Tölur, ónýt nöfn og vondar bíómyndir

Flott birta í dagSennilega hefst eldgos á morgun á Reykjanesskaga. Það hefur nefnilega gerst nokkuð reglulega þegar ég skrepp í bæinn að það fari að gjósa. Úkraínski kattahvíslarinn minn á annarri hæð hefur bjargað málum svo sem og tekið ljósmyndir. Svo er nákvæmlega enginn skilningur ríkjandi hjá viðkomandi sem ég heimsæki á morgun, á því sem fréttnæmt er, enda ekki útsýni nema rétt yfir Esjuna, það gamla fjallshró, heiman frá viðkomandi sem skilur heldur ekki stórfengleikann við HM og EM í fótbolta og nauðsyn þess að vera nálægt sjónvarpi í heilan mánuð annað hvert ár. En það er önnur saga.

 

Ég fór með drengsa í Landsbankann aftur - og þar var sama frábæra þjónustan og um daginn. Hann skellti sér í bæinn á eftir með strætó. Eftir það átti ég stefnumót við stráksa, hann losnar aldrei við mig, og saman nutum við ómetanlegrar hjálpsemi í bæði Omnis og Íslandsbanka, það er gott að búa á Akranesi. Stráksi blikkaði mig og ég fór auðvitað í vissa búð með honum og keypti Langa-Jón og tepakka (stráksi hlýtur að vera með bresk gen) og saman sátum við svo saman í klukkutíma í himnaríki og höfðum það náðugt, hann með te, ég með kaffi. Þegar hann síðan hoppaði út í strætó með bréfpoka frá mér til að henda í pappa-plasttunnuna í leiðinni, fór ég að hugsa um hversu mikið liðugri ég er orðin eftir að hann flutti frá mér. Ég þarf nefnilega að sjá um allar hneigingar og beygingar vegna kattanna, taka upp kattagubb og allt dót sem kettirnir henda niður á gólf, og mér líður núna eins og ég sé orðin 28 ára aftur, á aðeins einum og hálfum mánuði, fyrir utan vissa hásin. Of mikil hjálp getur greinilega verið óholl - það á ýmsum sviðum. Eins gott að ég var ekki lögst í kör ... nú fær hann aldrei aftur að hjálpa mér við þetta. 

 

Galdraskjóða-GurríarÉg fann ekki Galdraskjóðuna, mína stórkostlegu bók um margvíslega samkvæmisleiki, tarot, tölur, drauma, Feng Shui og alls konar skemmtilegt, bókina sem mér skildist að hefði ekkert selst en hefur samt verið algjörlega ófáanleg lengi vel! Alla vega að sögn unga mannsins sem hringdi í mig í fyrra til að vita hvort ég ætti aukaeintak fyrir sig, sagðist svo ætla að taka hana á bókasafni og ljósrita hana ... skil hann vel, þetta er meistaraverk ... sem ég sem sagt fann ekki heima, heldur þurfti að gúgla þessar upplýsingar um tölur sem hlytu að hafa breyst eftir viðbótarnafnið sem ég fékk mér á dögunum ... Hefði kannski átt að benda honum á Bókabúð Forlagsins, ótrúlega mikið úrval þar. 

 

Fann (á íslensku) upplýsingar með gúgli um tölur og talnaspeki og samkvæmt þeim breyttist aðaltalan mín (?) úr 8 í 7 með því að bæta Hrefnu-nafninu við. Forlagatalan er líka 7, (fæðingardagur og ár) Svo til að fá einstaklingstöluna legg ég saman tölurnar úr G u r r í (7+3+9+9+9=37 ... sem styttist í 1 (3+7=10 ... 1+0=1) og sú tala er víst tala ljónsins, mergjuð tilviljun. Síðan þurfti að finna hjartatöluna (leggja saman útkomuna úr sérhljóðum nafna minna og föðurnafns (kom talan 2) og svo var það yfirbragðstalan sem fékkst úr samhljóðunum (talan 4).

... ég veit því miður ekkert hvað er átt við með hjartatölu, yfirbragðstölu eða einstaklingstölu og legg til almennilegt gúgl.

 

Stafirnir A, J, S og Æ eru með töluna 1, B K T Ö með 2, C L U með 3, D M V með 4, E N W með 5, F O X með 6, G P Y með 7, H Q Z með 8 og I R Þ með 9. Maður gefur hverjum staf nafns síns rétt númer og leggur svo saman eftir kúnstarinnar reglum og styttir svo niður í eina tölu. O er sama o Ó, I og Í osfrv.

 

Dæmi: Kona kölluð Lísa, þá eru tölurnar 3+9+1+1= 14, stytt: 5 - ferðalög, orka, sköpun ... Einstaklingstalan hennar er 5.  

 

Þau sem nenna að ráðast í að reikna þetta fá þá örstutt um hverja tölu, eða mjög stytt:

 

1. Kraftmikil tala, tákn einingar og heildar, einnig upphafs, stjörnumerki ljón, litir appelsínugulur, gulur og gylltur.

2. Tvíhyggja, samhljómur, samvinna, tengist krabbanum, litur: pastellitir.

3. Vor, frjósemi, vöxtur, nýtt upphaf, fjölskylda, tala töfra, merki bogmanns, litir gráfjólublár og fjólublár.

4. Tala höfuðátta og árstíðanna, tengd steingeit, litir dökkgrár og svartur. (vinnutala mikil, hef ég heyrt)

5. Frelsi, orka, sköpun, ferðalög. Tvíburi og meyja, ljósir litir. 

6. Ást, umhyggja, ábyrgðartilfinning, jafnvægi. Naut og vog, litir: ljósblár, blágrænn og grænn.

7. Heillatala, sjálfskoðun, töfrar, tengist fiskamerki, litir eru allir grænir og ljósblágrænn.

8. Sterk tala, tengist efnisheiminum, forlögum og óendanleika, stjörnumerki steingeit, litir dökkgrár og svartur.

9. Tala alheims, hugsjónir, heimspeki, fullkomnun, mikil heillatala. Hrútur og sporðdreki, liturinn er rauður.

 

Krummi heiturÉg er að hlusta á Storytel-bók eftir íslenskan mann, nýkomin er bók 2 frá honum um sama fólk, held ég, svo ég dreif mig í að byrja á fyrri bókinni ... um gamla konu, nýflutta á dvalarheimili og hefur eitthvað hræðilegt á samviskunni, eitthvað sem gerðist í gamla daga. Sennilega spennubók, ég er ekki komin svo langt ... ég er alla vega orðin MJÖG hrædd við að eldast og fara á dvalarheimili. Það er BARA gamaldags matur á boðstólum þar. Fólkið tárast af gleði yfir kjötsúpu, sætsúpu, gellum ... Ég spyr mig bara, með óttablik í augum, mun eitthvað hafa breyst þegar kemur að mér - eða get ég treyst því að matarsmekkur minn umturnist á þessum árum sem ég á eftir fram að dvaló?

Ég stend mig að því að hraðspóla yfir vonda bóndann þegar hann gerir sig líklegan til að hefna sín á yrðlingum (horfi ekki á náttúrulífsþætti af svipaðri ástæðu). Alveg spurning hvort ég geti hlustað mikið meira, mikið mælt með henni en óraunverulegar bækur eru betri, finnst mér, fjöldamorðingjar sem drykkfellt lögreglufólk gómar loksins ... það er róandi af því að blóðið er bara tómatsósa í þeim.

 

Mynd: Þangað leitar kötturinn sem hann er heitastur ...

 

KenFacebook

„Það gerist víst bara í klámmyndum að iðnaðarmaður komi um leið og þú óskar eftir honum.“

 

„Skil ekki þetta trend í vinnunni hjá okkur, þegar fólk setur nafn á matinn í ísskápnum. Í dag borðaði ég túnfisksamloku sem hét Linda!“

 

God, fb-vinur minn spyr núna út í nöfn: Hvaða mannsnöfn eru núna algjörlega ónothæf (ónýt)? Erlend síða, eins og sést.

Ken

Jesus

Adolf

Donald

Todd

Karen

 

(Hvað með Todd? Skil hin nöfnin en ekki Todd)

- - - - - - -

Og ...

 

Nefndu bíómynd sem þér finnst vond og enginn gæti sannfært þig um hið gagnstæða. Margir höfðu skoðun og sumir rökstuddu hana:

 

Guðfaðirinn, of löng, ég sofnaði

Titanic, skil ekki hvernig nokkrum getur fundist hún góð

The Rocky Horror Picture Show

The Big Lebowski

Avatar

Gone with the wind og Grease

Elf, fyrirgefðu, mamma, ef þú sérð þetta

Sound of Music

Pulp Fiction

Forrest Gump, algjör gubbmynd, líka Being There

The Wedding Singer

Lost in Translation, tveir tímar sem ég fæ aldrei aftur

50 shades of grey

Allar með Chevy Chase

Step Brothers, afsakið öll

The Notebook

 

... og fullt af öðrum alveg ágætum myndum! Titanic er þó ekki í uppáhaldi hjá mér, mig langar heldur ekki til að sjá Notebook aftur, eða Avatar. En kommon, Sound of Music, Pulp Fiction, Godfather?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 80
  • Sl. viku: 1873
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1523
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Mia_litla
  • Eftirlaunaaldurinn
  • Hirðrafvirkinn

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband