rík og sæl, eða sæmilega rík og sæl, en það er enn í framkvæmd, áratugum seinna. Samt, þegar ég horfi á Bold and the Beautiful og sé hvað ríka fólkið er óhamingjusamt ... 

 

Það var sterk innræting í mörgum af þessum bókum; Leyndarmál Winthers gamla - Blómakarfan - Pollýanna ... og alls ekki slæmt að kenna börnum að vera heiðarleg og góð við menn og dýr, en að fátækir ættu að sætta sig við molana sem féllu af borðum þeirra ríku og svo framvegis hefur aldrei verið mér að skapi. Kannski er ég bara bölvaður kommi.

Á árabát í KaríbahafiÉg man hvað ég þráði tilbreytingu, horfði oft út um ganggluggann í skólanum, þar sem sást til norðurs, að Snæfellsjökli, og dreymdi um árabát svo ég gæti róið út í buskann, það var allt betra en þetta. (Draumurinn rættist löngu síðar, sjá mynd, ég komin í bát og meira að segja með bæði kaffi og bók). Samt var ég alls ekki þunglynd, fannst bara að lífið hlyti að bjóða upp á eitthvað meira en þetta. Stappaði niður fótum þegar mamma sagði að lífið væri ekki dans á rósum, og sagði að maður ætti að reyna að láta það vera þannig, rósum án þyrna samt. Og hálfri öld síðar, í öllu framboðinu af tilbreytingu, er ég hætt að nenna að horfa á sjónvarp, nema frá gosstöðvunum og fréttir - en ég hlusta enn mikið á tónlist og les líka mjög mikið. Svo mikið að ég hef frestað ellifjarsýni minni um 20 ár, les mikið án gleraugna sem heldur víst augunum í þjálfun.

Það allra mest spennandi í skólanum var þegar maður fékk að fara í ljós, mátti fara úr miðjum tíma jafnvel. Ég reyndi að vera aumingjaleg á svipinn, eins veikindaleg og ég gat, þegar Jóna skólahjúkka skoðaði krakkana í bekknum og valdi úr þá sem þurftu extra D-vítamín. Þótt kirkjan haldi því fram að það sé eldgamall siður að skólabörn fari í kirkju fyrir jól er það ekki rétt, ég er ekki eldgömul og ég fékk aldrei að fara neitt (ekki heldur sonur minn, f. 1980). Ég hefði orðið hrikalega ánægð með að einn dagur yrði brotinn upp og við fengjum að fara í kirkju, bara eitthvað út úr skólanum. Útrásina fyrir að kynnast trú fékk ég þegar ég tölti mér stundum á samkomur hjá KFUK, hjá Kristrúnu, en það var mjög öflugt trúarlíf í gangi á Akranesi, fyrir utan skólana.

Undir lokin á skólagöngu minni í Barnaskóla Akraness bryddaði elskan hann Rögnvaldur sem kenndi okkur síðustu tvö árin, upp á byltingarkenndri kennsluaðferð í landafræði. Við nemendur hans (um 30 alls), 3-4 í hóp, fengum úthlutað einu landi, áttum að teikna það upp á stórt spjald og lita það, standa síðan fyrir máli okkar, með kennaraprik í hönd, sýna t.d. höfuðborgina og allt það merkasta við landið - og landafræði breyttist í uppáhaldsfagið um tíma. Hjálmar teiknikennari var reyndar annar svona frábær kennarinn, eitt sinn langaði mig að teikna húsin sem sáust út um gluggann á stofunni og fékk leyfi til þess, slíkt var nánast algjört einsdæmi. Maður átti að sitja kyrr. Myndin varð ógurlega flott en týndist því miður í flutningunum til Reykjavíkur ... eða „týndist“.


Sunnudagsklúbbur um morð

Bara fyndinFínasta helgi búin, og hún fór nánast eins og hún átti að fara eða; Föstudagur: baka súkkulaðiköku, Hilda í heimsókn, borða kvöldmat á Galito, drekka eitt rauðvínsglas, skandalísera, bönnuð á Galito, kveðja Hildu, lesa, lesa, sofa. Laugardagur: Vakna, borða kornfleks, lesa, lesa, lesa, vinkona í heimsókn, fara með henni á Galito að borða kvöldmat, þekkjast ekki á Galito vegna grímu, drekka Pepsí með matnum, kveðja vinkonu, lesa, lesa, sofa. Sunnudagur: Vakna, borða skyr, lesa, lesa, fá vinkonu í heimsókn, fara ekki á Galito, spjalla um spennubækur í tvo tíma, borða jarðarberjatertu sem hún kom með með góðu kaffi, kveðja vinkonu, lesa, lesa, horfa á eldgos út um gluggann til hægri og kíkja á eldgos í sjónvarpinu, lesa, blogga, lesa, lesa, fara að sofa á miðnætti.

(Efri myndin: Ég horfði ekki á einn einasta fótboltaleik um helgina!!!)

 

Ég sakna alltaf sunnudagskvöldanna hjá Önnu vinkonu á Álftanesi, þar sem við hittumst nokkrar vinkonur vikulega ... á síðustu öld. Góð músík (skrítin, alltaf skemmtileg) og fjölbreytileg umræðuefni. Svo fluttu 3/5 af upprunalega hópnum til útlanda (ég bað í alvöru þáverandi forsætisráðherra (SH) í virðulegu nýárspartíi um að stöðva þá vinkonu sem flutti til Bretlands, en æðsti maður landsins (var Samherji nokkuð kominn þá?) kom engu tauti við hana. Löngu seinna flutti svo 1/5 á Skagann. Væri meira en til í að vera í sunnudagsklúbbi, t.d. kl. 16-18 aðra hverja viku og töluðum um morð og aðra glæpi í bókum, gott kaffi og jarðarberjaterta á borðum. Gaman að fá löggu í klúbbinn, lyfjafræðing (sem getur reddað sannleikslyfi svo löggan segi eitthvað djúsí) og bara alls konar. 

- - - - - -  

Ég hef litlu sambandi náð við mávana í ár. Þeir bjóða mér ekki blíðlega góðan daginn þegar ég kem með opinn faðminn út á svalir ... djók, ég er ekki svalatýpan sem faðmar sólina, frekar hið gagnstæða, (hangi á bílastæðum, í skugga).

JónatanJónatan mávur, gamli vinur okkar Einars, settist á svalahandriðið þegar hann langaði í brauð en ef ég fer með eitthvað í brekkuna við þyrlupallinn (á hlaðinu á himnaríki) greini ég engan sérstakan áhuga. Ég nenni ekki að skreyta matinn sem ég gef þeim.

Þeir eru nú samt vanmetnir mávarnir, manni var kennt/innrætt að fyrirlíta þá af því að þeir voru ekki jafnsætir og lóur eða svanir - en hver man ekki eftir forsíðumynd í Mogganum eitt árið þar sem fagur svanur var að gæða sér á æðarunga á Reykjavíkurtjörn? Svanir myrða án nokkurrar miskunnar, ráðast meira að segja á lömb!

 

Sjokkerandi, en samt er okkur innrætt að svanir séu góðir en mávar ekki. Ég á kisur en sumir verða steinhissa þegar ég segi þeim að ég sé mikil hundamanneskja, væri sennilega með hund ef ég byggi ekki á 3,5. hæð ... Finnst hundar alveg jafndásamlegir og kettir.


Stór en samt svo lítill ...

Eldgos fyrir ofan ljósastaurHilda systir kom til mín í gær sem var æði eins og alltaf. Og í gær upplifði ég enn og aftur hvað það er gott að búa á stað eins og Akranesi sem er bæði svo lítill og svo stór (bráðum átta þúsund íbúar - hæ, vantar dýralækni!).

 

Ég dró Hildu með á lagerhreinsun tveggja verslana, Módels og Hans og Grétu, og gerði ansi góð kaup. Eins og glöggir lesendur bloggsins vita hata ég búðaráp en það þarf líka að vera skynsamur í þessu nokkuð dýra landi, hmmm. Fékk virkilega töff sumarjakka á drenginn (7.500 kr. samt merkjavara) og lítinn hitamæli í kjöt (á 100 kall eða álíka).

Til að gera endurskoðandann ekki snarvitlausan bað ég um nótu á kennitölu vegna jakkans. Það var ekki hægt að fá slíka nótu á þessum stað, gamla verkalýðshúsinu sem var lagerhreinsunar-húsnæðið, en önnur konan við afgreiðslu kvaðst búa í næsta húsi við mig, hún skyldi skella nótunni í póstkassann hjá mér. Ekki kom þó til þess því bæði okkur Hildu og þessari konu hafði dottið í hug að fá sér í svanginn á Galito, svo nótan var bara afhent þar. Svona er að búa á Akranesi ... 

 

Er að hamast við að klára ýmis verkefni í dag áður en næsta heimsókn skellur á - og sú vinkona sem hingað kemur lýsti því yfir að hana langaði að fara með mér á Galito ... svo ég fæ eflaust titilinn GÓÐKUNNINGI eða FASTAGESTUR eftir þessa helgi. Alveg sátt við það. Var mjög hneyksluð á Hildu að fá sér pítsu sem innihélt bæði hnetur og döðlur - og hún fussaði yfir mínum mat sem innihélt tómata sem hún hefur ofnæmi fyrir. Samt gekk allt vel, sennilega af því að ég keypti rauðvínsglas með og var orðið góðglöð eftir þrjá sopa, ég veit, ég er hænuhaus. Sennilega hefur hann vitað það, gaurinn í Hollywood (við Ármúla) sem reyndi grimmt við mig og sagði: „Viltu sopa?“ Í dag skil ég ekkert í því af hverju ég móðgaðist yfir þessu.  

- - - - - - - - - - 

Ég er enn oggulítið aum í hægri handlegg, ekki síst ef ég kýli fast í hann, en smávægilegur slappleikinn fyrst eftir bólusetningu miðvikudagsins er bara minningin ein. Ill-hjartaðir vinir mínir (tveir) sem segja hlutina eins og þeir eru ... og sögðu mér miklar hryllingssögur af hroðalegum aukaverkunum, hafa nú alveg þrjá mánuði til að segja mér allt um afleiðingar seinni sprautunnar. Svona er ég alltaf heppin. 


Heimsókn á föstudegi

SpádómarDyrabjallan hringdi. Ég ákvað að láta sem ég heyrði það ekki, dauðskelfd eftir að hafa verið á Facebook. Skömmu seinna var barið að dyrum, einhver hafði greinilega brotið dyrnar niðri, eða hringt hjá fleiri íbúum. 

„Hver er þetta?“ spurði ég. Röddin titraði.

„Þetta er ég, Inga, vinkona þín í næsta húsi,“ var svarað.

„Geturðu sannað það?“

„Æ, Gurrí með einföldu, þetta er bara ég, hvað er í gangi?“

 

Ég opnaði dyrnar og mér til mikils léttis sá ég að þetta var Inga.

„Ég hélt að Bill og Melinda Gates væru að sækja mig. Þau eiga mig. Þau eiga örflögurnar sem sprautað var í mig á miðvikudaginn sem þýðir að þau eiga í mér erfðamengið, í raun hvern blóðdropa, allt DNA-ið, það hafa víst fallið dómar um það í Bandaríkjunum, ég sá það á Facebook áðan,“ sagði ég óðamála.

„Fékkstu ekki AstraZeneca?“ spurði Inga rólega en mér fannst gæta hálfgerðrar öfundar í rödd hennar en það hlaut að vera ímyndun, á ekki fæserinn að vera svo góður?

„Jú!“ sagði ég.

„Held að Gates-hjónin hafi nú bara fjármagnað Pfizer-bóluefnið, svo einhver annar á þig,“ sagði Inga hugsandi og settist við borðstofuborðið. Kettirnir létu ekki sjá sig sem var óvenjulegt þegar Inga kom í heimsókn. Hún hélt áfram, nú allt í einu með ógnandi röddu: „Ég fékk Pfizer ... og mér var falið að sækja þig,“ Hún hló illskulega og ég áttaði mig á því að þetta var í raun ekki yndilega Inga mín, heldur eitthvað annað. „Hjónin vilja fá þig til sín ekki síðar en í kvöld. Þyrlan kemur eftir korter, einkaþotan bíður á Reykjavíkurflugvelli. Þau langar í djúsí steik í kvö-“

„Ætla þau að borða mig?“

„Er ekki allt í lagi með þig? Með öllum þessum örflögum yrði það eins og að bryðja högl.“ Inga hryllti sig og hélt afram: „Þau langar einfaldlega að fá þig í mat, heyra fréttir frá Íslandi og af Íslendingum sem þau eiga svo stóran part í, en því miður ekki þig, þú varst svo fjandi heilbrigð, á réttum aldri og ekki framlínustarfsmaður eða með undirliggjandi. Þú ert líka svo mikill áhrifavaldur á Moggablgginu, fólk er farið að trúa á þig. Ertu ekki farin að fá skyr og páskaegg og svona til að skrifa um?“

 

Ég hristi höfuðið og gat ekki haldið aftur af nokkrum tárum sem runnu niður fagrar kinnar mínar, mjög sléttar miðað við aldur. Þetta var svolítið viðkvæmt, þetta með skyrið.

Inga hélt áfram: „Það er önnur flott kona sem bloggar en hún hefur þegar séð í gegnum allt saman og það fyrir löngu. Hjónin hrifust af sakleysi þínu og trúgirni ... og þau langar líka í spá, taktu tarotspilin með.“ 

„Hei, ég er löngu, löngu hætt ... og sjá í gegnum hvað?“

„Þau vilja þetta og orð þeirra eru lög - þau þurfa sönnun í gegnum spádóm þinn um að heimsyfirráð séu handan við hornið.“

„Já, en hvað græða þau á því að-“ Ég komst ekki lengra.

„Svona spyr maður ekki, bíddu aðeins,“ ég sá á svip Ingu að hún var að rífast við einhvern í huganum. Þessar örflögur eru greinilega soldið sniðugar. 

„Hei, þau vilja víst tala við hina, þeim finnst meira ögrandi að reyna að snúa henni en spjalla við þig, þú ert of vitlaus, finnst þeim, já, og hin kann nefnilega líka að spá.“

„Ég er löngu hætt að spá og maður á ekki að trú-“

„Skiptir engu, áttu kaffi handa mér áður en ég dríf mig með þyrlunni suður?“

„Já, auðvitað.“

„Viltu kannski koma með?“

 

Ég ætlaði að svara neitandi, hef mínum skyldum að gegna, ekki síst við bloggið ... en svo fann ég þægilegan straum aftan í hnakkanum, eins og eitthvað væri að virkjast. Jú, ég vildi fara með. Ég eins og vissi að það væri hið eina rétta. Ég fann líka á mér að ég gæti haldið áfram að blogga með hugarorkunni, þótt ég væri hvergi nálægt tölvu. Á endanum fæ ég skyr til að smakka og skrifa um, ég veit það. Hvernig veit ég það? Þið skiljið það eftir bólusetningu. 

Það kom líka til mín að allt eigulegasta fólkið fær AstraZeneca-bóluefnið. Brátt fæ ég að vita hvert hlutverk mitt verður. Eina sem ég veit er að ég á ekki aðeins að halda áfram að vera sæt, heldur eitthvað annað og meira.


Vafasöm helgarplön

MatarboðSmávegis aumur handleggur eftir bólusetningu gærdagsins, hárrétt að hafa látið sprauta í þann hægri, enda svaf ég eins og ungbarn í nótt, á vinstri að vanda. Finnst fólk á samfélagsmiðlum afar sátt og ánægt með þetta allt saman, hvað það gengur vel að bólusetja og hvað það styttist í að við fáum eðlilegt líf aftur. Veit samt ekki alveg með knúsið - hef aldrei verið mikið í því (nema auðvitað þegar kemur að sætum mönnum, ég fæ reyndar ekki að stíga fæti mínum framar í Guðlaugu á Akranesi, ekki heldur fiskbúðina, vegna ástreitni) - en veit að margir sakna þess. Hlakka líka til að losna við grímuna þrátt fyrir að hún feli hrukkurnar, en spurning um að nota áfram spritt eftir t.d. búðarferðir, fyrst það hefur nánast útrýmt ýmsum smápestum.

Það er rosalega gott að fá bara sent úr Einarsbúð (Kjötborg okkar Skagamanna) og ég mun ábyggilega halda því áfram. Ferðum mínum sem voru þó fáar fyrir hefur fækkað mjög í Costco því það fæst svo margt dót þaðan í Einarsbúð. Núðlurnar, eldhúsrúllur í yfirstærð og fleira en flestu/öllu? í stórum pakkningum hefur verið skipt niður í smærri einingar í þessari dásemdarbúð. 

Það lifnaði yfir skemmtilega jarðskjálfta- og eldgosahópnum mínum (á feisbúkk) undir hádegi í dag þegar fór að skjálfa. Sumir misstu af, aðrir ekki. Hér á Akranesi fannst mjög vel fyrir honum miðað við að hann hafi bara verið 3,8 - fjórir og yfir er eitthvað sem fer ekki á milli mála hér í himnaríki. Þessi hópur er harðlokaður, og það má vera vitlaus þar (ég) og spyrja að einhverju bjánalegu án þess að verða fyrir aðkasti.

Fóstursonurinn verður að heiman alla helgina en ég hef samt ekki planað neitt sem inniheldur tvennuna góðu, brennivín & karlmenn. Það er orðið allt of langt í Skaga-ríkið fyrir bíllausa (rétt hjá Bónus, held ég) svo ég get allt eins komið út úr skápnum sem bindindismanneskja, en það er alltaf auðvelt að veiða karla með augnhárunum, hér við ströndina. En ætli ég hafi ekki nóg að gera ... vinna, lesa, elda, sofa, vinna, fara á Galito, vinna, sofa, lesa ... Já, þetta verður æðislegt!

Myndin minnir mig á að ég held aldrei matarboð - í mesta lagi á jóladag. Kannski breytist það um leið og allt hitt - þegar covid-kvikindið verður bólusett á brott. 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 10
  • Sl. sólarhring: 26
  • Sl. viku: 879
  • Frá upphafi: 1528873

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 729
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Köttur í Hárhorni
  • Köttur í Hárhorni
  • Skálmöld knúsar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband