Tíska fyrir skrukkur og minning um Keikó

Blóma- og býflugnakjóllGömul uppáhaldsplata á 49 ára afmæli um þessar mundir, Foxtrot með Genesis. Furðulegt hvað tónlist eldist hraðar en mannfólkið. Það er engin tæp hálf öld síðan ég sökkti mér niður í þessa tónlist. Meira ruglið.

 

Fataframleiðendur (útlenskir) halda líka að ég sé orðin einhver skrukka og ota frekjulega að mér auglýsingum um alls kyns hallærislegan  fatnað. Mér fannst mamma vissulega orðin kerling þegar hún var þrítug, í ljótri kápu, með slæðu og kellingaveski, hún lét aldrei sjá sig með rúllur í hárinu á almannafæri þó. Ég þakka það hippunum og tilkomu þeirra að ég endaði ekki með slæðu. Það munaði ekkert mörgum árum.

 

En að fá otað að sér kjól með blómum og býflugum finnst mér ekki bara dónalegt og geta valdið óheppilegum hugrenningatengslum hjá aðdáendum mínum, heldur tillitsleysi gagnvart íslenskri konu (mér) sem enn er ekki orðin vön býflugum og geitungum. Það uxu alveg blóm og tré fram til ársins 1985 en nú lætur fólk eins og það sé þessum kvikindum að þakka hversu grænt (og flugnaþrungið) landið er orðið. Þegar þessar stinguflugur gerðu innrásina ógleymanlegu vorið 1985 gerði það marga Íslendinga að innipúkum á sumrin, ef heimildir mínar eru réttar. Aðrir fluttu út á land til að komast nær sjónum ... og hafa til dæmis ekki séð eina einustu flugu í allt sumar. Nema þetta sé blómakjóll á myndinni sem laðar að sér risabýflugur og það náðist á mynd? Sama og þegið. Buxurnar hér neðar eru líka dæmi þess hvað ég má þola á netinu. Tískuvitund minni er stórlega misboðið, eða Ísland of kalt fyrir svona föt, ef ég er kurteis.

 

Skömmu fyrir hádegi í dag mætti mér erfið áskorun. Tölvan hætti að virka og ég átti að byrja að vinna kl. 12. Davíð í Kópavogi og allt í volli. Þegar mesta áfallið var liðið hjá ákvað ég að ónýtt fjöltengi væri ástæðan og hófst handa við að skipta því út ... og viti menn, þetta var rétt. Svo ég get kallað mig tölvunarfræðing, alla vega tölvufræðing. Hér má segja svona ... hjá Þingeyingi er ekki gott, eiginlega óhollt, að halda monti í sér.

 

Skvísubuxur ...Tíska er svo erfið. Ég man eftir mörgum stelpum sem sveltu sig þegar Twiggy Kate Moss var aðalfyrirmyndin. Núna er eiginlega allt í tísku, það má alveg vera stór eða lítill, mjór eða grannur - á meðan maður hættir ekki heilsunni. Svo eru það litirnir. Ég er mjög hrifin af litum, því skærari því betri en enda svo oft með svarta flík af því að hún er klæðileg og grennandi, oft sparileg ... þá á ég að vera þunglynd ... mér finnst svartur litur bara mjög fínn og er ekkert glaðari í rauðu eða bláu. Svo þegar ég kannski finn hinn fullkomna rauða lit er flíkin ekki passleg. „Ég er kannski feit miðað við Kate Moss en ég er tággrönn miðað við Keikó,“ sagði ég stundum í gamla daga og lét þetta lítið á mig fá ... kannski hefur Kate fitnað með árunum og Keiko orðinn ekkert nema beinin.

 

Ég fékk spurningu frá einhverju dagblaði einn dag í desember eitt árið og var spurð hvað hefði verið minnisstæðast frá líðandi ári. „Að hitta Keikó,“ svaraði ég hreinskilnislega ... á meðan hinir töluðu allir um eitthvað úr heimsfréttunum. Það var þá sem ég áttaði mig á sjálfhverfu minni ... eða kannski hélt að verið væri að spyrja mig hvað í mínu lífi ... Við fórum hópur í hagnýtri fjölmiðlun til Vestmannaeyja í nokkra daga og fengum að kíkja á Keikó sem var nýkominn til landsins. Við náðum mjög vel saman.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Genesis voru bestir þegar Peter Gabriel var þar. T.D. Selling England by tha pound,og Lamb lies Down on Broadway.

Tomas Runar Andresson (IP-tala skráð) 11.10.2021 kl. 12:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 247
  • Sl. sólarhring: 250
  • Sl. viku: 1791
  • Frá upphafi: 1453950

Annað

  • Innlit í dag: 197
  • Innlit sl. viku: 1485
  • Gestir í dag: 182
  • IP-tölur í dag: 181

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Sven-Göran
  • Hálka
  • Sumardagurinn fyrsti 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband