Tónlistaráföll og bestu hrísgrjónin ...

Wu-TangTónlistarveitan mín, YouTube-veitan, er farin að lauma inn lögum á listanum Ýmis lög, eins og aðallistinn minn heitir. Ég hvarf af Spotify til að styðja Neil Young sem tók allt sitt þaðan þar sem Spotify vildi halda kvenhatandi samsæriskenningahlaðvarpara hjá sér - en viðurkenni að stráksi tók yfir þá veitu, við kunnum ekki að stofna nýtt eitthvað slíkt fyrir hann. Þegar Spotify gefur út árlegan lista yfir mest hlustað hjá "mér" kem ég algjörlega af fjöllum. Þekki hvorki haus né sporð af þessari músík hans. Það er nú aldeilis annað en í denn ... ég man eftir símtali í sveitina til sonar míns sumarið 1995. Ég hafði pantað geggjað óskalag, rapplag, splunkunýtt með Wu-Tang Clan, hjá samstarfsmönnum mínum á X-inu - ég vann á neðri hæðinni, á Aðalstöðinni og þeim þótti mjög fyndið þegar næstum 37 ára gamalmennið (ég) hélt upp á músíkina þeirra. Svo hringdi ég í sveitina til Einars og leyfði honum að hlusta á þetta geggjaða lag í gegnum símann. Hann varð mjög hrifinn og hlustaði mikið á hljómsveitina næstu árin. Smekkur okkar var nokkuð svipaður en ég náði samt aldrei Gun´s Roses, hafði of flotta forvera (Zeppelin og Purple) til samanburðar og tók Fugees heldur ekki í sátt fyrr en frekar nýlega, kallaði þau alltaf Fokkís, til að stríða honum ... Svo bara allt í einu fannst mér Killing me softly með þeim ferlega flott, en ég fyllist angist og depurð ef ég heyri það í flutningi Robertu Flack. Furðulegt en satt. Skil ekkert í þolinmæði sonar míns, ég hefði ekki verið sátt ef mamma hefði hringt í mig í sveitina og spilað Child in Time í sveitasímann og verið ofsahrifin ... Það var reyndar allt syni mínum að þakka að ég vaknaði af tónlistardásvefninum mikla þetta sama ár, 1995, þegar MTV bættist við líf okkar og allt breyttist. Þvílíkar perlur þarna á tíunda áratugnum og skelfileg tilhugsun ef ég hefði misst af þeim.

 

David-GilmourEkki nóg með að veitan mín bæti lævíslega við ýmsum lögum sem eiga að falla mér í geð en gerir ekki því þetta er kannski "lag" af plötu sem á að vera samfelld, Thick as a brick, Selling England by the pound ... osfrv. Bara alls konar. Aðaltónlistarsjokkið kom í dag þegar ég las að David Gilmour, gítarleikari og söngvari í Pink Floyd, hefði sagt að sísta plata sveitarinnar væri ATOM HEART MOTHER!!! Ég hefði skilið The Wall (sem er samt meistaraverk) en ekki AHM. Þetta hlýtur að vera gervigreindin að fokka í mér. Hann á að hafa sagt að platan væri sundurlaus og hljómsveitin ekki búin að finna rétta tóninn, eitthvað slíkt. Mig grunar að ég eigi svarna óvini sem falsa tónlistarfréttir til að koma virðulegum síðmiðaldra konum úr jafnvægi, eða kannski er David farið að förlast. Smáséns á gúrkutíð samt.

 

Barbra CartlandÍ gær fékk ég góðan gest, konu sem ég tók á móti með þvílíkum kræsingum að ég fékk sykursjokk bara við að raða fínheitunum á þriggja hæða bakkann. Haldið að hún þekki ekki konu eins rokkarans í Skálmöld! Og fannst það ekkert svakalega merkilegt, ég held að hún hafi bara verið að reyna að fela montið. Ég reyndi að róa ruglið ögn niður með því að segjast hafa séð Valgeir Guðjóns (úr Stuðmönnum) í Washington DC rétt fyrir aldamót. Og til að bæta um betur sagðist ég hafa verið í sama afmæli og bassaleikarinn í King Crimson - og það á Íslandi. Og að ein vinkona mín hefði orðið að sleppa því að fara í partí með Mick Jagger í New York, vegna tannpínu! Við þetta bilaðist gesturinn og sagðist eiga vinkonu sem skrifaði glæpasögur og í einni bókinni kannaðist hún við lýsingu á sjálfri sér! Ég hnussaði, það þýddi ekkert að skipta um listgrein, ég þekkti líka skáld. Á meðan ég hugsaði örhratt um svar við þessari ósvífni sagðist ég hafa nánast hitt sjálfa Agöthu Christie, hefði alla vega verið í London 1976, sama ár og Agatha dó - og svo mundi ég allt í einu að ég þekkti manneskju (íslenska) sem tók viðtal við sjálfa Börbru Cartland sem skrifaði svo margar bækur að ef ef ein væri þýdd og gefin út á Íslandi á ári, myndi barnabarnabörnum okkar margra ekki endast aldur til að sjá fyrir endann á útkomu þeirra. Gestur minn hló hæðnislega og sagði þetta sannarlega ekki merkilegt sem sló mig svo ofboðslega út af laginu að ég gleymdi að segja henni að ég hefði tekið viðtal við sjálfa Margit Sandemo - og að ég keypti eingöngu appelsínusafa frá Sól eftir það viðtal. Konan fær aldrei að vita hvers vegna af því að hún hvarf hlæjandi á braut, hélt fyrir eyrun og sagði aftur og aftur: „Ég er ekki að hlusta“ ... og hélt ranglega að hún hefði sigrað mig, eins og þetta hefði verið einhver keppni! 

 

Svo gottttttHádegismaturinn í dag var palestínskur. Ég hafði aulað út úr mér í skólanum að mér fyndist arabískur matur góður (mínus hnetur og döðlur). Einn nemandinn mætti óvænt með smávegis smakk handa mér og almáttugur hvað þetta var gott ... þegar ég var búin að tína rúsínurnar úr hrísgrjónunum. Mögulega bestu hrísgrjón sem ég hef smakkað. Kjúklingurinn alveg rosalega góður líka. Ég hef reynt að elda arabískan mat og tekist skítsæmilega, á einhvers staðar matreiðslubók frá Rauða krossinum á Akranesi sem safnaði saman flottum uppskriftum víða að. 

 

Á Facebook

Á síðunni Gamaldags matur (masókistasíðunni minni) mátti finna áhugaverða könnun. Uppáhaldssúpan ykkar, og svo átti maður að kjósa eina súpu. Þarna var blómkáls-, síðan sveppa-, þá aspas- og kjötsúpa, svo mexíkó-, humar-, lauk-, fiskisúpa, tómat- ... og fleira slíkt. Ég kaus sveppasúpu, vel og rétt krydduð er hún ansi hreint góð og fékk líka góða kosningu, hélt að hún hefði sigrað ... eða þar til ég sá að íslensk kjötsúpa var langsamlega vinsælust! Svo mundi ég á hvaða síðu ég var. Dæs. En Halla frænka gerir reyndar svo góða kjötsúpu að ég held að ég tæki hana fram yfir flest, en könnunin minntist svo sem ekkert á frænku mína ...    


Óvænt kaupæði og rokkað til yfirliðs

EngjaAfsökunum mínum fækkar óhjákvæmilega eftir að stráksi flytur að heiman ... hann verður tvítugur eftir hálfan mánuð, allamalla! Nú get ég ekki lengur sagt við Einarsbúð þegar ég panta: „Fjögur stykki af engjaþykkni með nóakroppi, hann er alveg vitlaus í þetta drengurinn ...“ sem verður í senn megrandi og stórlega svekkjandi. Þess ber að geta að hann fær alltaf helminginn, stundum rúmlega það. Á minni stöðum, þar sem margir þekkja marga, gerir fólk líka sjálfkrafa ráð fyrir að engjaþykknið góða sé ætlað krökkum eða unglingum ... ekki virðulegum konum á mínum aldri, RF, rúmlega fimmtugum, eins og ég mun kalla það út lífið. Aðeins í afmælinu mínu verður hulunni svipt af réttum aldri, á afmælistertunni, svo það er eins gott að mæta. Ef einhver birtist síðan mynd af tertunni á samfélagsmiðlum get ég alltaf kennt gervigreindinni um, þetta er þaulhugsað hjá mér.

 

Skrapp í bæinn í gær, aðallega til að sækja kattamat (fokdýrt sjúkrafæði fyrir Kela sem hinir njóta góðs af, eins gott að vera í þremur störfum). Við skruppum í Costco og í fyrsta sinn á ævinni var nokkuð margt í körfunni minni, iðulega er bara sítrónukaka (sandkaka með sítrónubragði) en hún var ekki til, eins og kanadíski starfsmaðurinn sagði mér frá. „Aha, Kanada,“ sagði ég greindarlega. „Þar fékk ég eitt besta kaffi lífs míns. Í Vancouver, The Bean of the World, eitthvað slíkt heitir kaffihúsið,“ bætti ég við. Maðurinn drekkur greinilega bara vont kaffi eða ekkert því hann varð tómlegur á svip, enda frá Toronto svo sem. Sennilega algjör viðbjóður kaffið þar.

 

Costco-Iceland-1024x684Ljúfur Palestínumaður hjálpaði svo til við afgreiðslu á kassanum, flýtti fyrir sem munaði mikið um, það minnti talsvert á fyrstu daga og vikur eftir að verslunin opnaði.

„Þetta er sniðugt,“ sagði Hilda og átti við súkkulaðisleikjóa í páskastíl, „til að gefa litlu skvísunum þínum“ (dætrum vinar míns sem eiga nú ótrúlega flott föt og dót eftir að Skagamenn og Borgnesingar opnuðu hjörtun og fata- og dótakassa).

„Ég er nú frekar að hugsa um að gefa þeim páskaegg,“ játaði ég, „ekki svona pínkupons-eitthvað, varla drög að páskaeggi.“ Eftir smástund kom Hilda hlaupandi með ótrúlega flotta stelpukjóla, algjöra sparikjóla: „Þessi kostar svipað og meðalstórt páskaegg,“ sagði hún og veifaði öðrum þeirra með svo miklum sannfæringarkrafti að ég setti þá báða samstundis í körfuna. (Sjálfsagt liður í: Svona reddar maður sér barnabörnum). Fínustu jólakjólar, hugsaði ég samt lymskulega, þarf ekki að gefa þeim þá strax, svo þær fá sín páskaegg samt, múahaha, Hilda fær aldrei að vita af því.

 

Klakavél lítilVið fórum líka í Elkó og þar keypti ég afmælisgjöf fyrir stráksa, draumagjöf sem nýtist vel í litlu stúdíóíbúðinni sem hann flytur í innan tíðar. Eitthvað sem hann hefur langað ofboðslega mikið í og nýtist honum vel við tedrykkjuna ... segi ekki meira. Hugsa sér að alast upp, well, síðustu sjö árin, á miklu menningarkaffiheimili, þar sem aðeins gott kaffi er drukkið. Vissulega smávegis plebbaheit þar sem vel brennt kaffi er í mesta uppáhaldinu og sýrnin eigi mjög vinsæl ... og ákveða svo bara að verða tedrykkjumaður! Það eru varla til þær tetegundir sem hann hefur ekki prófað. Svo vill hann hafa teið sitt bleksterkt! Jæks. En ég ætla svo sem ekki að fleygja stórgrýti úr gróðurhúsi ... (Ath. myndin er af klakavél og tengist textanum ögn neðar.)

 

Skottið á bílnum hennar Hildu var orðið fullt, og það fyrir utan Uriany-kattamatinn 2 x 3,5 kg, og 2 x 12 af blautmat. Ávallt mikið magn í einu til að þurfa ekki að fara of oft - víðsjárverð veður á Kjalarnesi og aukin hætta á eldgosum þarna fyrir sunnan ... bara við hliðina á Reykjavík, miðað við útsýnið sem ég hef frá Akranesi. Hvernig átti að koma þessu öllu fyrir í farangursrými leiðar 57 sem átti að fara frá Mjódd kl. 20? Eða fara nokkrar ferðir frá stoppistöð á Garðabraut til himnaríkis. Já, ég keypti líka litla klakavél (sjá mynd) nokkuð sem ég hef lengi þráð en ekki nennt að fá í eldhúsið mitt vegna stærðarinnar, þessar gömlu eru hálfgerð skrímsli. Ég er frekar lítið fyrir "görótta" drykki og hrifnust af kaffi og vatni. Klakavél var vissulega það sem mig vantaði ekki, en verður samt mikið notuð.

„Jæja, Davíð frændi, nú neyðist ég til að syngja* fyrir þig - ef þú skutlar okkur stráksa ekki heim í kvöld.“ (*hótunin var mun hroðalegri en ég þori að skrifa hér - nenni ekki í lokaða búsetuúrræðið á Hólmsheiði). Sagði þetta í einrúmi við frænda eftir matarboðið góða í gærkvöldi ...  

„En elsku fjanda mín, auðvitað skutla ég ykkur heim.“ Og svo spilaði hann á leiðinni (til að halda mér rólegri?) Pixies, Muse, Queens of the Stone Age og "nýja" í mínum eyrum, rokkhljómsveit sem heitir Tool, og er æðisleg. Við spiluðum mjög hátt, eins og vera ber, mér tókst nokkrum sinnum samt að spyrja stráksa aftur í: „Hvernig finnst þér þessi tónlist?“ Ég varð sífellt órólegri þegar hann svaraði ekki. Kannski vorum við búin að rokka hann meðvitundarlausan, hann virtist samt horfa ósköp sæll út um gluggann, út í myrkrið. Skömmu eftir að við komum á Skagann og ókum sem leið lá að Himnaríki, sá ég með aðstoð götuljósanna að hann var með heyrnartól í eyrunum ... Þá vissi ég loks hvað það þýddi að kasta perlum fyrir svín. Sá skal samt fá að hlusta á Tool hérna heima. Ég má engan tíma missa varðandi tónlistaruppeldið. Ég þarf þó fyrst að klára að hlusta á Jóhannesarpassíuna, á bara 57 mínútur eftir af þeirri dýrð og dásemd. Þegar ég kemst ekki á tónleika sem mig langar samt á (í dag í Langholtskirkju) geri ég þetta, finn góða útgáfu á YouTube-veitunni og hlusta ...  svo finnur veitan áframhaldandi svipaða tónlist út í hið óendanlega. Þannig kynntist ég til dæmis nýjasta uppáhaldslaginu mínu (Me and the devil, með Soap&Skin frá Austurríki).   


Himneskur saltdreifari og konudagskökuvangaveltur

SaltdreifariManneskjan sem fann upp á því að blanda saman 600 mg af íbúfeni og 1000 mg af panodili fær heiðursorðu og doktorsgráðu himnaríkis fyrir að halda mér vinnufærri. Blessað bakið hótar leiðindum en samt ekki brjósklosi eins og um árið þegar ég þurfti að taka helling af ógeðs-parkódíni-forte í hálft ár, eða þar til kvikindið ákvað að segja þetta gott. Ég er orðin svo vön hóglífi. Að færa mig rétt aðeins á milli sæta, liggur við, að þetta hopp og skopp vekur upp einhverja þursa, mögulega þursabitsaðkenningu.

Hef fengið far með bíl nokkra morgna (strætó nr. 2 gekk ekki föstudag og mánudag, vetrarfrí í skólum) en það þarf að undirbúa sitt af hverju á morgnana fyrir kennslu svo ég afþakkaði far í morgun (8.50 við himnaríki, kennsla hefst 9, hræðilega tæpt) og tók strætó rétt fyrir átta. Hálkan var algjört ógeð, glæra, en með því að ganga á grasinu þar sem það var hægt komst ég ósködduð út á stoppistöð. Meira að segja frá stoppistöðinni við síðasta húsið í bænum og að þriðja síðasta húsinu í bænum, talsvert af grasi. Bílastæðið fyrir framan vinnustaðinn minn var mest ógnvekjandi og ég var í alvöru að hugsa um að skríða þessa metra, samt í fínu buxunum sem ég keypti í Glasgow.

Haldið ekki að það hafi komið saltdreifari eins og af himnum ofan ... ég var svo hlessa að ég náði ekki að senda ökumanninum fingurkoss, hann var svo snöggur, en ég gat gengið með mínum vanalega yndisþokka yfir planið eins og væri hásumar. Ef þetta er ekki heppni veit ég ekki hvað. Takk, elsku saltari frá Akraneskaupstað í kringum kl. 8.15 í morgun hjá húsinu sem hýsir Símenntun, Landmælingar, Vinnumálastofun, Hver endurhæfingu og niðri: Fótaaðgerðastofu Erlu, nýja hágreiðslustofu og Fjöliðjuna, þar sem stráksi vinnur á sumrin - og mögulega fleiri fyrirtæki. Þetta virðist ekkert rosalega stórt hús en er það samt innan frá. Svona eins og samkomustaðurinn í Með allt á hreinu.

- - - - - - - - - - 

KonudagskakaÁ Facebook:

Ykkar einlæg 20. febrúar 2016 ... fyrir átta árum:

„Konudagurinn langi er á morgun. Og konudagskakan er með hnetusmjöri. Ef ég væri ekki svona þroskuð myndi ég fyllast beiskju og hatri.“

Kommentin gerðu ekkert annað en að hugga mig

- Láttu það eftir þér að taka beiskukast á þetta.

- Vá, ég tæki brjálæðiskast.

Konudagurinn á sunnudaginn og ég bíð spennt eftir að vita hvaða hnetutegund verður í konudagskökunni, kannski núggat, jarðhnetumauk, heslihnetufrómas? Ég er samt þakklát fyrir þetta, sparar mér bæði fé og aukakíló.

- - - - - - - - - - - - -

Inga Sæland 2022: „Við skulum ekki bara opna huga okkar og hjarta, við skulum ekki bara senda hvatningu og allt sem við getum til Úkraínu, við skulum líka opna heimili okkar ef þeir þurfa á því að halda ...“ og

„... við eigum alltaf meira en nóg fyrir þá sem þurfa á okkur að halda.“ 

Inga Sæland 2024: „Ég vil stöðva allt flæði hælisleitenda til landsins og það fyrir löngu síðan. Ísland er uppselt fyrir hælisleitendum, það er ekkert flóknara.“

 

InstagramSé oft, sennilega frekar á Instagram en Fb, hóp fólks (6 manns) sem stendur grafalvarlegt og á að syngja einsöng hvert um sig, t.d. byrjunina á næturdrottningunni úr Töfraflautunni.

Við heyrum fyrst óperusöngkonu syngja hlutann. Sama hversu hinir eru falskir og fyndnir þá má ekki hlæja. Gæti aldrei haldið mér alvarlegri, ekki fólkið heldur, eins og sjá má.

- - - - - - 

Tveir endurskoðendur leituðu lengi en án árangurs í kirkjugarðinum að legsteini vinar þeirra sem einnig hafði verið endurskoðandi. Á heimleiðinni segir annar við hinn: „Getur verið að hann hafi sett hann á nafn konunnar?“

- - - - - - - - - 

„Það er ég viss um að þessir margumræddu innviðir eru nú parket heima hjá einhverjum innvígðum.“ 


Vettvangsrannsóknir, leynistrætó og óvænt uppgötvun

Jólatréð í bókasafninuFöstudagur: Kennslan fór fram í bókasafninu - kaffispjall og síðan skroppið í búðir, eins konar vettvangsrannsóknir. Ferlega skemmtilegur og góður hópur. Við fórum í bókabúðina, Krónuna og Omnis. Fínasta gjafavara og fullt af bókum (útsala í Pennanum) og í Krónunni sýndi ég þeim frosin svið, of kors, og mælti hástöfum með harðfiski með smjöri, við ættum eflaust besta smjör í heimi, þó víðar væri leitað. Þau höfðu öll smakkað skyr og fannst það betra en jógúrt, auðvitað. Omnis var síðast, og selur ryksugur, potta, pönnur og síma, svo fátt sé talið ... en við höfðum ekki tíma í fleiri búðir.

 

Mynd: Úr bókasafninu þegar Dúlluhópurinn hafði lokið við að hekla þetta flotta jólatré (án mín samt) eitt árið. Hópurinn af námskeiðinu sat nákvæmlega þar sem dúllurnar á myndinni eru. Ó, hvað ég sakna grímanna (djók). 

 

Foreldrarnir í hópnum fengu blik í augun þegar þeir komust að því að föndurstund með meiru fyrir börn fer fram í bókasafninu frá kl. 11-15 alla laugardaga. Þegar ég hef verið spurð að því hvað sé hægt að gera fyrir og með börnum á Akranesi verð ég kjaftstopp. Veit að það er eitthvað en ekki hvað. Nú veit ég alla vega af þessu á bókasafninu. Svo er ég nokkuð dugleg að segja fólki frá leið 2, innanbæjarstrætó sem ekur sirka fimm hringi á dag, tvo á morgnana, einn í hádeginu og tvo seinnipartinn - nema þegar er skólafrí. Mér hefur ekki verið trúað ...

„Þú ert að tala um Frístundastrætó, er það ekki?“ (sem er þriðji litli sæti blái rafmagnsvagninn á rúntinum)

„Nei,“ svaraði ég illskulega ... og lenti næstum í slag við Þóru Betu um daginn, við vorum staddar í leið 1, hún heldur enn að ég sjái tvöfalt. Ég næ nú samt leið 2 rétt fyrir kl. átta á morgnana, hinum megin á Garðabraut, með stefnu í vestur. Hann ekur Garðabraut, Skagabrautina, Suðurgötu, alveg niður eftir hjá HB og gamla hótelinu, svo Vesturgötuna út á enda og enn lengra, ég stekk út við Bónushúsið, síðasta húsið í bænum áður en sveitin byrjar (pósthúsið er næstsíðasta húsið og vinnustaður minn þriðja síðasta hús fyrir sveit) og eftir það veit ég ekkert hvert hann fer. Æðislegt að hafa hann - en væri auðvitað betra ef fleiri vissu af honum til að koma í veg fyrir slagsmál. Við höngum á Facebook, ekki akranes.is sko. En takk samt fyrir leið 2, ef hann væri ekki hefði ég ekki treyst mér í þetta. Hálka, löng leið, skaflar, drekar, myrkur = fótbrot. Leið 1 ekur öðruvísi hring á morgnana, fer ekki hjá Bónushúsinu fyrr en undir hádegi sem passar mér vel eftir kennslu. 

 

Dásamlegir vinir (þau sem gerðu Valentínusardaginn þess virði að leggjast ekki í öskustóna) buðu okkur stráksa í síðbúinn hádegismat í gær, framandi og spennandi mat. Hann var svakalega góður en í raun veit ég ekkert hvað þetta var. Hélt að þetta væri þykk spínatsúpa (með sítrónusalsa, hrísgrjónum og brauði) ... en þetta var ekki spínat. Afskaplega bragðgott. Þau eiga boð hjá mér um næstu helgi, ætla að vera með ítalskt ... pasta, pasta. Þau elska hakk og spagettí, alla vega börnin, sem gerir mér lífið ótrúlega mikið auðveldara. Held reyndar að þau borði allt - sem er annað en ég. Það er stundum flókið að borða ekki hnetur, möndlur, döðlur og rúsínur. Hnetuofnæmi ... og matvendni - lífið þó allt of stutt til að borða vondan mat, drekka vont kaffi með vondu fólki ... og allt það. Sem minnir mig á að í gær kom einmitt kaffið sem ég pantaði frá Kaffistofunni, geri ráð fyrir að ná að smakka það á morgun, í baunavélinni vissulega, ekki fínustu græjum, en hún er ágæt, að verða sjö ára og það kemur fínt kaffi úr henni. Ilmurinn af Bóndakaffinu, sem það heitir, er ómótstæðilegur. Stráksi að heiman um helgina og ég nota tímann til að vinna og vinna og vinna. Átti ekki að verða svo rólegt hjá fólki þegar árin færðust yfir? Kannski valkvætt.

Verst hvað það gerir mig syfjaða að sitja fyrir framan tölvu allan daginn og stara á texta, sama hversu góður og spennandi hann er, svo ég reyni að standa upp annað slagið, elda mat, brjóta saman þvott eða annað æðislegt ... já, og talandi meira um kaffi: Kaffitár hættir með eitt kaffihúsið nú í lok mánaðar, þetta uppi á Höfða. Ég reyndi að fara þangað í hvert skipti sem ég kom í bæinn (eftir að Nýbýlavegurinn hætti) og mun sakna góða kaffisins og dásamlega starfsfólksins þar. 

 

Chagall The Trimph of Music 1966Laugardagur: Sofið nokkuð lengi. Síðan vinna, vinna, vinna ... pasta frá Eldum rétt eldað um miðjan dag, enda pakkinn á síðasta séns og gat ekki beðið lengur. Skemmtilegt símtal frá hressri Skagakonu sem var eitt sinn í viðtali hjá mér í Vikunni. Hún gladdist ógurlega þegar hún vissi, sá á blogginu, að ég dáði Skálmöld en sagði að ég væri nú hálfgerður unglingur miðað við hana sem væri að verða 77 ára og gjörsamlega dýrkaði þá. Ekki síst plötuna Skálmöld og Sinfó, eins og ég. Í næstu bæjarferð ætlaði hún í Tólf tóna og kaupa nýju plötuna, þá sem kom út í fyrra.

 

Chagall-myndin heitir The Triumph of Music.

 

Svo uppgötvaði ég dásamlega hljómsveit. Soap&Skin heitir hún, sýnist mér, er frá Austurríki og alveg svakalega flott. Enda tugir milljóna hlustana á lagið sem náði mér, Me and the Devil. Furðuleg tilviljun ... uppáhaldslagið mitt með Skálmöld heitir Hel! Bíddu, bíddu. Er YouTube bara í því að bera út ófagnaðarerindið? Og ég sem bý í himnaríki!!!

 

Ég hafði verið að hlusta á alveg hreint undaðslega tónlist eftir Kjartan Sveinsson (sem elsku Kamilla mín, danska,  dásamlega, sagði mér frá), Der klang der offenbarung des göttlichen, Teil 4, leyfði síðan YouTube-veitunni að velja fyrir mig næstu lög, eins og hún býðst vanalega til. Eitthvað sem hún heldur að höfði til mín. Og þá kom þetta lag, Me and the Devil. Síðan hef ég hlustað á fleiri lög með Soap og Skin og finnst þetta hin fínasta músík. Svona akkúrat uppgötvaði ég Skálmöld. Hvet ykkur til að hlusta líka á Kjartan Sveinsson. Teil 4 (4. hluti) finnst mér flottastur, enda er þar sérlega fallegur kórsöngurinn, en allt verkið svo sem mjög flott.

Ég finn reglulega eitthvað sem ég hefði ekki viljað missa af - en munaði litlu - sem er algjör heppni. Hverjar eru líkurnar á því að uppgötva svona flotta austurríska hljómsveit þegar ég var nú bara að hlusta á lögin við vinnuna og hélt ég væri mögulega búin að uppgötva allt sem væri þess virði að uppgötva? Grín!

 

Einn af allra fyrstu eiginmönnum mínum á afmæli í dag. Sá fyrsti þeirra ef mér skjátlast ekki, og sá sem kenndi mér að þegar maður eldar, þarf maður ekki að setja allt í rúst í eldhúsinu ... Þegar ég eldaði í dag og sýndi algjöra snyrtimennsku varð mér hugsað til þessa góða ráðs, á enn einu fimmtugsafmælinu hans. Til hamingju, elsku Einar! 

 

Facebook:

Myndband: Eiginmaðurinn kemur inn í eldhús, eiginkonan er að banka á ísskápsdyrnar - gerir það tvisvar enn og opnar þær svo. Maðurinn horfir hlessa á hana.

„Af hverju bankaðir þú á ísskápinn?“ spurði hann.

„Kannski var þar salat dressing (salat að klæða sig).“

Maðurinn hafði ekki húmor fyrir þessu. Ég elska pabbabrandara.

 


Listaverk sem laða að ástmenn ... eða fæla frá

MayerlingValentínusardagurinn var haldinn hátíðlegur hjá mér og köttunum í gærkvöldi og hitann góða við bakið sem lagði frá hitapokanum úr Apóteki Vesturlands, mætti alveg kalla ástareld eins og hvað annað. Kona „á mínum aldri“ er sátt við alla hlýju sem hún getur fengið, nema þennan sem fylgir í 15°C plús og logni úti. Auð jörð, hiti við frostmark, logn. Næs.

 

 

Það er vissulega alltaf hægt að brenna sig illa á ástareldi, eins og gömul kunningjakona mín hefur nú aldeilis lent í rosalega oft. Helber óheppni auðvitað. Ég hefði átt að taka mark á henni þegar hún gagnrýndi listaverkin á veggjunum hjá mér, eins og Mayerling (sjá mynd 1). „Þú nærð þér aldrei í mann með svona myndir á veggjunum!“ sagði hún svo réttilega. Sjálf hefur hún verið einstaklega dugleg að laða að sér alls konar menn enda með eintóm krúttlegheit upp um alla veggi. Henni leist ekkert á eina uppáhaldsmyndina mína af konunni sem var að detta af skýi ... þrátt fyrir að ég segði henni að konan væri að koma sér upp á bleika skýið. Svona er nú listin margslungin og vér mannfólkið með misjafnan smekk. 

 

HugleikurÉg var alveg rosalega heppin að vinna með Aðalsteini Ingólfssyni listfræðingi í nokkur ár, á DV á níunda áratugnum. Var á konulaunum allan tímann og leigði á svívirðilega háu verði (markaðurinn hefur alltaf verið hræðilegur) EN hann benti mér  á flotta listamenn ... mátt ekki missa af-sýningum og ég keypti sitt af hverju þessi ár sem ég mun aldrei sjá eftir. Til dæmis Tímaþjófinn eftir Magnús Kjartansson (grafík), tvær litlar dásemdarmyndir (olíumálverk) eftir Jón Þór Gíslason sem ég borgaði fyrir með tveimur geymsluávísunum ... og þessa, Mayerling, sem mér finnst mjög flott. Ég sá aldrei bíómyndina Mayerling sem hlýtur að hafa verið algjört drama, miðað við listaverkið ... ég er ekki svo mikið fyrir drama svo ég hef látið ýmsar sálarflækjumyndir fram hjá mér fara, viljandi. Hef samt gaman að því að horfa á góðar myndir þótt ég detti alveg ofan í drasl-b-jólamyndir á aðventunni ... hámhorfi upp á stemninguna.

 

Svo sá ég "hræðilega" flotta teiknaða mynd eftir Hugleik Dagsson fyrir nokkrum árum og langaði mikið í hana, pantaði og fékk hana senda heim. Sé ekki eftir því. Ekki svo löngu seinna hækkuðu myndirnar hans í verði, svo ég stórgræddi. Hafði séð hana á síðunni hans og þá á ensku. Þegar ég hringdi og vildi panta hana sagði sú sem svaraði að því miður ætti hún hana bara á íslensku ... sem var auðvitað nákvæmlega það sem ég vildi, vissi ekki að hún væri til á ylhýra. Þvílík heppni. Kannski ekki mikil samkeppni. Hversu margar gullfallegar konur eiga þrjá ketti? Mér leið alveg eins og Hulli hefði teiknað hana handa mér! Og þegar ég sá jólakúluna í jólabúðinni í mollinu úti í Flórída ... með mynd af þáverandi forseta, Trump. Ég varð að eignast hana og íhugaði alvarlega að hefja söfnun á ljótum jólakúlum í kjölfarið. Tinna Royal, listakona á Akranesi skemmdi það algjörlega fyrir mér með sínum skemmtilegu jólakúlum.

 

FötÉg auglýsti á Skagasíðu á Facebook fyrr í kvöld eftir fötum á tvær litlar vinkonur mínar, foreldrarnir hafa ekki mikið á milli handanna og lítið bakland - svo ég prófaði.

Ég er í alvöru klökk eftir viðbrögðin, þvílíkar elskur hérna allt í kring. Ekki bara Skagafólk, heldur líka dásamleg kona úr Borgarnesi sem ætlar að koma með poka um helgina. Fólk bauð líka leikföng og bara alls konar. Mikið er ég þakklát - og veit líka að litlu krúttin verða alsælar.     

 

Facebook

„Er þetta fólk búið að missa vitið?“

(Við frétt um að Bláa lónið opni á morgun)

Komment: „Þau eru búin að opna viðbót, Rauða lónið, við hliðina en það er bara fyrir adrenalínfíkla, skilst mér.“

 

Einn hress setti spennandi tungubrjóta á síðu, ég stel nokkrum - muna að segja hratt:

Hnoðri úr norðri verður að veðri þó síðar verði. 

Vefðu óvafða vöðva og afvefðu vafða vöðva.

Það fer að verða verra ferðaveðrið.

Glaðlega glamraði í grillinu gamla.

Fríða og dýrið í þrívídd.


Skutla skaltu náunga þínum ...

Blómvöndur dagsinsValentínusardagurinn minnti harkalega á sig í hádeginu þegar vinur minn gaf mér Snickers-súkkulaðistykki í tilefni hans. Þetta var ekki viljandi morðtilræði en í stað þess að þiggja það brosandi og þakklát sem hefði verið mesta kurteisin, sagði ég með tilþrifum: „Ó, ég dey ef ég borða jarðhnetur!“ Svo dró ég vísifingur hægri handar lárétt eftir hálsi mínum. Vissulega lymskuleg tilraun til að fá hann til að gefa mér Mars-súkkulaði eða eitthvað hnetulaust að ári. Ég sat í bíl með honum, konunni hans og dætrum og við vorum á leiðinni heim til mín eftir skóla. Hann hefur ætíð hugfast góða málsháttinn: „Skutla skaltu náunga þínum þegar hálku ber að fótum.“ (sjá átakanlega mynd a ófærð) Hann lagði óvænt lykkju á leið sína, lagði bílnum fyrir utan verslun, hoppaði út og hvarf úr augsýn. Hann hafði gefið konu sinni fallegan blómvönd rétt áður og sagði við hana:

„Hvað ætlar þú að gefa mér?“

„Kannski koss?“ svaraði hún. Dæturnar voru samt þarna ...

Fáið ykkur herbergi, hugsaði ég og dæsti hneyksluð.

 

Skömmu síðar tók ég gleði mína, hann mætti í bílinn með stóran og fallegan blómvönd handa mér! Fyrstu vinkonunni sem hann eignaðist á Íslandi, sagði hann. Ég heimtaði að þau hjónin kæmu í kaffi í nokkrar mínútur, stelpurnar í kókómjólk og kisuklapp. Þegar þau voru farin hugsaði ég um vælið í mér í bloggfærslu gærdagsins ... um að geta ekki skoppað í vinnunni á morgnana án þess að leggjast í kör eftir hádegið. Ég var ótrúlega spræk þarna í kringum hádegi í dag.

 

Á leið til vinnuAhhh, ég hef greinilega skrifað mig út úr verkjunum, hugsaði ég. Kláraði að setja í uppþvottavélina, hafði bara bakheilsu til að elda í gær, setti vélina í gang og hugsaði með tilhlökkun til að hitta Hekls Angels-vinkonurnar. Við ætluðum aldeilis út að spóla á vélhjólunum okkar með heklunál í annarri og kaffibolla í hinni. Ég var viss um að ég næði að brjóta saman þvottinn áður en ég þyrfti að fara út. Það var eins og ég hefði aldrei verið bakveik! Þá byrjaði ég að hnerra kröftuglega ...

 

Ég afboðaði mig í Hekls Angels-túrinn hálftíma seinna, hafði spreyjað kvefdrepandi meðali í hálsinn og skömmu síðar áttaði ég mig á því að höfðu verið blómin sem gerðu þetta óvænta kraftaverk á heilsu minni. Gleðin yfir blómvendinum hafði virkjað einhver hamingjuboðefni í heilanum sem leiddu svona skemmtilega niður í bak. Einhvern veginn þarf ég að sjá til þess næstu daga eða vikur að fá óvæntan blómvönd á klukkutíma fresti - eftir hádegi.

 

FjandiÁ Facebook:

Ég setti mynd af mér á Facebook með manninum sem gaf mér blómin í dag. Hátt í milljón læk eru komin og athyglisverðar umræður fóru í gang. Er þetta löggan? spurði ein - en í spjalli gærdagsins um bloggfærslu gærdagsins réði hún mér frá því að næla mér í löggu. Hún kvaðst hafa prófað það fyrir mig, meira að segja tvisvar, og það ekki gengið upp. Sennilega er ég nærsýnni en hún, mögulega heyrnarskertari líka (allavega í háværri tónlist) svo þetta gæti gengið hjá mér og svo á ég líka frænku sem er gift alveg frábærri löggu ... en Ragna von DV kvaðst þarna í umræðu gærkvöldsins þekkja nokkrar löggur sem kæmu til greina fyrir mig, hún skyldi finna einn sætan. Ragna, það eru komnir meira en 20 klukkutímar ...

 

NetfrægðarpersónaÉg hafði reyndar sett á statusinn um blómin og manninn í dag: „... og áður en þið missið ráð og rænu af spenningi - konan hans tók myndina og hún fékk líka blóm.“ Samt komu svona athugasemdir.  

 

Fyrir 14 árum setti ég eftirfarandi á fésbókina:

 

...gúglaði að gamni hvaða lag var í 1. sæti Billboard-listans daginn sem ég fæddist. Það reyndist vera Poor Little Fool með Ricky Nelson.“

Eitthvert árið mun ég herða upp hugann og hlusta á þetta lag. Mig minnir að ég hafi tekið þátt í leik sem gaf í skyn að lagið myndi segja til um hvernig líf mitt yrði, hvernig persóna ég yrði eða eitthvað slíkt. Vona samt ekki. 

 

Í gær sá ég mesta kaffinörd landsins dásama (á fb) kaffitegund nokkra ÞRÁTT FYRIR að kaffið væri nokkuð mikið brennt (sem ég, kaffiplebbinn, elska).

Bóndadagskaffi frá Kaffistofunni sem er eitthvað nýtt kaffifyrirtæki sem ég vissi lítið sem ekkert um. Hef þó séð einhverjar auglýsingar en þurfti þessa ábendingu til að láta vaða. Ég tek alltaf mark á nördum, pantaði hálft kíló af því og fæ það sent innan tíðar upp að dyrum. Rosalega hlakka ég til.

 

Gef kaffiskýrslu hér, auðvitað, enda búin að fá endanlega sönnun fyrir því að ég er alvöruáhrifavaldur. Sjá mynd sem vill virkilega meina að ég eigi að vera netfrægðarpe-rsóna, það vill véfrétt himnaríkis alla vega meina. Hvenær hefur henni skjátlast? Aldrei. 


Sólarlagsárin í endurskoðun og hreyfingarsamsærið mikla

Einkennishegðun eftir löndumDagur 2 í kennslu búinn ... ég fékk far heim og veitti ekki af. Fékk fasteignasala í heimsókn og þurfti að fínisera allt, er þó alls ekki ákveðin í því að selja og flytja. Borgin togar samt svo ótrúlega fast, ættingjar og vinir, óreglan, djammið, Katalína, hætturnar, sérsveitin, dýralæknar ... Starfið sem leiðbeinandi heldur fast í mig á móti, fólkið hérna, Inga, mömmur.is og fleira dásemdarfólk, Einarsbúð og ÚTSÝNIÐ ... en sjáum til, sjáum til. Það þarf að koma hárrétt íbúð í bænum, ódýr en samt fullkomin á besta stað, og rétt verð á himnaríki. Hver borgar svo sem ekki vel fyrir óheft útsýni næstum til Ameríku og flotta íbúð í fullkomnu standi. 

 

Mynd: Fólk dansar úti á götu, kannski í S-Kóreu? Afskaplega vinsælt og mörg myndbönd af litlum krökkum sem dansa ótrúlega vel með þeim fullorðnu. Í Svíþjóð of oll pleisis er mjög vinsælt að syngja saman! Það eru víst heilu sjónvarpsþættirnir í gangi þar og forsöngvarar í sjónvarpinu fá fólkið heima í stofu til að syngja. Á sumrin samsöngur í stórum görðum. Ég trúi þessu samt ekki fullkomlega. Svo læddist að minning um þættina Tökum lagið ... Tók ég ekki þátt í þeim sem meðlimur í Kór Langholtskirkju? Jú, einmitt. Getur verið að þetta sé sterkt þjóðareinkenni Svía, eða bara eitt af þeim? Hafa hin Norðurlöndin og þá sérstaklega við Íslendingar eitthvað í svipuðum dúr? Tökum lagið var sýnt fyrir löngu en sennilega gætu spurningaþættir komist næst því, bæði Útsvar og Spurningakeppni framhaldsskólanna fengu metáhorf og ýmsir þættir af svipuðum toga enn í gangi.

 

Skólakrakkarnir mínir eru algjört æði eins og venjulega og nú veit ég að Pólverjar eru hrifnari af diskói en rokki (GMG) ... en þegar kemur að þessu síðarnefnda koma Úkraínumenn sterkir inn. Þeir földu sig alla vega ekki undir borði þegar ég spilaði fyrstu hálfu mínútuna af Hel með Skálmöld, flottasta lagi í heimi. Á morgun fá þau meiri músík, sennilega Kaleo, Bríeti eða GDRN, Palla eða Helgu Möller, það þarf einhver að ala upp í þeim íslenskan músíksmekk um leið og íslenskunni er lævíslega laumað inn. Er mjög opin fyrir tillögum að góðri músík, elskurnar. Það er skemmtilegast að hafa skóladagana (morgnana) fjölbreytta, ekki bara íslenskustagl ... ég fer í raun ekki fram á meira en að þau geti sagt Eyjafjallajökull skammlaust, já, og kunni að panta sér ís. En mikið rosalega finnst mér þetta skemmtileg vinna; áhugasamt og skemmtilegt fólk sem kennir mér líka svo mikið. Þjóðernin eru bara fimm að þessu sinni, ekki níu eins og síðast. Karlar í meirihluta núna sem ég kvarta ekki yfir. Konurnar algjört æði líka, auðvitað. Eiginmaður einnar þeirra, fyrrum nemandi, gerði sér lítið fyrir og hirti mig upp þar sem ég reikaði máttvana um í hálkunni og sköflunum áleiðis að Bónushúsinu til að ná strætó þar. Það dásamlega skutl gaf mér aukahálftíma til að flokka í fatahenginu. Ég á of mikið, nú verður hellingur settur í poka og gefinn á góðan stað. 

 

Sue Ellen, Bobby, Pamela, Lucy og JREitt verð ég að viðurkenna. Eftir hopp og skopp í tvo tíma var ég búin á því í gær og bakið að drepa mig í dag líka. Á ekki að vera svo hollt að hreyfa sig? Hef ég kannski uppgötvað stærsta samsæri í heimi? Að hreyfing sé bara bull, eingöngu hvatt til hennar til að skurðlæknar græði stórfé á því að setja gerviliði í síðmiðaldra fólk sem hefur farið aðeins of oft upp og niður Esjuna? Kæmi mér ekki á óvart.

Ég lá á hitapoka nánast allan daginn í gær, tók svo íbúfen og gat klárað verkefni í tölvunni fyrir svefninn. Þetta getur ekki verið aldurinn (sjá Madonnu, systur mínar og vinkonur) en líkaminn gæti verið í sjokki núna eftir öll rólegheitin síðan síðast (okt-nóv). Getur kannski verið að regluleg hreyfing Á HVERJUM DEGI haldi manni liðugum? Njeeee, varla, allt of einföld skýring. Hallast að samsærinu. 

Á meðan ég er ekki búin að læra nöfnin á skólakrökkunum mínum, verð ég að fara nær borðunum þeirra til að sjá heimaföndruð nafnspjöldin á hverju borði og það heldur mér skoppandi um skólastofuna, ég gæti auðvitað tekið kíki með mér. Finnst hálfhallærislegt að rúlla mér um allt á skrifboðsstólnum. Hlaupahjól kæmi líka til greina en guðsheygafflarnir (fæturnir) verða sennilega að duga. Og íbúfen. 

 

MYND: DALLAS! Hér sjáum við Dallas-gengið. Frá vinstri: Sue Ellen, Bobby, Pamela, Lucy og ekki-JR (JR lést árið 2012, ég gúglaði), man ekki eftir fleiri persónum, enda gafst ég upp eftir aðeins hundrað þætti. Pamela er gift lýtalækni og því svona ungleg. Myndin tengist textanum fyrir ofan aðeins óbeint.  

 

 

Annars þarf ég að hekla mér lítið símaveski og bera á mér gemsann á þessu skólaskoppi mínu til að skrefin telji. Í dag slefa ég rétt yfir tvöþúsund skref - enda lítið talið þegar síminn liggur kyrr á kennaraborðinu. Samt fjórföldun á meðaldegi, slúðrar síminn minn. En ekki er allt sem sýnist. Ég var virkilega á fullu í tvo tíma áðan, sko heima, ganga frá hlutum, flokka og hlaupa á milli herbergja. Á meðan stóð síminn, hátt stilltur, miðsvæðis í Himnaríki og ég hlustaði á Utangarðsbörn eftir Kristinu Ohlsson, fyrstu bókina í flokknum (löngu búin að lesa hana og fleiri eftir sama höfund en gaman að hlusta, rifja upp) Næsta kemur 15. apríl, jesssss.

 

 

Veldur mrna bílslysumFyrsta bókin um Erlend (eftir Arnald Indriða) er líka á leiðinni og ég ætla sko að hlusta, ég á þær flestar og langt síðan ég endurlas þær upp á gamla mátann. Það er lyginni líkast hvað maður dettur inn í undanlegan dáleiðslugír þegar lesið er fyrir mann (ef lesarinn er góður og ofleikur ekki), held að Himnaríki væri reglulega í rúst ef ég hefði ekki þessa húsverkaaðstoð sem Storytel veitir. Svo á ég lesbretti líka sem er gott í strætó og ferðalögum, létt og þægilegt, en ég er líka að komast upp á lagið með að nota lítil heyrnartól (ekki þráðlaus) á gemsann og hlusta á sögur í strætó og þegar ég geng (sjaldan). Henning Mankell er kominn í röðina, sé að sjöunda bókin um Kurt Wallander kemur út um miðjan maí og hlakka til að hlusta, búin að steingleyma öllum þessum bókum sem ég gleypti í mig hér áður fyrr. Það er kosturinn við að lesa hratt. 

 

Lagðist á hitapoka seinnipartinn til að geta svo eldað, það kom sér líka vel bakbelti úr Eirbergi, fokdýrt helvíti ... en það náði að halda skrokknum saman við eldamennskuna. Hafði ekki tekið verkjalyf síðan 28. desember (daginn fyrir svæðanuddið) fyrr en í gær og svo aftur eftir kvöldmat í dag. Er samt alltaf þakklát fyrir að ekkert sé að mér nema bakvesen og það venst alveg, hef staðið í því frá unglingsárum og fengið í bakið bæði tággrönn og tágfeit en líst ekkert á að vera nánast komin í kör ef ég dirfist að skoppa um þegar lífið krefst þess. Skyldi ég komast á Hekls Angels-fundinn á morgun?

 

Eldum rétt í kvöldEftir allar þessar morð- og löggusögur undanfarið hef ég snarlega endurskoðað drauminn um sólarlagsárin mín (80 plús). Hafði ætlað mér að næla í sæta löggu á eftirlaunum ... og saman gætum við leyst flókin mál sem lögreglan gat ekki. Við gætum fengið gáfuðustu vini okkar til að koma, t.d. á sunnudögum, hann gæti eldað (lögga OG kokkur) og við myndum spjalla um krufningar yfir forréttinum, morðaðferðir yfir aðalrétti og mismunandi blóðmynstur eftir gerð hnífstungna, þegar desertinn kæmi á borðið. Yfir kvöldkaffinu myndum við síðan í sameiningu ramba greindarlega á rétta lausn og lauma henni svo til lögreglunnar gegn því að mæta aldrei og biðja okkur um að lækka tónlistina ef grannarnir kvörtuðu. Hann myndi elska Skálmöld, Dimmu, Metallicu og Bach ... Ég myndi ekki tíma að deyja næstu áratugina, það væri svo gaman hjá okkur. EN ... löggurnar í bókunum sem ég hef verið að lesa síðustu mánuðina eru meira og minna snarruglaðar ... og „glíma við sína djöfla“ (dóp, drykkja og framhjáhald er ekki það versta). Sænska lögreglan (í bók) var t.d. næstum búin að drepa grunaðan mann, lækni og allt, (skotið hitti aðra manneskju) eftir að félagi þeirra var myrtur af allt annarri persónu sem náðist skömmu síðar. Ósofnar löggur að drepast úr þynnku og móral eru líklegri til að skjóta fyrst og spyrja svo.

 

MYND: Eldum rétt var æðislegt í kvöld. Ég hafði tekið mér tveggja vikna pásu frá eldamennsku og keypti Eldabuskuna, tilbúna rétti, þurfti bara að hita. Fínir kjúklingaréttirnar en lasagne-ið í síðustu viku var of salt ... ég er frekar viðkvæm fyrir salti svo eflaust hafa flestir verið í skýjunum. Myndin sýnir ER-dásemd kvöldsins sem var auðvelt og fljótlegt að búa til ... en bakið hefði nú samt þegið tilbúinn mat. Seinnihluti bloggins er skrifaður í íbúfenvímu svo ekki fara í mál við mig ef ég hef sagt eitthvað óviðeigandi eða birt mynd sem passar ekki við textann.    


Bollukaffi í bænum, magnaðir samkvæmisleikir og allt þar á milli

Bollukaffi, helmingur séstBollukaffi var haldið með pomp og prakt í Kópavoginum í dag og það var stranglega bannað að telja bollurnar ofan í mannskapinn. Þær voru sérlega vel heppnaðar. Systir mín notaði uppskriftina frá mommur.is og lét ekki undan þeirri freistingu að opna ofninn of snemma, enda urðu bollurnar mjög fallegar. Ekki bara helmingurinn, eins og hjá mér eftir að neðri platan féll (bollurnar á neðri plötunni). Það var sjálfsafgreiðsla hjá Hildu ... við settum sultu, rjóma og glassúr, eða karamellubúðing, súkkulaðirjóma úr sprautu (fæst víst í sumum Krónubúðum í bænum), Nutella (ekki ég), alls konar glassúr og læti. Stráksi var himinsæll og hesthúsaði margar, margar.

 

Mynd: Skjáskot úr snapchat, mér láðist að taka mynd! Vildi sýna sérlega velheppnaðar bollurnar. Hægra megin á borðinu var glassúrúrvalið með meiru en sést ekki ... sorrí.

 

SamkvæmisleikurÞað reyndust vera svefnlyf (sykur?) í bollunum og hluti heimilisfólks lét sig leka ofan í sófa og stóla hist og her og að minnsta kosti ein manneskja náði að sofna í um fimm mínútur, ekki ég. Það var aftur á móti rosalega erfitt að halda sér vakandi á leiðinni heim í strætó. Sami ljúfi úkraínski bílstjórinn keyrði báðar leiðir og fórst það vel úr hendi.

Mér varð hugsað til Halldórs fjanda sem sendir mér yfirleitt um þetta leyti árs: „Til hamingju með daginn þinn.“ Hugsa að hann eigi við sprengidaginn, vér bomburnar höfum svolítið eignað okkur þann dag.

 

Í bollusvefndrunganum var gaman að skruna niður Facebook, sjá hversu margir væri í bollukaffi en rakst skyndilega á samkvæmisleik, nokkuð skemmtilegan. Hann tengist aðlinum, hefðardúllum, eins og Borghildur myndi orða það, og er því ögrandi og spennandi fyrir konu með blátt blóð í æðum. Já, hvað myndi ég heita ef ég væri lafði, eða lady ... þetta var eiginlega á ensku svo ég notaði það mál, nema ég veit hreinlega ekki hvað rjómabolla er á ensku, kannski cream puff. Fremst er Lord eða Lady, eftir því hvers kyns maður er. Síðan nafn gæludýrs síns. Ég kaus Krumma einhverra hluta vegna, hefði getað verið Mosi eða Keli líka. Fyrir aftan nafnið var það síðasta sem ég borðaði (rjómabolla) og síðan OF og síðast nafnið á búðinni sem ég verslaði síðast í. Lady Krummi rjómabolla of Verslun Einars Ólafssonar ... væri tilkomumikið en ég nota bara Einarsbúð af hógværð minni. Reyndar er Krummi Cream Puff líka flott. Ein af ótal mörgum systrum mínum hafði líka kommentað, greinilega verslað í Iceland og drukkið búst. Svona getur maður nú fylgst með ættingjum sínum án þess að þeir viti. Njósnamyndavélar hvað!

 

Fyrstu fjögur orðin ...Svo var annar mjög skemmtilegur og áhugaverður leikur í gangi líka - svona orðaleit. Fyrstu fjögur orðin sem maður finnur lýsa því hvernig árið 2024 verður - möntrur ársins sem sagt. Ég vissi auðvitað fyrir hvernig árið yrði, spurði véfréttina góðu. Ég verð mjög rík, eignast bæði mann og tvíbura, jafnvel sportbát líka, ef ég man það rétt. Engu að síður gat ég ekki stillt mig um að finna þessi fjögur orð sem gekk ótrúlega hratt og vel fyrir sig:

 

1. WCCEYVOP

2. AMFAH

3. LIMLYB

4. ZORWKIJOS

Ég hef svo allt árið til að finna út úr því hvað þau þýða en það efsta gæti verið rússneskuskotið (CCP-legt), en árið verður enn meira spennandi en ég átti von á.

 

Skálmöld og kórinnÁ morgun kl. 9 stundvíslega hefst íslenskunámskeið fyrir útlendinga og ég hlakka svo til. Það er svo gaman að kenna fólki alls staðar að úr heiminum, síðast voru þjóðernin átta eða níu (Þýskaland og Kína komu ný og fersk inn). Fólkið er upp til hópa mjög áhugasamt, eins og það viti að tungumálið er lykillinn að svo miklu betra og auðveldara lífi. Ég segi þeim eins og satt er að íslenska sé hreint ekkert erfið, miðað við mörg önnur mál, ég þarf sjálf ekki annað en að hugsa til Frakklands til að finnast einhver ómöguleiki (ég er að breytast í Bjarna Ben) í því að læra frönskuna þótt hún sé svona svakalega falleg. Þýsku hef ég sungið í gegnum tíðina í kórum lífs míns (vantar bara Skálmaldarkórinn á ferilskrána) og hún virkar alls ekki erfið á mig. Myndin f. ofan er skjáskot af tónleikum Skálmaldar og Sinfó fyrir mörgum árum. Flotti kórinn er efst á myndinni og eins og sést er sannarlega pláss fyrir eins og eina vana kerlingu nú í nóvember.  

 

LeiðbeinandiEf ég væri ekki nýkomin úr bænum og þyrfti að fara snemma að sofa myndi ég baka bollur og fara með til að gefa nemendum í frímínútunum. Bolludagur er æði, allt of langt síðan jólin voru og allt of langt til páska, en ég hef kannski gert aðeins mikið úr honum við suma erlenda vini mína og ... nemendur. En í alvöru talað, þetta lífgar upp á veturinn. Verð svo með Eldum rétt á þriðjudaginn, ekki saltkjöt og baunir, kann ekki að búa það til, og tek ekki þátt í öskudegi lengur svo bolludagur er aðal þótt ég efist um að ég fái mér bollur á morgun, eftir bakstur sjálf um síðustu helgi, bollur frá úkraínska krúttinu niðri og svo ómælt magn af bollum í dag. Allt vatnsdeigs ... held að gerbollurnar séu vart fáanlegar lengur, þær voru aðalbollurnar í æsku minni. Mögulega ekki búið að finna upp vatnsdeigsbollur þá. Já, ég man nú tímana tvenna, börnin mín. MYND: Ég er leiðbeinandi, ekki kennari, og að öllu öðru leyti er myndin röng, fannst hún bara fyndin. 

 

Facebook: Mér tókst að stilla mig um að kommenta í dag ... ekki einu sinni á lygasögur og rangfærslur. Ég reyndi að horfa blíðlega á bullið, skruna fram hjá og halda áfram að vera glöð. Fólk ætti samt að vita að það er t.d. ýmislegt gert fyrir heimilislausa, það fer einn og hálfur milljarður í málaflokkinn á ári og þrjú gistiskýli í Reykjavík en Reykjavíkurborg stendur ein undir þessum kostnaði, hefur mér sýnst. Ég gagnrýni borgina helst fyrir að vera ekki duglegri við að leiðrétta bullið sem fólk deilir án þess að vita nokkuð um málið.

Svo veit ég um kirkjudeild í Kópavogi (skrifaði grein um hana í Vikuna eit sinn) sem prjónar á fullu allt árið eitthvað hlýtt á útigangsfólk. Ég hef gefið hlýjar flíkur í ekki auglýstar safnanir (hjúkkunemi hér á Skaganum). Sumir vilja ekki láta bjarga sér, það er samt reynt og gengur misjafnlega.

Nú er reynt að halda því fram að ekkert sé gert, allt fari í hælisleitendur ... sem eru að stórum hluta Úkraínufólk, harðduglegt og allt meira og minna í vinnu!      


Steinhætt við að giftast

NetiðMuna-Muna-Muna, Gurrí, aldrei framar stinga litlu tánni niður í öskuhauga internetsins ... sem hafa stækkað til muna eftir að viss þjónn fólksins fór að tala um tjaldbúðir og glæpi í sömu setningu, sennilega (vonandi) án þess að átta sig á afleiðingum þess. Þá skrúfaðist frá einhverjum krana og ótrúlegasta fólk fór að stíga fram með óvæntar skoðanir, ekki endilega fallegar. Best að reyna ekki framar að leiðrétta rangfærslur, þá er maður bara ásakaður um að vera heilaþveginn RÚV-isti og bólusettur bjáni. Muna, muna, muna, til að halda lífsgleðinni.

 

Nokkru fyrr í dag varð ég mér eiginlega til skammar þegar ég ætlaði að vera voða fyndin á síðu þar sem meint leiðinlegheit Gísla Marteins voru til umræðu: „Svo er hann alltaf svo fjandi glaður,“ skrifaði ég í gríni og fékk viðbrögð eins og ég hefði tekið undir skammirnar í hans garð. Mjög misheppnuð tilraun til kaldhæðni, viðurkenndi ég bara, og uppskar góðlátlegan hláturkarl fyrir vikið. Þau viðbrögð hafa sennilega eflt þor mitt, hugrekki og dirfsku til að voga mér að efast um meint hryðjuverkatengsl manns sem kaus að fagna fjölskyldu sinni á flugvelli án þess að hafa myndavélar uppi í andlitinu á sér á meðan ... þá var hann örugglega sekur um eitthvað ... líka nógu brúnn á litinn til að vera hryðjó.

 

 

Facebook er orðin meiri forarpyttur en áður (er Trump búinn að kaupa fb?) Hef alltaf verið á þeirri skoðun að maður eigi að hafa fjölbreytt úrval fb-vina til að tryggja fjölbreyttar skoðanir og festast ekki í einhæfri umræður með eintómum skoðanasystkinum, en þegar einn og einn fb-vinur er farinn að deila algjöru drullumalli, held ég að ég verði að endurskoða það fyrst ég er svona viðkvæm fyrir þessu. Veit einhver hvað varð eiginlega um hvolpa- og kettlingamyndböndin?

 

GiftastÉg er líka steinhætt við að gifta mig aftur, sýnist nánast allir karlar á mínum aldri vera fullir af fordómum og alveg lausir við samkennd með fólki í neyð. Vona samt ekki. Óska þess innilega að samkenndin með Suðurnesjafólki haldist óskert, samkennd með veiku fólki haldist líka (ríkissjóður eyðir mest í sjúkrahúsin), og með atvinnulausu fólki (ríkið eyðir næstmest í það, tölur frá 2022, covid gæti hafa hækkað þær) öldruðum sem eru þriðji stærsti útgjaldaliðurinn (lífeyrisgreiðslur) og svo öryrkjum í fjórða sæti (lífeyrisgreiðslur). Fimmti stærsti útgjaldaliðurinn (2022) er heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa.

Man eftir lækni sem sagði í viðtali að íþróttafólk væri dýrast heilbrigðiskerfinu. Hann var að leiðrétta rangfærslur um að reykingafólk væri dýrast (áróðurinn var þannig á tímabili, man það af því að ég reykti þá). Við höfum svo sannarlega upplifað illsku og ömurlegheit út í öryrkja sem steinhætti svo alveg þegar flóttamenn komu til sögunnar og urðu blórabögglarnir. Hvort fangar lentu í þessu í millitíðinni, sagðir lifa algjöru lúxuslífi á kostnað okkar. Auðvitað er frábært fyrir stjórnvöld ef við kennum einhverjum öðrum en þeim um að innviðir okkar séu veikir en aðbúnaður aldraðra var ekkert til að hrópa húrra yfir hér áður fyrr og ég hef aldrei vitað til þess að öryrkjar hafi haft það sérlega gott.

- - - - - - - - - - - 

Grannkonan góða úr Nýju blokkinni mætti með seðjandi, rótsterka máltíð handa mjóu Gurrí sinni og þótt ég hafi ekki getað klárað það sterkasta er ég södd og sæl. Ég hafði ætlað að borða eitthvað snarl í kvöldmatinn, stráksi fékk upphitað uppáhald sitt svo þetta var letidagur í eldhúsinu. Okkur er svo boðið í bollukaffi á morgun í bænum. Nýja ryksugan sem var prufukeyrð í dag er dásamleg og allt annað að sjá himnaríki eftir að hún hafði sýnt kraft sinn og snilli (Electrolux). Munurinn á mottunum fimm er ótrúlegur og miklu fljótlegra að ryksuga með svona góða græju í höndunum. Samt venjuleg ryksuga, en sú gamla var sú allra ódýrasta í búðinni og frekar kraftlítil fyrir kattaheimili með teppum um allt, hún þjónar nú mottulausu heimili og sýgur ryk af fínasta parketi.

 

Smávegis nöldur í garð Sjónvarpsins, þótt ég sé víst heilaþvegin af RÚV:

Morgun kl 15 sést á skjánum í veðurfréttum - stundum og hefur gert lengi. Ætti þetta ekki að vera Á morgun kl. 15? Nöldur endar.

 

Íþróttahótel nærUm hótelið á hlaðinu - búin að rýna meira í myndina: Er ekki lengur viss um að Nýja blokkin hér við hliðina missi mikið útsýni, frekar yrðu það bláa blokkin og rauða blokkin á Garðabrautinni ef ég les rétt í þetta. Samkvæmt teikningu er þetta ekki svo nálægt hér. Fótboltamörkin á vellinum snúa nú í austur og vestur. Eftir breytingar munu þau snúa í suður og norður, eða þegar völlurinn verður færður og honum snúið um 180 gráður. Nýja hótelið verður fast upp við norðurmarkið, nema þetta sé hluti af íþróttamannvirkjum ÍA, kannski sundlaugin? En hvort sem er þurfa rúður hússins að vera skotheldar eða fótboltamennirnir sérlega mjúkfættir, held ég. Gestir hótelsins myndu sjá út á sjó, ef þetta er hótelið, en þurfa að horfa yfir heilan fótboltavöll fyrst, frá norðurmarki til suðurmarks. Það eru auðvitað ekki alltaf leikir en alveg stundum sko. Af  hverju var völlurinn ekki frekar færður, til norðurs og hótelið haft nær sjónum með útsýni út á Langasand? Eða bara hafa hótelið við höfnina? En ef þetta eru allt ÍA-mannvirki, hvar er þá hótelið, kannski niðurgrafið? Þegar ég skoða glærurnar sé ég bara myndir af Hótel Sigló, Guðlaugu, börnum að leik á Langasandi ... en ekki hótelinu eins og það á að vera nema á þessari mynd. Sennilega eiga eftir að koma nánari tillögur og síðan samþykki bæjarstjórnar en einhvers staðar í ferlinu verða bæjarbúar vonandi spurðir álits á þessum miklu breytingum á ásýnd Jaðarsbakkasvæðisins. Með crop-snilld minni tókst mér að sýna væntanlegt hótel svolítið nær. Skil samt enn ekkert. Kannski er þetta ekki einu sinni rétt mynd. Hvernig kemst maður á djúpnetið?  


Bollur að gjöf, glaði þjónninn og lúmska hótelbyggingin

Galito 9. feb.Glaðasti þjónn í heimi setti enn eitt drengjametið í skemmtilegheitum í kvöld þegar við stráksi skruppum á Galito. Þau eru reyndar öll mjög fín sem vinna þarna en þessi er svo fyndinn að hann fær alla til að hlæja. Hann hefur líka gott minni. -Þú færð þér alltaf það sama! sagði hann þótt vikur líði á milli þess sem ég borða þarna. (Hann er allt of ungur til að vera skotinn í mér) Og jú, ég fæ mér alltaf pönnusteikta þorskinn mínus döðluchutney. Stráksi fékk sér pítsu og kláraði 12 tommuna auðveldlega, fékk sér steikarloku síðast!

Þar sem styttist nokkuð í flutninga stráksa frá himnaríki þarf að búa í hvelli til geggjaðar minningar. Eru þær ekki það dýrmætasta sem við eigum?

 

Mynd: Maturinn góði. Bara til öryggis ... það var ekki vodka í glösum okkar.

 

„Það vantar appelsínusafa,“ tilkynnti stráksi þegar við stigum út, pakksödd og sæl og hann benti um leið yfir á Krónuna skammt frá. Við kaupum bara safann frá Sól, enda sá eini sem ekki er búinn til úr þykkni. Kíkið bara á smáa letrið. Aðeins einn var eftir í allri búðinni, í neðstu hillunni og ekki áberandi sem virkar þó ekki á okkur, og hann er kominn inn í ísskáp í himnaríki. „Páskaegg?“ gargaði drengurinn þegar hann sá nokkur lítil slík, innpökkuð í umbúðir í öllum regnbogans litum. Páskarnir koma í næsta mánuði. „Hvaða lit viltu?“ spurði ég. „Rautt egg,“ svaraði hann. Ég fékk mér túrkísblátt og málsháttinn Fátt er svo ágætt að eigi finnist annað slíkt. Eða, Ekki halda að þú sért eitthvað spes! Frekar hallærislegt í eyrum Þingeyinga. Annars fer ég helst ekki í Krónuna, ég kaupi mér oft sælgæti þar og ef það er til sælgæti, klára ég það jafnt og þétt. Ég sýni mun meiri stillingur þegar ég panta í Einarsbúð.

  

Bollur að gjöfBakið á mér mótmælti allri þessari hreyfingu og rétt áður en við komum heim var ég eiginlega farin að ganga afturábak, ég gekk svo hægt. Úkraínska grannkona mín hoppaði niður og opnaði dyrnar, hélt á fallegum diski með nokkrum bollum á - HANDA OKKUR STRÁKSA. „Ég er að reyna að halda í við mig,“ viðurkenndi hún og horfði svo á mig eins og ég væri tággrönn eins og hún.

 

„Ha, bakaðir þú íslenskar vatnsdeigsbollur?“ Ég var gáttuð en svo mundi ég eftir því að hún hefur verið hér í rúmlega eitt og hálft ár, auðvitað kann hún undirstöðuatriði íslensks lífs, eins og að halda upp á bolludaginn. Það langfyrsta sem maður kennir útlendingum.  

„Nja, ég gúglaði svona eclair-dæmi og setti svo krem inn í,“ játaði hún. Hún bjó til gat á bollurnar og sprautaði kreminu inn í þær, enginn rjómi sem lak ... snilldin ein.

 

Facebook rifjaði upp 12 ára gamla minningu: Það var þáttur um Vísindakirkjuna á RÚV sem ég ætlaði að horfa á, læra þannig hvernig ætti að stofna söfnuð, lokka þangað fólk, halda því þar og láta það borga mér fullt af peningum. Allir sem lækuðu og kommentuðu voru komnir sjálfkrafa í söfnuðinn en fengu afslátt. Ég var greinilega svo villt á þessum árum að ég hætti við þessa stórgóðu hugmynd innan við hálftíma seinna og það er eina ástæðan fyrir því að Söfnuður heilagrar Guðríðar varð aldrei til.

ÍþróttahótelFyrirhugað hótel við Langasand? Rétt teikning eða blekking? Alveg ofan í íþróttavellinum, beint fyrir ofan Guðlaugu. Vilja ferðamenn gista á hóteli sem stendur við íþróttavöll? Er lítið útsýni út á sjó frá hótelinu? Af hverju finnast ekki betri teikningar þegar maður gúglar? Þetta virkar ansi hreint lítið og vesælt á þessari mynd, kannski viljandi? Og ég bara trúi því ekki að eigi að vera enn einn fúlilækur (afsakið, lón) þar sem brekkusöngurinn hefur verið, þrettándagleðin, þyrlupallurinn, líkamsrækt. Og ef ég lít þetta jákvæðum augum, stutt að sækja sér latte-jákvæðni ... þá velur hótelstjórnin kannski að kaupa inn vont kaffi því duglegir sölumenn ónefnds fyrirtækis hafa eyðilagt fyrir manni ferðalög út á land, vegasjoppurnar sem halda allar að þær bjóði svooo gott kaffi af því að sölumaðurinn sagði það. Kaffið í Varmahlíð var reyndar mjög fínt síðast þegar ég fór þangað (Kaffitár). 

 

íslendingabókÉg finn fyrir mikilli andstöðu við þetta frá ótrúlegasta fólki sem hefur tjáð sig í kvöld. Sumir eru reiðir og tala um lítið eða ekkert íbúalýðræði hér, enda held ég að enginn hafi verið spurður álits á þessum stóru og miklu breytingar við vinsælasta útivistarstað okkar ... Við í himnaríkishúsinu getum ekki kvartað yfir því að missa útsýnið, en Nýja blokkin gæti mögulega lent í því, held ég. Fer samt eftir því hvernig húsið verður. Leyndin hjálpar ekki svo vonandi fáum við að vita sem fyrst hvernig þetta verður.

 

Nú gengur svohljóðandi Facebook-leikur:

Farðu inn á islendingabok.is og rektu þig í beinan kvenlegg allt til ársins 1801 og gáðu hvar formóðir þín bjó það árið.

Afritaðu þennan texta sem stöðu þína og skrifaðu sem athugasemd nafn þessarar formóður þinnar og bæinn sem hún bjó á 1801.

 

Formóðir mín í beinan kvenlegg var Sæunn Sigurðardóttir, fædd árið 1793. Þarna árið 1801 þegar manntal var tekið, var hún átta ára gömul og bjó á Innstalandi í Fagranessókn í Skagafirði. Hún var vinnukona, eignaðist fjórar dætur og sú yngsta, Margrét Magnúsdóttir er formóðir mín í fjórða lið.  

Sæunn lést árið 1845 á Reynistað, Staðarhreppi, Skagafirði.

- - - - - - - - - - - - - - - 

Ég er búin að steingleyma hvaða konungur er forfaðir minn (danskur, norskur?) en það var ótrúlega mikil nautn að sjá það viðurkennt í Íslendingabók. Blátt blóð, en blár litur er uppáhaldsliturinn minn sem er ekki tilviljun. Einhvers staðar er líka galdramaður meðal forfeðranna, eða maður sem gekk undir því viðurnefni en þegar ég fann hann kunni ég ekki að taka skjáskot og hafði ekki öðlast næga greind (sem kemur með árunum) til að taka hreinlega ljósmynd af skjánum. Kannski er búið að bæta leitarvélar Íslendingabókar? Prófa það kannski einhvern daginn.


Næsta síða »

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 243
  • Sl. sólarhring: 295
  • Sl. viku: 1724
  • Frá upphafi: 1454193

Annað

  • Innlit í dag: 202
  • Innlit sl. viku: 1439
  • Gestir í dag: 192
  • IP-tölur í dag: 189

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Feb. 2024
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29    

Nýjustu myndir

  • Draugar og uppeldi
  • Himnaríki sjór
  • Flutningar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband