29.9.2021 | 19:35
Mögulegt endurgos, vesen í NV og líka hjá prinsum
Rétt fyrir klukkan fjögur í dag var lífið ansi hreint ljúft. Og af því að það skiptir máli fyrir það sem gerðist nokkru síðar, þá var uppþvottavélin rétt ófarin af stað, nánast orðin full, bara kvöldmatarleirtauið sem vantaði, þurrkarinn lauk vinnu sinni við rúmfatnað í morgun, ætíð á sama prógramminu af því að honum fylgdu ekki leiðbeiningar á íslensku og þess vegna kaupi ég aldrei aftur Siemens (sama með þvottavélina). Það var vissulega kveikt á kaffivélinni og tölvunni ... vatnsbrunni kattanna, jú, eitt útvarp mallaði og þögult sjónvarp við vinnuna sýndi eldgos í pásu.
Þá fór rafmagnið! Gjörsamlega óvænt. Ég hélt ró minni, tölti sæmilega léttstíg niður í kjallara og ýtti upp takka í stóru töflunni. Þegar upp í Himnaríki var komið aftur ríkti enn myrkur og nístandi þögn. Kettirnir voru mjög eymdarlegir á svipinn. Aftur niður milljóntröppurnar en nú var takkinn enn uppi, fýluferð. En í kósíhorninu þar sem mini-rafmagnstaflan ríkir, kom í ljós að takki þar þurfti lyftingar við - en allt kom fyrir ekki.
Nú fór ég að hugsa. Gat verið að Ástrós einkaþjálfari væri að reyna að koma mér af stað í ræktina, eftir allt of langa pásu sem kvef (ekki covid) og þursabit ollu, b-bólga bætti svo ekki úr skák, hvað þá eldgos á Kanarí?
Gat verið að hún væri svona ótrúlega spennt fyrir árangri mínum í ræktinni að hún brytist inn í kjallarann og ýtti á takka?
Heillandi hugmynd en ég hringdi samt í hirðrafvirkja Himnaríkis sem kom nánast um hæl, eða eftir hálftíma. Einhver leki, ekki hættulegur, lofaði hann mér, ég er svo hrædd við rafmagn, hann kemur bráðum og mælir eitthvað, og þá vonandi hættir að slá út - það hefur gerst nokkrum sinnum í ár en alltaf nægt, þar til nú, að fara EINA ferð niður og ýta takkanum upp þar.
Enn er allt brjálað vegna kosninganna og mögulegra endurkosninga, meira að segja búa eldar á Reykjanesskaga sig undir að endurgjósa* ... (*Kristján Loftur Bjarnason).
Glúmur ætlar að hleypa almennilegu fútti í næstu kosningar og reyna að ná borginni af femínistunum, hann ætlar m.a. að passa upp á einkabílinn sem núverandi virðist hata og passa upp á að rétttrúnaðurinn ríði ekki áfram rækjum* (*Oddur M.).
Verst að vera í Norðvesturkjördæmi ... eða kannski ekki, mesta fjörið er hjá okkur. Flestir sem ég tala við vilja að fyrri talning gildi, nema verði kosið aftur, í NV eða um allt land. Þetta er nú meira klúðrið en verður eflaust til þess að eftirlit verði aukið alls staðar, sem er fínt. Og að talningin fari fram á fleiri stöðum! Ömurlegt að láta t.d. veður hamla því að kjörgögn nái í talningu á bara einum stað sem er kannski langt í burtu. Sem getur auðveldlega gerst hér á landi.
Sem minnir mig á að ég er mjög beisk og sár yfir því að bláfáninn hafi verið tekinn niður (nýlega) við Langasand. Ég gat séð áttina og vindstigin bara með því að horfa út um gluggana sunnanmegin, sjá hvernig hann blakti og vera hreykin af hreinu ströndinni minni. Langisandur er nefnilega bláfánaströnd allt árið, fáninn sem var tekinn var merktur 2021-2022, svo hann hefði mátt vera fram á vor 2022.
Glúmur óskar sérstaklega eftir því að fá til liðs við Flokkinn þá karla sem hafa verið kúgaðir af femínisma! Bíddu, eru það ekki ALLIR karlar? Og allar konur sem elska karla? Bara allir?
Ég er hugsandi manneskja sem gleypir ekkert hrátt (ekki einu sinni hakk), hef sterkt á tilfinningunni að lætin í London, meint hatur sumra á Harry og Meghan sé aðeins til að beina athygli okkar frá veseninu á uppáhaldsbarni (fyrrverandi?) drottningar, honum Andrési.
Sennilega veltist öll konungsfjölskyldan um af hlátri yfir því að hafa klofið heiminn í tvennt, í þá sem halda með konungsveldinu og hina sem halda með Harry og Meghan. Ég held með drottningu, sennilega af því að enginn hefur fengið að sjá mynd af Lillibeth Harrysdóttur, mögulega enn eitt samsærið, þau hafa kannski verið svo óheppin að eignast annan son og geta ekki horfst í augu við það og þá þarf að blekkja allan heiminn í leiðinni. Ég bar þetta undir mömmu í vonleysi rafmagnsleysisins í dag en hún telur þetta of langsótt hjá mér, það fyrirfinnist alveg ósætti í heldri fjölskyldum, hjá hefðardúllum* (*baj), og kannski þyki Andrés bara ekki jafnáhugaverður og ungu hjónin sem flúðu til Bandaríkjanna ... og fá ekki einu sinni lífverðina á kostnað bresks almennings! Held að þau rétt dragi fram lífið með bara örfáar milljónir á mánuði. Elsku krúttin.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.9.2021 | 18:24
Ólöglegar vefmyndavélar og furðuhópar á Facebook
Árum saman ferðaðist ég um heiminn í gegnum vefmyndavélar, og skemmti mér konunglega með aðra hönd á mús og hina með kaffibolla. Sparaði einhver ósköp líka. Í dag langaði mig að kíkja á Norðvesturlandið mitt, en norðar, og sjá veðrið, en mér til skelfingar sá ég að vefmyndavélum okkar hafði fækkað niður í þrjár. Tvær frá Akureyri (önnur úr Gilinu, hin frá flugvellinum en ekkert spennandi) og sú þriðja frá golfskála! Keilir golf club-eitthvað (sjá mynd).
Opentopia.com safnar (ólöglega) vefmyndavélum á síðu sína og fækkun á íslenskum vélum þar getur stafað af meira öryggi vélanna. Engar klámvélar samt, nema neðst á síðunni (sjá mynd) ... eflaust til að fjármagna þetta, eða boðið upp á spjall við hressar og léttlyndar konur og það kostar eflaust sitt. Þetta gætu auðvitað verið spákonur, í gamla daga var hægt að fá spá í gegnum síma, man ég.
Ég sakna Ólafsvíkur, Ísafjarðar, Vestmannaeyja, Siglufjarðar, Stykkishólms (Míla er reyndar með þá vél) og fleiri staða sem gaman var að heimsækja á þennan hátt.
Einu sinni átti ég vefmyndavél og hafði hana í svefnherbergisglugganum mínum, þá var það vinnuherbergi. Hún vísaði út á sjó og var ljómandi skemmtileg, fannst mér. Sonur minn, þáverandi hirðtölvumaður minn, vistaði hana í gegnum java-eitthvað sem varð með tímanum svo vírusaviðkvæmt að fyrir rest komst ég ekki inn í eigin vél í tölvunni og á endanum hætti hún svo bara að virka. Takk, Java-drasl, takk kærlega. Opentopia gat ekki rænt henni - mátti það samt alveg, mín vegna. Í gegnum yr.no, eða norsku veðursíðuna, var hægt að finna vélina og mig minnir að á stuttum tíma hafi verið kíkt á hana yfir 40 þúsund sinnum. Virt vefmyndavéladæmi Earthcam.com, svona alvörudæmi, skellti henni í best of-mánaðarins með fleiri vélum reyndar ... en samt, svo sigurganga vélarinnar hefði orðið með ólíkindum (Óskarsverðlaun?) ef java-klúðrið hefði ekki komið til. Drekk ekki einu sinni java-kaffi, ég er svo beisk.
Við erum líka ansi beisk og sár yfir kosningaklúðrinu okkar, ég myndi gjarnan vilja að talið yrði víðar almennt, ekki bara á einum stað, það hlýtur að vera mun fljótlegra og ég býð mig fram hér á Akranesi. Er nákvæm og smásmuguleg, þegar ég þarf, stjörnuspekifrændi minn segir að Merkúr í meyju bjargi mér, hvað sem það þýðir.
Ætli verði ekki heiðarlegast, ef ekki á að kjósa aftur í NV, að láta fyrri úrslit gilda? Ef bara örlítil hætta er á því að einhver hafi getað átt við atkvæðin, verður að gera það. Það er líka ferlega fyndið að Alþingi ráði því hvort verði kosið aftur ... Mitt atkvæði breytist þó ekki, ef kosið verður aftur en sennilega verða einhverjar smábreytingar samt. Vildi gjarnan sjá hinn frábæra, klára og skemmtilega Valgarð (Samfylking) ná inn á þing, hann er kennari en samt ágætur, brilleraði (eins og ég með Oliver Twist) í Útsvari fyrir nokkrum árum. Margir fínir náðu inn á þing en ég er ekki sátt við alveg alla ... nefni ekki nafn hans - og svo á að fækka þingmönnum okkar um einn frá og með næstu kosningum sem er áfall! En við hefðum svo sem getað endað með Angelu Merkel, þetta með uppbótarþingmenn var orðið svo ruglingslegt ...
Hóparnir á Facebook geta verið ansi skemmtilegir ... ég er t.d. í hópi áhugafólks um þakrennur ... í alvöru, fallegar konur geta alveg verið nördar. Vona að ég verði ekki ofsótt fyrir að hafa rænt myndinni ... en það er hefð fyrir því hér í NV.
Og svo gekk ég nýlega í aðdáendahóp um Stephen King - ég sem horfi t.d. ekki á hryllingsmyndir er afar hrifin af flestum bókum hans. Var óheppin með fyrstu bókina sem ég las, Gæludýrakirkjugarðinn, og eins og ég hef sagt frá áður, henti kunningjakona mín bókinni The Dark Half - hafði hana í láni frá mér en gleymdi því í allri geðshræringunni yfir því hvað hún væri viðbjóðsleg ... svo ég hef ekki lagt í hana.
Hér koma nokkrar staðreyndir um Stephen King, ég á bara tvennt sameiginlegt með honum:
Í GAMLA DAGA: Pabbi hans yfirgaf fjölskylduna þegar SK var tveggja ára. SK bjó í hjólhýsi með konu sinni. Hann hafði ekki efni á því að vera með síma. Hann vann nokkur störf til að vinna fyrir fjölskyldu sinni. Hann þjáðist af kvíða og þunglyndi. Hann varð háður víni og dópi. Hann fékk um sextíu sinnum NEI áður en hann seldi útgáfurétt að fyrstu bók sinni.
OG SVO: hélt hann bara áfram að skrifa og hefur sent frá sér hátt í 90 bækur. Varð metsöluhöfundur. Yfir 45 bíómyndir og þættir hafa verið gerðir eftir bókum hans. Hann hefur selt yfir 350 milljón eintök af bókum sínum. Hann er ein af ríkustu rithöfundum heims.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.9.2021 | 22:47
Sannleikurinn um flokkana - hrollvekjandi uppgötvun
Ég ætlaði að skemmta mér yfir stafavíxli á kosninganótt því mér fannst svo óumræðilega leiðinlegt að kíkja aftur og aftur inn á vökur flokkanna í gegnum RÚV. Fólk sem situr og horfir með athygli á kosningasjónvarp bíður eftir tölum, ekki vídjói af fylliríi ... segi svona. Við sem heima sitjum nennum kannski ekki endilega á svona samkomur og viljum frekar vera í rólegheitum ... það er alltaf verið að gera manni upp eitthvað, fyrst þú komst ekki, Gurrí mín, komum við bara með fjallið til þín, eða háværu kosningavökurnar.
Ég er líka manneskjan sem hef bara einu sinni farið á djammið á gamlárskvöld (1986) og myndi þiggja - eins og barnafólk sem nennir ekki að fara að sofa á miðnætti og er ekki að djamma, barnapíur, aldraðir - að fá eins og eina góða bíómynd eftir miðnætti, EKKI TÓNLEIKA (nema fyrir miðnætti) og EKKI gamla og margsýnda bíómynd.
Þetta er bara prinsipp, ég er með premium hjá Sjónvarpi Símans og hef um milljón flottar myndir að velja svo RÚV getur bara svikið mig enn eitt gamlárskvöldið og hoppað upp í skilningsleysið og misskilninginn í sér. Já, og Stöð 2 líka, ekki skárra úrvalið þá - ÞVÍ ALLIR ERU ÚTI AÐ DJAMMA, halda þau ranglega sem stjórna þessu. Vá, hvað það var gott að koma frá sér þessari gömlu, innibyrgðu beiskju.
Ég fann ekki stafavíxlið fyrr en í dag/kvöld og það með hjálp mesta tölvusnillings sem ég þekki. Vélin tekur þó ekki hvað sem er, ekki t.d. orðið Sósíalistaflokkur, ég varð að skrifa Sosialistaflokkur - sumum nöfnum flokksformanna þurfti að breyta ögn: t.d. varð Þórhildur Sunna = Thorhildur Sunna o.s.frv.
En hér opinberast hinn ógurlegi sannleikur um flokkana, skelfilegi í sumum tilfellum, aldrei trúa auglýsingum. Sannleikurinn liggur í nafninu:
Sjálfstæðisflokkur: Flækjuklofið stáss!
Framsókn: Krómsafn!
Vinstri græn: Svitinn grær!
Flokkur fólksins: Forkukl kólfsins
Miðflokkurinn: Friðum lokkinn! Lifðum rokkinn. Fornumið klink.
Samfylking: Kafni smygl!
Viðreisn ... er sviðin!
Píratar: ÍR tapar
Sosialistaflokkur: Fisklaus rokalosti. (J komst ekki á þing en fær að sjálfsögðu að vera með)
- - - - - - - - - -
Ég er í smásjokki eftir þessa rannsókn en þótt ég væri hissa ákvað ég samt, nötrandi af spenningi, að setja inn nöfn flokksformanna ... og vélin dældi út hrollvekjandi staðreyndum:
BjarniBen: Berji bann ... ég skildi þetta ekki nógu vel og prófaði þá BjarniBenedikts og þá kom í ljós: Jaki brenndi best! Gvuð hjálpi þjóðinni.
SigurðurIngi, er hann sigurvegari? Ég er ekki viss því í nafni hans er fólgið: Guðirnir sigu! Mjög, mjög grunsamlegt.
IngaSaeland: Tókst ekki að hafa Sæland og fékk út: Andaglas? Nei! Ljómandi fínt, treysti því að hún taki ekki pólitískar ákvarðanir með því að spyrja andaglasið fyrst. Samt er grunsamlegt að í nafni Flokks fólksins skuli orðið KUKL fyrirfinnast. Hmmmm. Og hættið svo, krúttin mín, að láta skiltagerðarmanninn ykkar stjórna stafsetningunni, Flokkur fólksins á ekki að hafa hástaf í fólksins (Fólksins).
KatrínJakobs: Bít kjarna, sko. Ég er enn að pæla í því hvað þetta þýðir en það er eitthvað töff, held ég. Eitthvað ofurhetjudæmi.
LogiEinars: Mjög margt býr á bak við það nafn, m.a. Ari Egilson, Losa eignir, Olgeir asni, Sorg ei lina. Hmmmm. Furðulegt. Spennandi? Margbreytilegt? Já.
Thorgerður: Hurð er torg. Mér fannst það óskýrt, eins og væri verið að afvegaleiða mig og prófaði að setja inn Thorgerðurkatrin ... þá kom Guð hnerri traktor! Sem segir mér eitt: Viðreisn er dulbúinn Framsóknarflokkur.
SigmundurDavíð: 1) Vídd, samruni, guð. EÐA 2) Svíður! Nudda mig. EÐA ... 3) Dundað mig vírus. Bara veljið ...
ThorhildurSunna: Holtin hundsa urr - furðulegt en hljómar ekki illa, kannski á þessi flokkur eftir að bjarga okkur ef flokksformaðurinn óttast ekki urrið í t.d. Bjarna Ben ef hann ætlar að gera einhverja vitleysu?
GunnarSmári: Urr á samning. Þetta er skýrt.
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Endurtalningu, takk!
Sjálf er ég aldraður hrísguð (GuðríðurHaralds) svo þið þurfið ekki að hafa áhyggjur af sannleiksgildi orða minna hér á bloggi. En ég vil láta endurtelja. Á landinu öllu. Býð mig fram í talningu í NV-kjördæmi, nú og framvegis, ég yrði fín í þetta.
Bloggar | Breytt 27.9.2021 kl. 12:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
25.9.2021 | 21:03
Kosningar hvað ...
Fór upp í rúm um tíuleytið í gærkvöldi og það tók mig átta tíma að sofna, mátti nefnilega ekkert vera að því. Tók með mér þögla ekkju sem hélt svona líka fyrir mér vöku til klukkan sex í morgun.
Ferlega fín bók eftir Söru Blædel, mig minnir að ég hafi tekið viðtal við Söru eitt sinn fyrir Vikuna - þegar fyrsta bók hennar kom út á íslensku. Ég er alltaf svolítið þarna. Tala við fólk í upphafi frægðar og frama og svo er mér steingleymt ... Elsku Baggalútar komu í viðtal hjá mér í svo miklu upphafi ferils að enginn vissi hvað þeir hétu, hvað þá hvernig þeir litu út, og nú eru þetta flottustu menn landsins. Á þeim voru þeir með fyndna síðu, baggalutur.is, og ég fékk að birta nokkrar fréttir af síðunni þeirra sem var það besta á Internetinu þá:
KONA NÆR BÍLPRÓFI ... sá fáheyrði atburður ... osfrv.
Ég náði Simma og Jóa á meðan þeir voru með 70 mínútur og var í vafa hvort ég ætti að láta þennan Sveppa vera með ... Sennilega hefur Vikan fleygt þeim yfir þetta erfiða frægðarglerþak, hreinlega mölbrotið það, því áður en við vissum af voru þeir allir og Baggalútur orðnir að stjörnum og búnir að gleyma Gurrí sinni.
Það var líka dásamlegt að ná viðtali við Margit Sandemo þótt hún væri ekki að taka sín fyrstu skref. Hún var svo ánægð með hvað nafnið Líf náði miklum vinsældum á Íslandi í kjölfar Ísfólksbókanna - þótt hún væri dauðþreytt eftir öræfaferð með Adda, vini sínum, fannst henni ekki tiltökumál að spjalla í hálftíma við blaðamann sem átti síðan eftir að finna strætó í Mosó og ná síðasta eða næstsíðasta strætó upp á Skaga. Svo er fólk að tala um álag á hjúkrunarfræðinga ... Á föstudögum gerði ég iðulega helgarinnkaupin í bensínstöðinni í Mjódd ... ég var ekki litla stúlkan með eldspýturnar þá ... ég var litla stúlkan með kveikjarakassann! Hélt að ég hefði þurft að líða nóg í æsku þegar ég fékk aldrei skutl í skólann, leikfimi eða sund! Og ógeðslega vondan mat.
Eitthvað annað en í kvöld klukkan sex þegar við stráksi fórum með Ingu á Galito, til að borða fyrir ferðagjafir okkar. Drengurinn fór í sund á meðan ég skrapp að kjósa. Á Galito var troðið - á næsta borði var heill ráðherra (ÞKRG, fallegasti ráðherra Íslands) og því þarnæsta erlendir körfuboltagaurar ...
Mesta gleðin í dag, mér var nánast sama um Liverpool-leikinn (3-3) var að ÍA skyldi hafa tekist að halda sér í úrvalsdeild karla í fótbolta ... það munaði svoooo litlu. Ég fæ sendar tölur í símann minn og þegar ég sá 2-0 fyrir Keflavík missti ég alla von ... svo bara komu þrjú mörk. Okkur Akurnesingum hefur liðið eins og heimsmeisturum í allan dag. Sá bæjarstjórann okkar, nýkominn af leiknum, og hann gat ekki hætt að brosa - okkur er öllum í raun skítsama hvernig þessar kosningar fara ... við unnum í dag! Æ, ég er samt pínku spennt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.9.2021 | 19:18
Hneyksli en lán í óláni fyrir SDG
Ég horfði reyndar á nokkra Clarice-þætti í gærkvöldi, eða þangað til í féll í ómegin af syfju. Auðvitað reyndist geðilli FBI-yfirmaðurinn ágætur þegar á reyndi. Hollywood er ekki algjör bjáni. Ekki bestu þættir í heimi en ágætt afþreyingargildi.
Í morgun klukkan átta leið mér eins og ég væri útsofin en það gat ekki passað. Átta tíma svefni yrði náð klukkan tíu, ekki sekúndu fyrr - svo ég hamaðist við að reyna að sofna aftur sem tókst fyrir rest. Ég horfði í kringum mig, ansans! Parketið orðið ársgamalt og eflaust farið að láta á sjá, grunar mig, alla vega þarf að ryksuga, eldhús og bað eitthvað svipað ... Ekki séns að líði 20-30 ár aftur áður en Himnaríki verður tekið aftur í gegn. Ég er vissulega búin að dæla í mig vítamínum, núna eftir að Fasti hætti í framleiðslu og það nýjasta, fjölvítamínsprey virðist virka hratt og vel. Mér sýnist þó að miðað við myndina þurfi ég að leggja undir mig restina af blokkinni og fara svo í breytingarnar. En útsýnið er það sama.
Ég var komin í virkilega ljót mál með bókasafnsbók í nokkurra daga vanskilum og búin að fá áminningu, ég var orðin talsvert óróleg þegar drengurinn tilkynnti um fimmleytið:
Ég er að hugsa um að skreppa aðeins í bókabúðina.
Við hlið bókabúðar er bókasafn, hinum megin við hana er Lindex, fyrst ég er farin að lýsa staðháttum, þá Krónan, svo Subway, Apótekarinn, raftækjabúð, banki og tónlistarskóli, mögulega snyrtistofa þarna á milli einhvers staðar - og við erum bara að tala um fremur litla L-laga byggingu. Hinum megin við götuna: Galito-matsölustaður, Útgerðin bar, Samfylkingin kosningakaffi, snyrtistofa, bæjarskrifstofur (þær gætu hafa flutt samt nýlega), Landmælingar, hönnunarbúð, tískubúð, Vinnumálastofnun, bara allt sem maður þarf nema Rúmfatalagerinn (eða Ikea) og KFC (fyrir drenginn). Nú vitið þið næstum allt um Akranes. Ég á eftir að minnast á Einarsbúð, Nínu og Grjótið sem eru kannski ekki alveg í einni klessu, en ekki langt á milli.
Ohh, ertu til í að skila fyrir mig einni bókasafnsbók? spurði ég lymskulega, vitandi að barngóða fólkið í bókasafninu myndi aldrei refsa honum með því að láta hann binda inn bækur, drekka ógeðsdrykk, þurrka af, raða ástarsögum í starwars-röð fyrst og svo eftir höfundum eða þaðan af verra, eins og hinum fullorðnu ef þeir gleyma að skila bók. Þeir sem hafa lesið Bókasafnslögguna eftir Stephen King vita hvað ég meina.
Ó, drengurinn kominn heim, búið að loka bókasafninu, sagði hann, venjulega opið til sex. Þannig að ég slepp ekki við svipugöngin.
Ég VISSI að það kæmi upp ljótt hneyksli í aðdraganda kosninganna, það gerist alltaf, en í dag uppgötvaðist stuldur Sigmundar Davíðs á brauðtertuuppskrift Nönnu Rögnvaldar.
Kannski lán í óláni fyrir SDG, fínt að þetta kom upp núna, hefði verið hrikalegt ef hann hefði verið orðinn forsætisráðherra og þurft að segja af sér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
22.9.2021 | 22:44
Lömbin vöknuð, djörf svör og játningar
Blogginu hafa borist nokkrar spurningar sem ég mun svara eftir bestu getu. Vinsælustu áhrifavaldar landsins bjóða oft upp á svona á snappi eða Instagram en ég geri það stundum á blogginu og finnst fljótlegast að notast við hugskeyti.
Af hverju áttu ekki mann? Ég hef oft átt mann.
Ertu bólusett? Já, að sjálfsögðu.
Þú veist sem sagt ekkert um samsærið? Nei, segðu mér ... (not)
Mesta stuðlagið? No one knows með Queens of the Stone Age þessa dagana.
Hvort setur þú á undan, kaffið eða mjólkina? Kaffið, auðvitað.
Hlakkar þú til jólanna? Já, mjög. Sakna þess samt að fá ekki lengur í skóinn, það er fúlt að eldast.
Hvað ætlar þú að kjósa á laugardaginn? Eitthvað sætt. (Besta kosningakaffið sem sagt.)
Hvað hefur þú lært af lífinu? Það er of stutt fyrir vont kaffi, stundum koma bara út tvær bækur á íslensku í þríleik og margt fleira sem ég skal reyna að rifja upp fyrir næstu lotu.
Er mikill hreinn þvottur í körfum á svefnherbergisgólfinu? Bíddu, ert það þú sem ert á krananum hérna fyrir utan? Hér eru vissulega þvottaleifar eftir þursabitið og eitthvað nýtt líka.
Hvað kallar þú vont veður? Sól og hita yfir 15°C. Algjört helvíti.
Með hverjum heldurðu í enska? Liverpool, Tottenham og West Ham ... kannski smávegis MU núna út af Ronaldo.
Besta bíómyndin: Empire of the Sun hafði mikil áhrif á mig. Flott músikin líka.
Færðu borgað fyrir að blogga? Já, rosalega mikið. (djók)
Restin var of nærgöngul svo ég ætla bara að fara að horfa á Clarice í Sjónvarpi Símans, sá fyrsta þáttinn nýlega. Þetta er sem sagt sjálfstætt framhald (13 þættir) af Lömbin þagna (eftir bók Thomasar Harris)* og er spennt að vita hvað gerist hjá Clarice - ári eftir að hún fangaði Buffalo Bill fjöldamorðingja. Engin Jodie Foster, enginn Anthony Hopkins.
Hún er með áfallastreituröskun eftir hryllinginn og í fyrsta þættinum er hún hjá sálfræðingi eða yfirmanni (ég horfði bara með öðru fyrstu mínúturnar) sem vill ekki að hún fari að vinna næstum því strax. Hann skammar hana fyrir að hafa myndað persónuleg tengsl við Hannibal Lecter, en þau komu nú samt alveg ábyggilega í veg fyrir að hann borðaði hana.
*Thomas Harris, höfundur bókanna Rauði drekinn og Lömbin þagna, heldur því fram að aðeins fólk með lága greindarvísitölu eða háa geti séð í gegnum siðblint fólk. Auður Haralds sagði mér þetta í viðtali sem ég tók við hana árið 2000. Ég er með háa, held ég, þurfti ekki annað en að sjá Donald Rumsfield í sjónvarpinu eitt árið til að sjá að hann væri siðblindur, held að það sé rétt hjá mér, hann virðist alla vega vera það. Og frekur, og spilltur.
Áfram með smjörið: Í miðjum klíðum kemur einhver þjótandi inn og segir að Clarice verði að rjúka upp í flugvél - mamma síðasta fórnarlambs Buffalo Bills, stúlkunnar sem honum tókst ekki að drepa(hún lokkaði hundinn hans til sín), er mjög háttsett og heimtar að Clarice komi fljúgandi og aðstoði við ljótt mál og leysi það ... tvær konur hafa fundist látnar, allt lítur út fyrir að fjöldamorðingi sé á ferð.
Lögreglukarlinn sem stjórnar rannsókninni hatar Clarice frá upphafi, hann þarf enga fjandans hjálp, segir það hafa verið heppni að hún náði morðingjanum, hún sé ekkert svo klár, og er bara ógeðlega leiðinlegur við hana. Enda er hún bara kelling, nýskriðin úr FBI. En ég er samt glöð yfir því að hafa fundð heila þrettán þætti, tólf eftir, til að horfa á næstu vikur.
Einn í kvöld ... sjáum svo til. Vona að rætist úr yfirlögganum, það er mjög klisjukennt og þreytandi að hafa hann svona leiðinlegan, og hana svona ofsaklára ... en stundum er ágætt að horfa á eitthvað sem krefst ekki hugsunar eða pirrings. Bara láta mata sig ... það þarf stundum.
Eins og bækurnar sem ég valdi vandlega síðustu misserin þannig að þær enduðu örugglega allar vel - þær voru æði fyrst - en fóru svo smám saman að pirra mig ósegjanlega. Ég var farin að rífast við þær, næstum upphátt. Nei, þú getur ekki drepið leiðinlega manninn bara svo hún geti gifst hinum, kommon!
Nú les ég bara bækur sem enda flestar ágætlega, og helst ekkert drama. Held að ég hafi fengið ógeð á drama þegar mamma, fyrir áratugum, lýsti fyrir mér mjög sorglegri mynd, um tíu barna móður sem var með ólæknandi krabbamein og þurfti áður en hún dó að finna börnum sínum heimili hjá góðu fólki. Mamma fékk ekka á meðan hún talaði um myndina, býst við að lak eða lök hefðu komið að góðum notum þegar hún horfði svo á myndina. Að öðru leyti hefur hún ljómandi góðan smekk á myndum.
Ég viðurkenni að ég táraðist ögn þegar ég horfði á Notebook og fannst hún voða kjút, en langar samt alls ekki til að sjá hana aftur, ekki frekar en Titanic sem er bara of stór biti til að kyngja aftur og aftur. Ef ég sést ekki aftur hér á blogginu hefur James Cameron drepið mig. Eða Nick Cassavetes.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.9.2021 | 20:58
Hefnd Framsóknar
Umræðuefnin fjögur sem varast ætti að nota í fínum boðum eru:
- Trúmál
- Stjórnmál
- Fjármál
- Heilsa
Ég segi kannski ekki að internetið sé gott partí en það kemst nálægt því stundum. En ekki sérlega fínt partí því fólk brýtur reglurnar miskunnarlaust. Dæmi sem ég sá í dag: Guð hjálpi okkur ef fólk kýs XXX sem mun fjársvelta heilbrigðiskerfið áfram. Bingó!
Kjósendur vilja meira fé í heilbrigðisþjónustu, kom svo fram í fréttum áðan, enginn guð reyndar - ekkert partí heldur. En þið skiljið hvað ég meina, í partíum er sennilega mun skemmtilegra að hlusta á eitthvað allt annað en langar sögur um botnlangauppskurð og sýkingu í kjölfarið, allt um prédikunina á síðustu samkomu hjá Krossinum, hvað Sigmundur Davíð býr til góðar hrákökur eða hvernig maður geti grætt rosalega með því að opna kaffihús og hafa svo næstum aldrei opið ... loka það snemma að vinnandi fólk neyðist til að fara á barinn eftir vinnu og endi jafnvel í meðferð (sjá síðustu færslu).
Mér er alveg sama þótt spáð sé vondu veðri á laugardaginn, á KOSS-ningadaginn. Ég ætla að klæða mig upp á, mála mig og ef þarf, hárlakka yfir andlitið svo það haldist fínt - og fara að kjósa (takk enn og aftur fyrir að færa kjörstað á hlaðið til mín), síðan skreppa í kosningakaffi um allt, ef ég fæ einhvern á bíl með mér. Ég mun ekki berjast á móti roki og rigningu neitt ofsalega langt (fékk nóg af því í æsku), þrátt fyrir kökur og brauðtertur. Bara ... ekki gleyma að vera með GOTT kaffi. Ekki nóg að hafa bara gott meðlæti.
Samfó á vinninginn með staðsetningu kosningakaffis, eða við hliðina á Galito, í sjö mínútna göngufjarlægð frá mér. Hálftíma í vestanátt.
Ég er enn með samviskubit yfir að hafa farið í kosningakaffi hjá Framsókn eitt sinn á síðustu öld, án þess þó að hafa kosið Framsókn. Fór með vinkonu og okkur fannst þetta mjög fyndið. Við mættum óvart of snemma svo við vorum sjanghæjaðar í að skera niður vínartertur og brúnar randalínur og raða á kökudiska, og þegar Óli Jó sjálfur mætti, nánast klökknaði hann og sagði dásamlegt að svona ungar konur létu sig hag landsins varða og kysu Framsókn. Við vorum langyngstar.
Þetta var svo gott á okkur.
Nokkrum árum áður hafði ég reyndar kosið Ingibjörgu Pálma í bæjarstjórn, eins og stór hluti Skagamanna, hún varð síðar heilbrigðisráðherra svo ég átti Framsóknarkaffið alveg skilið. Ég hef reynt að hugga mig við það síðustu áratugi.
Jójó-búseta mín milli Akr. og Rvk. skýrir af hverju ég gat kosið Skagakonu eitt árið og ekki svo löngu seinna svindlað mér í kosningakaffi í Reykjavík:
Frá fæðingu: Reykjavík (1958)* - Stykkishólmur (1959) - Akranes (1961) - Reykjavík (1971) - Sauðárkrókur (1974) - Bifröst (1975) - London (1976) - Reykjavík (1977) - Akranes (1978) - Reykjavík (1982) - Akranes (2006)
* Ég er í raun miklu, miklu yngri - en þegar ég falsaði nafnskírteini mitt til að komast inn í Tónabæ um árið, gekk ég aðeins of langt í því og hef þurft að burðast með rosalega mörg aukaár síðan. Ef ég reyni að leiðrétta gæti ég lent illa í því. Sérstaklega hjá Hildu systur sem er farin að trúa lyginni í sjálfri sér um að hún sé yngri.
Veðrið ógurlega stóð ekki undir væntingum hér á Akranesi. Það hvein vissulega ögn í norðurgluggum Himnaríkis í um 15 mínútur og á planinu sunnanmegin fóru kranarnir (viðreynslutæki aðdáenda minna þar til ég fékk mér almennilegar gardínur) aldeilis ekki á flug, eins og ég hafði búist við (Sjá mynd).
Samt var loftvogin í botni, appelsínugul viðvörun í gangi, veðurfræðingir grafalvarlegir í fréttaviðtölum ... en ekkert dugði til að óveðrið stæði undir nafni.
Ef vindur hefði verið að austan hefði ég vissulega fundið verr fyrir þessu korteri. Ég tala auðvitað bara út frá sjálfri mér og hvernig ástandið var í Himnaríki, skilst að veðrið í Eyjum og víðar hafi ekki verið jafnkósí.
Myndirnar tengjast efni færslunnar ekki beint, nema sú af krönunum hugumstóru sem högguðust ekki í rokinu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.9.2021 | 00:25
Finnst fólki þetta í lagi ...
Hilda systir kom á Skagann í dag, hafði ætlað að kaupa berjadrykkinn góða, Fasta (sem er nýhættur í framleiðslu), en eftir að hafa grátið mér til samlætis yfir því ákvað hún að mæta samt, skoðaði öldurnar með hundinum Herkúlesi, sendi móður og barn til mín í kaffi á meðan, og svo fórum við öll út að borða saman á Galito.
Þá fengum við okkur ís hjá Frystihúsinu í eftirmat. Einn eigandi Frystihússsins er af hinni þekktu Erluíssætt sem þýðir að ísinn getur ekki verið annað en góður. Ég, þessi litla ísmanneskja áður fyrr, er farin að biðja um miðstærð, í stað ungbarnaíss - sem segir allt.
Kettirnir voru afar spenntir fyrir litla barninu í dag og þótt barnið togaði fast í Krumma lét hann sér ekkert bregða, sami köttur og þaut til geltandi Golíats (voffafrænda) sem var með dólg, og lamdi hann til að sýna honum hver réði í Himnaríki. Engar klær, enginn meiddist en báðir hundarnir eru mjög hræddir við Krumma síðan.
Á efstu myndinni sést líka í hundabúr sem ég þarf að gefa ... ég er ekki með geymslu svo þetta búr er stofustáss í bili, mörg ár síðan ég notaði það síðast. Kaupi frekar taubúr sem hægt er að brjóta saman og geyma uppi í hillu.
Vinkona mín var stödd í Skeifunni á föstudaginn og ætlaði að fá sér kaffi og köku á vinsælu kaffihúsi sem þar er staðsett, var á ferðinni skömmu fyrir fjögur. Allt iðandi af lífi í kring og mögulegt að allt yrði troðfullt á kaffihúsinu. Svo var nú aldeilis ekki, það var verið að loka og ganga frá.
Ha, er verið að loka? spurði hún gáttuð. Engar tertur í sjónmáli.
Ójá, ég áttaði mig á því í Covid hvað það var gott að vera meira heima og núna loka ég alltaf klukkan fjögur á föstudögum og hef lokað alla helgina, nú á ég mér líf, sagði maðurinn. Á miða stóð að opið væri til kl. sex frá mán. til fim. en bara fjögur á föstudögum. Ef staðurinn þolir þetta þá fínt ... innkoman hlýtur að minnka ... launakostnaður líka. Ætti svona fólk samt ekki að stofna sýslumannsembætti eða skattstofu til að geta losnað við kúnna frekar snemma dags? Ég þarf að spyrja hana Guðrúnu mína hvort þetta sé góður eða slæmur bisness.
Veit reyndar um fleiri kaffihús sem loka hroðalega snemma. Svekkjandi fyrir þá sem langar að hittast yfir kaffibolla eftir vinnu. Hvetur þetta ekki bara til víndrykkju og almenns ólifnaðar? Te og kaffi opnaði nýlega kaffihús í Garðabæ og þar er opið langt fram á kvöld. Frábært, takk.
Ég man eftir að hafa þurft að fara í Vegamót á Seltjarnarnesi til að kaupa mjólk eftir almennan lokunartíma búða, á árunum þegar bensínstöðvar seldu bara bensín og tvist. Svo bara opnaðist allt og keppst var við að veita bestu þjónustuna. Fleiri fengu vinnu og síðdegisstressið, að komast í matvörubúð fyrir klukkan sex, hætti. Mér finnst reyndar mjög hallærislegt að leyfa þrjá stórmarkaði á sömu lóðinni úti á Granda; Krónuna, Bónus og Nettó, allt í nafni samkeppni. Held að það geri ekki sérlega mikið fyrir neytandann því þessar búðir hljóta allar að tapa og þar með kúnninn líka. Þetta var hagfræðihorn Guðríðar.
Myndin: Spennandi veður á morgun!
Ég kem alltaf annað slagið út úr skápnum sem bindindiskona (á milli rauðvínsglasa á Galito) og sem piparjúnka (á milli viðreynslu á Facebook) og kattakerling (alltaf), en ég hef svo sem ekki velt mér mikið upp úr masókisma mínum, sem sýnir sig í því að ég er í Facebook-hópi sem heitir Gamaldags matur ... og þar sé ég reglulega að fólk, 50 plús, deilir því sem það er með í matinn hjá sér; hræring, svið, þverskorna ýsu, rúgbrauðsgraut með rúsínum, mögulega spaghettí sem hefur verið soðið í hálftíma og bara alls konar hrylling. Og kommentin eru: Namm, best í heimi, ohhh, langt síðan ég hef fengið ábrysti ... namminamm, hræringur er bestur, borða hann volgan á hverjum morgni með rjóma, namm, slurp ...
Hvað er að ungu fólki um sextugt sem borðar matinn sem var neyddur ofan í það/okkur í æsku? Þetta er sennilega (örugglega) ástæðan fyrir því að enn er boðið upp á svona mat á dvalarheimilum aldraðra og verður um ókomna tíð.
Einhvers staðar er alveg örugglega til tónlistarhópur miðaldra fólks sem mærir harmonikkutónlist og þess vegna munum við aldrei, aldrei losna við hana af elliheimilum.
Finnst fólki þetta almennt í lagi? Kemst Uriah Heep einhvern tíma í græjurnar á Eir? Fæ ég lasagna á Höfða (Akranesi), sítrónukjúkling eða chili-kássu?
Ég er samt mjög opin og sveigjanleg og myndi alveg lifa af nikkulagið Sunnanvind með Örvari Kristjáns (það er reyndar mjög flott lag) og að fá kótilettur í matinn eða læri, hrygg, kindabjúgu, slátur, pönnukökur, rabarbaragraut, hangikjöt ...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.9.2021 | 00:47
Ástir og örlög um helgina
Sigurður flugmaður gerði fyrr í dag atlögu að pipruðum lífsstíl mínum og skorti á flugferðum ... Hann sótti um vináttu við mig á fésbók og vegna þess að við áttum frekar marga sameiginlega vini þar, samþykkti ég þennan stórhuggulega mann. Eitt pínku skrítið var samt að hann talar bara spænsku skv. upplýsingum á síðu hans ... sem er slæmt því ég kann bara að bjóða góðan dag á ítölsku, pólsku, rússnesku, ensku, dönsku og íslensku. Maður kemst langt á því alls staðar, ekki samt að maður bjóði endalaust góðan dag á fullu í keleríi. En ég er orðin allt of gömul til að geta gert einhverjar kröfur til viðreynenda minna.
Að sætur flugmaður færi á fjörurnar við mig var aðalatriðið, ég hef alltaf þráð náin tengsl við flugheiminn og sá strax fyrir mér í hillingum efri árin í vellystingum á Saga Class. Svo eyðilagði hann allt eftir svona hálftíma. Skrifaði skilaboð: Hallo. Svona halló með (spænskum) hreim. Alvöruflugmaður, sama frá hvaða landi, hefði frekar sagt: Hæ, sæta. Það er alla vega reynsla mín af flugmönnum.
Örlítil von fékk mig þó til að slengja ögn pirruðu hallói? sem svari. Ekki löngu seinna kom lymskuleg en illa hugsuð pikköpplínan sem tók af öll tvímæli ... hnýsin spurning með dassi af fitusmánun. Ég get ekki lýst því hversu fegin ég er að hafa ekki byrjað með honum.
Allt of margir karlar halda samt að Facebook sé viðreynslustaður. Geta þeir ekki haldið sig á Spotify bara eða hvað þetta heitir? Já, Tinder.
Ég var þó í aðra röndina þakklát fyrir að einhver legði á sig að trufla mig í fásinninu hér á Akranesi þar sem dansleikir hafa ekki tíðkast í ábyggilega fjörutíu ár (Hótel Akranes hélt geggjuð böll). Þegar ég flutti hingað aftur (2006) var hér bara einn bar, Mörkin, og auðvitað í tveggja, þriggja klukkutíma göngufjarlægð og bara einn leigubíll sem gekk ekki alltaf. Á endanum fannst mér heiðarlegast að koma bara út úr skápnum sem bindindismanneskja, sem ég gerði svo endanlega þegar Vínbúðin flutti fyrir nokkru, enn lengra í burtu frá mér. Ég er víst eina manneskjan eldri en 17 ára á Akranesi sem á ekki bíl og mér finnst ekki góð fyrirmynd ef ég, eina fullorðna manneskjan sem tekur strætó, heimtaði að innanbæjarstrætó, fullur af saklausum skólabörnum, stoppaði fyrir utan ríkið, bara fyrir mig. Þetta er ástæðan fyrir því að ég er ég kaffikerling ... sem er tengt því að ég er hálfgerð kattakerling líka. Kannski segi ég þá svakalegu sögu síðar.
(Neðri myndin tengist innihaldi bloggsins ekki beint)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.9.2021 | 18:55
Erfðaskrá hertogans
Einkar ömurleg frétt þessa vikuna var sú ákvörðun að loka og læsa erfðaskrá Filippusar prins í 90 ár. Ef ég nenni að leggja á mig að lifa í 90 ár til viðbótar er samt engin vissa fyrir því að mér takist það. Ekki margir sem ég veit um sem endast í eina og hálfa öld. Mögulega er að finna þarna hneyksli varðandi framhjáhaldsbörn og annað slíkt og líklegt er að fólk fætt eftir t.d. þrjátíu ár segi bara þegar það er orðið sextugt: Hver var þessi Filippus og hvað með þessa erfðaskrá sem þú ert svona spennt fyrir, Gurrí mín? EF erfðaskráin verður þá opinberuð. Það er ekki einu sinni víst að svo verði. Hroðalegar fréttir.
Þegar leyft verður að taka upp ættarnöfn að vild hér á landi væri gaman að heita: Guðríður H.H. Mountbatten-Windsor og vísa í erfðaskrá Filippusar ef einhver rífur sig, ekki verður hægt að rengja þetta. Ég hef líka oft sagt frá draumi mínum (síðan ég var 12 ára) um að framtíðareiginmaður minn muni heita Filippus Angantýr. Hann finnst ekki í þjóðskrá svo ég kemst sennilega ekki nær því en þetta.
Filippus var af Schleswig-Holstein-Sonderburg-Glücksburg-ættinni og barnabarn Grikklandskonungs, Georgs fyrsta, og sjálfur Kristján níundi Danakonungur var langafi hans, svo hann var alveg nógu vel ættaður fyrir Elísabetu Englandsdrottningu en hann þurfti nú samt að afsala sér öllum flottu aðalstitlunum þegar hann gerðist breskur ríkisborgari (til að geta trúlofast henni) og tók sér þá ættarnafnið Mountbatten ... hann varð næstum 100 ára, elsku karlinn, og á sama afmælisdag og Bogga vinkona, hann eignaðist fjögur börn, átti er hann lést átta barnabörn og eitthvað svipað af barnabarnabörnum. Hann settist ekki í helgan stein fyrr en 2017 ... svo vinnan bæði göfgar manninn og lengir lífið. En mér finnst þetta kóngafólk lifa fáránlega lengi sem segir mér að ... blátt blóð sé betra? Mitt var grátlega rautt síðast þegar ég fór í blóðprufu svo ég efast um að ég nái að vita hvernig erfðaskráin hljómar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Sögur úr skýjahöll
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 1
- Sl. sólarhring: 29
- Sl. viku: 143
- Frá upphafi: 1527938
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 111
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Katrín Snæhólm Baldursdóttir
-
Þröstur Unnar
-
Anna Ólafsdóttir Björnsson
-
Helga Magnúsdóttir
-
Fjóla Æ.
-
Sumarbúðirnar Ævintýraland
-
Jóna Á. Gísladóttir
-
Steingerður Steinarsdóttir
-
Bertha Sigmundsdóttir
-
Svava S. Steinars
-
Guðrún Jóhannesdóttir
-
Vésteinn Valgarðsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Baldvin Jónsson
-
Jens Guð
-
www.zordis.com
-
Elín Arnar
-
Andrés.si
-
Vefritid
-
Kristín M. Jóhannsdóttir
-
Saumakonan
-
Laufey B Waage
-
Ingibjörg Gunnarsdóttir
-
krossgata
-
Kristján B. Jónasson
-
percy B. Stefánsson
-
Ólafur fannberg
-
gua
-
Anna Gísladóttir
-
Hlynur Jón Michelsen
-
Jón Svavarsson
-
Brynjar Svansson
-
Gyða Dröfn Tryggvadóttir
-
Gunna-Polly
-
Hólmgeir Karlsson
-
Sigríður Jósefsdóttir
-
Svala Jónsdóttir
-
Katrín Anna Guðmundsdóttir
-
Eva Þorsteinsdóttir
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
halkatla
-
Guðný M
-
Einar Vignir Einarsson
-
Ingibjörg Stefánsdóttir
-
Kristín Björg Þorsteinsdóttir
-
Vilborg Valgarðsdóttir
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Inga Dagný Eydal
-
Bryndís Guðmundsdóttir (Binna)
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Birna Mjöll Atladóttir
-
Ingibjörg R Þengilsdóttir
-
Hrólfur Guðmundsson
-
Halla Rut
-
Brynja Hjaltadóttir
-
Eyþór Árnason
-
Guðrún Vala Elísdóttir
-
The baristas
-
Helgi Már Barðason
-
Eydís Rós Eyglóardóttir
-
Guðný Jóhannesdóttir
-
Ásta Kristín Norrman
-
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
-
Kolgrima
-
Huld S. Ringsted
-
Guðbjörg Edda Björgvinsdóttir
-
HAKMO
-
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
-
Bradshaw
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Ásta Björk Solis
-
Margrét Guðjónsdóttir
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
Rebbý
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Bogi Jónsson
-
Alheimurinn
-
Ágústa Kolbrún Jónsdóttir
-
Svala Erlendsdóttir
-
Kokkurinn Ógurlegi
-
Binnan
-
Daníel Halldór
-
Linda Linnet Hilmarsdóttir
-
Linda Lea Bogadóttir
-
Erna Friðriksdóttir
-
Kristín Erla Kristjánsdóttir
-
Katrín Ósk Adamsdóttir
-
Fiðrildi
-
Valgeir Ómar Jónsson
-
lady
-
Toby
-
Vera Knútsdóttir
-
Ragnar Páll Ólafsson
-
Sverrir Stormsker
-
Valdís Rán Samúelsdóttir
-
Kej
-
Ingigerður Friðgeirsdóttir
-
Sigvarður Hans Ísleifsson
-
Alexander Már Benediktsson
-
Alfreð Símonarson
-
Birna Dís
-
Matthildur Ágústa Helgadóttir Jónudóttir
-
Janus
-
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
-
Eyrún Inga Þórólfsdóttir
-
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Þóra Sigurðardóttir
-
gudni.is
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Sigurður Axel Hannesson
-
Inga Helgadóttir
-
Kjartan Pálmarsson
-
Hlynur Hallsson
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Sæþór Helgi Jensson
-
Sif Traustadóttir
-
Maddý
-
Turetta Stefanía Tuborg
-
Gúrkan
-
Gunnlaugur Stefán Gíslason
-
Ólöf María Brynjarsdóttir
-
Tiger
-
Hdora
-
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir
-
Brynja skordal
-
Edda Agnarsdóttir
-
Helga skjol
-
Mummi Guð
-
Kristín Einarsdóttir
-
Guðbjörg Ottósdóttir
-
Sæmundur Bjarnason
-
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir
-
Linda
-
Gylfi Guðmundsson
-
Handtöskuserían
-
Agnes Ólöf Thorarensen
-
Júdas
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Sigurbrandur Jakobsson
-
TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
-
Álfheiður Sverrisdóttir
-
Kjartan Magnússon
-
Bylgja Hafþórsdóttir
-
Vertu með á nótunum
-
Marilyn
-
Anna Mae Cathcart-Jones
-
Söngfuglinn
-
Dísa Gunnlaugsdóttir
-
Ónefnd
-
Ásta
-
leyla
-
Þórður Helgi Þórðarson
-
Jónína Rós Guðmundsdóttir
-
Anna Ragna Alexandersdóttir
-
Laufey Ólafsdóttir
-
Einar Indriðason
-
Gísli Tryggvason
-
Lilja G. Bolladóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
-
Ragnheiður Ástvaldsdóttir
-
Eygló Sara
-
I. Hulda T. Markhus
-
Himmalingur
-
Íbúasamtökin Betra Breiðholt
-
Hildur Helga Sigurðardóttir
-
Aprílrós
-
Bókaútgáfan Salka ehf
-
Svetlana
-
Sigríður Guðnadóttir
-
Andrea
-
Jón Þór Bjarnason
-
Inga Sig
-
Sigríður Inga Sigurðardóttir
-
Einar Örn Einarsson
-
Heiður Helgadóttir
-
Guðrún Ágústa Einarsdóttir
-
Stella Jórunn A Levy
-
Félag um stafrænt frelsi á Íslandi
-
Perla
-
Ingi Thor Jónsson
-
Sigríður Þórarinsdóttir
-
Vinir Tíbets
-
Pálmi Guðmundsson
-
cakedecoideas
-
Bwahahaha...
-
Bullukolla
-
Jónas Sen
-
Hildigunnur Rúnarsdóttir
-
Renata
-
Mamma
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Letilufsa
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Adolf Friðriksson
-
Björgvin R. Leifsson
-
Brúðurin
-
Guðrún Eggertsdóttir
-
Kristín Bjarnadóttir
-
Margrét Birna Auðunsdóttir
-
Methúsalem Þórisson
-
Ólöf de Bont
Myndaalbúm
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Ferðalög
- Formúla 1
- Gáfuhjal
- Grobb
- Íþróttir
- Krúttlegheit
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
- Væmni