Gott gisk og alvarlegur tertuskortur á Akranesi

Facebook bilaðiÞað eina vonda við að Facebook datt út í gær var að geta ekki farið á Facebook og kvartað yfir því að Facebook virkaði ekki ... reyndar hrundi lesturinn á blogginu mínu svo nú veit ég að þeir sem halda því uppi eru fésbókarvinir mínir. Takk, hjartagullmolasnúlludúskarnir mínir. Þið munið að ég stefni að því að komast á TOPP-fimm á Moggabloggi sem  krefst þess að maður sleppi fram af sér beislinu í ... ómennsku.

 

Myndin af Mark birtist á netinu í gær og lýsir sennilega ástandinu nokkuð vel. Og sjokkinu bak við brosið eftir að hafa sett öll tölvueggin sín í sömu körfuna.

 

Fyrsti dagur safakúrsins (í gær) gekk vel fram að kvöldmat, ég drekk fimm safa yfir daginn og má borða eitt epli sem ég hlakkaði til að gera, en ég var búin að gleyma því hvað epli geta verið súr, gat rétt svo með herkjum og hörmungum borðað helminginn. Þegar ég tala um að ég sé sæt á ég ekki bara við útlit mitt, heldur líka bragðlauka, eða valið í lífinu; hvort viltu súrt eða sætt? Þegar ég fór í fyrsta sinn á Subway var með í för vanur einstaklingur sem bauðst til að velja áleggið fyrir mig. Ég horfði full hryllings á hann velja eitthvað á borð við súrsaðar gúrkur, ólífur og slíkt (sem er alveg gott samt en ekki í Subway-báti) og sósan var eins langt frá því að vera góð og hægt var (sterkt sinnep?). Man ekki alveg allt, hef greinilega lokað aðeins á þessa slæmu matarminningu en þessi maður fékk ekki annað stefnumót með mér, minnir mig. Sá sem beið á hliðarlínunni bauð í kvöldverð á Holtinu ... og þar þurfti ég ekki að óttast neitt súrt, því ég pantaði sjálf.

 

Í dag þegar skjálftinn kom (upp á 3,6) gargaði ég: „3,7“ - eða sagði það yfirveguð í fb-hópnum mínum um jarðskjálfta og eldgos. Önnur bauð betur, eða 4,1, en þetta er fyrsti skjálftinn hennar í þessari lotu, hún hefur verið utan skjálftasvæðis um hríð, og kann því ekki á Keilis-skjálftana - ég hef forskot. Mér er meinilla við hristinginn en er ekki jafnstressuð samt og síðast. Bara síðan á mánudaginn í síðustu viku hafa komið 8.200 skjálftar sem er ansi mikið en þeir eru enn það djúpt að einhver bið er eftir gosi, ef gýs.

 

Skóbót Albert eldarNetið hjálpar ekkert á þessum safakúr, eða samfélagsmiðlarnir. Eva Laufey að undirbúa nýja kökubók, mömmur.is iðulega með eitthvað óhugnanlega girnilegt og elskan hann Albert eldar ... birti nýlega uppskrift að tertu sem kallast Skóbót, eitthvað sem Eyjamenn þekkja. Ahhh, hugsaði ég, verð að baka þessa. Púðursykursmarens, namm. Svo mundi ég eftir því að stráksi er ekki svo mikill tertukarl, ég mun minni sælkeri en áður og mávarnir horfnir til heitari landa í vetur. Miðað við þetta held ég að það vanti bara hnallþórukaffihús á Skagann. Það verður að vera gott kaffi í boði, ekki eitthvað sem drykkjafyrirtæki býður þér nánast frítt ef þú býður bara upp á drykki þess, það verða auðvitað að vera góðar tertur og brauðmeti, opið lengur en til fjögur á daginn og opið um helgar. Það var æðislegt kaffihúsið þar sem Frystihúsið er núna, geggjað kaffi og mjög gott brauð, held að lítið hafi verið um tertur, en oft var meðlætið búið seinnipartinn og svo var lokað á sunnudögum sem fór illa í marga.

 

Ég kann enga pottþétta aðferð til að halda góðu kaffihúsi gangandi en matsölustaðirnir hér virðast vel sóttir. Kaja er auðvitað fínasta kaffihús með sjúklega góðan salatbar og smárétti en býður ekki upp á Beilís-marenstertur eða sítrónufrómashnallþórur með bingókúlukremi ofan á, enga óhollustu. Það ríkir sem sagt alvarlegur tertuskortur á Akranesi og maður þarf að þekkja mann sem þekkir konu sem þekkir mann til að komast í kökuboð. Skiljið þið núna af hverju ég vil láta kjósa aftur í NV-kjördæmi? Ef ég breyti atkvæði mínu og kýs eitthvað annað munu það vera terturnar í viðkomandi kosningakaffi sem stjórna því.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

mbl.is 6.10.2021 (í dag):

"Tóm­as Már [Sig­urðsson for­stjóri HS Orku] seg­ir aðspurður að eld­gosið í Geld­inga­döl­um hafi komið upp á besta stað fyr­ir HS Orku. cool

Hugs­an­legt sé að þar verði jarðhita­svæði í framtíðinni og gæti svæðið því orðið orku­lind í tím­ans rás."

Nú er sem sagt í góðu lagi að leggja nýja Suðurnesjalínu og virkja úti um allar koppagrundir á Reykjanesskaganum, jafnvel í Geldingadölum, og reisa ný hús fyrir tugmilljarða króna í Hafnarfirði og Garðabæ, sem byggðir eru á gömlum hraunum. cool

En alls ekki má leggja flugvöll við Hafnarfjörð vegna þess að hraun gæti runnið yfir flugvöllinn. cool

Þorsteinn Briem, 6.10.2021 kl. 08:23

2 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Að hugsa sér! 

Guðríður Haraldsdóttir, 8.10.2021 kl. 17:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 15
  • Sl. sólarhring: 234
  • Sl. viku: 1496
  • Frá upphafi: 1453965

Annað

  • Innlit í dag: 14
  • Innlit sl. viku: 1251
  • Gestir í dag: 14
  • IP-tölur í dag: 14

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Draugar og uppeldi
  • Himnaríki sjór
  • Flutningar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband