Þegar Sverrir Stormsker kyssti Evu frænku ...

Sverrir StormskerEva frænkaMyndi örugglega ekki falla í yfirlið þótt David Beckham kyssti mig, held ég, færi kannski eftir hárgreiðslunni hans. Ekki leið yfir hörkukvendið mig þegar aðalgæinn í Uriah Heep kyssti mig á kinnina eftir tónleikana á Hótel Íslandi 1987.

Mér finnst mun merkilegra að þegar Eva frænka var kysst af Sverri Stormsker féll hún í öngvit ... sjúkrabíll og allt! Þetta stafaði reyndar ekki eingöngu af kynþokka og dásamlegheitum Sverris, hann var bara ekki nógu sætur til að halda uppi blóðsykri hennar.


mbl.is Féll í yfirlið við koss frá Beckham
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Nei, kannski ekki við koss frá Beckham en möguleikarnir eru óendanlegir Gurrí mín, hvað með Gerard Butler, Clive Owen, Jason Stratham og fleiri og fleiri.

Steingerður Steinarsdóttir, 13.2.2008 kl. 13:28

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég veit að ef aðalgaurarnir í Status Quo mundu kyssa mig á kinn þá mundi ég kikna í hnjánum.   Lips 

Ásdís Sigurðardóttir, 13.2.2008 kl. 13:47

3 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Aaaaahhhh, hversu margar féllu nú ekki í yfirlið og sprengdu í sér hljóðkútana umvörpum hér í "den" bara við að SJÁ Bítlana eða Rollingana!?

Þetta hefur bara borið viðkomandi ofurliði að hitta "Dillibossaboltastrákin"!

Annars held ég að u.þ.b. 32% meiri líkur væri á að ég félli í yfirlið við að kyssa þig Gurrí, en öfugt!

Magnús Geir Guðmundsson, 13.2.2008 kl. 14:14

4 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Kannski - og bara kannski - var Davíð svona hrikalega andfúll.....

Markús frá Djúpalæk, 13.2.2008 kl. 14:22

5 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

En þetta með Uriah Heep, þá merku sveit, þig og "aðalgæjan"?

VArstu að rembast við að leika "Grúppíu"?

Og ef ég reyni nú að reikna út þennan "aðalgæja", þá hlýtur það að hafa verið hinn dvergsmái, en jafnframt síbrosandi yfirskeggur Mick box gítarleikari, Hensley garpurinn var nú örugglega hættur þarna!?

Magnús Geir Guðmundsson, 13.2.2008 kl. 14:29

6 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Nei, Magnús, ég hamaðist við að vera ekki grúppía, stóð við sviðið og klappaði á meðan allir hinir reyndu að taka í höndina á honum. Svona græddi ég nú á því að vera ekki uppáþrengjandi aðdáandi. Eftir það hef ég látið eins og ekkert væri þótt ég hafi t.d. hitt Dustin Hoffman (New York), Valgeir Guðjónsson (Washington DC) og Björk (Reykjavik, Iceland) á förnum vegi.

Markús, örugglega!!!Og stelpur mínar efst, jú, ég myndi kikna í hnjáliðunum ef t.d. Jason Statham kyssti mig, hann er flottur ... og fleiri og fleiri ...

Guðríður Haraldsdóttir, 13.2.2008 kl. 14:33

7 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Og eitt enn, því já, ég er í smá stuði núna.

Skil mætavel og rúnlega það að Dísu húsvísku í DAlakofanum á Selfossi, skuli dreyma um kossa frá "Sjarmörunum" Rick Parfitt, Francis Rossi og Co. Þeir svo myndarlegir, að ef hún fengi þó ekki nema svona einn lítin "smell" á vinstri kinnina, þá nægði það til að hún dytti alveg út og kæmist varla aftur til fullrar meðvitundar!

Magnús Geir Guðmundsson, 13.2.2008 kl. 14:37

8 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Eins og Þórð og Ahh bú! Það eru sígild lög, algjörlega frábær!

Guðríður Haraldsdóttir, 13.2.2008 kl. 15:58

9 identicon

Það er svipur með þeim?

  tanta

tanta (IP-tala skráð) 13.2.2008 kl. 23:27

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hej ertu að segja mér að karlinn hafi kysst þessa íðilfögru mær.  Ég er guðslifandifegin að hún vaknaði aftur til lífsins eftir þau ósköp.

Jenný Anna Baldursdóttir, 14.2.2008 kl. 10:24

11 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Verður kannski komin út bók í vor sem heitir: Heitir kossar og afleiðingar í stuttu máli? Höfundur Gurrí? Bara að koma hugmyndinni að.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 14.2.2008 kl. 17:44

12 identicon

Ég las einhverstaðar í viðtali við Evu ég held í Vikunni að hún væri eldheitur aðdáandi Sverris Stormskers þannig að ég held að þetta hafi örugglega verið meira en bara blóðsykurskortur úr því að leið yfir hana ákkúrat um leið og Sverrir kyssti hana. Þetta getur ekki hafa verið tilviljun frekar en með stelpuna sem Beckham kyssti. Vinkona mín hefur lent í þessu sama og það var ógeðslega fyndið.

Hanna (IP-tala skráð) 15.2.2008 kl. 16:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sögur úr himnaríki

Höfundur

Guðríður Haraldsdóttir
Guðríður Haraldsdóttir

... ekki bara kattakerling

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 59
  • Sl. sólarhring: 334
  • Sl. viku: 1852
  • Frá upphafi: 1460835

Annað

  • Innlit í dag: 54
  • Innlit sl. viku: 1511
  • Gestir í dag: 54
  • IP-tölur í dag: 53

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Jörgen Klopp
  • Opið hús kl. 17
  • Dýrheimar kaffihús

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband