Erla perla, karlar með gemsa og læknar pæknar ...

Stephen King GemsarPerlan hún Erla var á ferðinni við himnaríki um áttaleytið í morgun og kippti mér með í vinnuna. Ætlaði að fara að hoppa út og í strætó þegar ég mundi eftir þessum möguleika til að geta kúrt ögn lengur. Okkur gekk vel í bæinn, öll hálka farin, bara rennifæri ... en stöku bílstjóri um fertugt í símanum hélt niðri umferðarhraðanum á kafla. Gott hjá þessum körlum samt að hægja ferðina ... Þeir hafa greinilega ekki lesið bókina Gemsar eftir Stephen King þar sem allir klikkast og fylllast morðæði sem heyra einhvern tón í gemsanum sínum. Þessi hætta er auðvitað alltaf fyrir hendi. Eli Roth ætlar líkast til að gera mynd eftir bókinni ... held ég!

Hættu að reykjaFékk tíma hjá lækni í fyrramálið. Ætla ekki að segja henni  strax að ég reyki, athuga hvort hún fatti það sjálf. Læknar eiga til að hreyta í fólk að það eigi að hætta að reykja þegar það kemur vegna fótbrots eða flösu ... sumir segja foreldrum með hóstandi, kvefsækin börn að láta lóga heimiliskettinum (þótt eitthvað allt annað en ofnæmi ami að barninu), einn frændi minn fékk þá greiningu að hjartverkurinn sem hann fann fyrir stafaði af sorg (hann missti þrítugan son þremur árum áður) og svo dó hann skyndilega á sextugsaldri úr hjartveiki! Oft er það augljósasta líklega rétt ... en ekki alltaf. Veit um veika konu sem var "sjúkdómsgreind" af vinum og vandamönnum ... á breytingaskeiðinu. Hún fór nú samt til læknis þegar hún var alveg að hrökkva upp af ... og þriðji læknirinn sem hún talaði við sá hvað var að ... einhver sjúkdómur sem hún læknaðist af og er nú eldhress! Í fyrsta lagi á náttúrlega aldrei að láta vini og vandamenn sjúkdómsgreina sig ... en maður á heldur ekki að leyfa læknum að kveða upp einhvern dóm sem maður er ekki sáttur við.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Gangi þér vel hjá læknaranum ;) Ég er alveg viss um, að hann segir þér að hætta að fylgjast með hinum viðurstyggilegum sjónvarpsþáttum Bold and ..... horebúl eða terrebúl.

Kjartan Pálmarsson, 11.2.2008 kl. 12:48

2 Smámynd: Garún

Svo ertu örugglega bara pain prone eins og ég.   Og þeir eru ekki búnir að finna lyf við móðursýki síðast þegar ég vissi svo....

Garún, 11.2.2008 kl. 13:22

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þú ert með slæmt kvef ekki spurning, færð síklalyf og lofar að vera heima í viku, svo verður þú eins og ný.   Doctor 

Ásdís Sigurðardóttir, 11.2.2008 kl. 15:03

4 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Takk, doktor Ásdís ...

Kjartan gaf mér góða hugmynd. Ég ætla að spyrja lækninn að því hvort hóstinn geti stafað af Bold and the horreble ... í alvöru, alltaf gaman að sjá svipinn á fólki þessa örsekúndu sem það trúir bullinu ... múahahhaha já, svo spyr ég auðvitað hvort þetta sé ekki bara móðursýki, heheheh

Guðríður Haraldsdóttir, 11.2.2008 kl. 15:14

5 Smámynd: Ragnheiður

Hehe já en það er betra að fá úrskurð doksans...minn fékk allskonar ósmekkleg sýnishorn um daginn en hann sagði þó ekki að ég væri lasin af sorg.

Ragnheiður , 11.2.2008 kl. 16:02

6 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Guðríður Haraldsdóttir, 11.2.2008 kl. 16:13

7 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Gangi þér vel hjá lækninum Gurrí mín

Kristín Katla Árnadóttir, 11.2.2008 kl. 17:45

8 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Kjartan Pálmarsson, 11.2.2008 kl. 18:34

9 Smámynd: Guðný Jóhannesdóttir

Passaðu þig  bara á því að brosa ekki of blítt hjá lækninum. Menn i hvítum sloppum fá mig alltaf til þess að tala samhengislaust og brosa eins og asna. Þeir trúa því sjaldnast að eitthvað sé raunverulega að mér.

Mitt ráð er því ekki reykja í fyrramálið fyrir tíma, alls ekki hafa þig neitt til og bros er  bannað. Kemur trúlega út með þessa fínu greiningu

Guðný Jóhannesdóttir, 11.2.2008 kl. 19:50

10 identicon

Ég er steinhætt að treysta læknum. Þegar ég var rúmlega tvítug sagði heimilislæknirinn minn að ég væri með bjúg, á einum stað öðrum fæti! Ég át bjúgpillur af mikilli samviskusemi. Ekkert lagaðist, ég skipti um lækni og í ljós kom beinæxli á stærð við kaffibolla! Fimmtán árum síðar hringdi maðurinn minn á næturlækni þar sem ég var hroðalega kvalin. Hann horfði á mig kuldalega og tilkynnti okkur að ég væri stressuð og væri með ristilkrampa, gaf mér verkjasprautu og fór. Ristilkrampinn minn reyndist utanlegsfóstur og seinna um nóttina sprakk í mér eggjaleiðari. Ég hélt ég myndi deyja! Láttu ekki læknana segja þér neitt sem þú sjálf efast um. Gangi þér vel, Gurrí, mín, ég vona að þetta sé góður læknir sem þú ert að fara til.

Helga Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 11.2.2008 kl. 20:35

11 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Nú Helga hefur treyst lækni þótt hún ráðleggi þér að gera það ekki, seinna heimilislækninum greinilega!

Ég læknisbróðirinn og læknisföðurbróðirin veit hins vegar að ekkert er algilt og læknum skjátlast eins og öllum öðrum.

Hugsa hlýlega til þín gæskan eins og alltaf og sendi góða strauma ef þú skildir vera kvíðin!

Magnús Geir Guðmundsson, 11.2.2008 kl. 22:01

12 identicon

það er tannverkur í vinstri augntönn í efra gómi,dreymdi þetta.

jensen (IP-tala skráð) 11.2.2008 kl. 22:57

13 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Jahhhh, verð að viðurkenna að ég kvíði nú ekkert fyrir læknisheimsókninni. Ég fíla lækna eiginlega alveg í ræmur, finnst þeir sætir, gáfaðir, skemmtilegir og hálfgerðir guðir, jamms það er fólk eins og ég sem viðheld þessu með guðadæmið!

Svo eru þeir alveg dýrlegir læknarnir hér á Skaganum, hreint alveg frábærir. Nema ungi læknirinn sem neitaði að láta nægja að kyssa á bágtið þegar ég slasaði mig á ógæfumölinni, hann ætlaði sko að sauma!

Guðríður Haraldsdóttir, 12.2.2008 kl. 09:48

14 identicon

Sæl Gurrý mín ,vona að þú sért ekki alvarlega veik, en meðal annara orða þá veist þú að Aloevera safinn er lífsinis elexsír, og styrkir ónæmiskerfið þitt .Bestu kveðjur ,gaman væri að heyra frá þér (prívat).Jónína 

Jónína Ingólfsd (IP-tala skráð) 12.2.2008 kl. 11:03

15 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Innlits-kvitt

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 12.2.2008 kl. 11:39

16 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Jæja hvernig gekk hjá þeim sæta?

Edda Agnarsdóttir, 12.2.2008 kl. 13:59

17 Smámynd: Kolgrima

Góð!

Kolgrima, 12.2.2008 kl. 14:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 472
  • Sl. sólarhring: 545
  • Sl. viku: 2422
  • Frá upphafi: 1457175

Annað

  • Innlit í dag: 415
  • Innlit sl. viku: 2070
  • Gestir í dag: 381
  • IP-tölur í dag: 368

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Elsku Tommi
  • Elsku Tommi
  • Mamma hjúkka

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband