Ástir og örlög um helgina

ViđreynslaSigurđur flugmađur gerđi fyrr í dag atlögu ađ pipruđum lífsstíl mínum og skorti á flugferđum ... Hann sótti um vináttu viđ mig á fésbók og vegna ţess ađ viđ áttum frekar marga sameiginlega vini ţar, samţykkti ég ţennan stórhuggulega mann. Eitt pínku skrítiđ var samt ađ hann talar bara spćnsku skv. upplýsingum á síđu hans ... sem er slćmt ţví ég kann bara ađ bjóđa góđan dag á ítölsku, pólsku, rússnesku, ensku, dönsku og íslensku. Mađur kemst langt á ţví alls stađar, ekki samt ađ mađur bjóđi endalaust góđan dag á fullu í keleríi. En ég er orđin allt of gömul til ađ geta gert einhverjar kröfur til viđreynenda minna.

 

Ađ sćtur flugmađur fćri á fjörurnar viđ mig var ađalatriđiđ, ég hef alltaf ţráđ náin tengsl viđ flugheiminn og sá strax fyrir mér í hillingum efri árin í vellystingum á Saga Class. Svo eyđilagđi hann allt eftir svona hálftíma. Skrifađi skilabođ: Hallo. Svona halló međ (spćnskum) hreim. Alvöruflugmađur, sama frá hvađa landi, hefđi frekar sagt: „Hć, sćta.“ Ţađ er alla vega reynsla mín af flugmönnum.

 

 

SkrúdrćverÖrlítil von fékk mig ţó til ađ slengja ögn pirruđu hallói? sem svari. Ekki löngu seinna kom lymskuleg en illa hugsuđ pikköpplínan sem tók af öll tvímćli ... hnýsin spurning međ dassi af fitusmánun. Ég get ekki lýst ţví hversu fegin ég er ađ hafa ekki byrjađ međ honum.

 

 

Allt of margir karlar halda samt ađ Facebook sé viđreynslustađur. Geta ţeir ekki haldiđ sig á Spotify bara eđa hvađ ţetta heitir? Já, Tinder.

 

 

Ég var ţó í ađra röndina ţakklát fyrir ađ einhver legđi á sig ađ trufla mig í fásinninu hér á Akranesi ţar sem dansleikir hafa ekki tíđkast í ábyggilega fjörutíu ár (Hótel Akranes hélt geggjuđ böll). Ţegar ég flutti hingađ aftur (2006) var hér bara einn bar, Mörkin, og auđvitađ í tveggja, ţriggja klukkutíma göngufjarlćgđ og bara einn leigubíll sem gekk ekki alltaf. Á endanum fannst mér heiđarlegast ađ koma bara út úr skápnum sem bindindismanneskja, sem ég gerđi svo endanlega ţegar Vínbúđin flutti fyrir nokkru, enn lengra í burtu frá mér. Ég er víst eina manneskjan eldri en 17 ára á Akranesi sem á ekki bíl og mér finnst ekki góđ fyrirmynd ef ég, eina fullorđna manneskjan sem tekur strćtó, heimtađi ađ innanbćjarstrćtó, fullur af saklausum skólabörnum, stoppađi fyrir utan ríkiđ, bara fyrir mig. Ţetta er ástćđan fyrir ţví ađ ég er ég kaffikerling ... sem er tengt ţví ađ ég er hálfgerđ kattakerling líka. Kannski segi ég ţá svakalegu sögu síđar.

(Neđri myndin tengist innihaldi bloggsins ekki beint)


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 190
  • Sl. sólarhring: 288
  • Sl. viku: 1734
  • Frá upphafi: 1453893

Annađ

  • Innlit í dag: 151
  • Innlit sl. viku: 1439
  • Gestir í dag: 142
  • IP-tölur í dag: 140

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Sven-Göran
  • Hálka
  • Sumardagurinn fyrsti 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband