Færsluflokkur: Bloggar
6.4.2021 | 22:29
Að rata eða ekki rata ...
Í gær þegar nýju sprungurnar opnuðust var ég ekki í rónni fyrr en ég gat staðsett þær. Ég er nefnilega kortamanneskja. Þarf að sjá hlutina á korti, annars er allt ónýtt.
Anna vinkona sló öllum fjölmiðlum við og skúbbaði með fyrstu kortin, á sinni eigin Facebook-síðu, við gleði og þakklæti fjölmargra. Það var þó ekki fyrr en mér var litið út um gluggann að ég sá nákvæmlega hvar þetta var. Smávegis til hægri við Reykjavík og Keili frá mér séð og nokkuð nær Akranesi en eldra gosið.
Loksins borguðu kaupin á himnaríki sig, loksins sést eldgos út um gluggana eftir 815 ár!
Einu sinni var mér sagt að konur rötuðu af eðlisávísun eða innsæi, karlar eftir kortum. Ókei, þá er ég stútfull af testósteróni því ég hef reikað óhamingjusöm um ókunnar stórborgir því ég hafði ekki kort til að átta mig á umhverfinu. Hvernig gæti ég mögulega, bara af því að ég er kona, ratað um ókunnar slóðir? Hver býr til svona klisjur? Kannski þeir sömu og segja að konur elski að fara í búðir svo þeir sleppi sjálfir við það? Og að konur geti ekki bakkað svo þeir fái að keyra. En samt ... þeir geta ekki bæði keyrt og lesið á kort svo því að ágirnast kortið? Æ, ég gleymdi GPS ...
Mamma dáðist þvílíkt að mér fyrir að rata svona vel í Dublin. Hún hafði unnið aðventuhausteitthvað-ferð til Dyflinnar og bauð okkur Hildu með. Temple Bar Hotel er mjög miðsvæðis og rosalega auðvelt að rata þaðan og um allt. Ef við gengum út á horn og beygðum til vinstri og fórum yfir brúna komumst við á aðalverslunargötuna en til hægri eitthvað annað sem ég man ekkert hvað var ... Þetta hafði ég séð á korti þótt ég útskýrði það ekkert, leyfði mömmu bara að dá mig.
Við vorum einmitt staddar á Temple Bar-götunni þegar við hittum aðra Íslendinga (borgin var reyndar full af Íslendingum), skemmtileg hjón sem ákváðu að koma með okkur á matsölustað og borða með okkur. Mamma kynnti okkur systur stolt fyrir hjónunum. Þetta er hún Hilda, hún er bla bla bla, uppáhalds, æði, frábær, eitthvað bla bla ... og þetta er hún Gurrí, hún er völva Vikunnar!
Mamma! Ertu brjáluð? Ég er ekki völva Vikunnar! Ég var í rusli. Ef ég væri það og hefði óvart talað af mér um það hefði ég orðið að drepa viðkomandi, þetta var og er það mikið leyndarmál. Líklega hafði mamma fundið á sér að ég myndi einn daginn prýða forsíðu Vikunnar sem völva! Ég held alveg örugglega að ferðin til Dublin hafi verið á undan forsíðumyndinni. Ég var beðin um að vera leikmunur, skreyta en ekki vegna fegurðar minnar, heldur aldurs, ég var elst á ritstjórninni eða 40 plús, (48 eða 49 ára) og því nógu gömul til að geta leikið háaldraða völvu ...
En þetta virkaði og blaðið seldist í bílförmum, flutningabíla með tengivagni-förmum, svo það borgaði sig greinilega að setja öldunginn á forsíðu.
Dublin er dásamleg borg og ferðin virklega góð þótt við hefðum lítið getað skoðað okkur um. Ég vildi ekki sleppa mér með vísakortið (það kemur að skuldadögum) og gerðist burðarkona samferðakvenna minna sem nýttu tækifærið og keyptu jólagjafir. Are you from Iceland? I love you, I love you, heyrðum við í sífellu, og oft þurftum við að slíta okkur lausar frá klökkum og kyssandi kaupmönnum sem tóku þarna inn ársveltuna á þremur dögum þegar troðfull risaflugvél af Íslendingum kom á svæðið.
Ég fór aftur til Dublin nokkrum árum síðar, í skemmtilega blaðamannaferð. Við fórum með rútu alla leið til Belfast og stoppuðum víða á leiðinni, svo með lest til baka. Mjög gaman en kaffið í lestinni var algjörlega ódrekkandi. Að maður skuli muna svona ...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.4.2021 | 02:40
Fyrir rangri sök ...
Ég sendi harðorða gagnrýni og skammir inn á eina fb-síðu sem tengist Strætó bs - eftir að hafa skolfið í frosti og roki í 22 mínútur í vonlausri bið eftir strætisvagninum sem átti að koma kl. 17.29 á leið til Reykjavíkur. Hilda systir var að elda páskalambið og við stráksi búin að hlakka til allan daginn að fá loks almennilegan mat eftir skyr á skyrdag, sorglegan mat á föstudaginn langa og óvenju vondan heimsenda-hamborgara á laugardag.
Ég hringdi í Hildu og lýsti þessari skelfilegu þjónustu hjá Strætó, þeim væri svo drullusama um farþegana ... Ég hafði vart sleppt orðinu þegar mér hugkvæmdist að athuga hvort ég hefði ekki örugglega sett inn Akranes - Mjódd (hvaðan og hvert) á appið þegar ég athugaði klukkan hvað strætó kæmi. Úps, svo var ekki. Í fyrsta sinn sem ég geri þessi mistök.
Ég reyndi svo mikið að eyða kvörtuninni sem var þegar komin með tvö sorgartjákn, svona samúðarlæk. Það eina sem ég gat var að eyða öllum textanum nema einum staf - annars hékk allt inni. Þannig að á þessari síðu er miðaldra-klaufastatus frá mér með einu J-i, mér til ævarandi háðungar - það er skárra en að hafa strætó fyrir rangri sök.
Svanhildur almáttugur, systir mín, tók til sinna ráða, hún hafði ekki hugmynd þá um mistök stóru systur ... henni bara ofbauð meðferðin á svo miklu, miklu eldri systur sinni (skrifað til að gleðja Hildu, ég er bara 16 mánuðum eldri en hún). Henni hugkvæmdist þó ekki að kaupa Strætó bs og reka stjórnina og stjórana, eins og ég hefði gert, og senda eftir mér myndarlegan, ógiftan, bólusettan bílstjóra sem kann að búa til sítrónufrómas, á nýjasta og flottasta vagni flotans. Hún blikkaði frekar son sinn, heilagan Davíð, sem ók í loftinu (90 km/klst) og sótti háaldraða frænku sína sem braut af sér klakann á biðstöðinni við góðu fréttirnir, hljóp heim og var nánast alveg þiðin þegar frændi ók í hlað. Það var hressandi að hlusta á Muse á leiðinni eftir allt heilaga-óperudraslið, eins og Hilda kallar það. En mikið urðum við Davíð hissa þegar fíni fákurinn bauð okkur að aka á 130 km/klst í Ártúnsbrekkunni (bíllinn sýnir hámarkshraða alls staðar) og svo aftur nokkru síðar á Breiðholtsbraut. Lögreglukórinn í fjáröflun. Dæmigert.
Lambalærið, páskagjöf frá vinnunni minni, eldað af systur minni, var hrikalega gott (takk, elsku Birtíngur) og snætt í frábærum félagsskap páskakúlufólksins míns.
Eftir matinn hlömmuðum við okkur í sófann og horfðum á Sjónvarp Símans, á nýjan íslenskan framhaldsþátt um þrjár vinkonur sem búa yfir erfiðu leyndarmáli, lofar góðu. Síðan nýja íslenska mynd, Þorpið í bakgarðinum. Dásamleg, mannbætandi, svona hlýtt í hjartað-mynd. Mun koma Hveragerði enn betur á kortið - ef ég væri ekki svona hrædd við sólskin, mikinn hita, gróður, kóngulær og svona, hefði ég mögulega íhugað að flytja þangað en sjóbarinn, sæmilega pöddusnauður Skaginn heillaði enn meira. Takk, Síminn, fyrir frábæra dagskrá. Hún systir mín er á leiðinni að færa sig yfir mjög fljótlega.
Við rétt sluppum í Mjódd í síðasta strætó heim kl. 23. Það er ennþá ilmandi nýjabíllykt í nýju vögnunum - en ég heyrði skömmu eftir að þeir komu að þeir væru ekki nógu góðir í snjó og roki, of léttir að framan og hreinlega of stórir.
Við heimkomu var heilagt-óperudrasl sett í gang enn og aftur, og á meðan ég skrifaði bloggið hljómaði Sálumessa Mozarts (ég er samt ekki að fara að hrökkva upp af). Heilagleikinn var ekki í neinum tengslum við páskana, ég tek tarnir í klassík og á morgun held ég að það hljómi brjálað rokk í himnaríki - eða kannski ljúfar ballöður. En það verður alla vega Dimma, Andvaka í RÚV-útgáfunni (YouTube) sem ég þarf að hlusta á reglulega.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 03:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.4.2021 | 18:51
Áminnt um sannsögli ...
Vissuð þið að ef hraunstraumurinn á eldstöðvunum væri fenginn til að sjá um að fylla steypumótin í meðferðarkjarna hins nýja Landspítala tæki það 200 mínútur, eða rúmlega þrjá klukkutíma. Magnið sem þarf er 60 þúsund rúmmetrar en eldstöðvarnar framleiða 5 m3/sek. Grunar að íslenskar steypustöðvar eigi eftir að gefa í núna ...
Það er mikið gantast inn á milli nöldurs og æsings yfir því meðal annars að vera innilokuð á lúxushóteli með sjónvarp og mini-bar, vegna þeirra sem hafa svikist um að halda sóttkví og smitað (og drepið?) fólk úr þessari flensu sem er ekki neitt neitt, ef marka má orð Trumps og íslenskra trúsystkina hans. Að vísu skil ég alveg löglært fólk sem agnúast út í það sem mögulega stenst ekki lögin. Ég myndi samt, áminnt um sannsögli og það allt, glöð liggja og lesa, innilokuð í fimm daga, á hóteli og sleppa við að elda.
En þetta sá ég á Facebook í dag:
Sundlaugar: 0
Skíðabrekkur: 0
Almennar samkomur: 0
Veitingastaðir: 20
Trúarathafnir: 30
Gosstöðvar: 9.357
Við erum öll í þessu saman ...
- - - - -
Ég fór á Bach-fyllirí í gær, það er ekki hægt að kalla það öðru nafni. Á Rás eitt hljómaði Jóhannesarpassían í flutningi gamla kórsins míns og fleiri snillinga og tárin streymdu yfir Rútvól-inu, einum fegursta kaflanum. Hugurinn reikaði aftur í tímann þegar ég heyrði Jóhannesarpassíuna fyrst á tónleikum, þá með sama kór en miklu stærri á þeim tíma:
Ég hafði verið fengin til að selja miða við innganginnm, nýhætt sjálf í kórnum, og skömmu áður en tónleikarnir hófust komu tvær erlendar konur með bakpoka, svona lið sem borðaði ekki á rándýru veitingastöðunum okkar eða gistu á rándýru hótelunum okkar. Þessar konur fengu áfall yfir miðaverðinu, yfirgáfu kirkjuna daprar í bragði og komu sér fyrir á stoppistöðinni á móti kirkjunni. Öss, og strætó á þriggja tíma fresti, ef hann þá gekk, hugsaði ég, og sem Íslandsmeistari í meðvirkni skottaðist ég út og sagði þeim að koma og njóta, frítt. Mér verður aldrei framar treyst til að selja tónleikamiða. Þær sátu uppi og voru ekki fyrir neinum og nutu vonandi í botn. Kannski komu þær löngu seinna aftur til landsins, orðnar ríkar svo þær bæði borðuðu dýrt og gistu dýrt?
Tónlistarneyslunni var hvergi nærri lokið því ég sá að frú Hildigunnur stórtónskáld hafði hlustað á stórfenglega upptöku af Mattheusarpassíunni í gær í gegnum digitalconcerthall.com sem býður upp á aðgang fram á mánudag. Það þarf að skrá sig en þetta er alveg frítt í bili. Er að hlusta núna og hlakka til að hlusta aftur á dýrðina Wir setzen uns mit die tränen nieder.
Ég hef náð nokkuð langt í innilegum samræðum við Þjóðverja með að nota þessa setningu sem ég gleymi ekki, ásamt Ich liebe dich. Þeir verða kannski hissa en halda vonandi að ég sé djúpt þenkjandi og vitur. Fyrri setningin tengist grátandi trjám, hin er ástarjátning, hversu djúpt er það? Ég kann því miður ekki þýsku þótt ég hafi sungið einhver ósköp á því máli ... og latínu líka en ég man latínuna aldrei nógu vel til að geta slegið um mig með henni ...
Það minnir mig á gaurinn sem féll fyrir mér á Óðali 1983 (þá venjulegur skemmtistaður) og hélt að ég væri eitthvað, því honum fannst ég tala svo góða íslensku. Svo heimsótti hann mig daginn eftir í kaffi, og sá að ég var bara bláfátæk einstæð móðir í leiguíbúð í Æsufelli, vann á skrifstofu á Hlemmi. Hann drakk kaffið, spjallaði eitthvað og kvaddi svo með því að segja mér upp - þótt þessi nýhafni kunningsskapur hafi ekki borið með sér einn einasta mömmukoss og aldrei ýjað að nokkru öðru en vináttu. Hann hefur sennilega verið kominn með brúðgumaskóna bak við hurð í huganum og síðan orðið fyrir gífurlegum vonbrigðum með þetta hjólhýsapakk, ég var ekki einu sinni í háskólanum eins og hann hélt.
Síðan þetta gerðist hef ég lifað rólegu en innihaldsríku lífi. Ég safna köttum og sniðugum kveikjurum, ferðast um allan heim í gegnum vefmyndavélar og horfi stundum á kettlingamyndbönd í tölvunni á meðan ég hekla jólagjafir, já, ég byrja í kringum páska. En ... furðulegt en satt, það má segja að Óðal hafi í raun aldrei borið sitt barr eftir þetta, ekki einu sinni sem kampavínsklúbbur.
(Afsakið. Myndskreytingar í þessari færslu eru út í hött að mestu leyti.)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.4.2021 | 14:30
Að fleygja í gíg og annan ...
Kassarnir með vörunum stóðu á ganginum þar til í gærkvöldi. Þá var kaffivélin tekin upp, kvörnin, fleiri fylgihlutir og ... ketilbjallan og viftan úr Costco.
Ég er svo vanþakklát í garð tækninnar að ég fnæsti þegar ég sá að það fylgdi fjarstýring með viftunni, hvað varð um on/off-takka, hækka og lækka-takka, því að flækja þetta? En ég hlýt að ráða við eitt stykki borðviftu með fjarstýringu.
Ég gerði nokkrar æfingar með ketilbjöllunni (ekki fjarstýring á henni) og hún er ekki of þung.
Þegar ég áttaði mig á því að það vantaði þjapparann til að ýta á malaða kaffið í greipinni, fékk ég algjört áfall, nú hlaut lítill kassi að hafa orðið eftir í bílnum hjá Davíð, skrambans, eða ég fleygði þessu í fljótfærni. Fóstursonurinn fór niður í endurvinnslutunnu og leitaði í pappanum sem hann hafði farið með niður hálftíma áður - og hækkaði vikulegu vasapeningana sína um 20 prósent fyrir vikið. Já, hér fær fólk borgað fyrir hetjudáðir þótt þær beri ekki ávöxt - því þetta og litlu síurnar ofan í greipina sem hægt er að velja um fyrir einfaldan eða tvöfaldan espressó fundust í plastpoka ofan í vatnstankinum á vélinni. Svo mér er ekkert að vanbúnaði í raun - en sennilega fer drengurinn út í sjoppu á eftir og kaupir meiri mjólk. Nýmjólk auðvitað. Ég er ekki hrifin af G-mjólk því hún freyðir svo mikið og ég vil ekki froðu í latte, froða á að vera í cappuccino ... ok, ég er strax farin að vera óþolandi, skal hætta. Varið ykkur samt á G-rjómanum, hann stendur flottur en mýkir ekki marens eins og sá venjulegi. Húsráð í boði himnaríkis.
Eftir ýmsa dramatík við vefmyndavélina á Fagradalsfjalli í dag virðist allt farið að róast. Mig grunar að rasistar hafi fengið þessa snilldarhugmynd, farið þangað og haldið uppi þessu skilti til að skemma málstaðinn.
Mér finnst samt líklegast að þetta sé bein útsending frá Helvíti og fólkið sem veifar sé í raun að kalla á hjálp vegna hita, leðju, vosbúðar, sjoppu- og klósettleysis og sennilega harmonikkutónlistar. Er ekki alltaf sagt að ríka fólkið sem hefur efni á dýrum mannbroddum fari til helvítis? Að hinir fátæku (þeir sem eru ekki með vesen alla vega) fari á hinn staðinn. Ekki samt himnaríki, það er á Akranesi og í minni eigu.
P.s. Veit að stutt er í að fólkinu með skiltið verður fleygt í annan gíginn eða báða. RÚV er á vaktinni og slekkur strax á útsendingu þegar fólkið birtist. Þetta er ekki vettvangur fyrir neitt annað en gosið - ekki veifandi fólk og alls ekki pólitískar yfirlýsingar, sama hversu góðar þær eru.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.4.2021 | 15:12
Brosað til að lifa af
Gurrí, ekki fara á gosstöðvarnar, bara alls ekki, þetta er svo ofmetið, sagði vinkona mín nýlega. Hún sagði mér að hún hefði nánast dáið við að sjá þetta gos sem væri svo miklu flottara í sjónvarpinu ... svona þegar sést í það fyrir fólki sem veifar og pirrar. (Þetta appelsínugula til vinstri á myndinni er til dæmis ekki eldgos.)
Eldri systir vinkonu minnar skokkaði þetta eldhress og fór síðan í langan hjólreiðatúr um kvöldið á meðan vinkona mín hefur ekki getað ryksugað nú í tvo daga. Þótt ég hefði misst af mér fínu, nýju skóna mína, hefði ég ekki getað tekið þá upp, ég hugsaði bara um að ganga og lifa af, sagði hún. Þessi vinkona mín er í fínu formi, með sixpakk og allt, en vissulega var hvorki vatn né nesti með í för og það nánast drap hana á meðan eldri systir hennar blés ekki úr nös, drakk hvorki né nærðist en hafði nákvæmlega ekkert fyrir þessu. Mögulega eru vélmenni á meðal vor, ég sá Terminator á sínum tíma. Flott heimildamynd.
Í gærkvöldi setti ég inn á Facebook mynd sem tekin var árið 1970 á Langasandinum og Sementsverksmiðjan í baksýn. Frá vinstri: Mía systir, ég, Gummi bró, mamma og Mínerva amma. Hvar varstu, Hilda mín?
Ég minntist á að þarna hefði mamma verið 36 ára, farið í lagningu vikulega og oft gengið með slæðu á höfðinu. Amma dó í febrúar 1971 og í ágúst sama ár fluttum við fjölskyldan til Reykjavíkur - sem eftir á að hyggja var skelfilegt fyrir krakka á þessum aldri - upp á sjálfstraust, einkunnir, félagsskap og fleira.
Það var svo gaman að sjá þessa mynd sem Haraldur frændi frá Ameríku tók í einni heimsókn sinni til landsins, svo fáar til úr æsku, en ég sé að ég var komin með attitjúd þarna, yfirleitt alvarleg á svip, enda lífið ekkert til að grínast með, og var mjög örugg með sjálfa mig. Gekk vel í skóla, átti góða vini og lifði fyrir að lesa þótt þessar tvær bækur sem mátti taka á dag í Bókasafni Akraness á þessum tíma, dygðu mér ekki. (Því var í raun kominn tími á að flytja því Borgarbókasafnið leyfði fólki að taka eins margar að það vildi.)
Þegar við fluttum hvarf einhvern veginn allt sem ég hafði staðið fyrir, ég þurfti að byrja upp á nýtt. Þarna byrjaði ég að brosa - einfaldlega til að halda lífi og gerði mitt besta að fitna svo ég sæist síður. Það mátti alls ekki skera sig úr. Ég gerði það á Króknum 1974-1975 (Álafossúlpa og þröngar niður gallabuxur með heklaðri dúllu á lærinu ... allir í terlínbuxum nema við Óli Matt) og uppskar uppnefnið Mafíuforinginn.
En þarna, nýflutt í bæinn, 13 ára, fékk ég gælunafnið mitt, fyrst Gurra, svo Gurrý og síðan ákvað ég sjálf að hafa það Gurrí og fékk hvetjandi samþykki til þess hjá Orðabók Háskólans sem ég hringdi í þegar vinnufélagi sagði að það ætti að vera ufsilon.
Eftir að einkunnir höfðu lækkað og ég farin að láta henda mér út úr tímum, í leit að minni hillu, hví ekki sem villingur? ákvað Hjalti skólastjóri (og föðurbróðir minn) að færa mig yfir í annan bekk.
(Þriðja myndin: Þarna sést Hilda þar sem hún situr við píanóið, svo er mynd frá Bakkatúni á Akranesi, ein af okkur Míu systur og önnur frá Langasandi)
Í nýja bekknum eignaðist ég góða vinkonu og þá varð allt betra, samt fannst mér þetta aldrei slæmt á meðan á því stóð, bara þegar ég hugsa til baka.
Auðvitað spjaraði ég mig, og við gerðum það öll systkinin þrátt fyrir allt rótleysið, og óvíst að lífið hefði orðið betra þótt við hefðum aldrei flutt frá Akranesi. Kannski hefði ég orðið kennari á Akranesi og væri jafnvel forseti bæjarstjórnar þar í dag, eða kannski farið í bókasafnsfræði eins og mig dreymdi um. En aldrei að segja kannski ...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.3.2021 | 21:44
Glæpónabakarar og fávitavarp
Lífið er stutt - það stutt að maður á ekki að eyða því í að drekka vont kaffi - svo ég fór í Kaffitár í Borgartúni og keypti mér alvörukaffimaskínu og -kvörn og alls konar fylgihluti.
Einhvern tímann á næsta ári þegar ég hef lært á græjurnar verður nú aldeilis gaman að geta boðið upp á alvöru-latte. Er jafnvel að hugsa um að nota páskafríið í námið en miðað við gengi mitt í tölvu- og netmálum grunar mig að útkoman yrði te eða jafnvel eplasafi, hvað veit maður? Veit að stutt er í leiðbeiningar á íslensku frá Kaffitári - þrjú myndbönd sko. Ég fékk heilt kíló af Húsblöndu í kaupbæti og er enn hlýtt í hjartanu eftir einstaka þjónustu.
Talandi um drykki / drykkju ... ég fór á Vor í dal á sínum tíma en það var Hilda systir sem fór á Rauðhettu - ekki ég. Mögulega var ég vaxin upp úr útihátíðaveseni eða var að vinna hjá Hraðfrystistöðinni í Grindavík og fór þá á hátíðina Svartsengi (sem mig minnir) - eða var úti í Eyjum að vinna í Ísfélaginu og þá var nú sjálfmætt á Þjóðhátíð (1974). Ekki með ártöl allra hátíða á hreinu.
Unglingadrykkja var mikil og alveg umborin á þessum tíma (áttunda áratug síðustu aldar) og sá unglingur þótti flottur sem gat t.d. smyglað víni inn á útihátíðir. Líklega á visst skyldmenni mitt smyglmetið ... hún var að vinna í bakaríi á þessum tíma og spurði bakarana hvort þeir væru ekki til í að skella einni Brennivín og einni Bianco (hver man ekki eftir Bianco?) inn í brauðdeig og baka. Glæpónabakararnir voru alveg til í það fyrir þessar unglingsstelpur svo þær gætu dottið í það á Rauðhettu. Inn komust þær með brauðin tvö - engin ástæða til að halda nokkuð misjafnt, enda gekk blekkingin það langt að með brauðinu í pokanum var bæði smjör og álegg til að gulltryggja glæpinn. Svo drukku börnin sitt brennivín og keyptu eflaust rækjusamlokur með einni rækju - eins og algengt var á þeim tíma. Aldrei of illa farið með góða unglinga hét þessi samlokugerð, ef ég man rétt.
Í dag hefði þetta orðið barnaverndarmál og bakararnir verið reknir, gott ef ekki nánast lent á Hrauninu. Enn er drukkið en nú fer það ekki jafnhátt. Þegar krakkar eru komnir í menntó eru bjórkvöld fastur liður - og fyrirpartí (á undan t.d. árshátíð) og þar drekka sextán ára krakkar jafnt sem nítján ára. Drekka allt sem rennur nema skíðasleða og magasleða, eins og Halla frænka myndi orða það. Covid hefur auðvitað klúðrað bjórkvöldum í heilt ár.
Við systur fórum líka í Costco - mig langaði í ketilbjöllu og ég fann ketilbjöllu - sem ég keypti þótt hún væri sennilega allt of þung fyrir byrjendur, eða 12 kíló. Ég fer bara rólega í þetta. Afgreiðslumaðurinn almennilegi (frá Marokkó, giftur íslenskri og búsettur hér í 12 ár) horfði aðdáunaraugum á mig (eins og karlarnir í ræktinni) þegar hann sá ketilbjölluna. Hann var ekki jafnglaður þegar hann sá nautahakkið, sítrónukökuna (sandkaka með sítrónubragði, mjög góð), viftuna fyrir sumarið (hitinn hér við tölvuna fer upp í 40°C á ömurlegustu dögunum. Vont veður í mínum huga: sól, logn og hiti yfir 15°C) - hef ekki keypt meira árum saman í Costco og ekki er allt upptalið. Kortið borgar sig alltaf upp í fyrstu heimsókn eftir endurnýjun, í alvöru. Eins og fyrst, fínir skór þar á 3.700 kr. en kostuðu vel yfir 10 þúsund kr. á Íslandi eins og fólk orðaði það, fannst það vera statt erlendis - gott grænmeti og ávextir og frekar lítið okur ...
Svo heimsóttum við mömmu og dáðumst að útsýninu hennar, sófanum sem við keyptum fyrir hana um daginn, Pétri í útvarpinu (djók) en ég lét hana samt vita að Jóhannesarpassían yrði á Rás 1 um páskana ...
Davíð skutlaði okkur heim á Skagann, enda bíllinn troðfullur af dóti fyrir mig - þar var líka nýi skrifborðsstóllinn fyrir drenginn - og með Muse á hæsta tók ferðin í raun bara tíu mínútur, þannig.
MYND NR. 3: Það var gaman að sjá fólk veifa í gegnum vefmyndavélina svona fyrstu 200 skiptin, svo fór það að verða leiðingjarnt, síðan pirrandi. Nú hefur verið stofnaður Facebook-hópur fyrir þá sem hafa ekki alveg nógu gaman af því þegar einhver skyggir á gosið þeirra.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.3.2021 | 13:44
Ekki kona á mínum aldri
Enn er eldgosið uppáhalds þegar kemur að sjónvarpsefni. Mig langar þó ekki að fara á gosstöðvarnar - af sömu ástæðu og ég hef ekki nennt á útihátíðir síðan ég var 16 ára ... hvar á að pissa, hvar er hægt að kaupa gos (fliss) og rækjusamloku með einni rækju? Reyndar var það hægt á Vor í dal eða Rauðhettu. Já, ég er þetta gömul.
(Myndin tengist ekki beint efni færslunnar en hún er af okkur Kela að berjast um mús)
Í spurningakeppninni á Rás 2 sl. sunnudag sem fjallaði öll um tónlist, gat ég svarað með glans einni spurningu sem var: Madonna og Michael Jackson eru bæði fædd í ágúst 1958, hvort er eldra? Mér leið eins og ég hefði fengið spurningu um póstnúmer á landsbyggðinni í Útsvari. Sko, ég er þann 12., Madonna 16. og Jackson 29.. Hér í denn (og stundum enn) þá þegar mér fannst ég gömul minnti ég mig á að ég væri bara fjórum DÖGUM eldri en Madonna sem væri enn að hlaða niður börnum og halda tónleika. Það þurfti alveg stundum. Við stöllur lítum ekki út fyrir að vera deginum eldri en 61 árs.
Nú er ég búin að fá bréf um að ég, Skagadrósin, eigi að fara í brjóstamyndatöku Í REYKJAVÍK, í Skógarhlíð, hús Krabbameinsfélagsins, svo mín versta martröð varð að veruleika. Ég voga mér að gráta þessar fokdýru færanlegu myndavélar sem voru gefnar Krabbameinsfélaginu á sínum tíma til að ná sem flestum konum í skoðun, sem sagt líka okkum landsbyggðartúttum sem eiga ekki allar bíl. Af því að þetta er vesen þá er svo mikil hætta á því að við frestum ... og svo líða árin. Það var svo góð þátttaka þegar myndatakan fór fram á sjúkrahúsinu hér.
Í bréfinu var ég í fyrsta sinn ekki kölluð kona á mínum aldri! Einnig kom fram að skimað er víðs vegar um landið og þurfi að bíða eftir auglýsingum hvers landshluta fyrir sig. En samkvæmt bréfinu á það ekki við um Skagakonur, því miður. Ég get bara hoppað upp í bílleysið á mér. Vissulega hef ég reynt að fá að vera samfó - spurt en fengið kannski: Æ, ég fór í síðustu viku ... Það þarf einhvern grjótharðan í málið, kannski karl fyrst ekki er hlustað á okkur konur? Kára? Pútín?
Nú þarf að fara að púsla til að reyna að komast frá í hálfan dag plús, plús. Ég vona líka heitt og innilega að hún sé ekki hætt, hjálpsama konan í afgreiðslunni sem með augunum mælir konurnar út og tilkynnir sloppastærð hverrar og einnar hátt og snjallt svo glymur um alla Skógarhlíð. Listinn yfir stærðir hangir reyndar uppi á vegg í skiptiklefanum - en ef við værum nú ólæsar? Eða rasistar og vildum ekki lesa tölustafi af því að þeir eru arabískir?
Ég þurrkaði Krabbameinsfélagið út úr erfðaskránni minni og nú þarf að finna leið til að taka heilbrigðisráðuneytið þaðan líka. Hvernig felur maður stæður af tíuþúsundköllum í dýnunni sinni? Er að spyrja fyrir einhvern annan.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.3.2021 | 23:24
Átakanleg kálfasteik
Eldgosið sýndi sig sæmilega vel í dag, eða eins og sjálfur Ómar Ragnarsson orðaði það: ... gufubólstur sem myndast við það að heitt loft streymir upp í kaldara loft og þéttist.
Í gærkvöldi þegar ég sat við tölvuna hlustaði ég á útvarpið með öðru eyranu. Lagði betur við hlustir þegar maður sem virtist í fyrstu vera í viðtali, fór að tala um að hann hefði nánast farið óvart út í fjárhús seinna þennan dag og þá séð að blessuð kindin var búin að bera þremur lömbum. Svo þurfti ég nú að láta slátra henni ...
Ég fékk sjokk, stökk á fætur og slökkti á útvarpinu, þetta var of harðneskjulegt á laugardagskvöldi, hvað var þessi maður að gera í útvarpinu mínu?
Ég lagðist í rannsóknarvinnu og komst að því að þetta var reyndar létta og káta allir í stuði-næturvaktin (ekki samt ætluð viðkvæmum), þáttur þar sem landsmenn fá að hringja inn, biðja um óskalag og spjalla við útvarpsmanninn.
En kannski fékk sagan góðan endi (held samt ekki) og lömbin þrjú lifðu hamingjusöm upp frá því (held samt ekki). En það fæ ég aldrei að vita fyrst ég slökkti.
Ég lærði vissulega eftir fyrsta sumarið í sveitinni í gamla daga að vingast ekki við kálfana, vera góð við þá en mynda ekki tilfinningatengsl, maður gat nefnilega lent í því að þurfa að borða þá næsta sunnudag með Ora-grænum og rabarbarasultu.
Rás 2 bætti mjög vel fyrir hrylling gærkvöldsins með frábærri dagskrá í dag, sunnudag. Spennandi spurningaþáttur rétt fyrir hádegi, svo var vinsældalisti fyrir aldraða, (ein vika á síðustu öld var tekin fyrir, lagið Firestarter var í fyrsta sæti, Oasis í c.a. þriðja o.s.frv., dásamlegt), svo var hin frábæra, frábæra Andrea með þátt og nú er Tvíhöfði í gangi.
Vinkona mín kíkti í kaffi í dag, hún ætlar að gosinu á morgun eða hinn. Henni var sagt að þyrluvélarhljóðin skemmdu upplifun fólks sem langaði að heyra drunurnar í gosinu. Hún heyrði líka að sumir / einhverjir foreldrar sendu börn sín út á storknað hraunið til að sækja heimilisdrónann sem lenti óvart þar ... Sumir eru greinilega ekkert fyrir börn.
Elsku frábæri Davíð frændi á afmæli í dag, rétt rúmlega þrítugur - til hamingju. (Hættu að hlusta á hlaðvörp, farðu að lesa blogg, drengur!)
Neðri myndin er tekin úti í sveit en þarna var ég orðin talsvert eldri en sá krakki sem neyddist til að borða vini sína, kálfana, í sunnudagsmatinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
27.3.2021 | 14:30
Upprennandi tæknitröll
Einarsbúð kom með vörurnar þegar ég var ekki alveg búin með bloggið í gær en ýtti samt á VISTA. Ellý sá auðvitað í gegnum mig í Bónus og kreppti ekki hinn handlegginn ... svo það sé nú á hreinu. Ég var viðbúin því að þurfa að taka til fótanna en svo þurfti nú alls ekki. Vona samt að hún heimsæki mig yfir páskana ... við erum eiginlega í sömu kúlunni og hittum ansi hreint fáa þessa dagana. En sjáum til varðandi tölur dagsins og svona. Það eru bara tveir í sóttkví á Akranesi, enginn í einangrun. Alls fimm í sóttkví á öllu Vesturlandi.
MYND: Náði mynd af tveimur af næstum fjörutíu eða fimmtíu köttum heimilisins, Krumma og Kela, þar sem þeir flatmaga í glugganum eftir að hafa gert árangurslausar tilraunir til að sjá gosið. Þetta er svo lágstemmt eldgos að hér sést bjarmi ef það er orðið dimmt og ekki vitund skýjað - og með kíki ... góð gleraugu eru líka kostur. (Já, ég er risaeðla, enn með heimasíma. Í gemsanum kann ég t.d. ekki að bregðast við ef símsvari segir: Ýtið á einn ef þið viljið samband við ... Ég fæ tæplega eitt símtal í viku.)
---
Ég hef kannski montað mig af því áður hversu lítt góð ég er þegar kemur að nýjustu tækni og vísindum. Var nú samt á nokkuð löngum zoom-fundi áðan en ég hvorki sást né heyrðist - sem kom alls ekki að sök. Gat meira að segja tengt mig í gegnum tölvuna sem tókst ekki síðast (á fyrsta zoom-fundi lífs míns) og tókst loks með bara smávegis hjálp að fá hljóðið á. Kannski er ég upprennandi tæknitröll?
Lengi vel þjáðist ég yfir því að kunna ekki að taka auto correct af í símanum. Ég sendi samstarfsmanni mínum yfirlesna grein sem lá svolítið á og skrifaði um leið og ég hafði sent honum skjalið: KOMIÐ! Í Messenger-skilaboðaforritinu - síminn breytti því umsvifalaust í LÖMUÐ! Elsku umhyggjusami samstarfsmaðurinn sendi, alveg í sjokki: Er ekki allt í lagi, Gurrí mín?
Og þegar ég sendi eitt sinn: DÁSAMLEGA FYNDIÐ, breyttist það í DADS LEGS FUNDED.
Einu sinni fékk ég skilaboðin ÞRJÚ HREINDÝR? og sendi spurningamerki til baka. Þetta átti að vera ÞÚ HRINGDIR? Ekki nema von kannski að forritið hafi misst sig, hefði kannski skilið betur: HRINGDIR ÞÚ?
Auto correct er ekki lengur í símanum mínum.
Annað svolítið undarlegt er að forritið Word setur upp skrif fólks, og ef maður til dæmis ýtir á enter í skjalinu kemur sjálfkrafa bil, ekki bara áframhald í næstu línu á eftir (ég kann að taka bilið). Og á eftir punkti kemur yfirleitt alltaf hástafur, eins og t.d. í mánaðarheiti. Sé að margir eru hættir að gera bil á eftir punkti, skrifa miskunnarlaust 4.apríl til að sleppa við að komi 4. Apríl ... Það er hægt að hreinsa þetta úr wordinu, sonur minn gerði það fyrir mig í gömlu tölvunni og það var allt annað. Kannski getur Davíð gert það í þeirri nýju (2020). Eða Anna ... eða einhver sem veit sínu viti í þessum málum og ég man eftir að blikka á milli kaffibolla. Fúlt að kaupa Word dýrum dómum og þurfa að leiðrétta villurnar í forritinu oft í hverju skjali.
Jæja, best að fara að baka súkkulaðiköku fyrir drenginn. Veður fer versnandi sem gerir bakstur enn meira kósí, farið varlega, elskurnar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.3.2021 | 14:53
Fjör við frystinn
Kannski frekar veðrið og bílleysið sem fær mann til að panta í Einarsbúð og fá heimsent - en eitthvað annað. Ég er eiginlega komin í sjálfskipað samkomubann og ætla að henda mér í lestur góðra bóka inni í kósí híði mínu (himnaríki) - baka kannski smávegis, jafnvel bananabrauð sem er alltaf vinsælt á heimilinu. Ég pantaði líka Betty Crocker-kökumix sem mömmur.is hafa gert okkur drenginn vitlaus í.
Fyrirhuguð heimsókn frá Reykjavík sem átti að verða á morgun verður ekki. Ef veður leyfir er þó eitt stykki bæjarferð í kortunum hjá okkur á mánudaginn, það þarf að sækja sumargjöf drengsins, fínan skrifborðsstól sem hann hefur lengi þráð að eignast. Eins gott að Rúmfó sendi hann í tíma heim til Hildu í Kópamaros. Svo skutlar Davíð okkur til baka og setur stólinn saman, kíkir á tölvur og sitthvað svona sem hann hefur séð um af miklum dugnaði undanfarin ár. Það ættu öll heimili að eiga einn svona Davíð. Kannski blikka ég hann til að skutla mér í Costco til að kaupa ketilbjöllu ...
Ég átti erindi í HárstofanClassic-ApótekVesturlands-Bónushúsið um daginn og skellti mér inn í Bónus til að kaupa kaffi (Espresso Roma) og smotterí sem fæst ekki í Einarsbúð. Í Bónus var stödd virðuleg pönkdrottning í svipuðum erindagjörðum.
Hurru, Ellý, áttu nokkuð lóð eða ketilbjöllu til að lána mér þar sem öllu verður nú skellt í lás á morgun? spurði ég vongóð. Hélt að hún lumaði á einhverju gömlu og allt of léttu (fyrir hana). Ellý kvað svo ekki vera, sagðist ætíð nota eigin líkama til þjálfunar og sýndi það í verki þarna við rjómaísfrystinn, á milli grænmetiskælisins og mjólkur- og kjötkælisins. Þú kreppir t.d. handlegginn mjög fast, sérðu, svona, og hreyfir hann svo upp og niður, sagði hún og bætti við: Úff, nú er ég orðin örmagna, ég reyndi svo mikið á mig. Sviti og tár fossuðu af andliti hennar niður á gólf, gott ef ekki smávegis blóðflaumur þarna líka. Ég gat samt ekki stillt mig um að biðja hana um að sýna mér þetta aftur.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.6.): 16
- Sl. sólarhring: 26
- Sl. viku: 607
- Frá upphafi: 1528899
Annað
- Innlit í dag: 13
- Innlit sl. viku: 502
- Gestir í dag: 13
- IP-tölur í dag: 13
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni