Frábær sunnudagur

Sjórinn 11/3 2007Flestir gluggar rennblautir í morgun, öllu heldur handklæðin í þeim ... og ekki nóg með heldur var rafmagnslaust! Hringdi (úr gemsanum, síminn óvirkur) í mág minn sem tjáði mér að hans megin á Skagnum væri rafmagn. Ég gaufaðist um íbúðina alveg ómöguleg og langaði ofboðslega í kaffi.

Girnileg bók beið mín reyndar en viðgerðagenið hrópaði á lagfæringar. Ég heyrði einhvern hávaða í stigaganginum, eins og ryksuga væri í gangi. Það tók mig bara eina sekúndu að fatta, sem er skammur tími hjá frekar hvatvísri manneskju, að fyrst hægt væri að ryksuga í þessu húsi þá væri rafmagn. Ákvað að ganga á hljóðið, jafnvel þótt ég væri óförðuð, og fann þar fyrir einn nágranna minn sem var ekki ánægður á svip. Heitavatnsrör hafði gefið sig og vatn flætt í kjallarann. Tækið sem ég heyrði í var þurrkblásari.

Takkinn sem á að vera uppi í töflunni var uppi svo að ég stökk aftur upp í himnaríki og leitaði að einhverju sem gæti hugsanlega verið rafmagnstafla, fann hana og málinu reddað.

Mögulega hefur rafmagnsvekjarinn minn blotnað í svefnherbergisglugganum og rafmagninu slegið út. En hva ... allt er orðið fullkomið aftur!

Nú sit ég við tölvuna með kaffi við hlið mér og horfi til skiptis á Silfur Egils (seinkuðum vegna rafmagnsleysisins) og æstan sjóinn. Hann er hvítfryssandi, eins og Egill, en öldurnar ekki sérlega stórar. Best að smella af mynd. Ef vel er gáð er ekki hægt að sjá heim til Guðnýjar Önnu, Helgu systur eða Laufeyjar.

TanntakaHann frændi minn hér á Skaga er gott efni í harðjaxl. Hann reif sjálfur úr sér jaxl um daginn. Jaxlinn var orðinn skemmdur og farinn að losna. Á föstudaginn varð frændi pirraður og ákvað að taka til sinna ráða.

Hann lýsti þessu fyrir mömmu sinni þannig að hann hefði tekið þrjár magnyltöflur til að deyfa sig, beðið í hálftíma, tekið töng úr geymslunni og ekki hætt fyrr en honum tókst að juða tönninni úr.

Nú bíður móðir hans eftir því að hann rukki hana um sjö þúsund kall!

Ég hef aldrei heyrt um svona áður. Krakkinn er 14 ára!  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ætli heimatannlækningar séu framtíðin. Ég meina að það kostar "an arm and a leg" að sækja þá læknisþjónustu.  Kannski kemur fólk til að hringja í nágrann og biðja hann að skutlast yfir, maður þurfi að losna við jaxl

Jenný Anna Baldursdóttir, 11.3.2007 kl. 14:19

2 Smámynd: bara Maja...

Fjúff allt að gerast hjá þér, þú náðir alveg 100% samúð minni þegar þú nefndir rafmagnsleysið og ekkert kaffi, vá það er slæmt ástand !  

bara Maja..., 11.3.2007 kl. 14:25

3 Smámynd: SigrúnSveitó

harðjaxlinn frændi þinn, er það bróðir Sigurjóns?

SigrúnSveitó, 11.3.2007 kl. 14:28

4 Smámynd: Pétur Þór Jónsson

Hörkunagli þessi frændi þinn.

Pétur Þór Jónsson, 11.3.2007 kl. 14:42

5 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Já, sveitamær, bróðir Sigurjóns! Hver annar! hahahhahaha

Guðríður Haraldsdóttir, 11.3.2007 kl. 14:51

6 Smámynd: Ólafur fannberg

leit við og kvittaði

Ólafur fannberg, 11.3.2007 kl. 15:21

7 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Ég sit nú og skrifa bókina: Do it yourself ... í tannlækningum. Hlýtur að verða metsölubók. Jenný gaf mér hugmyndina!

Guðríður Haraldsdóttir, 11.3.2007 kl. 15:27

8 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Ég fékk hvínandi tannpínu og kjálkaverk við að lesa þetta....svona er maður nú meðvirkur

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 11.3.2007 kl. 15:34

9 Smámynd: Bertha Sigmundsdóttir

Þá er bara að skrifa bókina og kalla hana Dentistry for Dummies... Það eru svoleiðis bækur fyrir allt hér í Ameríkunni. Hann er algjör harðjaxl 14 ára gamall, það verður áhugavert að sjá hvað hann tekur sér fyrir þegar kominn yfir tvítugt

Bertha Sigmundsdóttir, 11.3.2007 kl. 16:02

10 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hhehe, geri það, Bertha! Frændi á örugglega framtíðina fyrir sér, þessi elska.

Guðríður Haraldsdóttir, 11.3.2007 kl. 17:10

11 Smámynd: www.zordis.com

Rosalegur þessi drengur, frændi litli er JAXL!  Er að horfa á Garfield 2 á dvd núna ........... thi hi hi

www.zordis.com, 11.3.2007 kl. 18:17

12 Smámynd: Aðalheiður Haraldsdóttir

Úff!  Hef ekki heyrt svona sögu í töttögö og femm ár!  Sveitapiltur sem ég þekki var þá á svipuðum aldri og notaði grísatöng til að kippa úr sér tönn sem var byrjuð að losna.  Það er allt í lagi með hann í dag

Aðalheiður Haraldsdóttir, 13.3.2007 kl. 21:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 204
  • Sl. sólarhring: 380
  • Sl. viku: 2166
  • Frá upphafi: 1455869

Annað

  • Innlit í dag: 183
  • Innlit sl. viku: 1784
  • Gestir í dag: 180
  • IP-tölur í dag: 174

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Ástarsaga
  • Sofandi köttur
  • 1. maí fyrir nokkrum árum

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband