Djúsí dagar, kaffileysi og miðbær Akraness

kaffiÓvænt heimsókn í dag, kaffið frá Kvörn, kaffibrennslu, nánast í eigin persónu. Unga konan sem færði mér það átti leið upp á Skaga, eins og allt gott fólk, og ákvað að nota ferðina. Ég var með nokkrar spurningar og heimtaði að bjóða henni inn. Hún gaf mér góð ráð varðandi innri þrif á fínu kaffivélinni svo ég áttaði mig á því að hér var ekki um venjulegan kaffisendil að ræða, heldur alvörukaffisérfræðing. Hún er nú hlekkjuð við kaffialtarið, mig hefur alltaf vantað svona manneskju í Himnaríki. Hún hefur meira að segja unnið á kaffihúsi í London.

 

Ég má reyndar ekki drekka kaffi næstu fimm daga (fyrst ég nota mjólk), eða á meðan ég er í safakúrnum hjá Kaju. Það gengur allt ljómandi vel. Er búin með tvo safa, þrír eftir, girnilegt Mjallhvítar-epli verður með kvöldsafanum og svo hef ég maulað fræ í dag. Eina sem amar að mér er svolítil syfja, enda vaknaði ég klukkan níu í morgun sem er bara of snemmt. Engin hætta samt á því að ég sofni ofan í lyklaborðið.

 

Vesturgata 25Ég rakst á gamla mynd á Facebook áðan, ljósmynd af húsi sem var verið að rífa (Vesturgata 25), og þá rifjaðist upp fyrir mér að ég bjó í þessu húsi í nokkra mánuði einu sinni, hóf sambúð þar með manni sem hlýtur að hafa síðar orðið fyrsti eiginmaður minn, ef mig misminnir ekki. Þetta var ágæt íbúð, mikið niðurgrafin að vísu ... ég man eftir biðröðinni í Bíóhöllina, barnaskarann sem liðaðist fram hjá á sunnudögum fyrir kl. þrjú. Man eftir mjólk í djúpum diski sem ég setti hrefnukjöt í til að ná lýsisbragðinu úr, óhuggulega fáum bókum, eiginlega bara gömlum barnabókum, og jú, fínasta sambýlismanni, ef minnið svíkur ekki.

 

Mikil umræða er í gangi núna á Skaganum um varðveislu gamalla húsa og marga langar til að gamla Landsbankahúsið við Akratorg fái nýtt hlutverk, til dæmis sem bæjarskrifstofur. Mikið væri gaman ef það gengi upp en húsið þarfnast mikilla endurbóta. Eitthvað var líka búið að tékka á því og það sagt ekki henta. Miðbærinn hefur í einhver ár færst miklu nær Himnaríki ... en er samt enginn sérstakur miðbær, það er klasi af búðum sitt hvorum megin við Stillholtið, bókasafn og matsölustaðir. Í útjaðri bæjarsins (þar sem keyrt er inn í hann) er svo annar búðaklasi með t.d. Bónus. En ef ekki væri fyrir strætó ... kæmist ég ekki í klippingu í Classic, gæti ekki keypt jólagjafir í dótabúðinni, hunsað Dominos fyrir furðureglur í covid (neita að taka símgreiðslu), ekki farið í apótek eða á pósthúsið sem er skammt hjá. 

 

Við Akratorg er auðvitað frábæra ísbúðin Frystihúsið, Gallerí Bjarna Þórs, úrsmiður, gleraugnabúð í grennd og innrömmun, tískubúð í hina áttina, á Kirkjubraut. Grjótið bistró og Gamla Kaupfélagið, Nína tískuverslun, stutt í fiskbúð og þaðan í Einarsbúð ... Virðist nóg en það hefur verið lenska að flytja allt upp í sveit (pósthúsið, ríkið). Það tæki mig allan daginn að fara með mynd í innrömmun, úr í viðgerð, fara í fiskbúð, láta klippa mig og kaupa plástur í leiðinni og komast svo í Einarsbúð fyrir lokun. Ég ætla samt ekki að kaupa mér bíl.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Jamm, það er undarlegt að færa verslun og þjónustu frá miðbæjum hér á Klakanum "út í sveit". cool

30.9.2021 (síðastliðinn fimmtudag):
 
Þétting út_frá_miðkjarna_borgarinnar_hagstæðust 

Íbúum Reykjavíkur hefur fjölgað um heila Akureyri síðastliðna tvo áratugi og væntanlega hafa þeir sjálfir valið að búa í Reykjavík. cool

Með lögheimili í Reykjavík:

Árið 2001: 111.544,

árið 2021: 133.262.

Þeim sem eiga lögheimili í Reykjavík hefur því fjölgað um 21.718 síðastliðna tvo áratugi, eða 19,5%, um þrisvar sinnum fleiri en þeir sem eiga lögheimili á Akranesi, og færri eiga lögheimili á Akureyri, eða 19.219 um síðustu áramót. cool

Þar að auki starfa þúsundir manna í Reykjavík sem ekki búa þar, til að mynda Seltirningar, enda er nánast engin atvinnustarfsemi á Seltjarnarnesi.

Og nú gapir flautaþyrillinn og jólasveinninn Ómar Ragnarsson um "flótta frá Reykjavík". cool

Karluglan er yfirleitt á móti því að byggt sé í Reykjavík, nema þá "úti í sveit". Ekkert megi til að mynda byggja á Vatnsmýrarsvæðinu vegna þess að þar eigi að vera flugvöllur og alls ekki megi stækka Landspítalann við Hringbraut.

Og karlinn vill að Þjóðleikhúsið sé í Ártúnsholtinu, sem hann heldur að sé miðbærinn í Reykjavík. Hann er því að mörgu leyti öfgahægrikarl. cool

Á Vatnsmýrarsvæðinu verða um 740 íbúðir á Hlíðarenda og um 700 íbúðir í Nýja Skerjafirði, samtals um 1.440 íbúðir.

Og þessar íbúðir verða nálægt stærstu vinnustöðum landsins. Landspítalinn er með um fimm þúsund starfsmenn, Háskóli Íslands með um sextán þúsund nemendur og kennara og Háskólinn í Reykjavík um fjögur þúsund nemendur og kennara, samtals um 25 þúsund manns. cool

Verið er að byggja íbúðir fyrir mörg hundruð nemendur Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík á Vatnsmýrarsvæðinu og þar er verið að reisa Vísindagarða.

Um 300 íbúðir verða á Héðinsreit, rétt hjá matvöruverslunum á Granda, til að mynda Bónus, en ekki var pláss fyrir þá verslun á Seltjarnarnesi. cool

Verið er að reisa eða nýbúið að byggja um 360 íbúðir í Efstaleiti, um 100 á Höfðatorgi, um 300 á Kirkjusandi og um 1.500 íbúðir í Vogabyggð,

16.11.2018:

"Gef­in hafa verið út bygg­ing­ar­leyfi fyr­ir 1.344 íbúðir í borg­inni á fyrstu tíu mánuðum árs­ins og árið er orðið metár í bygg­ingu nýrra íbúða í Reykja­vík." cool

"Fram­kvæmd­ir á nýj­um íbúðum eru hafn­ar á 32 bygg­ing­ar­svæðum í Reykja­vík, þar sem má byggja alls 4.828 íbúðir."

Metár í byggingu nýrra íbúða í Reykjavík - Um fimm þúsund íbúðir á framkvæmdastigi í borginni

4.10.2021 (í dag):


""Í fyrra voru tekn­ar í notk­un 1.572 nýj­ar íbúðir í Reykja­vík. Það var met.

Á fyrstu sex mánuðum þessa árs voru þær orðnar 1.422. Það stefn­ir því í annað met. cool

Og verið er að byggja tvö þúsund íbúðir í þess­um töluðu orðum," segir Pawel Bartoszek formaður skipu­lags- og sam­gönguráðs Reykja­vík­ur­borg­ar." cool

4.809 íbúðir eru á framkvæmdastigi í Reykjavík.

Þorsteinn Briem, 4.10.2021 kl. 19:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 240
  • Sl. sólarhring: 260
  • Sl. viku: 1784
  • Frá upphafi: 1453943

Annað

  • Innlit í dag: 194
  • Innlit sl. viku: 1482
  • Gestir í dag: 180
  • IP-tölur í dag: 180

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Sven-Göran
  • Hálka
  • Sumardagurinn fyrsti 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband