Ótrúleg afköst og innslagið frá BBC ...

Í himnaríki í morgunVel- og glaðvaknað var í morgun og ótrúlegt hvað „vakn“ fimm mínútum fyrr en vanalega munaði miklu, engin hlaup og ekkert stress. Ég náði að baka nokkrar sortir, hreingera baðherbergið, prjóna hosur fyrir veturinn og skrifa fyrstu drögin að inngangi að formála um sögu fílsins í átta bindum ... og allt þetta áður en ég bjó til latte og fékk með hollustudótið mitt.

Við stuðningsfjölskyldur Línu kíktum á hana í gær og höfðum að láni túlk í klukkutíma til að spjalla við hana. Það var ótrúlega gaman ... annars hefur henni farið helling fram ... í uuuu ... enskunni eftir að hún kom. Og er spennt að læra íslenskuna sem hún kann nokkur orð í. Hún skellihló þegar ég sagði henni Allah-brandara ... um það þegar íslenski eiginmaðurinn öskraði yfir yfirfulla verslun eða markað í Marokko: „ALLA!!! ALLA MÍN, hvar ertu?“ og allir sneru sér forviða við og gláptu á þennan guðrækna mann.

Ein konan úr hópnum var í viðtali hjá BBC World og gaman að sjá m.a.  Báru og Dodda heima hjá henni og negla upp mynd ... og strákinn á heimilinu fara á hestbak „í sveitinni“ hjá Nínu, stofnanda stórverslunarinnar Nínu (þar sem Dorritt hefur verslað ...). Doddi ók í bæinn um daginn rétt áður en brjálaða veðrið skall á, frekar óvanur að keyra í Reykjavík, rataði ekki um í Breiðholti en fann samt yndislegu konuna sem gaf hjól fyrir stálpaðan strák (ja, fullorðinshjól). Strákurinn þráði hjól heitast af öllu. Ég fylltist afbrýðisemi fyrir hönd Línu þegar ég sá að "konan þeirra" er með uppþvottavél ... heheheh, nei, nei, uppþvottavélar eru ekki jafnsjaldgæfir gimsteinar og áður, það fylgdi t.d. með í kaupunum á himnaríki heilt stykki uppþvottavél sem ég elska mjög, mjög heitt. Þessi kona var bara jafnheppin og ég. 

Læt slóðina að innslaginu frá BBC World fylgja með ... þessi fréttakona var víst engu lík og það var upptökuliðið hennar sem þurfti að elta kvikmyndavélar um móa og mýrar í öllu rokinu um daginn. http://www.youtube.com/watch?v=olehN_FwJ4M

Vona að dagurinn ykkar verði skemmtilegur, spennandi, gefandi og guðdómlegur!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég verð svoldið "frústreruð" inní mér þegar ég hlusta á Magnús, honum er frjálst að hafa sína skoðun, en vá. Það eina góða sem dásamleg skoðun hans hefur haft í för með sér er að ég, t.d er miklu ákveðnari í að gera það sem ég get til að hjálpa þessu fólki að líða vel hjá okkur, vona bara að þau þurfi lítið við hann að sælda.

Harpa

Harpa (IP-tala skráð) 24.9.2008 kl. 08:30

2 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ég hlakka svo til að lesa sögu fílsins.......

Hrönn Sigurðardóttir, 24.9.2008 kl. 08:35

3 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hahhaah, Hrönn, með þessu áframhaldi næ ég að koma bókinni út fyrir jól ... jamms.

Sammála Harpa, Magnús hefur ekkert á móti flóttakonunum, hefur hann sagt, óttast bara að þeim gangi illa að aðlagast. Mér sýnist annað eftir þessar fyrstu tvær vikur og þar sem fólkið átti sér skelfilegt líf fyrir komuna hingað og sá ekkert fram undan þar, held ég að það eigi eftir að pluma sig vel á Íslandi.

Guðríður Haraldsdóttir, 24.9.2008 kl. 08:40

4 Smámynd: Daggardropinn

þakka fyrir fallega kveðju, hef stundum kíkt hérna inn og flissað, takk líka fyrir það.

Daggardropinn, 24.9.2008 kl. 09:20

5 Smámynd: Brynja Dögg Ívarsdóttir

Ekki taka þess illa, ertu eins og stormsveipur á morgnana?

Gott að flóttafókinu gengur vel, það er fyrir öllu, hvernig ætli þeim finnist veturinn á Íslandi.

Vonandi hafa þau hlý föt.

Hér er skýjað og hiti 24 stig og ogogo að koma rigning, ég ætlaði út að vökva,en jæja sleppi því.

Hafðu það gott, og takk fyrir kvittið á síðunni minni.

Kær kv

Brynja Dögg Ívarsdóttir, 24.9.2008 kl. 10:08

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Fyrirgefðu en ég skil ekki þetta sjónarmið MÞ.  Finnst það vera yfirklór.

Þegar fólk er búið að lifa í helvíti á mörkum þess að tóra þá er það tertubiti að aðlagast.

Flott myndband.

Jenný Anna Baldursdóttir, 24.9.2008 kl. 10:17

7 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Alveg er ég viss um að hann er hundfúll yfir hvað gengur vel og hvað fólk er almennt jákvætt 

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 24.9.2008 kl. 10:45

8 identicon

Sjúkk að þeir ákváðu að klippa minn hluta út úr innslaginu.   Takk fyrir hittinginn í gær, gott að fá túlk til að koma skilaboðum á milli okkar og að fá að kynnast Linu aðeins betur.   Sjáumst

Ella (IP-tala skráð) 24.9.2008 kl. 10:53

9 Smámynd: Laufey B Waage

Elskurnar reyniði líka að kenna nýfluttum Akurnesingum íslensku, - ekki bara ensku.

Laufey B Waage, 24.9.2008 kl. 10:57

10 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Laufey, við tölum núorðið bara við hana á íslensku, ensku í algjörri neyð, en ... hún bjargar sér sjálf í búðum og slíkt á enskunni og fólk er duglegt að koma á móts við hana þannig. Bráðum, eða eftir að hún byrjar á fullu í skólanum, verður íslenskan allsráðandi. En það verður gott fyrir hana að geta líka bjargað sér á ensku í framtíðinni.

Já, það er ALLT betra en þessi viðbjóður í tjaldbúðunum og að eiga í ekkert hús að venda. Hvergi! Hef séð á hatursbloggsíðum ótta við að "þessar konur" fari nú að flytja inn frændur sína og bræður, örugglega hryðjuverkamenn, sem muni sprengja Arabíu-Skagann í loft upp ...  Hahahahha. Stór hluti flóttafólksins okkar frá gömlu Júgóslavíu er reyndar múslimar, skilst mér, hef ekki orðið vör við svona ótta (fordóma) gagnvart því.

Guðríður Haraldsdóttir, 24.9.2008 kl. 11:12

11 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

það er auðvitað lykilatriði að þetta fólk læri íslenskuna til að aðlagast, Magnús hefur sínar skoðanir eins og við öll og við verðum bara að leyfa honum það ;) en ansi hefurðu verið dugleg í morgun stelpa, svona á að fara að þessu. Hlakka tiil að lesa sögu fílsins þegar hún kemur út núna fyrir jólin hehehehe

Vona sannarlega að eftir allt þetta að vinnudagurinn verði þér mildur

Guðrún Jóhannesdóttir, 24.9.2008 kl. 11:19

12 Smámynd: Brynja skordal

Brynja skordal, 24.9.2008 kl. 12:26

13 Smámynd: Sigríður  Ágústa Þórólfsdóttir

Rosalega flott myndband,vonandi sjá fleiri að það að hjálpa þessu flóttafólki setur ekki þjóðarskútuna á hliðina frekar mætti fara að spara í þessari gengdarlausu eyðslu stjórnvalda eins og að stofna eyríkjasjóð upp á 420 miljónir til að styrkja önnur eyríki til að draga úr fátækt hvernig væri að byrja heima hjá sér.Annars þið megið svo sannarlega vera stoltir stuðningsaðilar þessara fjölskyldna ÁFRAM SKAGAMENN

Sigríður Ágústa Þórólfsdóttir, 24.9.2008 kl. 13:55

14 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Alltaf gaman ad lesa bloggid titt.

Takk fyrir kíkkid

Kvedja úr danaveldi

Gudrún Hauksdótttir, 24.9.2008 kl. 14:32

15 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Hvað er málið með hann Magnús, það er alveg sama hvað hann segir  hann getur ekki leynt því hvað hann er fordómafullur, að reyna svo að klæða þá fordóma í búning umhyggju fyrir flóttafólkinu að hann haldi að þau geti ekki aðlagast á einu ári...

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 24.9.2008 kl. 18:02

16 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

"Arabíu-Skagann" - Mér þykir þú fyndin í dag

Hrönn Sigurðardóttir, 24.9.2008 kl. 19:24

17 identicon

Þú er snilli Gurrí beibí!

Anna Lára Steindal (IP-tala skráð) 24.9.2008 kl. 20:30

18 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Ekki er ég svona morgunhress, maður, ætti kannski að gera tilraun á morgun.....

Lilja G. Bolladóttir, 24.9.2008 kl. 21:19

19 Smámynd: Guðrún Ágústa Einarsdóttir

Innlits-kvitt

Kv Gunna.

Guðrún Ágústa Einarsdóttir, 24.9.2008 kl. 22:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 47
  • Sl. sólarhring: 400
  • Sl. viku: 1925
  • Frá upphafi: 1455317

Annað

  • Innlit í dag: 32
  • Innlit sl. viku: 1558
  • Gestir í dag: 32
  • IP-tölur í dag: 30

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Útlitið í Mjódd í dag
  • Elsku Geiri frændi
  • Jysk

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband