Ómannúðleg meðferð á flóttamanni! Hvað er í gangi á Íslandi?

Ekki hefur farið nógu hátt sú ákvörðun íslenskra stjórnvalda að reka nýbakaðan föður úr landi og aðskilja hann og fjölskyldu hans, konu og 3 vikna son. Hann hafði sótt um hæli á Íslandi sem pólitískur flóttamaður og ekki fengið svar við því, heldur var hann sóttur á heimili sitt í gær, skellt í fangelsi og sendur heim með flugvél í morgun. Mennirnir sem hlupu út á flugbrautina gerðu það til að mótmæla þessum ómannlega verknaði yfirvalda! Þó svo maðurinn hafi millilent í Frakklandi, þurfti þá endilega að nýta glufuna í lögunum til að losna við hann og mögulega senda hann út í í opinn dauðann? Hvaða firring er í gangi hjá okkur? 

kenía 

Sjá nýjustu færslu jennýjar Önnu: www.jenfo.blog.is)

Ég er búin að senda tölvupóst til Ingibjargar Sólrúnar og Björns Bjarnasonar og hefði eflaust gert miklu fyrr en fréttaflutningur hefði ekki verið svona lítill af þessu máli.

Mér er stórlega ofboðið, ég get ekki trúað því að við gerum svona!

Úr bloggi Jennýjar, hlekkir og fleira:

Hér er fyrri færslan mín um málið og hér er umfjöllun RÚV um manninn í gærkvöldi.  Sjáið líka hér.


mbl.is Hlupu út á flugbrautina á Keflavíkurflugvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Nú megum við skammast okkur

Hólmdís Hjartardóttir, 3.7.2008 kl. 11:13

2 identicon

Jesús... hvernig er þetta hægt?

Hvað er að þessum fávitum???  Greyið maðurinn, ég vorkenni honum - hvar er réttur hans?

I I (IP-tala skráð) 3.7.2008 kl. 11:17

3 identicon

finnst það svo dásamlegt hvernig við látum, fallegust, hreinust, ríkust, hamingjusömust, hjálpsömust.... við erum alltaf að telja upp hvað við erum góðhjörtuð og frábær..... en svo sendum við pólitískan flóttamann út í opinn dauðan með konu og nýfætt barn á íslandi, við kunnum ekki að skammast okkar... trúi ekki hvernig ríkisstjórnin kemur fram við almenning.

Íris (IP-tala skráð) 3.7.2008 kl. 11:18

4 identicon

Hvert er vandamálið ?

Fransman (IP-tala skráð) 3.7.2008 kl. 11:34

5 identicon

Svo erum við að flytja inn flóttafólk frá austurlöndum! Gaf þessi ekkert credit?

Sigfús (IP-tala skráð) 3.7.2008 kl. 11:39

6 identicon

Hvar var þessi nefnd sem allt varð vitlaust út af í fyrra vegna tengdadóttur Jónínu Bjartmarz? Þessi Kenýamaður er greinilega ekki nógu merkilegur penni að þeirra mati til að skoða málið að því er virðist skv. fréttinni. Er fólk á Alþingi og hjá Utanríkisráðuneytinu að gleyma sér í reglugerðarkjaftæði? Það er nokkuð ljóst að það er bara ekki sama hvort það er Jón eða Séra Jón.

Linda Björk Jóhannsdóttir (IP-tala skráð) 3.7.2008 kl. 11:41

7 identicon

Kom ólöglega og fer nú úr landi. Gott mál bara. Við erum með lög í þessu landi sem ná líka yfir útlendinga

óli (IP-tala skráð) 3.7.2008 kl. 11:41

8 identicon

Gurrý - Hefur þúkynnt þér málefni Ásu Hjálmarsdóttur eða heyrt viðtalið við hana og son hennar á Útvarpi Sögu hjá Ásgerði Flosadóttur? Talandi um mannúð

Helga Guðmundsd (IP-tala skráð) 3.7.2008 kl. 11:51

9 identicon

Það eiga margir bágt. Miljónir og aftur miljónir. Eiga þeir allir að koma hingað? Þið eruð svo mikil börn þetta vinstra vælukjóa lið!

óskar (IP-tala skráð) 3.7.2008 kl. 11:55

10 Smámynd: Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir

Því miður Gurrý þá millilenti hann ekki í Frakklandi, því þá væri von um miskunn. - Nei, hann millilenti á Ítalíu, og þar er nú hlutirnir svona og svona. -

Þarna er því miður brotið á þessum einstaklingi sem hefur sama rétt og allar mannveru í heiminum, að sæki hann um pólitískt hæli,  segja Íslensku lögin að Stjórnvöldum beri skylda til þess að umsókn hans sé tekin til meðferðar hjá réttum aðilum. - Hans umsókn hefur aldrei verið tekin til meðferðar. -

Svo þið kjánar sem skrifið undir nöfnunum Óskar og Sigfús það er ekki nema von að þið skiljið ekki um hvað málið snýst.  Þar sem ljóst er að greindarvísitala ykkar er ekki hærri en skónúmer ykkar. 

Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 3.7.2008 kl. 12:54

11 Smámynd: www.zordis.com

Hver er réttur fjölskyldunnar?

Ekki gott að koma ólöglega inn í landið en ég hefði haldið að hvert mál væri skoðað á óháðan máta.  Hef því miður ekki kynnt mér þetta mál og óska þess að móðir og barn geti hitt viðkomandi á nýjan leik.  Ef ekki á Íslandi þá á betri stað!

www.zordis.com, 3.7.2008 kl. 12:56

12 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk Gurrí fyrir að vekja athygli á málinu.  Nú er að vona að sem flestir láti í sér heyra.

Menn eins og Sigfús og Óli eru sem betur fer í dásamlegum minnihluta er ég viss um.

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.7.2008 kl. 13:04

13 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Er að fylgjast með þessu á ýmsum bloggum. Mér dettur helst í hug að það séu róbotar sem fjalla um þessu flóttamannamál, ekki fólk með sál og hjarta. 

Ásdís Sigurðardóttir, 3.7.2008 kl. 13:21

14 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Þetta er til háborinnar skammar og ekkert annað.

Helga Magnúsdóttir, 3.7.2008 kl. 13:28

15 identicon

Er ekki hægt að safna undirskriftum og biðja þessum manni griða, jafnvel á þeim forsendum að fórna megi nokkrum "plönkum" til útflutnings í staðinn?

Kolbrún Sig (IP-tala skráð) 3.7.2008 kl. 15:21

16 Smámynd: Ásta Björk Solis

thettad er nu ekki gott ad fretta svona af Islandinu bara sorglegt.

Ásta Björk Solis, 3.7.2008 kl. 16:18

17 identicon

Sorglegt mál  

Yfirvöldin okkar eru snögg að senda sakleysingjana úr landi ef þeir tilheyra ekki ESB en þurfa nauðug viljug að halda hlífiskildi yfir glæpaliðinu.  Er ekki kominn tími til þess að henda út þessum Schengen og EES samningum? 

Kolbrún Sig (IP-tala skráð) 3.7.2008 kl. 17:04

18 identicon

Eftir síðustu heilaþvottarárás á íslensku þjóðina er gerð var í kjölfar flóttamannamálsins á akranesi virðast flestir hafa snúist á þá línu að Ísland sé flóttamannaparadís og við séum illmenni ef við höfnum þeim sem vilja fá hæli hér á landi. Velferð Íslendinga skiptir þetta fólk alltaf minnstu máli.

Johnny Rebel (IP-tala skráð) 3.7.2008 kl. 19:34

19 Smámynd: Ragnheiður

Ég hef fylgst með þessum fréttum í dag, að mestu með tárin í augunum. Þvílík helvítis skrifræðisómannúðarþjóð, maður blygðast sín fyrir þjóðernið. Það segi ég satt og það er í fyrsta sinn á 45 árum sem ég hef gert það

Ragnheiður , 3.7.2008 kl. 20:29

20 identicon

Rebel, hálf þjóðin er komin með fjöldainnflutning útlenskra ESB farandverkamanna plús ótaldra glæpamanna upp í kok. 

Flest okkar eru þó góðhjörtuð og vildum gjarnan geta hjálpað þeim sem virkilega þurfa á aðstoð að halda, svo sem eins og þessu Kenyafólki  að ógleymdum palenstínsku flóttakonunum með börnin sín.  En því miður virðist fyrrnefndi hópurinn æskilegri hérlendis..

Kolbrún Sig (IP-tala skráð) 3.7.2008 kl. 20:34

21 identicon

Rétt hjá þér Kolbrún en munurinn er sá að Íslendingar hafa reynslu af því fyrrnefnda en voru ekki komnir með upp í kok þegar þetta byrjaði.

Eftir einhver X ár verður því eins farið með flóttamennina. 

Johnny Rebel (IP-tala skráð) 3.7.2008 kl. 21:31

22 Smámynd: Hrannar Baldursson

Ekki hlakkar mig til þeirrar stundar þegar Íslendingar þurfa hjálp erlendis frá. Það gæti reyndar verið stutt í það.

Hrannar Baldursson, 3.7.2008 kl. 21:49

23 identicon

Eftir ad hafa buid a Islandi med breskri konu minni og tveim bornum sem ekki toludu islensku kemur thessi afstada stjornvalda mer ekki a ovart.  Vid gafumst upp a ad reyna ad verda hluti af islensku thjodinni og thad hefur tekid langan tima ad baeta thau salraenu sar sem bornin okkar urdu fyrir vegna skolakerfisins og annarra stofnanna auk hins almenna utlendingahaturs sem vidgengst a islandi.  Islenska thjodin er mjog vingjarnleg og allir eru velkomnir ... svum uppro lengi sem their reyna ekki ad setjast ad.  Eg flutti til Islands til ad kynna bornin min fyrir uppruna theirra ... i stadin laerdi eg um raunverulegan uppruna minn, og var ekki stoltur.  Sem islenskur rikisborgari skammast eg min fyrir ad velja Bretland (sem tho er ekki oruggur stadur til ad ala upp born) fram yfir mina eigin thjod.  Eg vona ad rikid sjai ad ser og ad thessi madur fai aftur ad hitta konu og born og eg vona svo sannarlega ad Islendingar verdi ekki med thad a samviskunni ad madurinn lati lifid og ad litla barnid hans verdi fodurlaust.  Thad vaeri omurlegt.

Thorarinn Freysson (IP-tala skráð) 3.7.2008 kl. 22:11

24 identicon

Afhverju er maðurinn að sækja um dvalarleyfi sem pólitískur flóttamaður? Ef hann á konu (Íslenskan rískisborgara) og barn, þá er auðvelt að fá dvalarleyfi sem maki. Sjá http://www.utl.is/

       Það hlýtur að vera eitthvað meira um þetta sem ekki hefur komið fram. Það væri gaman að fá meiri upplýsingar.

Júlíus Loftsson (IP-tala skráð) 4.7.2008 kl. 03:05

25 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Þetta er til háborinnar skammar!! Íslensk stjórnvöld enn og aftur að skíta í buxurnar.....!!!

Lilja G. Bolladóttir, 4.7.2008 kl. 07:59

26 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Takk kærlega fyrir frábær komment. Vonandi breytist þetta attitjúd einn góðan veðurdag og við getum sem þjóð farið að sýna fólki sem á bágt einhverja mannúð. Þá er hægt að verða stoltur af þjóðerni sínu aftur.

Guðríður Haraldsdóttir, 4.7.2008 kl. 13:01

27 Smámynd: Sævar Einarsson

7: Kom ólöglega og fer nú úr landi. Gott mál bara. Við erum með lög í þessu landi sem ná líka yfir útlendinga
óli (IP-tala skráð) 3.7.2008 kl. 11:41

Eftir því sem ég hef lesið og fylgst með, þá rann löglega 3 mánaða dvalarleyfið hjá honum/þeim út á meðan umsóknin hjá honum/þeim dagaði upp í kerfinu og það finnst mér til háborinnar skammar. Svo var ég að velta því fyrir mér, er strákurinn ekki Íslenskur ríkisborgari ? hann fæddist á Íslandi.

Sævar Einarsson, 4.7.2008 kl. 13:25

28 Smámynd: Sævar Einarsson

Og eitt enn til að svara Óla: lög eru lög mikið rétt, og lög eru þannig gerð að þau eiga að virka í báðar áttir, ekki eftir hentugleika.

Sævar Einarsson, 4.7.2008 kl. 13:27

29 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Jú, barnið hlýtur að vera það, Sævarinn, það ætti að reyna leita allra leiða til að bjóða þessum hjónum ríkisborgararétt hérna en ekki reyna að finna allar glufur til að brjóta á réttindum hans sem manneskju. Setjum okkur bara í spór hans, hvernig ætli honum líði núna? Eða konunni hans?

Guðríður Haraldsdóttir, 4.7.2008 kl. 13:55

30 Smámynd: Sævar Einarsson

Ég hélt það, og ef svo er þá er ríkið að brjóta á réttindum barnsins, ég er ekki lögfróður drengur en einhverstaðar minnir mig að ég hafi lesið að það sé ólöglegt samkvæmt barnasáttmála að aðskilja foreldra frá barni.

Sævar Einarsson, 4.7.2008 kl. 14:26

31 Smámynd: Sævar Einarsson

Hvernig á maður að túlka þetta ? stendur einhverstaðar þarna eða er hægt að túlka það að fæðist barn á Íslandi öðlist það ekki íslenskt ríkisfang við fæðingu?

Sævar Einarsson, 4.7.2008 kl. 14:39

32 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Það öðlast ekki íslenskan ríkisborgararétt við fæðingu af því hvorugt foreldranna er íslenskur ríkisborgari"

"1. gr. [Barn öðlast íslenskt ríkisfang við fæðingu:
   1. ef móðir þess er íslenskur ríkisborgari,
   2. ef faðir þess er íslenskur ríkisborgari og kvæntur móðurinni. Þetta gildir þó ekki ef hjónin voru skilin að borði og sæng á getnaðartíma barnsins.
Barn, sem fundist hefur hér á landi, telst, þar til annað reynist sannara, vera íslenskur ríkisborgari.]1)"

http://www.althingi.is/lagasofn/nuna/1952100.html

(Meir að segja sínist manni að þó að faðirinn væri íslenskur ríkisbrgari hljóti barn ekki sjálfkrafa ísl ríkisborgararétt ef hann er ekki giftur konunni)

Þetta er bara svo hroðalegt mál.  Nú er séffinn hjá ÚTL að spinna upp eitthvað rugl í Kastjósi.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 4.7.2008 kl. 19:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 238
  • Sl. viku: 1486
  • Frá upphafi: 1453955

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 1242
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Sven-Göran
  • Hálka
  • Sumardagurinn fyrsti 2024

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband