Skagasápan (3:3) Leiksoppur örlaganna

BlómaskreytinginDyrabjallan hringir í himnaríki. „Ekki opna, þetta gæti verið brúðkaupsdjöfull!!!“ öskrar Anna en það er of seint, allt of seint, búið er að ýta á takkann. Þrír blómasendlar feta sig varlega upp stigann og halda á stórri blómaskreytingu þar sem uppistaðan er rauðar rósir. Hvítar, afar sjaldgæfar fjólur sjást inn á milli, ásamt grænum túlípönum. Á korti sem fylgir með stendur: Veistu hvað þú ert að gera? Hugsaðu þig betur um. Þínir einlægir, 14 sætir sveinar.
Þetta er neyðarblómaskreyting sem 14 strætóbílstjórum datt í örvæntingu sinni í hug að senda Gurrí svo að hún giftist nú ekki einhverjum karli á jeppa sem gæti látið sér detta í hug að leyfa frúnni að vera samferða sér í bæinn á jeppanum.

Tískutrend frá AkranesiÁ sama tíma í sundlauginni: Laufey sundlaugarstarfskona horfir áfergjulega á Þröst. Aldrei hefði hana grunað að nokkur karlmaður gæti værið svona sætur í sundbol. Hún ætti kannski að prófa að fara í sund svona einu sinni. Þetta er greinilega að verða nýtt trend því að nokkrir menn á sundskýlum hafa komið hlaupandi inn í afgreiðslu til hennar og fá að skipta á skýlu og bol. Enn eitt tískufordæmið hefur verið sett á Skaganum.

Á sama tíma á Akureyri: Anno býr sig undir að stíga upp í þyrlu sína þegar Magnús Geir hringir og segir spámannslega: „Það verður ekkert brúðkaup haldið í himnaríki í dag.“ Anno hlær, „Við sjáum nú til með það!“ og setur þyrluna í gang.

Strætisvagnar við GarðabrautÞröstur hefur hugsað nóg og drífur sig upp úr. Það bjargar lífi hans og líka það að hann æðir óvart inn í kvennabúningsklefann og fer þannig naumlega á mis við Má sem er á leiðinni að drekkja honum. Hann ekur áleiðis til himnaríkis þótt það sé í göngufæri. Á Garðabraut, rétt við Höfðabraut er umferðaröngþveiti, fjórtan strætisvögnum hefur verið lagt þannig að enginn kemst nálægt himnaríki nema fuglinn fljúgandi. Þröstur flýgur síðustu metrana. Guðmundur er búinn að aftengja dyrabjölluna en Þröstur deyr ekki ráðalaus. Fyrst Jónatan mávur kemst á svalirnar, kemst hann líka. Hann er laus við stirðleika eftir langa setu í heita pottinum og kemst upp efstu á svalirnar á undraverðum hraða. Hann kastar kuldalega kveðju á Jónatan og gengur inn í stofuna. Þar finnur hann Gurrí fyrir aleina. Allir bloggvinirnir eru frammi í eldhúsi að reyna að troða blómaskreytingunni frá 14 sætum sveinum í pínulítinn blómavasa.   

Vináttuhringurinn„Það verða greinilega 16 manneskjur í þessu hjónabandi, er það ekki fjórtán of mikið? spyr hann greindarlega og hugsar bílstjórunum þegjandi þörfina. „Í rauninni 17 aðilar, þar sem ég veit að þú elskar Stöð 2 plús meira en nokkuð annað,“ heldur hann áfram, „ja, eiginlega 18 með SkjáEinum plús og 19 með RÚV plús. Þú sérð að þetta gengur ekki. Við skulum bara vera vinir. Hér færðu vináttuhring frá mér.“

Þröstur þurrkar tár af hvarmi, þetta er örugglega meiri fórn en nokkur maður hefur nokkru sinni þurft að færa í skvísumálum og það er ekki verið að tala um verðgildi hringsins. „Fæ ég samt ekki afnot af Jónasi annan hvern dag,“ spyr hann glettnislega.

----    -----    -----    -----    -----
Bobby í himnaríkiVekjaraklukkan hringir. Gurrí hrekkur upp og hleypur fram í stofu. Enginn Þröstur, engin blómaskreyting. Hvað varð um bloggvinina? Flytur Katrín ekki örugglega samt heim til Íslands? Á Anno þyrlu í alvörunni?

Hún heyrir að einhver er í sturtu, skrýtið, það er bara baðker í himnaríki. Hún veit hver þetta er en má ekkert vera að því að sápa hann. Hún þarf að búa til latte handa Ástu sem kemur rétt fyrir sjö og sækir hana.

Vinnan bíður í bænum með öllum sínum ævintýrum í matsalnum.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Núnú, var þetta bara draumur? Ég get svarið það að ég hélt að þetta væri dagsatt.  Það sem kom upp um þig var þegar þú skrifaðir að Þrölli hafi sagt eitthvað "glettnislega".  Fyrr snjóar í Himnaríki.

Muhahaha

Takk fyrir mig.

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.10.2007 kl. 00:47

2 Smámynd: Jens Guð

Jens Guð, 8.10.2007 kl. 01:04

3 Smámynd: Svava S. Steinars

Þetta er að verða æ meira spennandi. Gimme more !  Þetta getur ekki allt verið draumur  !

Svava S. Steinars, 8.10.2007 kl. 01:49

4 Smámynd: Þröstur Unnar

 Jenný.

Auðvitað er þetta ekki allt draumur. Þið getið ekki ímyndað ykkur það drama sem fer fram hér á Skaganum í hinu hversdagslega lífi.

Þröstur Unnar, 8.10.2007 kl. 09:27

5 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

DRAUMUR !

Eftir alla spennuna!

Jahérna, þá verður tæplega framhald á þessu, ekki dreymir mann framhaldsdrauma hehehehe

Vonandi dreymir þig fleiri sæta drauma Gurrí mín    og mundu þá eftir að deila þeim með okkur

Guðrún Jóhannesdóttir, 8.10.2007 kl. 09:38

6 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Uss, Þröstur ...

Segjum sem svo að þetta hafi ekki verið draumur ... múahahahahha

Guðríður Haraldsdóttir, 8.10.2007 kl. 10:07

7 Smámynd: krossgata

Iss, það er ekkert að marka að þetta hafi verið draumur... þannig lifnaði hann Bobby í Dallas við eða var það JR.  Það var alla vega einhver og síðustu skrilljón þættir frá dauða viðkomandi voru bara draumur og sápan hélt bara áfram frá því fyrir skrilljón þáttum. 

krossgata, 8.10.2007 kl. 18:26

8 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Ja, það að Bobby var í sturtu í himnaríki opnar allt upp á gátt, ekki satt? Hver veit nema komi annað sápubull einhverja helgina ...

Guðríður Haraldsdóttir, 8.10.2007 kl. 18:33

9 Smámynd: Laufey B Waage

Þú ert snillingur í sápuóperugerð (sem og mörgu öðru, t.d. einkamálaauglýsingagerð) Ástarþakkir fyrir skemmtunina.

Laufey B Waage, 9.10.2007 kl. 10:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 57
  • Sl. sólarhring: 300
  • Sl. viku: 1936
  • Frá upphafi: 1454810

Annað

  • Innlit í dag: 36
  • Innlit sl. viku: 1570
  • Gestir í dag: 32
  • IP-tölur í dag: 24

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Bakklóra
  • Snorri og Patrik
  • Vifta

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband