Algjör misskilningur ...

Ýmsar kenningar í Da Vinci CodeÞegar ég labbaði niður tröppurnar í morgun skömmu fyrir kl. 6.30 sá ég lögreglubíl dólandi skammt frá. Ókei, útgöngubann skollið á, hugsaði ég og reyndi að halda ró minni. Fréttirnar hafa verið svo sjokkerandi undanfarið að það hefði ekki komið mér á óvart. Svo kom Ásta keyrandi, sallaróleg og töff að vanda og löggan flúði, enda getur Ásta vissulega verið ógnandi þegar hún tekur sig til og það veit löggan. Þeir eru því miður ekki hræddir við mig, löggumennirnir. Þeir, eins og flestir, halda að ég sé miklu betri manneskja en ég er ... gjörsamlega óþolandi! Einu sinni gerði ég t.d. létt grín að bók sem kom út í kjölfar vinsælda Da Vinci-lykilsins ... Ég taldi upp persónur bókarinnar og hluta plottsins sem var bókstaflega eins og í Da Vinci-lyklinum. Ég endaði á því að skrifa: „Að öðru leyti minnir þessi bók ekki á Da Vinci-lykilinn.“ Svo flissaði ég subbulega og ýtti á Vista og birta. Kommentin sem ég fékk á færsluna voru á þann veg að fólk ætlaði sannarlega að fá sér þessa bók og lesa, sem var bara fínt, þetta var fínasta bók, spennandi og alles þótt hún fetaði samviskusamlega í fótspor DV-lykilsins efnislega séð. En það fattaði enginn að ég var að reyna að vera pínku hæðin og andstyggileg. Algjör misskilningur.

Ég sagði Ástu á leiðinni að ég hefði keypt kreppumat í Einarsbúð í gær, pasta, hvítlauk, lauk og slíkt ódýrt og nú verði bara kolvetnasukk á heimilinu. Hún var í svipuðum þönkum og keypti pítubrauð, 4 í pakka á 200 kall, og það bragðaðist bara vel með einhvefju grænmeti í, auðvitað. Mig langaði að kaupa lifur en ég lærði einu sinni ansi góða uppskrift að lifrarbuffi ... sem er næstum eins og lummuuppskrift (mínus sykur), með hveiti, eggi, mjólk og svona, líka bakað eins og lummur og er bara hrikalega gott með kartöflumús (ekki úr pakka). Best að kaupa lifur fyrir helgina. Verst að eiga ekki hakkavél eða matvinnsluvél eða blender ... eða jamm, allt slíkt á HOLD fram fyrir kreppu.

Mikið er æðislegt að það verði tónleikar til styrktar litlu snúllunni henni Ellu Dís á mánudaginn kemur. Vikan var einmitt með viðtal við mömmu hennar í fyrra. Skrýtið ... að í skjáauglýsingum Stöðvar 2 segir þulurinn alltaf „til styrktar Ellu DísAR“ Vona að þetta verði lagað!

Megi dagurinn ykkar verða sem allra bestur!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aprílrós

Eigðu góðan dag mín kæra ;)

Aprílrós, 8.10.2008 kl. 08:37

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég held að ég viti hvaða bók þetta er sem er að öðru leyti ekki eins og Davinsílykillinn.  Múha.

Þú ert dúlla og njóttu dagsins.

Áteggi blender vúman?  Frussssssssssssssss

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.10.2008 kl. 09:12

3 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Sömuleiðis, elskur!

Guðríður Haraldsdóttir, 8.10.2008 kl. 09:34

4 identicon

Já mín kæra, óskaplegar fréttir tröllríða okkur þessa dagana, hver vandræðin á fætur öðrum....arrrrg ! En það góða í þessu er að t.d. ég rifjaði upp gamla takta og tók slátur og hakkaði lambaþindar. Til gamans má geta að kg. af þeim kostar 176 kr. og ég tók 10 kg. og fékk í 10 máltíðar prýðis lambahakk. Við lumum á mjög góðri uppskrift af lifrarklöttum eða buffum ef þú villt prufa? Við steyktum í fötu um daginn og stungum henni bara í frystinn og munum týna úr henni reglulega í vetur. Það er góð tilfinning að hafa fulla kistu matar í búrinu, burtséð frá kreppunni !

Elín (IP-tala skráð) 8.10.2008 kl. 09:36

5 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Já, Elín, ég þigg alveg góða lifrarklatta-uppskrift. Mikið ertu DUGLEG!!!

Sömuleiðis, Helga.

Guðríður Haraldsdóttir, 8.10.2008 kl. 10:19

6 identicon

Ekki málið ég skelli henni í póst til þín !  Og takk, takk, er nú pínu ánægð með mig sko !

Elín (IP-tala skráð) 8.10.2008 kl. 10:37

7 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Dagurinn ágætur hérna hingað til mín Lagði, bullandi sól og blíða bara!

En þú ert ekki að tala um bókina sem Browne á að hafa notað (nú eða stolið hvernig sem menn vilja líta á það?) sem fyrirmynd og einhver málaferli hafa orðið eða eru fyrirhuguð út af!?

Eftir norðmanninn þarna ekki satt?

Magnús Geir Guðmundsson, 8.10.2008 kl. 11:36

8 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Það koma komið út svo margar bækur í þessum dúr, um fornleifafræðing og löggu sem rannsaka mál sem tengjast handritum, dulmáli og slíku og má kannski segja að allar séu þær í stíl við Indiana Jones. Ekki átti Ian Fleming einkarétt á njósnasögum þótt hann skrifaði um Bond. Þetta eru misjafnar bækur, sumar alveg þrælskemmtilegar reyndar. Veit ekkert um þessi réttarhöld, þú fylgist greinilega betur með en ég, Magnús.  

Líst vel á það, Elín. Takkkkkkk

Guðríður Haraldsdóttir, 8.10.2008 kl. 11:48

9 identicon

Heil og sæl Frú Gurrí, já blessuð lifrin er alltaf góð, með lauk og eplum mmmmmmm en það er eitt er ég sakna að geta ekki keypt og hef ekki fengið hér á landi í mörg ár, það er mintugel sem er allveg æðislegt með lifur og kartöflumús. Ertu búin að prufa grautinn sem ég sagði þér frá hér um daginn? þetta er rosalega góður grautur sem grunnur fyrir daginn.

kv siggi

siggi (IP-tala skráð) 8.10.2008 kl. 15:05

10 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Skil þessa tilfinningu með útgöngubannið.  Fékk ámóta fílingu í dag þegar ég var að keyra milli staða uppúr fjögur í dag  og það var blaðamannafundur í útvarpinu og allt var hljótt í Síðumúlanum og Ármúlanum. Fáir bílar á ferli, allir að hlusta allstaðar. Mér fannst andartak að ég heyrði í loftvarnarflautum. En það var víst bara gemsi að hringja hjá einhverjum i útvarpinu ....

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 8.10.2008 kl. 22:17

11 Smámynd: SigrúnSveitó

SigrúnSveitó, 8.10.2008 kl. 23:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 34
  • Sl. sólarhring: 418
  • Sl. viku: 1913
  • Frá upphafi: 1454787

Annað

  • Innlit í dag: 23
  • Innlit sl. viku: 1557
  • Gestir í dag: 22
  • IP-tölur í dag: 15

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Bakklóra
  • Snorri og Patrik
  • Vifta

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband