Matarvesen tískudrósar

Sushi og trefillGalito-ferðin gekk bara ágætlega, þannig séð, og hjálplega ljúfa stúlkan sem þjónaði okkur verður okkur eflaust eilíflega þakklát fyrir alla þessa ókeypis hreyfingu sem við veittum henni með pöntunum okkar. Hilda pantaði t.d. girnilegt kjúklingadæmi en bráðatómataofnæmið hennar þoldi ekki að kjúklingurinn hafi verið marineraður í tómatpuré, það eina á matseðlinum sem það átti við, of kors. Ég var með eitthvað svipað, nema hnetuvesen (ekki bráða) og það var ekki einu sinni þvingað brosið á elsku stúlkunni. Heldur ekki þegar yngsta barnið við borðið læsti sig inni á klósetti og gat svo ekki opnað. Jú, jú, henni var fylgt þangað og sagt að það mætti ekki læsa en allir vita svo sem hvernig þetta íslenska kvenfólk er!

 

Ég fékk mér sushi í stíl við bleika hálsklútinn (sjá mynd) og er ekki frá því að ég hafi vakið mjög mikla lukku fyrir vikið, hjá þjónum og öðrum viðskiptavinum. Þetta á ég til, alveg óvart stundum, en samt. Ég á nánast bara svört föt (praktískt) og alveg geggjað að lífga upp á þau með sterkum litum í skartgripum og nú seinni árin klútum (sem fela undirhöku á smartan hátt), og sjálfsagt að borða líka litríkt. Svart finnst mér nú alltaf töff litur og bjánalegt að segja að fólk í svörtu hljóti að vera þunglynt. Sumir hafa greinilega ekki séð Men in Black! Í fyrradag var ég sambland af þeirri mynd og Pretty in Pink. 

 

Mosi og GolíatAf öðrum matarfréttum ... um daginn nöldraði ég (var „hangry“) á Facebook yfir pítsu frá ónefndum stað, því stráksi fékk ekki aðstoð við að velja eitthvað annað, ég vildi grænmetispítsu sem var ekki til, en fékk kjúklinga- með sterkri sósu og gat ekki borðað sneiðina. Þetta var bara nöldur í mér, ekki einu sinni sanngjarnt að ætlast til þess að starfsfólkið skipti sér að svona, og ég nefndi ekki fyrirtækið á nafn, þurfti bara samúð ... Svo gleymdi ég þessu þar til var haft samband við mig, dásemdarkona sem spurði fyrst hvort ég hefði verið að meina staðinn sem hún stjórnar, og vildi svo endilega gefa mér gjafabréf ... Veit sannarlega ekki hvort ég eigi það skilið og alveg spurning hvort ég þiggi það, svona eftir á að hyggja, en ég er stórhrifin af þessum viðbrögðum sem gerðu mig glaða og þakkláta. Takk, Birgitta á Sbarro. Svona starfsfólk myndi ég vilja hafa í vinnu ef ég ætti fyrirtæki.

Í gær fékk ég fínustu sumarheimsókn, það kom dásamlegt frændfólk og hafði yngri heimilisköttinn með í för, hana dýrlegu Þoku sem er ársgömul en samt svo lítil, alveg eins og kettlingur. Keli var farinn að leika við hana fyrir rest en hún hafði samt mest gaman af því að ráðskonurassast með þá alla, horfa á þá og hvæsa gribbulega, hlaupa svo í burtu. Þeir nenntu ekki einu sinni að hvæsa á móti, héldu sig bara fjarri. Hún kom í heimsókn fyrir einhverjum mánuðum og þess vegna var allt í lagi, þeir þekktu hana. Hundar eru aldrei vandamál í Himnaríki, þeir lúta höfði í lotningu fyrir köttunum og fá því að halda lífi, en gestkomandi kettir myndu bara uppskera vesen.

Neðri myndin frá miðvikudegininum, sýnir Mosa - og hvítu krúttin, Golíat og Herkúles, með litlu systur. Stór nöfn, stórir karakterar, hugumstórir þar til Krummi the kreisí killer mætir á svæðið. Hann hefur slegið Golíat (sem dirfðist að gelta á hann) engar klær samt eða hvæs, en báðir hvuttarnir óttast hann mjög eftir það. Mosi og Keli, hundavinirnir miklu eru hreinlega hrifnir af þeim hvítu, veit ekki hvaða stælar þetta eru í Krumma sem hlýtur að hafa verið í grennd miðað við óttasvipinn á voffa á myndinni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 144
  • Sl. sólarhring: 294
  • Sl. viku: 1688
  • Frá upphafi: 1453847

Annað

  • Innlit í dag: 113
  • Innlit sl. viku: 1401
  • Gestir í dag: 109
  • IP-tölur í dag: 108

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Sven-Göran
  • Hálka
  • Sumardagurinn fyrsti 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband