Ófært!!!

Hviður á KjalarnesinuSá hlær best sem síðast hlær. Þetta á vel við um storminn sem hvín á Kjalarnesinu núna með hviður upp í 45 m/sek. Ég sé eftir því að hafa gert grín að honum og  þannig hvatt hann til að láta svona illa. Enginn strætó gengur nú á milli Akraness og Reykjavíkur vegna óveðurs, hvassviðris, storms ... Ég sat reyndar ekki klukkan sex og beið eftir strætó, heldur sofnaði aftur, kíkti síðan á hviðusíðuna næst kl. 7 og eftir næsta blund hringdi ég í stjórnstöð Strætó og fékk að vita að engin ferð var heldur kl. 9.41. Svo gerði heimasíminn minn sér lítið fyrir og bilaði. Hvert hringir maður til að fá bót meina hans? Er ekki búið að loka 05?


LestÍ einum fegurðarblundinum í morgun dreymdi mig að ég kæmist nú samt í vinnuna með lest gekk á milli Akraness ... og Lundúna. Ég var eitthvað sein og beið eftir upplýsingum frá breskri starfskonu, sem var að prjóna, um það hvaða lest ég gæti tekið til að komast í vinnuna.

Þetta hlýtur að tákna að minnsta kosti Heklugos!!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

8007000

:)

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 24.9.2007 kl. 10:30

2 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

heklugos, ekki spurning !

Guðrún Jóhannesdóttir, 24.9.2007 kl. 10:31

3 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

1771 úr GSM

Kjartan Pálmarsson, 24.9.2007 kl. 10:32

4 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Takk, þið eruð æði!!!

Guðríður Haraldsdóttir, 24.9.2007 kl. 10:37

5 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Ert þú sem sagt með afsökun fyrir því að kúra á mánudagsmorgni?

Heiða B. Heiðars, 24.9.2007 kl. 10:48

6 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Svona líka góða, hefði þó getað kúrt til hádegis ... hellti bara í mig kaffi kl. 9 og er að drepast úr samviskusemi ... get nefnilega unnið heima. Allesatt!

Guðríður Haraldsdóttir, 24.9.2007 kl. 10:57

7 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Ohhhhhh það er svoooooo kósý að vinna heima!! Ég er farin heim :)

Heiða B. Heiðars, 24.9.2007 kl. 11:30

8 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Já Gurrí mín ég man það núna að ég talaði við þig í morgun í svefnrofunum. Þú baðst mig að láta hvessa svo þú þyrftir ekki að fara í vinnuna og slíta símastrenginn svo þú fengir frið. Og nú heimtarðu Heklugos!!! Ég held að við hér í London getum ekki orðið við þeirri bón þinni núna en skvettum á þig stórbrotnum öldum sem eru engu líkar. Kíktu bara út um gluggann þínn núna. Kveðja frá Lon og Don...njóttu þess að dingla þér á náttfötunum darlingið mitt.

Knús

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 24.9.2007 kl. 12:22

9 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

og er mín þá bara á náttfötunum fyrir framan tölvuna með Jónas malandi við fætur sér. Assgotinn.

Jóna Á. Gísladóttir, 24.9.2007 kl. 12:43

10 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Held að öldurnar verði stórkostlegar á morgun, Katrín, núna heldur vindurinn þeim algjörlega niðri (ekki rétta vindáttin). Ég er í náttsloppnum yfir fötunum, hann er svo hlýr, Jóna. Takk fyrir að minna mig á J'onas, best að setja hann í gang, þessa elsku. 

Guðríður Haraldsdóttir, 24.9.2007 kl. 12:53

11 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Næsta blogg frá Gurrí verður frygðarstunublogg....Jónas í stuði og hún á náttfötunum og getur argað eins hátt og hún kærir sig um í þessum óveðursham Mér hefði auðvitað aldrei dottið neitt eins dónalegt í hug ef ekki hefði verið fyrir upplýsingarnar hér fyrir neðan um hvað Jónas gerir þegar hann er búinn með gólfin. Svo þetta er ekki mér að kenna.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 24.9.2007 kl. 12:57

12 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Kristín Katla Árnadóttir, 24.9.2007 kl. 13:30

13 identicon

Eftir að hafa lent í hinum og þessum hremmingum í svona veðri sé ég á fréttum síðustu daga og blogginu þínu að það er ekki séns að ég geti búið á Akranesi

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 24.9.2007 kl. 13:39

14 Smámynd: Þröstur Unnar

Kommon, hún villdi ekkert símanúmer, fattið þið þetta ekki. Það er búin að vera renni blíða í allan dag, nema kannski um 7 leitið.

Þröstur Unnar, 24.9.2007 kl. 13:53

15 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Það er allt í lagi með veðrið á Akranesi, bara smágola hérna, en á Kjalarnesi gegnir allt öðru máli, þar hefur verið brjálað hvassviðri síðan seinnipartinn í gær og strætó ekkert gengið í dag. Er að lægja núna. Það er frábært að búa á Akranesi ... 

Guðríður Haraldsdóttir, 24.9.2007 kl. 14:11

16 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Skolli gott hjá minni, búin að fá veðrið í lið mér sér.  Haha, á svo að vera heima á morgun líka?  Flott.

Jenný Anna Baldursdóttir, 24.9.2007 kl. 14:23

17 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Neibbs, elskan. Ég fer í vinnuna. Tek mér frí á fimmtudaginn og þarf að vinna daga og nætur þangað til svo að ég geti klárað ... blaðið í prentun á föstudag! 

Guðríður Haraldsdóttir, 24.9.2007 kl. 14:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 213
  • Sl. sólarhring: 265
  • Sl. viku: 1757
  • Frá upphafi: 1453916

Annað

  • Innlit í dag: 171
  • Innlit sl. viku: 1459
  • Gestir í dag: 160
  • IP-tölur í dag: 158

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Sven-Göran
  • Hálka
  • Sumardagurinn fyrsti 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband