Færsluflokkur: Bloggar

Hátíð fagmennskunnar

InkedBólusetning_LIKlukkan 13.45 í dag var ykkar einlæg bólusett og G5 virkjaðist þremur mínútum síðar í æðum hennar. Hún talar nú Swahili reiprennandi sem er skemmtileg aukaverkun, líka sú að yfirvöld geta nú fylgst með hverju skrefi hennar um íbúðina sem getur ekki verið leiðinlegt. Tala nú ekki um þegar hún tekur strætóinn sinn í Mjódd og svo til baka með viðkomu í Kópavogi, stundum Costco. 

Ég verð að hrósa Skagayndunum hástöfum fyrir bæði fagmennsku og ljúfmennsku í ÍA-íþróttahúsinu þar sem hátíðin fór fram, auðvitað fékk ég að ráða því hvort ég yrði stungin í hægri eða vinstri en hjúkkan sagði reyndar að fólk kvartaði lítið yfir verkjum í handlegg á eftir svo það hefði kannski engu skipt. Nú er kominn nokkur stund síðan og ég finn ekki fyrir neinu.

Vér Skagamenn fengum ekki sinfóníuhljómsveit en úti í horni sátu elskurnar í Dúmbó og Steina og sungu ljúfar ballöður. Ég er alla vega ekki frá því en þarf ný gleraugu.

Mesta fjörið var vinstra megin í salnum, Tommi Rúnar, fyrrum hirðstrætóbílstjórinn minn og fjörkálfur, var þar, auðvitað. Ég sat hægra megin með stillta og rólega fólkinu. Kannski hefði ég átt að fæðast árið 1959, eins og Tommi (og Hilda systir), það virðist hafa verið mikið stuðbarnaár miðað við fjörið í dag. En korterið leið hratt á stólnum og ég tölti heim, þessar alveg tvær mínútur sem það tók og hélt áfram að vinna. Hitti eina á leiðinni sem er frekar mikið á móti bólusetningum en að þessu sinni ætlar hún, allt betra en COVID, segir hún.

FávitarnirÉg fann fyrir auknum krafti á eftir sem gæti svo sem tengst hressandi gönguferðinni yfir í íþróttahúsið og til baka. Sem minnir mig á að ef allt verður óbreytt í þjóðfélaginu ætti ég að geta hamast í ræktinni í næstu viku. Bíð þessa viku eftir aukaverkunum og slappleika eftir sprautuna - sem getur alveg komið. „Hughreystandi“ (not) vinur sagði mér hryllingssögur í gær þar til ég baðst vægðar en núna er ég eins og persóna úr amerískri kornfleksauglýsingu, búin að setja í uppþvottavél og handklæðavél, og fer núna (búin að vinna kl. 16) að brjóta loks saman fjandans þvottinn ... sem ég þvoði í gær og sem ég þvoði í síðustu viku ... Astra Zeniga er sennilega vítamínblandað. Þú sérð hverjir drekka það fá því sprautað í sig ... Bubbi, Þórólfur, ég ...

- - - - - - - - - - - - 

Nokkrir sem ég þekki ætla ekki í bólusetningu strax, vilja bíða og sjá hvort ég dey ... og fara ef ég dey ekki - eitthvað svoleiðis. Tek það fram að þetta fólk er alls ekki fávitar. Er ekki einu sinni viss um að það hlusti á fávitana ... (sjá mynd - að eigin vali)


Ekki leti - bara vítamínskortur

FastiÉg var vöknuð fyrir allar aldir í morgun, klukkan var ennþá 9-eitthvað, fékk mér kaffi og fór í símann til að athuga hverju ég missti af með því að fara svona snemma að sofa í gær. Í leitinni að því rakst ég á myndband sem gaf í skyn að ég gæti öðlast meiri orku með einhverri stuttri rútínu á kvöldin og ég giskaði í huganum á iljanudd, gæti alveg hugsað mér að ýta á vissan punkt hvert kvöld til að öðlast eilífan kraft. Ég ýtti á play, því miður!

 

Eftir korter af einhverju sem átti að æsa upp í manni spenning, tíma sem ég fæ aldrei til baka og hefði átt að nota til að brjóta saman þvott, kom í ljós að þetta tengdist megrun.

Það var alveg hægt að flissa yfir dramanu, átakanlegum sögum af eiginkonu hans sem losnaði ekki við spikið, sama hvað hún reyndi. Læknir ráðlagði henni að borða minna og hreyfa sig meira, þvílík ósvífni. Þegar konan, orðin vonlaus og döpur, ákvað einn daginn að prófa að skokka fékk hún vægt hjartaáfall sem er vissulega ekki fyndið en ég held reyndar að þetta hafi verið uppspurni til að selja eitthvað. Ég hef einu sinni áður látið blekkjast af svona myndbandi og það tók mig eflaust 20 mínútur af lífi mínu að skilja að það var verið að selja bók - ekki um megrun þó. Hélt að ég væri orðin ögn veraldarvanari en þetta. Svo hef ég ágæta orku eftir að ég fór að taka vítamín reglulega.

 

Já, og drekka Fasta, berjasafa frá Íslenskri hollustu, sjá mynd hér ofar, sem ég drekk vænan sopa af á morgnana - af því að ég borða ekki ber (bláber eru viðbjóður) og fer á mis við einhver vítamín vegna þess. Þessi drykkur hefur haft þær furðulegu aukaverkanir að tennur mínar skemmast ekki og ég steinhætti að naga neglurnar eftir 50 ára nag niður í kviku. Nú klippi ég þær reglulega, pirruð yfir vexti þeirra og á eitthvað um 30 tegundir af naglalakki, mér til mikillar gleði. Og orkan sem kom yfir mig um það bil þremur vikum eftir að ég fór að drekka safann varð til þess að Búkolla auglýsti bókadaga. Ég fór nefnilega að grisja og var allt í einu komin með þrjátíu kassa af bókum til að gefa Búkollu sem þá var alvörunytjamarkaður og tók við öllu nema auðvitað óseljanlegu rusli.

- - - - -  - - - - 

Það er ekki til leti - bara vítamínskortur!!! Samt, það er allt of erfitt að finna Fasta. Hann fæst í Melabúðinni og í einhverjum hollustubúðum en er því miður hættur að fást á föstudögum í Mjóddinni, með öllum sultunum og hinum söfunum. Ég treysti áður alltaf á að geta keypt hann þar - svo bara hættu þau þar. Elskan hún Karen í Kaju hér á Akranesi, fór að selja hann fyrir mín orð. Auðvitað ætti Íslensk hollusta að verðlauna mig fyrir hvað ég hef auglýst Fasta vel í gegnum undanfarin ár - en ég er svo sem orðin vön því að vera algjörlega vanmetinn áhrifavaldur.

 

FjólukremAnnað sem ég finn mikinn mun á er kremið hennar Þuríar vinkonu, eða ég fann mikinn mun þegar ég notaði það ekki - nánast allt síðasta ár, Fjólu-dag- og næturkrem (áður Móa), grænt, hollt, má borða það ... Við Þurí hittumst ekkert í fyrra, aðallega vegna COVID, og ég keypti mér eitthvað fokdýrt fegrunarsmyrsl í snyrtivörubúð og fór smám saman að sætta mig við að ég væri að eldast, hrukkurnar fjölguðu sér án nokkurrar miskunnar. Samt hætti ég að reykja í apríl ... það var ekki fyrr en um síðustu jól að ég fékk aftur kremið hennar og þá horfði ég á kraftaverkið gerast, eða fjandans hrukkurnar hörfa hratt og vel, ekki kannski hverfa, en næstum því.

 

Ég held að Icelandair selji öll íslensk hollustu-græn-krem í vélum sínum nema frá Fjólu sem vekur furðu mína - líka furðu Irene, konunnar hans Haraldar frænda í Ameríku, hún er háð þessu kremi eins og ég, og birgir sig alltaf upp af því í hverri Íslandsferð. Og Fjólu-græðikremið sem er annað, það er notað á Landspítalanum, m.a. á brunadeild, og er einstakt. Eitt sinn sólbrann ég illa í andliti, þá nýkomin heim og nýbúin að hreinsa af mér farða vegna myndatöku hjá Vikunni, og setti eitthvað feitt krem á andlitið sem ég hélt að væri hið eina rétta gegn farða, settist síðan út í sólina í korter og uppskar annars stigs bruna. Ég spurði lækninn hvort ég mætti nota græðikremið frá Fjólu, hún hringdi til öryggis á Landspítalann, fékk góð meðmæli þar og samþykkti, sagðist svo í lokin vera ansi ánægð með hversu vel þetta greri. Það myndaðist ný og falleg húð undir og hin flagnaði bara af. Besta en sársaukafyllsta húðmeðferð sem ég hef farið í ...

- - - -  -  - - - - - - 

Já, ég var að segja frá þessu vídjói sem hafði af mér dýrmætan tíma í morgun. Ég gafst upp og hætti að horfa þegar eiginmaðurinn áhyggjufulli var kominn niður í kapellu sjúkrahússins og grét þar og bað guð um að gera konu sína granna svo hún fengi ekki framar hjartaáfall. Í kapellunni hitti hann góða konu sem hann hellti úr sinni andlegu ruslatunnu yfir en góða konan tjáði honum að eitt sinn, eiginlega fyrir stuttu, hefði hún verið mjög feit. Hann trúði því varla, þessi kynþokkafulla kona, almáttugur ... já, þarna gafst ég upp, þrátt fyrir að kannski væru bara tveir klukkutímar eftir, eða fimm mínútur. Það var hægt að setja pásu á en ekki sjá lengdina á myndbandinu eða flýta því á nokkurn hátt. Maður þarf ekki martröð ef til eru svona myndbönd.


Bóló-boðið komið

BólusetningÉg er ekki meiri áhrifavaldur en svo að nú er búið að boða mig í bólusetningu á miðvikudaginn en fæ ég hið langþráða Janssen? Nei, ég fæ Astra Zeniga eins og öllu „gamla“ og heilbrigða fólkinu er skammtað um þessar mundir! Meira að segja eru skammtar fengnir að láni frá frændum okkar í Skandinavíu til að ég fái örugglega ekki Janssen. Ég sem hótaði því að sofa hjá einhverjum nema ég fengi Janssen ... sem er líklega eina ljósið í þessu öllu saman, að yfirvöldum þyki það ekki vera hótun. Þannig að ég er í raun alsæl. Ykkar ennþá virkilega kynþokkafulla, Gurrí

Heyrði samt í fréttum áðan að fólk fætt 1955 eða fyrr sé með árgangsmót bólusetningar - en ég er fædd MIKLU SEINNA! Er Skaginn kannski svona langt á undan tímanum í ÖLLU?

- - - - - - - - - - - 

Þannig að - aukaverkanir á borð við hjartsláttartruflanir, hækkaðan blóðþrýsting, höfuðverk, ógleði, verk í brjóstvegg, blóðug uppköst og sjóntruflanir þarf ég ekki endilega að óttast, eins og þegar ég tók inn hættu-að-reykja lyfin. En eflaust einhverjar, óttast bara mest að láta bólusetja mig í vinstri handlegg, og gleyma því í öllum spenningum að ég sef á vinstri. 

 

Misnotkun á ÝÉg fékk heilmargar líflátshótanir vegna þess að ég vil hafa stafinn í í orðinu partí, alls ekki ufsilon. Ekki samt frá Eiríki. Þetta er greinilega stórmál hjá sumum, sem ættu bara að vita að ég skrifa alltaf karrí, kósí, fyllirí, batterí ...  Af hverju getið þið ekki bara gert eins og ég, þá væri lífið miklu einfaldara og allur texti áferðarfallegri?

 

Fólk sem skrifar til dæmis Gurrí með Ý-i (á að vita betur) lendir í fyllingu tímans á sama stað og þeir sem hanga á vinstri akrein (sjá mynd) Ef við gefum okkur að helvíti sé til sem ég stórefast um en samt! Sumar Gurríar vilja hafa ufsilon í gælunafni sínu og ég virði það þótt ég sé alveg bit á því.

- - - - - - - - - - 

Ég elska nýju viftuna mína úr Costco sem kom sér aldeilis vel í dag þegar sólin ætlaði allt að drepa hérna við Langasandinn. Viftan er hljóðlát og blæs fast - hef þó ekki prófað að nota fjarstýringuna sem kemur sér kannski vel einhvern daginn ...

 


Partí eða partý - fávitar eða fyndnir flottrassar

FávitarHef staðið mig að því að agnúast bæði út í fimleika og hestaíþróttir um helgina, ekki vegna þess að það sé leiðinlegt efni, heldur það að fá ekki gosið sitt í sjónvarpið gerir hvern mann vitlausan.

 

Hvernig væri að hafa nokkrar stöðvar, t.d. þrjár sem aðeins sýna gosið frá ýmsum sjónarhornum. Þá gæti RÚV haldið í sína íþróttarás án þess að við gosklikkhausarnir tryllumst. (Í góða veðrinu í kvöld hefur ótrúlegur fjöldi „fávita“ hangið fyrir framan vélina og veifað, tveir múnuðu en ég ritskoðaði fyrir birtingu, að hugsa sér hvað ég er orðin klár í tölvutækni, sjá mynd.) Ég mæli með því að svæðið fyrir framan vélarnar verði með rafstraumi svo við heima getum líka skemmt okkur yfir stórum strákum fá raflost.

 

Ef ríkisstjórn auðvaldsins vill hafa öreigana sína stillta og prúða held ég að það væri þjóðráð að vera með gosvarp. Hver nennir út að mótmæla ef eldgos er í boði í stóra flatskjánum heima sem orsakar kannski næsta bankahrun? Munið þið þegar Skýrslan kom út eftir 2008-hrun? Öll hneykslin sem þar var að finna en hurfu í hraunstraumi nýs eldgoss sem ég man ekki einu sinni hvar var ... Eins og einhver krakkakrúttmoli sagði á barnamenningarhátíð í sjónvarpinu í gær þá er þetta bara búið þegar maður verður sextugur ... þá er eðlilegt að muna ekki allt.

 

Það mætti halda að ég væri verkalýðshatari að gefa yfirvöldum svona góð ráð, en það er ekki rétt, það stefndi í flottan feril minn sem verkakona, eiginlega þar til ég fékk vinnu á skrifstofu í gegnum klíku árið 1982. Ég hafði áður unnið í fiski í Hraðfrystistöðinni í Grindavík, Ísfélagi Vestmannaeyja (fyrirgefðu, Binni), á Kirkjusandi og tveimur stöðum á Akranesi, ég hef unnið í sokkaverksmiðju, verslunum, uppvaski á Hótel Vík hluta úr sumri og verið í sveit. 

 

StafsetningÞað sem hefur algjörlega vantað í ferilskrána mína er vinna á sjúkrahúsi. Ég sem ætlaði alltaf að verða leikkona, söngkona, dansmær eða ljósmóðir. Varð allt nema ljósmóðir, (bláa öxlin í Heilsubælinu, söng með Kór Langholtskirkju, Mótettukórnum og Fílharmóníu og ég dansa oft heima við lagið Luftguitar).

Lífið færði mig einhvern veginn aldrei þangað þótt mér hafi alltaf fundið spítalar spennandi upp á vinnu að gera. Ég gleymi ekki veðmálinu sem fór eitt sinn fram á Sjúkrahúsi Akraness á sjöunda áratug síðustu aldar þegar mamma (hjúkka) og nokkrir í viðbót héldu því fram að það ætti að skrifa orðið dýrðlingur með ð-i en hinn hópurinn vildi sleppa ð-inu. Ég hélt auðvitað með mömmu en þótt ég muni ekki segja henni það, losaði ég mig við ð-ið fyrir löngu, líka d-ið í hunsa sem sumir vilja skrifa hundsa. 

Ég var heilt sumar í fæði á spítalanum, systkini mín stödd víða um land, þau yngri á Ökrum á Mýrum, elsta í Hólshúsum, Eyjafirði en sennilega vildi enginn fá mig í sveit svo mamma þurfti að afplána mig. Þetta er það eina sem ég man eftir þessu sumri, dýrðingur eða dýrlingur, jú, og þegar ekki var hlustað á mig og beygt til vinstri á réttum stað, frekar brunað alla leið á Brú í Hrútafirði þegar átti að sækja systkini mín um haustið. Þau biðu og biðu og biðu ... Þegar ég ólst upp var lítið mark tekið á börnum, þau áttu að sjást en ekki heyrast. 

Ég urraði hneyksluð einu sinni þegar ég sá orðið partí skrifað með Ý-i í Séð og heyrt. Ritstjórn SH sat á næsta borði við okkur á Vikunni og ég kom þessu á framfæri, þung á svip, alveg stórhneyksluð. Eiríkur Jónsson, þá ritstjóri SH, gaf lítið út á þetta en sagði margsannað mál að partí með ufsiloni væru miklu skemmtilegri en partí með einföldu. Karlmenn og rök ... Ég gætti þess að láta hann ekki sjá hvað mér fannst þetta fyndið, heldur hvæsti: „Viltu þá ekki bara skrifa BAKARÍ með ý-i?“ 

En varðandi dýrling og dýrðling ... það var náttúrlega ekki búið að finna upp tölvur á þessum tíma ... og einum lækninum var falið að spyrja vin sinn sem þekkti íslenskufræðing við Háskóla Íslands, eða eitthvað, um að fá úr þessu skorið. Mikil varð spæling beggja liða þegar í ljós kom að það mátti skrifa orðið bæði með ð-i og án.


Þessi fullkomni Dagur ... og ofmetin sumur

Kaffi kaffi kaffiJátning: Nýja og fína kaffivélin mín var sett í gang í fyrsta sinn í dag eftir að hafa verið upp á punt í eldhúsinu um hríð. Það voru ýmsar afsakanir fram að því ... best að bíða þar til drengurinn verður ekki heima svo ég geti einbeitt mér, ég er nú ekki 100% í ensku, kannski snjallt að bíða eftir kennslumyndbandinu frá Kaffitári eða kannski byrja í BA-námi í ensku í háskólanum í haust ... Ég var búin að gleyma því að ég ætlaði aldrei að kaupa tæki framar sem ekki hefðu leiðbeiningar á íslensku, eftir að hafa lent í ýmsum raunum varðandi þvottavél, þurrkara, bakaraofn og helluborð í fyrra. Ég þvæ alltaf á sama prógrammi, get skipt um hitastig, og alltaf á sama á þurrkaranum líka. Eins og maður borgi ekki nóg fyrir þetta. Sorrí, Siemens og fleiri. Eða ekki sorrí. Bara prinsip! 

Fékk ansi hreint góða heimsókn í dag, gamla samstarfskonu, Helgu Dís og manninn hennar, Dag, sem vildi svo stórkostlega til að hafði alist upp með alvörukaffimaskínu á æskuheimilinu og kunni öll trikkin. Það voru nefnilega ógnvekjandi serímoníur sem þurfti að framkvæma áður en vélin gæti farið að búa til gott kaffi og það tafði líka.

 

AlgebraElsku Dagur las sig í gegnum það á ensku, hefði getað verið úrdú eða serbó-króatíska fyrir mér, ég var alltaf betri í algebru en ensku hér í denn. Þessi fullkomni Dagur ... (syngist) framkvæmdi allt á örfáum mínútum og kenndi mér síðan á gripinn og kaffikvörnina. Hann harðneitaði að verða eftir þótt það byðist, og fór með Helgu sinni í antíkskúrinn góða sem hefur ekki minna aðdráttarafl en Guðlaug við Langasand, vitinn, sjálfur Langisandur, ísbúðin Frystihúsið, Galito, Kaja ... og svo framvegis. 

Þau fengu tvö blóm heim með sér, m.a. hálfslappa rúmlega fertuga síblómstrandi hoju sem þykir frekar dýrmætt blóm, afleggjarar eru seldir dýrum dómum ... Það þýðir nefnilega lítið að vera með blóm í himnaríki, kettirnir misþyrma þeim - líka afskornum blómvöndum sem aðdáendur hafa fært mér.

Ég hafði hrúgað öllum blómunum mínum niður á næsta stigapall þegar framkvæmdir hófust (jan. 2020) og tók þau aldrei upp. Svo þið verðið bara að færa mér konfekt.

- - - - - - - - - - - 

Ekki tengist þetta hjálparleysi aldrinum, tel ég, að láta ekki bara vaða í að prófa kaffivélina, þora ekki, fresta, hika. Vinkonur mínar eru ekki hræddar við neitt, ein fer t.d. stundum í gönguferð ÚTI þegar geitungatíminn stendur sem hæst, og sú sem flutti til mín í nokkra daga á Hringbrautina á síðustu öld eftir að þrír geitungar höfðu lagt undir sig heimili hennar var innan við fertugt. Það er þó ekkert verra en að heimsækja Jólagarðinn á Akureyri eftir miðjan ágúst og kaupa karmelliserað epli á priki handa t.d. fósturbarni og þurfa svo að taka óvænt til fótanna. Það er ekki hetjudáð að taka slíka áhættu, bara vitfirring. Aldrei aftur, Hilda, aldrei aftur.

Vanmetnar pöddurErlendur miðill ætlaði eitt sinn fyrir langa löngu að gleðja mig og kitla hégómagirnd mína og sagði að ég væri svoooo gömul sál. Viðkomandi hefði ekki getað hitt á verra „hrós“. Ég sagði að það gæti ekki verið, lýsingin segði gamlar sálir vera sífellt ÚTI að rækta garðinn sinn, reyta arfa og slíkt og njóta þess! Það ætti ekki við um mig. Miðillinn lét svar mitt ekki slá sig út af laginu, kunni sitt fag, og sagði bara: „Ekki hafa svona litla trú á þér.“ Ég gat stillt mig um að myrða hana, svona svo það komi fram.

Ég er sem sagt ungbarnssál, ef hægt er að flokka sálir niður eftir aldri. Og ef það er hægt held ég að frænka mín í Hveragerði hljóti að vera með eindæmum forn sál, hún er garðyrkjutýpan ... og flutti til Hveragerðis árið sem kóngulærnar tóku yfir bæinn. Hún lét eins og það væri eðlilegt að hafa þurft að ýta þungum og þykkum kóngulóarvef til hliðar til að geta opnað útidyrnar eftir að hafa skroppið út í búð að kaupa mjólk ... og frekar kósí bara hafa getað notað vefina á milli trjánna í garðinum sem hengirúm.

Sumur eru svo ofmetin. Ég held að fólk hlakki til af gömlum vana, af því að því var innrætt frá fæðingu að það ætti að hlakka til, skil samt alveg að meindýraeyðar séu spenntir. Þegar ég var lítil var litið á það sem synd og skömm að nýta ekki hvern einasta sólargeisla. „Ekki vera inni að lesa, Guðríður, þú átt að vera úti í sólinni.“ Maður þurfti að laumast inn til að geta klárað bókina sína og stundum fela sig undir sæng með vasaljós og bókina.

P.s. Ég er enn að reyna að búa til fullkominn latte í nýju vélinni ... þrjár tilraunir sem ég gerði ein í dag, tvær vondar, ein sæmileg, hugsa að ég prófi að leita á YouTube að myndbandi sem kennir upp á gramm (já, ég er með kaffivigt) hvernig á að fara að. Ég hefði sennilega ekki átt að sleppa Helgu Dís og Degi heim.


Hálfar aldar móðgun ...

EldstöðvarÉg held að RÚV verði að splæsa í þyrluferð með viðgerðamenn á gosstöðvarnar til að fólk taki almennt gleði sína aftur. Hafa opnast nýir gígar, er mikið gas, margir „fávitar“ sem veifa og standa fyrir vélinni? Sólin skín greinilega ekki nógu mikið á sólarrafhlöðuvélina við  Fagradalsfjall, annað en hér við Langasand, á suðurgluggana mína. Svo þar til ég kemst í stóra rúllugardínumálið hef ég hangandi þunnan jakka á herðatré á gardínustönginni mér til varnar en til mikillar óprýði og ama fyrir alla þá sem eiga ferð um hlaðið hjá mér. Ég veit núna að maður verður sólbrúnn í gegnum gluggarúðu, það hefur oft verið flissað að litamismun á hægra og vinstra handarbaki mínu en skrifborðið mitt er á hlið við suðurglugga). Hægri sem sagt fallega brún á meðan sú vinstri er undanrennublá eins og restin. Það eru ekki allir sem dýrka sólina. Þótt ekki sé liðið langt á sumarið (einn dagur) er samt kominn örlítill munur. Seríoslí.

Fólk hrósar seðlabankastjóra mikið núna fyrir að þora að skamma Samherja en svo sagði einhver (á Facebook) að þetta væri allt í plati, það væri verið að þyrla ryki í augu okkar svo hægt verði að halda áfram að falsa gengið - sem kemur sér svo vel fyrir Samherja ... dæs, er engu að treysta í þessum heimi? Svo skammar Sólveig Anna á forsetann okkar (?!?) fyrir leiguokur. Forsetinn gefur hluta launa sinna í hverjum mánuði til góðgerðamála, alla hækkuna þarna um árið, og honum ber engin skylda til að leigja út íbúðina á lægra verði en aðrir bara af því að hann er forseti. Og það segir manneskjan (ég) sem var á hræðilegum okurleigumarkaði í mörg ár á níunda áratug síðustu aldar!

- - - - - - - - - 

Varið landÉg stefndi mjög langt til vinstri á unglingsárunum. Fór meira að segja á Varið land-fundinn fræga og mótmælti, móður minni og stjúpföður til mikils ama og gekk í Fylkinguna til að gera þau endanlega alveg snar. Ég þurfti að finna mína fjöl eftir að hafa verið rifin upp með rótum frá Akranesi.

Ég gekk í leshring hjá Fylkingunni til að læra allt um fræðin hjá ungum skeggjuðum manni í köflóttri vinnuskyrtu. „Hvað er díalektík?“ spurði ég, 13 eða 14 ára barnið sem þekkti ekki í sundur Lenín og Stalín en vildi fá útskýringu á þessu orði sem hafði verið sagt nokkrum sinnum. Ungi, skeggjaði maðurinn í köflóttu vinnuskyrtunni starði hneykslaður á mig, horfði síðan yfir litla unglingahópinn sem horfði spyrjandi á hann en í stað þess að svara mér startaði hann hlátri, aðhlátri, hópurinn lærði þarna hlæjandi vandræðalega og feginn að hafa ekki verið sá/sú sem spurði, að svona átti ekki að spyrja, við áttum að vita! Og heimurinn fór á mis við frábæran kommúnista því ég mætti bara í þetta eina skipti. Ég hef ekki neitt á móti neinu sem tengist díalektík samt, greiði glöð hluta skatta minna til DíaMat, félags um díalektíska efnishyggju, sem skiptir svo peningunum á milli fernra frábærra góðgerðasamtaka. Svona fer lífið stundum í skemmtilega hringi. Flott líka að fyrirgefa þótt það hafi alveg tekið hálfa öld. En samt, hvað er díalektík?


Miklu stærra samsæri

TrúboðiGleðilegt sumar, elsku öll, og takk fyrir veturinn. Nú hellast yfir mig vinabeiðnir á Facebook, allt saman eru þetta myndarmenn á aldrinum 50-99 ára. Það eina sem þeir virðast eiga sameiginlegt er að þeir bera allir ættarnöfn. Furðulegt.

- - - - - - 

Vinkona mín býr í Svíþjóð með manni sínum og er mjög sátt þar. Þau hjónin skelltu sér í heimasóttkví nánast um leið og covid skall á og vinna bæði heima. Ástandið hefur lítið lagast í landinu síðan í fyrra. Fólk gengur almennt ekki með grímur þótt það sé núorðið hvatt til þess og vinkona mín er alltaf hálfsmeyk við að fara út í búð, gerir sem minnst af því.

 

Ég sá hjá Facebook-vini í morgun að í Svíþjóð greinist að jafnaði 5.500 smit á dag og 20 manns deyja. Hefðum við farið sænsku leiðina væru rúmlega 460 Íslendingar látnir úr þessari „ómerkilegu flensu“.

- - - - 

Hvað græða yfirvöld á því að „kúga okkur“ með t.d. grímuskyldu og sóttvörnum, „stórhættulegum“ bóluefnum sem vont, forríkt fólk græðir á?

Kannski er þetta ekki svona flókið, kannski er bara verið að berjast gegn smitandi, hættulegri veiru. Og bólusetning besta og fljótvirkasta leiðin til að stöðva framgang hennar svo við getum öll farið að lifa eðlilegu lífi aftur.

 

EÐA KANNSKI EKKI ...

- - - - - - - - - - - - - 

Það er alveg stórmerkilegt að fá að lifa þessa tíma. Ekki bara er meint drepsótt í aðalhlutverki, heldur líka svokallað „eldgos“ sem ég hef mjög rökstuddan grun um að sé nýjasta samsæri yfirvalda til að ná stjórn á okkur fyrst svona margir hafa séð í gegnum veirubullið. Okkur er stjórnað með óttanum við næstu eldgos, að þau verði ekki jafnþægileg, heldur muni hraun vaða yfir nánast allt nema fuglinn fljúgandi ... raflagnir, blátt lón, svart engi og hvaðeina, jafnvel nálgast Hafnarfjörð ... sjúr. 

 

Meint eldgosÞað sem okkur er sýnt í sjónvarpinu eru pottþétt bara flottir varðeldar kveiktir af vel þjálfuðum skátum sem eru með í samsærinu, eins og RÚV. Göngugarpa hlýtur þó að hafa verið erfiðast að blekkja, þeir eru svo margir, en stikaðar „gönguleiðir“, hafðar hræðilega erfiðar til að mjög gáfað fólk fari ekki þangað, nokkrir speglar og myndvarpar, gamalt eldgos á repeat ...

 

Meira að segja erlendar sjónvarpsstöðvar hafa látið blekkjast og dróna er mjög auðvelt að endurforrita á nokkrum sekúndum, las ég einhvers staðar. Um leið og reynt verður að fá ykkur til að nota gasgrímu, forðið ykkkur - hratt.

 

Ekki vera trúgjörn, það er ekkert eldgos! Og ef þetta er eldgos þá er það ekki jafnhættulegt og yfirvöld vilja meina!


Mögnuð sending ...

AðalstöðinÉg fékk dásamlega sendingu í dag frá gömlum samstarfsmanni mínum á Aðalstöðinni. Hann tók upp myndbrot af okkur sem unnum þar og við Einar, sonur minn, sluppum ekki - en Einar var tæknimaður hjá mér frá 15 til 19 ára. Ég kann ekki að setja inn myndbönd hér, alveg stórfurðulegt að ég geti yfirhöfuð bloggað ... en mér tókst nú samt í annarri tilraun að skella myndbandinu inn á Facebook-síðuna mína, eftir að Kári sendi það aftur, í tölvupósti.

Þetta er eina myndbandið sem ég veit um af honum, ég á myndband í símanum sem ég tók yfir úfið hafið þar sem  sjónvarpsfréttir hljóma og hann í símanum, rödd hans heyrist í fjarlægð, það er allt og sumt. Ég er afar þakklát Kára fyrir að hafa sent mér þennan demant. Kári þarf ekki að lesa lengra.

- - - - - 

Eitt sinn fórum við nokkur af Aðalstöðinni saman út að borða í hádeginu, sennilega á Sólon, ekki viss samt. Þar sagði ég fólkinu að rammskyggn föðursystir mín hefði sagt mér í erfidrykkju ömmu Guðríðar (þangað sem ég mætti með manninn sem átti eftir að giftast, eignast barn með og skilja við) að tilvonandi maðurinn minn yrði ljóshærður og bæri ættarnafn. Þessi sem sat hinum megin við mig var rauðhærður og með -son í eftirnafninu svo þetta var svolítið ruglingslegt og hefur litað líf mitt alla tíð. Sama frænka hafði skrifað mömmu bréf 1971 þegar við vorum nýflutt til Reykjavíkur, og sagði henni að hún myndi kynnast manni sem hefði S sem fyrsta staf í nafni sínu. Bíllinn hans einnig ... Siggi, seinni maður mömmu, var alla tíð mikill Saab-maður. En aftur að samtalinu á Sólon:

Kári (svarthærður): Hei, ég er með ættarnafn, tölum saman þegar ég verð orðinn gráhærður ef allt bregst.

Gurrí: Hahaha, ókei. Góð hugmynd.

Miðað við þetta loforð/bónorð Kára og að ég játaðist honum finnst mér eftirfarandi svolítið grunsamlegt:

a) Kári hefur ekki birt mynd af sér á Facebook í mörg ár.

b) Kári er fluttur úr landi.

TvíburarÞegar ég var 11 ára elti ég Mínervu ömmu sem þá var nýdáin, inn í einlyft hús á Akranesi. Ég týndi henni fljótlega en hóf að ganga upp stigana (þetta var draumur) þar til ég komst alla leið til himnaríkis og fór að spjalla við húsráðanda. Ég fékk að bera upp þrjár spurningar: 

1. Hvað verð ég gömul þegar ég dey? „38 ára,“ var svarið, mér létti, ég yrði búin að lifa mitt fegursta, hugsaði ég.

2. Hvað heitir maðurinn sem ég giftist? „Filippus Angantýr.“

3. Eignast ég tvíbura? „Já.“ 

- - - - - - - 

Það er enginn Filippus Angantýr í þjóðskrá. Ég gáði árið 1985 þegar ég hafði vinnuaðgang að mörgum bókum sem innihéldu alla þjóðina í „starwars-röð“. Spurning um Philip MacIntyre?

Besta lausnin og sennilega sú eina er að Kári bæti við sig tveimur nöfnum og sætti sig við ómegð í ellinni þegar við hlöðum niður tvíburunum.


Í bullandi mótþróa en eldgosi bjargað

MúsíksmekkurSá dagur nálgast að ég fái mitt Janssen - í hægri öxl, mæli svo um og legg á. Ég held alla vega rígfast í þá von og verð bara að muna hægri öxl þegar ég kem á staðinn - ég sef  á vinstri hlið og í þau skipti sem ég hef verið bólusett er ég oft aum í nokkra daga. Jú, jú, ég veit, ég veit, en ef ég hefði t.d. óttast það sem fylgdi hættu-að-reykja lyfinu væri ég enn púandi. Mér fannst alveg nóg að dreyma mikið á nóttunni og vera sífellt flökurt sem er víst algengast.

MYND: Þegar ég heimsótti mömmu á laugardaginn voru engin slagsmál um hvaða tónlist ætti að setja á fóninn (enda er hún meira af 48-, 58-kynslóðinni), heldur var verið að horfa á íþróttir. Ég laumaði montin að einni konunni sem virtist sérlega áhugasöm að þær væru systur mamma og amma Dagnýjar Brynjarsdóttur fótboltakonu. Ekki bara systur, heldur tvíburar! „Já, og er hún ekki í West Ham?“ spurði hún spennt og greinilega komin með sína konu til að halda með. Við stoppuðum ekki í setustofunni, það er bannað, heldur vorum að fara með mömmu þangað, á leið út. Ég er bara svona snögg að monta mig.

Nágrannalönd okkar hafa sum hætt að nota Astra-Zeniga en það á samt að koma því í okkur 60 plús-gamlingjana (djók) með öllum ráðum hér á landi. Og ef einhver dirfist að afþakka það fer hann bara aftast í röðina, eins og ég upplifði sem hótun í fréttum um daginn. Jú, það verði opnir dagar með önnur bóluefni í boði en ekkert byrjað að skipuleggja það. Þarna fór að bulla í mér mótþrói, eins og ég er annars ánægð með sóttvarnayfirvöld - muna, Gurrí, hugsa um það jákvæða ... ávinningur meiri, pillan miklu hættulegri (og reykingalyfið mitt.)

Svona hótanir virka öfugt/illa á marga (eins og mig). Ég set allt traust mitt á Janssen - það er samt svipað AZ þegar kemur að aukaverkunum, en ein sprauta af því nægir! En ef mér býðst bara AZ ætla ég auðvitað að þiggja það, svo það komi fram. Ekki af ótta eða heilalausri hlýðni, heldur langar mig ekki til að fá covid. Of margir hafa farið illa út úr því. En samt, krakkar mínir, hverjum ætti kona á mínum aldri að hóta að sofa hjá til að fá Janssen? 

Mosi veiðir eldgosEldgosið er alltaf jafnspennandi og aðeins fréttir sem draga mig nú frá því að hafa það mallandi í tækinu, ég hef ekki tíma til að horfa stöðugt á það.

Mosi, yngsti eðalkötturinn á heimlinu, er afbrýðisamur út í eldgosið og fyrir skömmu stóð ég hann að verki við að reyna að slökkva í því. Á myndinni sést að hann var nýbúinn að slátra gígnum lengst til hægri, reykurinn frá honum sést greinilega, en ég sýndi hetjudáð þegar ég bjargaði restinni af eldgosinu og setti Mosa niður á gólf. Ég verð bara að klappa honum enn meira og oftar. 

Ég fann EKKI fyrir jarðskjálftanum í gærkvöldi og er afskaplega fegin því. Held að langflestir hafi fengið miklu meira en nóg af hristingi í aðdraganda gossins.  


Væri ekki sniðugra ...

ÞungarokkÞvílík helgi, þvílík vika ... svo er sagt að fólk hafi ekkert að gera eftir einhvern ákveðinn aldur sem ég er löngu komin yfir. En það grín. Ég bara hlæ þegar mér býðst meiri vinna. 

Eftir þessa helgi er ég oggulítið opnari fyrir sætum karli sem hefur frekar lítið að gera og kann að elda góðan og hollan mat án þess að troða hnetum, möndlum, döðlum og rúsínum í hann. Nú er þetta komið út í kosmosið. Eins og áður áskil ég mér rétt til að taka öllum eða hafna öllum. Já, og hann þarf að fíla þungarokk og ...ja,  allt nema svaðajazz og svaðakántrí. Verður ekki útskýrt frekar.

Tók mér hlé á laugardegi til þess að heimsækja mömmu, við Hilda keyptum sjónvarp í herbergið hennar og sitt af hverju sætt í Rúmfó til að skreyta með. Á báðum stöðum upplifðum við systur að væri talað niður til okkar. Mjög sjaldgæft annars. Strákurinn í Rúmfó sagði yfirlætislega: Væri ekki sniðugra að kaupa sjónvarpið fyrst og kíkja svo á sjónvarpsskenk eða borð?“ Hann vissi nú samt að sjónvarpið yrði hengt upp á vegg ... og fyrri afgreiðslumaðurinn í Elkó var nánast eins og sagði, ef ég man rétt: „Væri ekki sniðugra að kaupa sjónvarpsskenkinn fyrst?“ Vantaði bara VINAN til að við tækjum spítalavink á hann. Seinni afgreiðslumaðurinn í Elkó var svo mikið yndi að hann bætti fyrir ömurlegheitin hjá báðum hinum. Stundum vildi ég óska þess að þjórfé viðgengist hér á landi.

Eða kannski ekki.

Eða jú, hafa þjórfé, takk, ég gerði örlítil mistök þegar ég sótti um endurnýjun á lyfseðli fyrir aðra manneskju og talaði um frumlyfið í stað samheitalyfsins og það hafði ákveðinn rugling í för með sér. Starfsfólk á sjúkrahúsinu hér sem og fólkið í Apóteki Vesturlands tók höndum saman og bjargaði andliti mínu, mannorði, andlegri vellíðan og hvaðeina, fólk sem kemst örugglega illa í peysuna á morgnana fyrir vængjum, og hana nú! Það er svo gott að búa hérna á Akranesi. Vantar í raun bara Rúmfatalagerinn (eða IKEA) og KFC (fyrir fóstursoninn, eins og ég hef oft sagt, til að vera algjörlega sjálfbær.   

Öryggisbelti um hálsinnÁ heimleiðinni með átta-strætó (kl. 20 frá Mjódd) var ég að kyrkjast af bílbeltinu - en hönnun á bílbeltum strætisvagna miðast við myndarfólk í kringum 1,80 á hæð. Ég með mína fyrirsætufætur og þar af leiðandi styttri búk er með efri hluta beltisins á hálsinum (sjá átakanlega ljósmynd). Beltin passa mögulega vel fyrir lægra fólk ef það hefur stutta fætur og lengri búk.

Í flestum einkabílum er takki svo maður getur hækkað og lækkað bílbeltið en ekki strætó. Hér með er þessu komið til strætóbílbeltahönnuða framtíðarinnar.

Fyrst ég er byrjuð að kenna hönnuðum (sem þolandi hönnunar) væri snjallt að breyta segulómunarvélunum svo fólk þurfi aldrei að fara með höfuðið á undan inn í þær. Þarna eru tveir sentimetrar frá nefi og upp í loft og algjör hetjudáð að lifa af klukkutímann sem þetta tekur.

Ég tala af reynslu, fór í svona vél fyrir mörgum árum vegna bakvesenis og kveið svo innilega fyrir því að vera dregin í gegnum þessa þröngu holu á útleiðinni, mögulega ekki lífs ... fannst ég hafa verið grafin lifandi og allan þennan klukkutíma reyndi ég að klemma aftur augun og segja sjálfri mér aftur og aftur að þetta væri myndataka, ég hefði ekki verið grafin lifandi.

Geislafræðingurinn sagði mér eftir á þegar ég hrósaði happi yfir að hafa sloppið lifandi, að maður um fimmtugt hefði fengið taugaáfall deginum áður og þurft að fá róandi til að hægt væri að klára myndatökuna.

Ég slapp ekki alveg heil frá þessu, heldur upplifði nokkra innilokunarkennd um hríð og fannst til dæmis óþægilegt að fara skömmu síðar í gegnum Vestfjarðagöngin, í alvöru - en svo tók kvenmennskan yfir og ég hristi þetta af mér. Síðan eru liðin meira en 20 ár og þegar ég gúglaði segulómun sá ég margar af myndunum sem komu upp sýna þolendur með fæturna á undan inn í vélina, jesssss! 

P.s. Bold: Hope veit ekki enn að hún er móðir barnsins sem hún laðast svo að - og Steffí, keppinautur hennar í ástum, ættleiddi. Sá bara um það bil þrjár sekúndur af þættinum.  


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Sögur úr skýjahöll

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 19
  • Sl. sólarhring: 21
  • Sl. viku: 888
  • Frá upphafi: 1528882

Annað

  • Innlit í dag: 17
  • Innlit sl. viku: 736
  • Gestir í dag: 17
  • IP-tölur í dag: 17

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Köttur í Hárhorni
  • Köttur í Hárhorni
  • Skálmöld knúsar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband